Morgunblaðið - 26.01.2019, Side 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
✝ GunnsteinnSæþórsson
fæddist í Prest-
hvammi í Aðaldal
12. október 1933.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands 18.
janúar 2019.
Foreldrar hans
voru Ragna Gísla-
dóttir frá Prest-
hvammi, f. 1. októ-
ber 1899, d. 17. janúar 1986, og
Sæþór Kristjánsson, f. 6. júní
1905, d. 2. janúar 1993. Systkini
hans eru Kristján, f. 23. júlí
1929, d. 2. febrúar 2011, Helga,
f. 21. apríl 1931, og Kristín Frið-
rika, f. 25. október 1937.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Guðrún Matthildur Gunnars-
dóttir, f. 1. febrúar 1941, frá
Húsavík. Börn þeirra eru Sædís
Gunnsteinsdóttir, f. 1958 gift Ás-
grími Magnússyni. Þau eiga
þrjár dætur og sex barnabörn.
Elín Málfríður Gunnsteinsdóttir,
f. 1962, gift Brynj-
ari Jónssyni. Þau
eiga fimm börn og
eitt barnabarn.
Gunnhildur Gunn-
steinsdóttir, f. 1968.
Hún á þrjú börn og
eitt barnabarn. Sæ-
þór Gunnsteinsson,
f. 1970, giftur Hildi
Rós Ragnarsdóttur.
Saman eiga þau
fjögur börn.
Gunnsteinn bjó fyrstu árin í
Presthvammi en fluttist fimm
ára gamall í Austurhaga í sömu
sveit með foreldrum og syst-
kinum og ólst þar upp. Árið 1958
fluttist hann til Húsavíkur og
giftist Matthildi 8. mars 1959.
Þau bjuggu í fjögur ár á Húsavík
eða þar til þau fluttu 13. júlí 1962
í Presthvamm þar sem þau
bjuggu alla tíð.
Gunnsteinn verður jarðsung-
inn frá Grenjaðarstaðarkirkju í
dag, 26. janúar 2019, klukkan
14.
Afi minn var alvöru bóndi sem
gekk á hvítbotna gúmmískóm,
lagði sig með Eiðfaxa á nefinu
eftir hádegið og söng í karlakór.
Hann var vinnusamur, ósérhlíf-
inn og duglegur. Leti var ekki til í
hans orðabók og var hann að all-
an daginn.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá að eyða tíu sumrum í
Presthvammi hjá ömmu og afa
þar sem þau kenndu mér allt sem
ég kann í dag. Það eru mikil for-
réttindi að hafa fengið að vera
hjá þeim allan þennan tíma og
læra það sem skiptir máli í lífinu.
Ég á ótal góðar minningar
með honum afa því hann var
ótrúlega þolinmóður og duglegur
að hafa mig með sér hvort sem
það var í fjósi, fjárhúsi eða rúnt-
andi um á jeppanum að líta eftir
kindum. Allstaðar gat hann fund-
ið fyrir mig hlutverk til að sinna
og kenna mér réttu handtökin.
Réttardagur í Hraunsrétt var
hans hátíðisdagur og var ekkert
skemmtilegra en fara ríðandi á
réttina þar sem afi ítrekaði
nokkrum sinnum á leiðinni að við
yrðum að „láta fara fallega“ og
hann söng alla leiðina niður á
rétt. Söngur var hans áhugamál
utan við bústörfin og söng hann í
karlakórnum Hreimi í 40 ár. Í
fjósinu voru alltaf stífar söng-
æfingar og þá sérstaklega dag-
ana sem kórinn hittist.
Ég fæddist í byrjun sauðburð-
ar og var mætt við fjárhúsvegg-
inn tveggja vikna gömul og hef
mætt á hverju ári síðan enda
sauðburðurinn minn uppáhalds
tími. Þegar ég útskrifaðist sem
hjúkrunarfræðingur skildi afi
ómögulega að ég hefði ekki feng-
ið metin öll þessi ár í sauðburði
og útskrifast sem ljósmóðir í leið-
inni. Hann var viss um að það
væri ekkert sem háskólinn gæti
kennt mér sem ég vissi ekki nú
þegar og það gæti hann staðfest
og skrifað upp á fyrir mig.
Afi leit alltaf á mig sem eitt af
börnunum þeirra ömmu en ekki
barnabarn og þegar ég hitti hann
á sjúkrahúsinu fyrir fjórum árum
spurði ég hann hvort mamma
hefði ekki komið í heimsókn, neit-
aði hann því og sagði að Sædís &
Ási hefðu hins vegar litið við fyrr
um daginn og staðfesti þannig að
þetta breyttist ekkert þó árin
liðu.
Afi var mín fyrirmyndi í einu
og öllu, og er það reyndar enn
þrátt fyrir að ég hafi ekki endað
sem bóndi eins og planið var.
Meiri dýravin er erfitt að finna
og hans sýn á lífið var aðdáun-
arverð. Lífsgæðakapphlaupið
hljóp algjörlega fram hjá þessum
sanna bónda sem vildi hvergi
annarsstaðar vera en í Prest-
hvammi og horfa á Kinnarfjöllin
sáttur við sitt.
Takk fyrir allt, elsku afi, það
eru forréttindi að hafa fengið að
eyða öllum þessum tíma í sveit-
inni hjá ykkur ömmu. Takk fyrir
að hafa kennt mér allt sem ég
kann og gert mig að þeirri mann-
eskju sem ég er í dag. Elska þig
meira en nokkur orð geta lýst.
Þig, sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við,
minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar
er horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá.
Heyrirðu ei, hvern hjartað kallar á,
heyrirðu ei storminn kveðju mína ber?
Þú fagra minning eftir skildir eina
sem aldrei gleymist meðan lífs ég er.
(Karl O. Runólfsson og
Cæsar/Valdimar Hólm Hallstað)
Sandra Ásgrímsdóttir.
Við Gunnsteinn Sæþórsson
vorum systkinasynir. Gísli afi
okkar og Helga amma hófu bú-
skap í Presthvammi í Aðaldal
laust fyrir næstsíðustu aldamót.
Frá því að þau létu af búskap
hafa afkomendur þeirra setið
jörðina og sitja enn. Gunnsteinn
bjó þar myndarbúi í u.þ.b. hálfa
öld þar til Sæþór sonur hans tók
við. Það er næsta víst að búskap-
urinn átti alla tíð líf hans og sál
og var hans lífsfylling. Hann
þurfti ekki annað að leita til að
öðlast hana.
Gunnsteinn var einstaklega
vel giftur Matthildi Gunnarsdótt-
ur, myndarkonu og dugnaðar-
forki. Þau hjónin áttu barnaláni
að fagna, eignuðust fjögur mann-
vænleg börn, sem örugglega hafa
notið þess að alast upp í traustum
föðurgarði. Þótt nokkur aldurs-
munur væri á okkur Gunnsteini
ræktuðum við frændsemina eftir
föngum. Það var mér mikið gleði-
efni þegar atvikin höguðu því svo
að Gunnsteinn tók við jörðinni
Presthvammi og festi síðar kaup
á henni. Báðir vorum við fæddir
þar og jörðin okkur sérstaklega
kær. Ég flutti um svipað leyti til
Reykjavíkur þannig að vík varð á
milli vina. Ég má þó segja að á
nær hverju sumri hafi ég og Mar-
grét kona mín lagt leið okkar
norður í Presthvamm og notið
þar einstakrar gestrisni þeirra
hjóna og glaðværðar. Sennilega
má segja að Gunnsteinn hafi
verið nokkuð seintekinn en þegar
af stað var komið var hann allra
manna skemmtilegastur, átti
margvíslegar frásagnir í fórum
sínum og hermdi ágætlega eftir
mönnum þegar svo bar undir.
Þessar stundir eru okkur hjónum
eftirminnilegar. Það var og mikið
ánægjuefni að sjá búskapinn sí-
fellt eflast, þar sem voru móar og
mýri eru nú gróin tún. Ný útihús
risu og síðast byggðu Sæþór son-
ur þeirra hjóna og Hildur kona
hans nýtt íbúðarhús. Gamla húsið
var endurbætt enda komið til ára
sinna. Því má þó ekki gleyma að
þau Sæþór og Hildur eiga drjúg-
an þátt í því hve jörðin er vel
setin.
Ef til vill er mér eftirminnileg-
ast þegar ég eitt sinn fór með tvo
hesta norður og reið um gamlar
slóðir. Þá riðum við Gunnsteinn
saman suður Presthvammsdal og
fram í Kasthvamm. Að hluta til
fórum við gamlar reiðgötur sem
Gunnsteinn sagði að nauðsynlegt
væri að halda við. Við áðum við
gömlu sundlaugina og beitarhús-
in á dalnum. Það var sérstök
nautn að komast með þessum
hætti í snertingu við náttúruna
með kjarri og skógi vaxnar hlíðar
á aðra hlið og Laxá niðandi á
hina. Eitt sinn átti að leggja
þennan fagra dal undir stíflulón,
en því betur varð ekki af þeirri
fyrirætlan og verður vonandi
aldrei. Þessi reiðtúr verður ekki
endurtekinn og Gunnstein verð-
ur ekki fyrir að finna næsta
sumar. Það veit heldur enginn
hvenær ævi hans er öll, þannig að
ekki er heldur víst að næsta sum-
ar komi til mín.
Með þessum fáu orðum vil ég
úr fjarlægð kveðja síðustu kveðju
frænda minn og vin, Gunnstein
Sæþórsson, og fari hann heill
hvert sem leiðin liggur. Matthildi
og afkomendum þeirra Gunn-
steins sendum við Margrét inni-
legar samúðarkveðjur.
Friðgeir Björnsson.
Gunnsteinn Sæþórsson lést
föstudaginn 18. janúar eftir bar-
áttu við illvígan parkinsons-sjúk-
dóm sem hann greindist með
2013. Haustið 2016 lærbrotnaði
hann illa og náði aldrei fullum
bata af því. Hann átti þó eftir það
góðan tíma heima í Presthvammi
við einstaka umönnun konu
sinnar, Matthildar.
Hann var fæddur í Prest-
hvammi í Aðaldal þar sem hann
átti síðar eftir að eyða mestum
hluta starfsævi sinnar en ólst upp
í Austurhaga í sömu sveit. Nokk-
ur ár stundaði hann almenna
vinnu og fór á vertíðir eins og títt
var en 1959 giftist hann Möttu
eins og hún er jafnan kölluð og
bjuggu þau á Húsavík fyrstu ár-
in. En hugurinn leitaði í sveitina
og 1962 tóku þau jörðina Prest-
hvamm á leigu og bjuggu þar alla
tíð síðan. Árið 1987 keyptu þau
jörðina og ólu þar upp börn sín
fjögur, þrjár dætur sem fluttu að
heiman í tímans rás en sonurinn
Sæþór settist að heima. Tók hann
formlega við búi af foreldrum sín-
um 1999 eftir að hafa um árabil
rekið búið með þeim. Gunnsteinn
var góður bóndi með blandaðan
búskap, kindur, kýr og hesta, en
fyrst og fremst var hann sauð-
fjárbóndi, naut þess að umgang-
ast kindur sínar og vinna öll þau
verk sem þeim búskap fylgir.
Hann hafði einnig mikið yndi af
hestum og átti góð reiðhross.
Ekki veitti af að eiga góða hesta
þegar farið var í margra daga
göngur á Þeistareyki. Og eftir að
Sæþór hafði tekið við búsforráð-
um hélt Gunnsteinn áfram að
fara í fjósið og fjárhúsin.
Við Gunnsteinn vorum svilar,
giftir systrum, Matthildi og Vig-
dísi Gunnarsdætrum, og varð
fljótt mikill vinskapur milli heim-
ila okkar. Óteljandi eru þær ferð-
ir sem við Vigga höfum átt í
Presthvamm og alltaf notið þar
mikillar gestrisni, enda veislu-
borð Möttu orðlagt. Eftir að við
fluttum á annað landshorn höfum
við átt þar margar gistinætur.
Sama má segja um dætur okkar,
ævinlega hefur þeim verið tekið
opnum örmum. Gunnsteinn var
mikill fjölskyldumaður, unni sín-
um nánustu og var hreykinn af
þeim öllum. Það leyndi sér ekki
þegar boðið var að glæstu veislu-
borði hjá Möttu eða rætt um
dugnað Sæþórs við öll verk. Og á
engan held ég sé hallað þó að
sagt sé að alnafni hans, Gunn-
steinn Sæþórsson yngri, hafi ver-
ið í sérstöku uppáhaldi hjá afa
sínum.
Gunnsteinn átti líka sínar tóm-
stundir sem einkum byggðust þó
á því að hann hafði góða söng-
rödd. Hef ég fyrir satt að hann
hafi oftast sungið við fjósverkin,
e.t.v. til að gera þau skemmti-
legri! Hann söng í kirkjukórnum
við Grenjaðarstaðarkirkju í ára-
tugi og í karlakórnum Hreimi,
einn af stofnendum kórsins 1975
og söng með honum eins lengi og
heilsan leyfði. Og þó að sumarfrí
eða ferðalög væru ekki árvissir
atburðir fóru þau hjónin í nokkur
ferðalög bæði innan lands og ut-
an með kórnum. Munu það hafa
verið einu ferðir Presthvamms-
bóndans á erlenda grund og naut
hann þeirra vel. Árvisst var að
taka einn góðan sumardag í að
fara með fjölskylduna á Þeista-
reyki og varð fjölskylda okkar
þeirrar ánægju aðnjótandi að
taka stundum þátt í því „sumar-
fríi“.
Við Vigga sendum Möttu og
aðstandendum öllum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Minn-
ingin um góðan dreng mun lifa.
Guðmundur Bjarnason.
Gunnsteinn
Sæþórsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær dóttir mín og systir okkar,
RANNVEIG PÁLSDÓTTIR
læknir,
Strandvegi 7, Garðabæ,
lést miðvikudaginn 16. janúar.
Jarðarför hennar fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 1. febrúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Soffía Stefánsdóttir
Svana Pálsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Gísli Pálsson
Soffía Pálsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar og afi,
EINAR GUÐNASON,
bílstjóri,
Víðiteig 2f,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtudaginn 18 janúar.
Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni mánudaginn 28. janúar, klukkan 13.
Börn og barnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og
afi,
MATTHÍAS KJELD
læknir, Dalsbyggð 19,
varð bráðkvaddur á bráðamóttökudeild
Landspítalans 16. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 29. janúar klukkan 13.
Marcella Iñiguez
Matthías Kjeld Alfreð Kjeld
Alexandra Kjeld Sveinn Ingi Reynisson
Símon Reynir Sveinsson
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur, frændi
og barnabarn,
EINAR GYLFASON,
Suðurmýri 36,
Seltjarnarnesi,
lést í Víetnam mánudaginn 31. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Svava Árnadóttir Gylfi Einarsson
Ragnheiður Helgadóttir
Erna Kristín Gylfadóttir
Ragnheiður Þórdís Gylfad. Björn Viðarsson
og systradætur
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUNNFRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Logafold 171, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
þriðjudaginn 22. janúar. Útför hennar fer
fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 1. febrúar klukkan 13.
Páll Steinar Hrólfsson
Ragnheidur Guðmundsd. Bjarni Sigurbjörnsson
Hildur Guðmundsdóttir Guðmundur Erlingsson
Gunnar Páll Pálsson
Eyjólfur Pálsson
Sigríður S. Pálsdóttir Gunnar Konráðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÞÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést að morgni 24. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Sigfúsdóttir Þorgeir Jóhannesson
Jón Ólafur Sigfússon Alda Skarphéðinsdóttir
Kristján Þór Sigfússon Ágústa Magnúsdóttir
Haukur Sigfússon Díana Olsen