Morgunblaðið - 26.01.2019, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
Útivist &
ferðalög
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir mánudaginn 28. janúar.
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Útivist og ferðalög
föstudaginn 1. febrúar
Meira fyrir lesendur
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir viðskiptafræðingur á 40 ára afmælií dag. Hún rekur sitt eigið fyrirtæki sem heitir Veganmatur ogsamanstendur af heildsölurekstri, vefverslun og veitingasölu.
„Það er rúmt ár síðan ég hóf fullt starf við fyrirtækið og við erum
með innflutning á ýmsum vörumerkjum, m.a. Oumph! sem er líklega
þekktasta vörumerkið okkar. Við erum síðan að fara að opna skyndi-
bitastað í Reykjavík. Við vorum með Jömm skyndibita á Street Food-
markaðnum í Skeifunni síðasta sumar og ætlum að snúa aftur í varan-
lega staðsetningu auk þess að hafa nýlega hafið dreifingu á Jömm-
samlokum í verslanir. Svo erum við með veganbudin.is sem er sérversl-
un á netinu.“ Eiginmaður Sæunnar, Magnús Reyr Agnarsson, er
meðeigandi en auk Sæunnar eru tveir aðrir starfsmenn í fullri vinnu
hjá fyrirtækinu.
Þess má geta að vegan er ekki það sama og að vera grænmetisæta
því vegan nýtir engar dýraafurðir eins og mjólk, egg eða hunang.
Spurð um áhugamál þá segir Sæunn vinnuna vera aðaláhugamálið
og hún ætlar meira að segja að vinna í dag. „Mér finnst afmælisdagar
ekkert merkilegri en aðrir dagar. Talandi um áhugamál þá á ég þrjá
ketti og einn hund og sá litli tími sem fer ekki í vinnuna og fjölskylduna
fer í þau.“
Börn Sæunnar eru Jóhanna Friðsemd 20 ára, Viktor Andri 18 ára,
Marín Birta 17 ára og stjúpsonur hennar er Sölvi Reyr.
Í Kaliforníu Sæunn stödd í vegan-húsdýraathvarfi síðasta sumar þar
sem sameinaðist ást hennar á veganisma og dýrum.
Nýr veganstaður
væntanlegur
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir er fertug
G
uðmundur Jónsson
fæddist 26. janúar 1924
á Rauðabergi í Mýra-
hreppi en ólst upp að
Hoffelli í Nesjahreppi.
Hann lauk námi frá Alþýðuskól-
anum á Laugum 1944 og fór í húsa-
smíðanám til Reykjavíkur 1945,
lauk sveinsprófi 1949 og varð húsa-
smíðameistari 1952.
Guðmundur flutti til Hafnar 1950
og stofnaði Trésmiðju Hornafjarðar
sem hann rak, ásamt konu sinni,
Sigrúnu Eiríksdóttur, í næstum
fjóra áratugi. Hann stundaði al-
menna húsasmíði og verkstæð-
isvinnu, auk verktakastarfsemi.
Hann var mikill athafnamaður og
frumkvöðull og var jafnan með
fjölda fólks í vinnu. Hann var mjög
fær í sínu fagi og byggði sem ungur
maður flóknar byggingar eins og til
dæmis Bjarnaneskirkju í Nesjum.
Guðmundur stofnaði Steypustöð
Hornafjarðar, ásamt Sigurði Geirs-
syni frá Reyðará, og starfræktu
þeir hana í tæplega tuttugu ár. Þá
gerði Guðmundur út aflaskipið Jón
Eiríksson í tæp tíu ár í félagi við
Ástvald Valdimarsson skipstjóra.
Guðmundur er einn stofnenda
Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar
og sat þar í stjórn og gegndi for-
mennsku í nokkur ár. Hann var um-
sjónarmaður með fasteignum Kaup-
félags Austur-Skaftfellinga 1983-91,
sat í hreppsnefnd Hafnarhrepps
Guðmundur Jónsson húsasmíðameistari – 95 ára
Með börnunum Guðmundur ásamt Eiríki, Jóni, Ástu Halldóru og Svövu Kristbjörgu.
Athafnamaður á Höfn
Hestaræktandinn Guðmundur heilsar upp á Flóka, yngsta folaldið sitt.
Reykjavík Magnús Þór
fæddist 3. maí 2018 kl.
10.31. Hann vó 3.620 g
og var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Ólafía
Huld Erlendsdóttir og
Magnús Torfi Ólafsson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is