Morgunblaðið - 26.01.2019, Page 43
fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1958-66 og
var byggingarfulltrúi hreppsins
1954-66. Guðmundur var síðar í
byggingarnefnd og átti sæti í skipu-
lagsnefnd Hafnar í nokkur ár.
Hann hefur starfað í bygging-
arnefnd Ekrusamtakanna sem
stóðu fyrir íbúðabyggingu fyrir
aldraða og var formaður bygging-
arnefndarinnar. Þá var hann for-
maður Hestamannafélagsins Horn-
firðings í á annan áratug og áttu
þau Sigrún stóran þátt í uppbygg-
ingu félagsins. Þau áttu ávallt góða
reiðhesta og var hestamennskan
þeirra helsta áhugamál. Einnig tók
Guðmundur þátt í kórastarfi, nú
síðast í Gleðigjöfunum, kór aldraðra
á Höfn.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 20.7. 1950
Sigrúnu Eiríksdóttur frá Volaseli, f.
13.2. 1924, d. 30.9. 2008, húsfreyju
og bókhaldara. Hún var dóttir Ei-
ríks Einarssonar, bónda á Þorgeirs-
stöðum í Lóni, og k.h., Svövu Sigur-
jónsdóttur frá Vík í Lóni, húsfreyju.
Börn Guðmundar og Sigrúnar
eru 1) Svava Kristbjörg, f. 12.1.
1951, fyrrverandi þjónustustjóri
VÍS á Höfn, búsett þar, og á hún
eina dóttur, Sigrúnu Ólafsdóttur,
prófessor í félagsfræði við Háskóla
Íslands; 2) Ásta Halldóra, f. 27.2.
1955, fyrrverandi hótelstjóri, búsett
á Höfn, gift Guðjóni Pétri Jónssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra, og
eiga þau tvær dætur: Helgu Rún,
afgreiðslustjóra Landsbankans á
Djúpavogi, gift Jóni Ingvari Hilm-
arssyni sjómanni og eiga þau dæt-
urnar Kolfinnu Ástu og Kötlu Sif en
börn Jóns Ingvars eru Perla og
Einar; og Unu fatahönnuð; 3) Jón,
f. 28.2. 1955, verkfræðingur hjá
Mannvirkjastofnun, búsettur í
Garðabæ, en kona hans er Elín
Guðmundardóttir kennari og eiga
þau tvö börn: Dagrúnu stuðnings-
fulltrúa og Guðmund nemanda; 4)
Eiríkur, f. 7.4. 1957, húsasmíða-
meistari og leikari, búsettur í
Reykjavík, en kona hans er Auður
Axelsdóttir iðjuþjálfi. Þau eiga þrjú
börn: Guðlaugu nemanda, en eigin-
maður hennar er Ronni Auðar-
Boysen tónlistarmaður og eiga þau
dæturnar Ronju og Freyju; Guð-
mund Hrannar hljóðtækni, sam-
býliskona hans er Lilja Dögg
Tryggvadóttir nemandi og eiga þau
dótturina Auði Valgerði; Höskuld
tónlistarmann, sambýliskona hans
er Karítas Sigvaldadóttir nemandi.
Systkini Guðmundar: Hallgerður,
f. 27.5. 1920, húsfreyja á Miðskeri í
Nesjum, gift Benedikt Eiríkssyni,
þau eru bæði látin; Björg, f. 14.9.
1922, húsfreyja á Meðalfelli í Nesj-
um, gift Þórólfi Einarssyni þau eru
bæði látin; Skúli, f. 11.1. 1926, bóndi
í Akurnesi; Anna, f. 10.8. 1927, hús-
freyja á Hlöðum í Hörgárdal, var
gift Stefáni Halldórssyni, sem er
látinn; Unnur, f. 25.1. 1929, hús-
freyja á Djúpavogi, var gift Karli
Emilssyni sem er látinn; Egill, f.
14.12. 1930, alþm. og bóndi á Selja-
völlum í Nesjum, giftur Halldóru
Hjaltadóttur, þau eru bæði látin;
Ingibjörg, f. 28.5. 1933, húsfreyja í
Grænahrauni í Nesjum, gift Ingólfi
Björnssyni; Hanna, f. 5.10. 1937,
húsfreyja í Þinganesi í Nesjum, gift
Einari Sigurbergssyni; Pétur
Haukur, f. 2.11. 1939, verktaki í
Akurnesi, er látinn; Droplaug, f.
27.11. 1943, húsfreyja á Höfn, gift
Arnóri Kristjánssyni; Ragnar, f.
5.7. 1946, bóndi í Akurnesi, kvæntur
Ingunni Jónsdóttur.
Foreldrar Guðmundar voru hjón-
in Jón J. Malmquist, f. 1888, d.
1956, bóndi að Akurnesi, og Hall-
dóra Guðmundsdóttir, f. 1901, d.
1985, húsfreyja.
Guðmundur Jónsson
Bergþóra Einarsdóttir
húsfreyja
Sigurður Sigurðsson
bóndi á Kálfafelli í Suðursveit
Valgerður Sigurðardóttir
húsfreyja í Hoffelli
Halldóra Guðmundsdóttir
húsfreyja í Hoffelli og Akurnesi
Guðmundur Jónsson
bóndi í Hoffelli í Nesjum
Halldóra Björnsdóttir
húsfreyja
Jón Guðmundsson
bóndi í Hoffelli
Ingibjörg
ónsdóttir húsfr.
í Grænahrauni
J
Guðrún Ingólfsdóttir
fv. Íslandsmeistari í
kringlu og kúluvarpi
Egill
Jónsson
alþingis-
maður
og b. á
Selja-
völlum
Anna
Egilsdóttir
rak
sambýli á
Mýrum
Hjalti Egilsson
bóndi á Seljavöllum
Hjalti Þór
Vignisson fv.
bæjarstjóri
Sveitar-
félagsins
Hornafjarðar
Ragnar
Jónsson b.
í AkurnesiSveinn Rúnar Ragnarsson
bóndi í Akurnesi
Anna Lilja Ragnarsdóttir
sýslufulltrúi á Höfn
Hanna
Jónsdóttir húsfr.
í Þinganesi
Þórdís Einarsdóttir
fv. eigandi Hótels
Hafnar
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfreyja
Sveinn Jóhannsson Malmquist
bóndi í Vík í Lóni
Björg Sveinsdóttir
húsfreyja í Skriðu
Jón Pétursson
bóndi í Skriðu í Breiðdal
Ragnheiður Friðriksdóttir
húsfreyja
Pétur Jónsson
bóndi á Geirsstöðum á Mýrum
Úr frændgarði Guðmundar Jónssonar
Jón J. Malmquist
bóndi í Hoffelli og Akurnesi í Nesjum
Hjónin Guðmundur og Sigrún.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019
Gísli Sigurðsson fæddist íHraunsási í Hálsasveit íBorgarfirði 26. janúar 1919.
Foreldrar hans voru hjónin Sigurður
Bjarnason, bóndi í Hraunsási, f. 21.4.
1870, d. 27.12. 1959, og Magnes Signý
Jónsdóttir, f. 26.4. 1876, d. 28.4. 1921.
Alsystkini Gísla voru Þorgeir, f.
3.11. 1913, d. 20.1. 1933, og Þóra, f.
18.6. 1917, d. 22.6. 1917. Systkini
Gísla samfeðra voru Bjarni, f. 30.4.
1901, d. 30.7. 1974, trésmíðameistari í
Reykjavík, Jón, f. 27.1. 1904, d. 11.5.
1957, bóndi í Hraunsási, og Helga, f.
9.4. 1908, d. 25.10. 1982, ráðskona í
Hraunsási.
Gísli missti móður sína á unga aldri
og var þá tekinn í fóstur af móður-
systkinum sínum í Stóra-Ási í Hálsa-
sveit þar sem hann var til átta ára
aldurs. Eftir það ólst hann upp hjá
föður sínum í Hraunsási.
Gísli lærði flugvéla- og svifflugu-
smíði í Þýskalandi og Svíþjóð á ár-
unum eftir seinni heimsstyrjöldina og
var eini lærði svifflugusmiðurinn á Ís-
landi, en þau réttindi fékk hann með
ráðherrabréfi. Hann tók einnig C-
próf í svifflugi 1955. En Gísli gerði
meira en að læra handverkið. Hann
aflaði sér og las bækur um svifflugu-
smíði og flugeðlisfræði og varð því
fljótt mjög vel að sér um allt sem laut
að flugi.
Gísli starfaði fyrir Svifflugfélag
Íslands 1941-1980, sat í stjórn fé-
lagsins 1949-1978 og var gerður
heiðursfélagi árið 1963.
Gísli starfaði á trésmíðaverkstæði
Flugmálastjórnar 1980-1988, en frá
1988 og fram til síðasta dags vann
hann fyrir Flugsögufélagið við að
gera upp gamlar flugvélar. Segir í
minningargrein að hann hafi skilið
eftir sig slíka kjörgripi að ómetan-
legt megi teljast fyrir flugsögu
þjóðarinnar. Meðal þeirra véla sem
Gísli gerði upp á ferli sínum var
Klemminn svokallaði, mótorvél sem
þýskur sviffluguleiðangur kom með
til Íslands, rétt fyrir seinna stríð.
Gísli var ókvæntur og barnlaus.
Hann lést 19. júlí 2003.
Merkir Íslendingar
Gísli
Sigurðsson
Laugardagur
95 ára
Guðmundur Jónsson
90 ára
Helgi M. Sigvaldason
85 ára
Ingvi Jóhann Svavarsson
80 ára
Audrey Lucille Paulsen
Heiðar Kristjánsson
Ragnar L. Benediktsson
Sigurbjörg Jóhannesdóttir
Sigurður S. Guðbjartsson
Skæringur Eyjólfsson
75 ára
Aðalsteinn Skarphéðinsson
Bergþóra Sigurjónsdóttir
Hlynur Jónasson
Kristín Línberg Skúladóttir
Kristján Karl Torfason
Stefanía Þorsteinsdóttir
70 ára
Aðalbjörg Þórey Ólafsdóttir
Einar Þórir Dagbjartsson
Guðrún Ósk Ragnarsdóttir
Jón Atli Játvarðarson
Kristín G. Sigurðardóttir
Kristjana Sigrún
Kjartansdóttir
Sigurbjörg Gísladóttir
Snjólaug Jónmundsdóttir
Solveig María Magnúsdóttir
Solveig Vignisdóttir
60 ára
Auður Gunnarsdóttir
Bergþór Kristleifsson
Edda Hrafnhildur
Björnsdóttir
Gestur Júlíusson
Guðjón Birgisson
Guðmundur Guðfinnsson
Gylfi Sigurðsson
Jónas Jóhannsson
Marek Józef Marciniak
Margrét Helma Karlsdóttir
Oddur Magnússon
Sigurður Arinbjörnsson
Sigurgrímur Skúlason
Una Sveinsdóttir
Þorsteinn Kristleifsson
50 ára
Arnar Friðriksson
Elín Guðmundsdóttir
Elísabet Katrínar
Sigmarsdóttir
Guðlaug Þóra Jónsdóttir
Gunnar Gunnarsson
Halldór Ásgeirsson
Halldór Sölvi Hrafnsson
Irena Mickevica
Janas Saletis
Lúðvík Jóhannesson
Oskars Barkáns
Renata Monika Hacz
Róbert Guðrúnarson
Gillespie
40 ára
Andrew Bache
Berglind Ósk Einarsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir
Jeesis Marilis Solys Roa
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
Kjartan Ásmundsson
Ragna Valdís Elísdóttir
Sæunn Ingibjörg
Marinósdóttir
Wojciech Stalowski
30 ára
Arndís Hrefna
Sigurjónsdóttir
Arturas Riabcevas
Ásta Þorsteinsdóttir
Bjarki Fannar Magnússon
Bronagh Mary Kelly
Daníel Ingi Ingimarsson
Halldóra S. S. Bjarnadóttir
Hildur María Helgadóttir
Ívar Örn Arnarson
Jakob Þór Grétarsson
Kirby Tan Lapastora
Letiele Soares De Souza
Lilja Salóme H. Pétursdóttir
Marta Jóhannesdóttir
Óskar Pétursson
Rafal Marcin Walanus
Snorri Halldór Snorrason
Þorgeir Gísli Skúlason
Sunnudagur
90 ára
Pálína Gísladóttir
85 ára
Auðbjörg Ingimundardóttir
Bára Magnúsdóttir
Guðrún V. Hallgrímsdóttir
Sjöfn Helgadóttir
80 ára
Guðrún Lóa Kristinsdóttir
Hörður Hólm Garðarsson
Jónas Páll Guðlaugsson
75 ára
Auðbjörg Guðmundsdóttir
Hafdís Guðmundsdóttir
Hallvarður Sigurjónsson
Kristín Jóhannsdóttir
Sigþór Ingólfsson
Þórir Jóhann Ólafsson
70 ára
Birna Jóhannsdóttir
Hrafnhildur Snorradóttir
Lilja Sigríður
Guðmundsdóttir
Magnús Pétursson
Ruth Pétursdóttir
60 ára
Jónína Marta Árnadóttir
Katrín Björk Baldvinsdóttir
Margrét Þóra
Benediktsdóttir
Ólafur Sævar Gunnarsson
Sesselja Steinólfsdóttir
Valur Jóhann Stefnisson
Þórhallur Ólafsson
50 ára
Ágúst Hilmisson
Bára Jónína Steinsdóttir
Birgir Valgarðsson
Hörður Ársæll Ólafsson
Inga Hrönn Georgsdóttir
Katarzyna Barbara Bak
Páll Sigurðsson
Soffía Katrín Sigurðardóttir
40 ára
Artur Mariusz Jastrzebski
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir
Eva Lind Jónsdóttir
Finnbogi Ásgeir
Finnbogason
Guðný Lára Jóhannesdóttir
Gunnar Þór Jónsson
Jóhanna Jóhannesdóttir
Jón Ragnar Arnarson
Kristín Ösp Þorleifsdóttir
Robert Kulikowski
30 ára
Andri Thorlacius
Artiom Drusca
Árni Hermannsson
Ásta María Gunnarsdóttir
Björg María Oddsdóttir
Eva Hrönn Árelíusd.
Jörgensen
Halla Kristín Guðfinnsdóttir
Helgi Kristinn Björnsson
Hildur Axelsdóttir
Kári Gautason
Kristrún Gunnarsdóttir
Pavel Mrnávek
Ragnheiður Jónsdóttir
Rúnar Ingi Erlingsson
Samuel Joseph Mccoy
Sverrir Gautur Hrafnsson
Til hamingju með daginn
4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýbyggingu í Dalshverfi. Staðsett við
nýja grunnskóla. Hagstætt verð. Afhending í sumar 2019
Stærð 109,8 m2
Verð kr. 39.500.000
Dalsbraut 4, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is