Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 48

Morgunblaðið - 26.01.2019, Síða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2019 Ens og hefð er fyrir býður Reykja- víkurborg upp á árlega tónleika á Kjarvalsstöðum á morgun, 27. jan- úar, klukkan 15, í tilefni þess að það er afmælisdagur tónskáldsins W.A. Mozarts sem fæddist á þessum degi árið 1756. Að þessu sinni verður boðið upp á tónlist fyrir blásaraoktett. Fluttar verða tvær kvöldlokkur, í c-moll KV 388 og í Es-dúr KV 375. Flytj- endur eru Matthías Nardeau, Peter Tompkins, Rúnar Óskarsson, Grím- ur Helgason, Bryndís Þórsdóttir, Brjánn Ingason, Frank Hammerin og Emil Friðfinnsson. Sigurður Ingvi Snorrason fjallar um tón- skáldið og tónlistina. Brjánn Ingason hefur nokkrum sinnum áður komið fram á þessum árlegu tónleikum og segir Mozart hafa skrifað mikið af fallegri tónlist fyrir blásara. „Báðar þessar sere- nöður eru stór kammerverk þar sem flautur fá ekki að vera með en horn koma inn í staðinn. Liturinn er dekkri en til að mynda hjá hefð- bundnum blásarakvintett,“ segir hann. „Þetta eru tvö af okkar uppá- halds Mozart-verkum, allt sem ger- ir svo skemmtilegt að spila óperur hans og sinfóníur er líka að finna í þessum verkum, bara saman- þjappað fyrir okkur blásarana. Á þessum árlegu tónleikum heyr- ast annars oft stykki sem eru ekki oft á dagskrá tónleika hér. Við höf- um öll spilað þessi verk áður í ein- hverju samhengi en það er orðið langt síðan og gaman að koma að þeim að nýju.“ Brjánn segir þennan hóp blásara hafa komið saman fyrir þetta til- efni. Fjórir þeirra hafi komið fram sem blásarakvintett fyrir tveimur árum undir heitinu Norðangarri „og ætli þetta sé þá ekki Norðan- garri og félagar,“ segir hann og hlær. Allir starfa blásararnir með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Brjánn segist hafa leikið fyrst með svona hljóðfærahóp þegar hann var 17 ára, með Blásarakvin- tett Reykjavíkur og félögum, fyrir bráðum fjörutíu árum. „Þá var ég langyngstur en nú er ég elstur! Það er skemmtilegast að vera sá reyndi í hópnum …“ Brjánn er ánægður með þá hefð að minnast Mozarts með tónleikum á fæðingardegi, rétt eins og þá ein- stöku hefð að Sálumessa tónskálds- ins er árlega flutt hér á landi á dánarstund Mozarts. „Það er aldrei of mikið af Mozart!“ segir hann. efi@mbl.is Ljósmynd/Einar Jóhannesson Flytjendurnir Sjö af átta blásurum sem koma fram á Kjarvalsstöðum á sunnudag og flytja tvær af kvöldlokkum tónskáldsins. „Það er aldrei of mikið af Mozart“  Tónleikar á fæðingardegi Mozarts Myndlistarmaðurinn Jakob Veigar Sigurðsson opnar í dag, laugardag, kl. 16 sýningu í galleríi Fold við Rauðarárstíg. Sýninguna kallar hann Óreiðu. Í tilkynningu segir að Jakob Veigar sé ungur og upprennandi listamaður sem „hefur óstjórnlega ástríðu fyrir málaralist. Abstrakt- verk hans sýna meðal annars kraft- miklar sprengingar og litaflóð sem næstum flæða út fyrir strigann. Þó svo að stundum megi greina lands- lag eða uppstillingu í verkum hans lúta þau eigin reglu og lögmálum þyngdaraflsins er á stundum ýtt til hliðar. Áhorfandans bíður að sog- ast inn í þessar „náttúruhamfarir“ á striganum. Málun verksins er jafnmikilvægur gjörningur og loka- útkoman“. Jakon Veigar útskrifaðist frá LHÍ árið 2016 og hélt þá til Vínar- borgar til áframhaldandi náms og þar býr hann og starfar nú. Sprengingar Hluti af einu málverka Jakobs Veigars á sýningunni. Jakob Veigar sýnir í Galleríi Fold Síðastliðnar tvær vikur hafa út- skriftarnemendur við myndlistar- deild Listaháskóla Íslands dvalið á vegum Alþýðuhússins á Siglufirði. Nemendurnir hafa starfað undir handleiðslu Aðalheiðar S. Eysteins- dóttur og Sindra Leifssonar ásamt því að hafa kynnst heimamönnum og menningarstarfsemi í Siglufirði og Eyjafirði. Sýning verður á afrakstri vinnu nemendanna þessar vikur og verð- ur opnuð í Segli 67 á Siglufirði kl. 15 í dag, laugardag. Sýningin, sem nemendurnir kalla Suðsuðves, mun jafnframt verða opin á morgun, sunnudag, frá klukkan 14 til 17. Átján nemendur eiga fjölbreytileg verk á sýningunni. Styrktar- og samstarfsaðilar LHÍ við verkefnið eru Alþýðuhúsið, Aðalbakarí, Fjallabyggð, Húsasmiðjan, Kjör- búðin, Norðurorka, Ramminn hf., Segull 67, Torgið og Uppbygg- ingasjóður Eyþings. Undirbúningur Einn nemendanna sem sýna við vinnu að verki á Siglufirði. Nemendasýningin Suðsuðves opnuð Damsel Metacritic 63/100 IMDb 5,6/10 Bíó Paradís 20.00, 22.15 First Reformed Metacritic 85/100 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 21.50 Roma Morgunblaðið bbbbb Metacritic 95/100 IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 17.10 Shoplifters Morgunblaðið bbbbb Metacritic 93/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 17.40, 19.30 Nár í nærmynd IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 19.50 Underdog Metacritic 37/100 IMDb 4,8/10 Bíó Paradís 17.30 Suspiria Morgunblaðið bbbbm Metacritic 64/100 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 20.00 Mary Queen of Scots 16 Metacritic 60/100 IMDb 6,5/10 Laugarásbíó 19.50, 22.25 Háskólabíó 20.50 Borgarbíó Akureyri 19.30 Skýrsla 64 16 Nokkur óleyst mannshvörf frá árinu 1987 vekja athygli hjá deild Q í dönsku lögregl- unni rúmum tuttugu árum seinna. IMDb 7,8/10 Smárabíó 19.40, 22.20 Háskólabíó 18.10, 20.40 Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00 The Upside Metacritic 45/100 IMDb 5,5/10 Laugarásbíó 19.50, 22.25 Háskólabíó 15.30, 20.40 Borgarbíó Akureyri 17.00, 22.00 Green Book 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 70/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 16.10, 19.00, 21.45 Escape Room 16 Metacritic 50/100 IMDb 6,4/10 Smárabíó 19.50, 22.10 Aquaman 12 Metacritic 53/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.40 Sambíóin Egilshöll 14.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 19.30 Holmes og Watson 12 Metacritic 24/100 IMDb 3,4/10 Smárabíó 17.30, 22.10 Robin Hood 12 Metacritic 32/100 IMDb 5,4/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Sambíóin Akureyri 22.20 Mary Poppins Returns 12 Metacritic 66/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 14.20, 15.00, 17.50, 19.40 Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.00 Sambíóin Kringlunni 13.30 Sambíóin Akureyri 16.40 Second Act IMDb 5,8/10 Laugarásbíó 17.20 Bumblebee 12 Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 14.40, 17.10 Sambíóin Egilshöll 20.00 Bohemian Rhapsody 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 49/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 19.50, 22.25 Smárabíó 13.00 (LÚX), 16.00 (LÚX) A Star Is Born 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Kringlunni 16.10, 19.00 Spider-Man: Into the Spider-Verse Morgunblaðið bbbbm Metacritic 87/100 IMDb 8,8/10 Laugarásbíó 14.00, 16.30 Sambíóin Keflavík 14.30 Smárabíó 13.20, 14.40, 16.30, 16.50, 19.30 Ótrúleg saga um risastóra peru IMDb 6,2/10 Laugarásbíó 14.00, 16.00, 18.00 Smárabíó 13.10, 15.20, 17.30 Borgarbíó Akureyri 15.00, 17.30 Halaprúðar hetjur IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 12.50, 13.10 Sambíóin Akureyri 14.00 Sambíóin Keflavík 14.30 Nonni norðursins 2 Laugarásbíó 14.00 Smárabíó 14.30 Ralf rústar internetinu Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 14.30, 17.00 Sambíóin Egilshöll 14.00 Sambíóin Kringlunni 13.40 Sambíóin Akureyri 14.30 Sambíóin Keflavík 16.15 Smáfótur Metacritic 60/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 12.50 Kevin Crumb, David Dunn, og Elijah Prince, öðru nafni hr. Glass, eru allir staddir saman á geðspítala, og eru þar í sérstöku prógrammi fyrir fólk sem heldur að það sé ofurhetjur. Metacritic 41/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 16.30 (VIP), 19.30, 21.50 (VIP), 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00 Sambíóin Kringlunni 21.45 Sambíóin Keflavík 22.00 Smárabíó 19.00, 19.30, 21.50, 22.20 Glass 16 Instant Family Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Metacritic 57/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 14.50, 17.20, 19.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 13.45, 16.15, 18.45 Sambíóin Akureyri 17.00, 19.30 Sambíóin Keflavík 17.00, 19.30 The Mule 12 90 ára plöntusérfræðingur og fyrrverandi hermaður er grip- inn með þriggja milljóna dala virði af kókaíni sem hann er að flytja fyrir mexíkóskan eiturlyfjahring. Metacritic 58/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 14.00, 17.20, 19.20, 19.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 22.40 Sambíóin Kringlunni 21.15 Sambíóin Akureyri 22.00 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.