Morgunblaðið - 26.01.2019, Side 52
Ljóðaleikur í anda Karls Einars-
sonar Dunganons verður fluttur kl.
14 á morgun í Listasafni Íslands.
Vínljóðin sem hann orti undir sam-
heitinu In Vino Veritas, eða Í víni
býr sannleikur, lofa þrúgur, vín og
veislur. Einnig flytur Nýlókórinn í
eigin útsetningu ljóð, sem Dung-
anon orti á hinni óþekktu tungu
Atlantis, landsins sem sökk í sæ.
Vínóður – Ljóðaleikur
í anda Dunganons
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 26. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Nýtt nafn verður ritað á heims-
meistarabikar karla í handknatt-
leik á morgun þegar tvær Norður-
andaþjóðir mætast í úrslitaleik
keppninnar í fyrsta skipti. Dan-
mörk og Noregur slógu út Frakk-
land og Þýskaland á glæsilegan
hátt í Hamborg í gær og úrslita-
leikur þeirra fer fram í Herning í
Danmörku. »2
Nýir heimsmeistarar
krýndir í Herning
Armel-óperuhátíðin í Ungverjalandi
hefur boðið Íslensku óperunni að
sýna uppfærslu sína af óperunni
Brothers eftir Daníel Bjarnason. Kór
Íslensku óperunnar tekur þátt í upp-
færslunni í Ungverjalandi og flestir
flytjendur eru þeir sömu og í Eld-
borg í sumar, utan ungversk hljóm-
sveit sem tekur þátt undir stjórn
Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Óper-
an er byggð á dönsku kvikmyndinni
Brothers eftir Susanne Bier
og fjallar um tvo bræður
sem hafa valið ólíkar leiðir
í lífinu. Streymisveitan
Opera Vision, sem sendir
út valdar óperur og
nær víða um heim,
hefur ákveðið að
sýna óperuna í
febrúar.
Brothers boðið á
óperuhátíð í Búdapest
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Wyatt Woodbery, 17 ára bandarísk-
ur menntaskólanemi í Atlanta með
áhuga á málvísindum, vann skóla-
verkefni innan rannsóknarverkefnis
Sigríðar Sigurjónsdóttur og Eiríks
Rögnvaldssonar, prófessora í ís-
lenskri málfræði við Háskóla Ís-
lands, undanfarnar þrjár vikur. „Ís-
lenskan vakti áhuga minn,“ segir
hann um óskina sem varð að veru-
leika.
Öndvegisverkefnið „Greining á
málfræðilegum afleiðingum staf-
ræns málsambýlis“, sem styrkt er af
Rannsóknasjóði Íslands, hefur verið
í vinnslu síðan 2016. Wyatt Wood-
bery sá umfjöllun um það á vefnum,
setti sig í samband við Sigríði sl.
haust og bauð fram krafta sína í
verkefninu. Hann gerði henni grein
fyrir sér, lýsti yfir áhuga sínum á
málvísindum og benti henni á að
hann hefði kynnt sér grunnfræði-
greinar málvísinda. „Fljótlega fékk
ég jákvætt svar frá henni, sem stað-
festi að það sakar aldrei að reyna.“
Sigríður tekur í sama streng.
„Bréfið frá honum var svo einlægt
og flott að ég sló til og sagði já,“ seg-
ir hún.
Mat færni í ensku
Pilturinn kom á eigin vegum til
landsins með föður sínum fyrir ára-
mót og vann í þrjár vikur við það að
meta ensk málsýni þátttakenda í
öndvegisverkefninu. Sigríður segir
að 130 manns 13 ára og eldri hafi
komið í viðtal, þar sem þeir hafi m.a.
verið beðnir um að tala ensku,
ímynda sér að þeir væru að lýsa Ís-
landi fyrir útlendingi. Vinna Wyatts
hafi falist í því að meta íslenska
hreiminn og færni viðkomandi í
ensku. „Hann leysti verkefnið ótrú-
lega vel af hendi,“ segir hún. Wyatt
tekur undir það. „Þetta gekk betur
en ég þorði að vona,“ segir hann. „Í
raun vissi ég ekki hvað ég átti að
gera fyrr en ég hitti Sigríði, hún
spurði mig hvað ég vildi gera og
stakk í kjölfarið upp á þessu verk-
efni!“
Íslensk menning hefur heillað
Wyatt og hún hafði einnig áhrif á
áhuga hans á að vinna verkefni á Ís-
landi. Áður en hann hafi byrjað að
læra málið fyrr í vetur hafi hann
hlustað á íslenska tónlist þar sem
Ásgeir, Valdimar og Helgi Björns-
son séu í miklu uppáhaldi. Hann hafi
líka fengið að kynnast náttúru lands-
ins, sem hann hafi fallið fyrir, þegar
hann byrjaði að kynna sér land og
þjóð. „Ég hef rétt skyggnst undir
yfirborðið,“ segir kappinn, sem er
þegar farinn að undirbúa næstu
heimsókn.
Víða erlendis stendur nú yfir for-
keppni fyrir ólympíuleika í málvís-
indum. Sigríður benti Wyatt á það og
hann tók þátt í keppni fyrir val á ól-
ympíuliði Bandaríkjanna í fyrradag.
„Vonandi verð ég valinn,“ segir hann
og þakkar Sigríði fyrir að minna sig
á keppnina. „Hún er ein dásamleg-
asta manneskja sem ég hef hitt og
leiðsögn hennar er mér ómetanleg.“
Fræðimenn Sigríður Sigurjónsdóttir og Wyatt Woodbery unnu vel saman í öndvegisverkefninu.
Íslensk rannsókn
vekur athygli vestra
Bandarískur menntaskólanemi til liðs við prófessora
ÞÁTTARÖÐIN
ER KOMIN
í Sjónvarp Símans
Premium