Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 2
Það var fallegt um að litast í höfuðborginni í
gær. Þetta litríka og volduga ský gnæfði yfir
Gullinbrúna í Grafarvoginum.
Áfram má búast við þurru og björtu veðri á
Suður- og Vesturlandi í dag en lítillega kólnar.
Um helgina má búast við norðaustan 10-18 metr-
um á sekúndu og éljum en enn verður þurrt og
bjart sunnanlands. Á sunnudag verður talsvert
frost.
Litríkt ský gnæfði yfir Grafarvoginn
Morgunblaðið/Hari
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stjórnsýslu borgarinnar breytt
Bragginn ýtti á breytingarnar Oddviti Sjálfstæðisflokks bendir á að engin kostnaðargreining fylgi
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu
Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, formanns borgar-
ráðs, um stjórnsýslubreytingar hjá Reykjavík-
urborg. Breytingarnar eiga að einfalda, skýra
og skerpa stjórnarhætti hjá borginni og bæta
þjónustu við borgarbúa. Þær taka gildi 1. júní.
Sett verða upp þrjú ný kjarnasvið, svið þjón-
ustu og nýsköpunar, svið mannauðs og starfs-
umhverfis og svið fjármála og áhættustýringar.
Lagðar verða niður skrifstofa eigna og at-
vinnuþróunar, fjármálaskrifstofa og skrifstofa
þjónustu og reksturs. Innkauparáð fær aukið
hlutverk og starf regluvarðar borgarinnar verð-
ur eflt.
„Við settum það í meirihlutasáttmálann í
fyrrasumar að við vildum einfalda kerfið og laga
stjórnsýsluna að nútímanum,“ sagði Þórdís Lóa
í samtali við Morgunblaðið. „Svo kom bragga-
málið upp í haust og við vildum þá einhenda okk-
ur í þetta af fullum krafti og settum þetta í gang
í lok október. Þetta var gert mjög hratt út af
bragganum.“
Hún segir að núverandi skipulag stjórnsýsl-
unnar sé frá árinu 2012 og því orðið tímabært að
endurskoða það. Ekki er reiknað með að breyt-
ingunum fylgi fækkun eða fjölgun starfsfólks
hjá borginni svo neinu nemi né heldur kostn-
aðarauki. Þórdís Lóa sagði að unnið væri að því
að auðvelda aðgengi borgaranna að þjónustu
borgarinnar. Í síðustu viku var t.d. sett á fót
þjónustuteymi sem mun fylgja eftir málefnum
hvers og eins varðandi skipulags- og bygging-
armál og leiðbeina fólki.
Peningaskortur ekki vandamál
„Ég sé ekki að það breyti miklu þó að þrjú
svið taki við af þremur sviðum. Þetta er sama
fólkið,“ sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins. Hann sagði að skrifstofa eigna og at-
vinnuþróunar sem varð uppvís að lausatökum
yrði ekki lengur til að nafninu til. „Ég vona inni-
lega að þetta sé ekki tilraun til að fela mál sem
þar eru óskoðuð.
Það er engin kostnaðargreining sem fylgir
þessu. Það fara fjórir milljarðar í miðlæga
stjórnsýslu á ári. Það var örugglega ekki pen-
ingaskortur sem var vandamálið heldur einfald-
lega það að fara að reglum og lögum,“ sagði Ey-
þór.
Eigi að heyra undir borgarráð
Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólks-
ins, bókaði á fundi borgarráðs í gær. Þar fagn-
aði hún tillögum að breytingum á stjórnsýsl-
unni. Hún telur þó að borgarlögmaður og
borgarritari eigi að heyra undir borgarráð líkt
og innri endurskoðun og umboðsmaður borgara
eiga að gera. Einnig eigi B-hlutafélögin að
heyra beint undir borgarráð en ekki undir borg-
arritara.
Morgunblaðið/Eggert
Borgarráð Dagur, Þórdís Lóa, Dóra Björt og
Líf kynntu breytingarnar á fundi í gær.
Óskað var eftir aðstoð björg-
unarsveita á höfuðborgarsvæðinu
við umfangsmikla leit að konu sem
saknað var í Skaftafelli frá því um
miðjan dag í gær. Áður höfðu björg-
unarsveitir frá Árnessýslu til Vopna-
fjarðar verið kallaðar til leitar. Dav-
íð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi
Landsbjargar, sagði í gær að til
stæði að leita fram á nótt.
Konan er í litlum hópi sem er á
ferð um landið. Hún var með sam-
ferðafólki sínu á göngu um stíga
þjóðgarðsins en varð viðskila við það
og hafði ekkert spurst til hennar frá
því um miðjan dag í gær.
Davíð Már sagði að mannskapur
frá 12 björgunarsveitum af Suður-
og Austurlandi hefði verið kallaður
til leitar. annaei@mbl.is
Leituðu
týndrar
konu
Fjölmennt lið
við leit í Skaftafelli
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Persónuvernd birti í gær ákvörðun vegna at-
hugunar á notkun Reykjavíkurborgar og rann-
sakenda við Háskóla Íslands á persónuupplýs-
ingum frá Þjóðskrá Íslands. Upplýsingarnar
voru notaðar til að senda ungum kjósendum,
konum 80 ára og eldri og erlendum ríkisborg-
urum bréf og SMS fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar í maí 2018. Yfirlýstur tilgangur var að
auka kjörsókn þessara hópa. Að mati Persónu-
verndar voru skilaboð í þessum sendingum
gildishlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á
hegðun þessara kjósenda í kosningunum.
Málið í skoðun
„Mannréttindastjóri, persónuverndarfull-
trúi og borgarlögmaður eru að skoða málið og
svo þurfum við auðvitað að fara yfir það með
okkar samstarfsaðilum í Háskóla Íslands og
Þjóðskrá líka. Þetta snýr að öllum þessum að-
ilum,“ sagði Stefán Eiríksson borgarritari, sem
svaraði fyrir málið í fjarveru borgarstjóra.
Stefán taldi að átakið til að fá fólk til að mæta á
kjörstað hefði verið unnið að norrænni fyrir-
mynd. Það þyrfti augljóslega að skoða betur.
Persónuverndarlög brotin
„Niðurstaðan er sú að borgin hafi brotið per-
sónuverndarlög í aðdraganda kosninganna og
hafi veitt Persónuvernd villandi upplýsingar,“
sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins. Hann segir það vera sérlega við-
kvæmt þegar borgin sendi sumum og sumum
ekki hvatningu og í hvatningunni séu
ákveðnum þjóðfélagshópum gefnar rangar
upplýsingar.
„Fyrsta spurningin er hvað borgarstjóri og
borgarstjórnarmeirihlutinn ætli að gera. Það
hefur ekkert heyrst í þeim um þetta mál. Mér
finnst að meirihlutinn eigi að biðjast afsökunar
á að hafa gert þetta. Við munum fylgja málinu
eftir,“ sagði Eyþór.
Algjör áfellisdómur
„Þetta er algjör áfellisdómur yfir borginni,“
sagði Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokks-
ins. „Ég segi að þetta sé kosningasvindl, miðað
við kosningabaráttu Samfylkingarinnar. Þetta
var sent út í nafni Reykjavíkurborgar og fólk
hvatt til að nota X og kosningaréttinn. Maður
skilur betur allar flenniauglýsingar Samfylk-
ingarinnar á öllum strætóskýlum og húshorn-
um með X-S.“
Vigdís segir komið í ljós að borgin hafi aflað
upplýsinga á röngum forsendum. Aflað hafi
verið nafna, heimilisfanga og símanúmera sem
síðan hafi verið hægt að nota og hægt að senda
áfram skilaboð á viðkomandi aðila. „Það verður
að fylgja þessu eftir. Það er ástæða til að vísa
þessu máli til sveitarstjórnarráðuneytisins eða
umboðsmanns Alþingis,“ sagði Vigdís.
Gildishlaðin skilaboð til kjósenda
Embættismenn borgarinnar skoða málið Vill að borgarstjórnarmeirihlutinn biðjist afsökunar
Eyþór
Arnalds
Vigdís
Hauksdóttir
Stefán
Eiríksson
Lögreglan á Suðurnesjum rannsak-
aði í gær andlát sem varð í Grinda-
vík á sjötta tímanum og hafði einn
verið handtekinn, að sögn frétta-
vefjar Fréttablaðsins.
Þegar leitað var upplýsinga hjá
lögreglunni á Suðurnesjum þá
varðist hún allra frétta, en sagði að
send yrði út tilkynning um málið.
Andlát í Grindavík
til rannsóknar