Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 6

Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Fermingar- myndatökur Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is „Það var ekki meiningin að þetta yrði borið á torg. Það var alveg nóg að almættið vissi af þessu,“ segir Guðmundur Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Nesskips, í sam- tali við Morgunblaðið. Guðmundur og kona hans, Ólöf Guðfinnsdóttir, gáfu öll rúmin til Seltjarnar, hins nýja hjúkrunarheimilis sem vígt var á Seltjarnarnesi í byrjun mánaðar- ins. „Þessu var mjög vel tekið. Við vorum búin að ræða það að við ætt- um kannski að leggja þessu lið. Niðurstaðan varð sú að okkur fannst skemmtilegra að gefa eitthvað áþreifanlegt í staðinn fyrir að gefa bara aurinn. Þá kannaði ég hvort væri sniðugt að gefa eins og helm- inginn af rúmunum. En svo hugsaði ég að það gengi ekki að hafa tvær gerðir, svo við keyptum öll rúmin og náttborðin,“ segir Guðmundur. Um er að ræða sjúkrarúm af full- komnustu gerð og er verðmæti rúm- anna 40 talið vera á bilinu 10-15 milljónir króna. Velferðarráðuneytið og Seltjarnarnesbær hafa byggt hjúkrunarheimilið þar sem ríkið greiðir 85% af heildarkostnaði hús- næðisins og Seltjarnarnesbær 15%, auk þess að greiða fyrir aðstöðu dagdvalar. Hjúkrunarheimilið samanstendur af fjórum 10 herbergja heimilum þar sem eru alls 40 hjúkrunarrými ásamt miðlægum kjarna fyrir dag- dvöl, sjúkraþjálfun, iðju og þjónustu fyrir allt að 25 manns. Fyrsta skóflustungan að hjúkrunarheim- ilinu var tekin árið 2014. Þá var áætlað að taka heimilið í notkun árið 2016. Kristján Sigurðsson, forstjóri Vigdísarholts, sem er rekstraraðili hjúkrunarheimilisins, segir að stefnt sé á að hefja rekstur Seltjarnar í kringum 20. mars næstkomandi. Lögðu til öll rúmin á nýju hjúkrunarheimili  Hjónin Guð- mundur og Ólöf gáfu rausnarlega Ljósmynd/Seltjarnarnesbær Rúmagjöf Hjónin Ólöf Guðfinnsdóttir og Guðmundur Ásgeirsson. Sjúkrarúm Af bestu gerð á Seltjörn. Jón Gunnarsson hefur tekið við sem formaður um- hverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Þetta er tíma- bundin ráðstöfun, þar til lausn finnst um framtíðar- formann, að því er fram kom í fréttatilkynningu frá Vinstri grænum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæð- isflokknum í gær. Bergþór Ólason, sem verið hafði formaður nefnd- arinnar, kaus að stíga til hliðar vegna ósættis með for- mennsku hans. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fulltrúi VG í nefndinni, kaus gegn tillögu um Jón sem formann. Það sama gerðu Helga Vala Helgadóttir og Hanna Katrín Frið- riksson. Sex fulltrúar í nefndinni kusu hins vegar með tillögunni, þar með taldir þeir Bergþór og Karl Gauti Hjaltason. „Okkur þótti ekki sjálfgefið að vinstri flokkarnir innan meirihlutans tækju upp hjá sjálfum sér að úthluta í sinn hóp þeirri nefndarfor- mennsku sem við teljum okkur hafa stöðu til að stjórna,“ sagði Bergþór Ólason við mbl.is í gær. Jón tekur við formennsku af Bergþóri Jón Gunnarsson Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Dæmi eru um að hnefaleikaiðk- endur á Íslandi sleppi því að leita sér heilbrigðisaðstoðar í kjölfar meiðsla vegna fordóma í garð íþróttarinnar frá heilbrigðisstarfs- fólki. Þetta er meðal tilgátna sem Harpa Söring Ragnarsdóttir setur fram í nýrri meistararannsókn sinni við heilbrigðisvísindasvið Há- skóla Íslands. Þar kannaði hún meðal annars meiðslatíðni og áhættuþætti bráðra meiðsla hjá hnefaleikaiðk- endum á Íslandi. 74 iðkendur af báðum kynjum tóku þátt og voru 48 meiðsli skráð yfir rann- sóknartímabilið. Af þeim voru tæp 30% vegna heilahristings. Í rannsókninni kom í ljós að aðeins þrír af 14 iðk- endum sem tóku þátt og hlutu heilaáverka leituðu til heilbrigð- isstarfsmanns í kjölfarið. Harpa segir það vera áhyggjuefni og ein tilgáta sé þetta viðmót sem tekur á móti iðkendum, en hún hefur sjálf heyrt af slíku eftir að hafa stundað íþróttina. „Það er mikið áhyggjuefni. Iðk- endum finnst þeir mæta fordómum frá heilbrigðisstarfsfólki fyrir að stunda íþróttina. Ef leitað er til læknis hafa svörin verið á þá leið að viðkomandi sé heimskur að vera að stunda þessa íþrótt. Þá kannski vilja iðkendur síður leita til læknis vegna þess að þetta við- mót mætir þeim,“ segir Harpa. Annað sem kom í ljós í rann- sókninni var að heilahristingur sé algengasta tegund meiðsla hjá iðk- endum hnefaleika. Niðurstöður benda einnig til þess að heilahrist- ingur sé algengari hjá iðkendum á Íslandi en rannsóknir erlendis gefa til kynna, en Harpa segir að því þurfi að taka með fyrirvara. Munur sé á aðferðafræði rann- sókna þar sem til dæmis var miðað við áhugaiðkendur hér en flestar erlendar rannsóknir taka einnig fyrir atvinnuiðkendur. Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, for- maður Hnefaleikasambands Ís- lands, HNÍ, segir spurð um vinnu- lag sambandsins að læknir sé ávallt viðstaddur á mótum þess. Hann geti farið fram á að leikur sé stöðvaður hvenær sem er. Tilkynningaskylda til HNÍ Ef iðkandi hefur orðið fyrir höf- uðmeiðslum má hann ekki æfa eða taka þátt í mótum fyrr en að ákveðnum tíma liðnum. Varðandi meiðsli á æfingum segir Ásdís að það sé á ábyrgð félaga að tilkynna slíkt. „Innan okkar sambands er til- kynningarskylda ef eitthvað kem- ur fyrir á æfingu. Þú átt að fara til læknis, en við getum ekki skipað fullorðnum einstaklingi að gera það,“ segir Ásdís og bendir á að iðkendum beri jafnframt að til- kynna ef þeir stunda aðra íþrótt og hafa meiðst við iðkun hennar. Ávallt þurfi að hvíla sig í kjölfar höfuðáverka og eru reglur sam- bandsins strangar um það. Mæta fordómum lækna  Ný rannsókn tekur fyrir meiðsli hjá hnefaleikaiðkendum á Íslandi  Algengast er að fá heilahristing  Iðkendur finna fyrir fordómum heilbrigðisstarfsfólks Morgunblaðið/Eva Björk Hnefaleikar Frá keppni í hnefaleikum hér á landi. Algengustu meiðsli iðkenda íþróttarinnar eru heilahristingur. Harpa Söring Ragnarsdóttir Einar Kárason rithöfundur tók sæti á Alþingi í gær sem 2. vara- þingmaður Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Sam- fylkingarinnar. Einar hefur ekki setið áður á Al- þingi. En hvernig líst honum á að vera orðinn hátt- virtur alþingismaður? „Mér finnst ég nú eiginlega ekki vera orðinn það,“ sagði Einar. „Ég leit hér inn í einhverja daga til af- leysingar. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég fór til Ind- lands um daginn og hef ekki gert það áður og nú er maður kominn á Alþingi!“ Einar segir að þingsetuna hafi borið brátt að. Hann fékk að vita í fyrrakvöld að hann ætti að mæta til þings í gær. „Ég stökk til og tók þátt í þingstörfunum og hélt meira að segja jómfrúrræðu, sem ég hélt að ég myndi aldrei gera. Ræðuna flutti ég í umræðu um fæðingarorlofsmál. Ég er faðir fjögurra dætra og vona að þetta mál fái framgang. Fæðing- arorlof var ekki komið til þegar dæt- ur mínar voru litlar.“ Venjan er að varaþingmenn taki sæti í eina viku og reiknar Einar ekki með að þingseta hans verði lengri að þessu sinni. Nú er hafin kjördæmavika. Einar kvaðst reikna með að hann taki þátt í því ásamt samflokksmönnum sínum að ræða við kjósendur í kjördæminu sem er Reykjavík suður. gudni@mbl.is Einar Kárason á Alþingi Einar Kárason  Þingsetuna bar mjög brátt að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.