Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Frumvarp til laga og þingsályktun- artillaga sem snúa að lögræðislögum hafa verið lögð fram á Alþingi. Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, leggur til að bætt verði í lögin ákvæði um fyrirframgefna ákvarð- anatöku og Þórhildur Sunna Ævars- dóttir pírati leggur til heildarend- urskoðun á lögunum. Frumvarp Hönnu Katrínar snýr að því að virða vilja fólks sem svipta þarf sjálfræði vegna geðfatlana. Hanna Katrín segir það skref í að virða mannréttindi þessa fólks auk þess sem rannsóknir hafi sýnt að slíkt hafi meðferðargildi og jákvæð áhrif. „Hluti af því sem felst í orðinu nauðung er að verið er að gera hluti þvert á vilja fólks. Ef fólk fær tæki- færi til að lýsa vilja sínum og fara í gegnum ferlið án þess að sjúkdóm- urinn trufli veit það að það þarf að fara að þeim vilja. Við það dregur úr líkum á misskilningi við nánustu að- Hanna Katrín Friðriksson Þórhildur Sunna Ævarsdóttir  Ákvæði um fyrirframgefna ákvarðanatöku standendur og dregur úr nauðung eins og dæmi hafa sýnt,“ segir Hanna Katrín Friðriksson sem legg- ur fram breytingu á lögunum í tengslum við mikla umræðu um geð- fatlanir og mannréttindi ýmissa jaðarhópa. Auk þess sem hún segist eins og svo margir aðrir þekkja fólk sem hefur vegna veikinda verið svipt lög- ræði og það jafnvel ítrekað. „Mér finnst áberandi hvað nauð- ungarvistunarferli situr í fólki eftir lögræðissviptingu. Sérstaklega að það ráði litlu sem engu og sé háð öðrum,“ segir Hanna Katrín sem er vongóð um að málið nái fram að ganga. Hún segir að í löndunum í kringum okkur hafi ákvæði um fyr- irframgefna ákvarðanatöku verið sett í sérlög eða tekin með í endur- skoðun lögræðislaga. Þórhildur Sunna segir að tillaga Hönnu Katrínar kalli ekki á heildar- enduskoðun laganna heldur ein- göngu það sem snúi að sviptingu sjálfræðis. Það sem kalli á breyt- ingar á lögunum í heild sé að þau mismuni fólki lagalega á grundvelli geðsjúkdóms eða geðfötlunar og samrýmist hvorki samningi Samein- uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks né öðrum skuldbindingum Ís- lands. Megi þar nefna Mannrétt- indasáttmála Evrópu og tilmæli al- þjóðastofnana og nefndar Evrópu- ráðsins um varnir gegn pyntingum og annarri vanvirðandi eða ómann- úðlegri meðferð eða refsingu. „Lögin okkar standast ekki allar kröfur um vernd réttinda fatlaðra eða frelsissviptra sem eru sjálfráða einstaklingar sem vistaðir eru á sjúkrahúsi gegn vilja sínum til lækn- ismeðferðar við alvarlegum geð- sjúkdómum,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. „Það er mín tilfinning að vegna þess að Ísland er lítið samfélag geti það orsakað að litið sé svo á að ekki þurfi skýrar reglur um fólk sem okk- ur finnst að við eigum rétt á að hafa vit fyrir,“ segir Þórhildur Sunna sem sett hefur upp rettindagatt.is fyrir Geðhjálp með fróðleik um laga- leg réttindi fólks með geðraskanir. Vilja breyta lögræðislögum Karl og kona, af erlendum uppruna, sitja í gæslu- varðhaldi vegna fíkniefnamáls sem teygir anga sína aftur til ársins 2017. Lögregluembættin á höfuðborg- arsvæðinu og Suðurnesjum hafa verið með málin til rannsóknar, alls sjö tilvik frá 2017 og 2018, þar sem kókaín var flutt til Íslands með farþegaflugi um Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöll, auk innflutnings með póstsendingum. Samtals er um 3 kg af kókaíni að ræða, en rannsókn lögreglu snýr ennfremur að peningaþvætti, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Tveir til viðbótar voru handteknir í aðgerðum lög- reglu en þeim var sleppt að loknum skýrslutökum. Úrskurður um varðhald yfir hinum gildir til 15. febr- úar, en annar aðilinn var handtekinn í Reykjavík og hinn á Litla-Hrauni. Sá síðarnefndi, meintur höf- uðpaur málsins, var handtekinn í lok síðasta árs þeg- ar hann kom til landsins á fölsku nafni og var í fram- haldinu gert að afplána dóm vegna annarra mála. Kókaínsmygl og peningaþvætti  Karl og kona í gæsluvarðhaldi  Samtals 3 kg af kókaíni Morgunblaðið/Júlíus Kókaín Hald var lagt á þrjú kíló, að sögn lögreglunnar. Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Peysu- kjólarnir vinsælu komnir Kr. 6.990 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Fyrir 10 árum var Landspítalinn í efsta sæti norrænna háskólaspítala varðandi fjölda tilvitnana í vísinda- greinar sem tengdust spítalanum. Fjöldi tilvitnana segir til um áhrif greinanna og skiptir miklu máli. Því fleiri sem vitna í grein því áhrifa- ríkari er hún,“ segir Sigurður Guðmundsson, fv. landlæknir og sérfræðingur í lyflækningum og smitsjúkdómum á lyflækningasviði Landspítalans. Sigurður bend- ir á að Landspít- alinn sé nú í neðsta sæti norrænu háskólaspítal- anna og það sé verulegt áhyggjuefni sem bregðast þurfi við. Sigurður segir ástæðurnar flókn- ar; verr hafi gengið á köflum að leita styrkja og hugsanlega sé ekki nægi- legur tími veittur til rannsókna. „Kannski höfum við sem eldri er- um ekki gengið fram með góðu for- dæmi og hugsanlega á unga fólkið of annríkt í vinnunni til þess að sinna rannsóknum. Þetta er alveg gríðar- lega flókið mál og engin einföld skýring. Við verðum að komast að því hvað veldur og hvað við getum gert, því fyrr því betra,“ segir Sig- urður sem telur hugsanlegt að and- legt og líkamlegt álag á Landspít- alanum komi í veg fyrir að starfsmenn hafi orku til þess að sinna rannsóknum. Beinskeytt úttekt Sigurður er ánægður með úttekt landlæknis vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landspítalans sem gerð var í desember og telur hana jafnvel beinskeyttustu úttekt sem Landlæknisembættið hefur gert síð- an 2002. Að vísu sé um hlutaúttekt að ræða en full ástæða sé til þess að hrósa úttektinni. „Það var ærið tilefni til úttektar- innar. Umræðan hefur verið alvar- legri og þyngri síðustu ár. Við erum komin út í horn í öldrunarmálum og okkur sem vinnum á Landspítalan- um finnst við ekki geta unnið vinn- una okkar sem skyldi. Við sinnum bráðavandamálum mjög vel en ekki þegar kemur að fólki með langvinna sjúkdóma sem þurfa lengri umönn- unar við. Í því sambandi dettur mér í hug orð Guðrúnar Ósvífursdóttur: „Þeim var ég verst er ég unni mest“ og mætti snúa þeim upp á ástandið í dag: „Þeim erum við verst sem þurfa mest á okkur að halda,““ segir Sig- urður sem segir það óboðlegt og eldra fólk eigi það ekki skilið að liggja langdvölum inni á sjúkradeild- um sem eru eins og járnbrautarstöð með hávaða og látum. Sigurður segir að fyrir utan vönt- un á hjúkrunarrýmum vanti aðstoð til eldra fólks í heimahúsum. Ýmist séu úrræðin ekki til staðar eða bið eftir þeim. Sigurður segir að það blasi einnig við að skortur á hjúkr- unarfræðingum verði ekki leystur fyrr enn kjör þeirra verði bætt. Lægst meðal nor- rænna háskóla  Rannsóknir dregist saman sl. 10 ár Sigurður Guðmundsson Morgunblaðið/Ómar Háskólasjúkrahús Dregið hefur úr ritun vísindagreina við sjúkrahúsið. Karólína Lárusdóttir myndlistarkona lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 7. febrúar, 74 ára að aldri. Karólína fæddist í Reykjavík 12. mars 1944. Foreldrar hennar voru Lárus G. Lúðvígs- son og Daisy Saga Jós- efsson. Hún tók lands- próf við Gagnfræða- skólann í Vonarstræti og lauk stúdentsprófi frá MR 1964. Karólína sótti teikninámskeið í London sumarið 1963 og kvöld- námskeið hjá Sverri Haraldssyni við Myndlistaskólann í Reykjavík vet- urinn eftir. Karólína nam myndlist í Eng- landi, í Sir John Cass College á ár- unum 1964 til 1965. Að því loknu stundaði hún nám við Ruskin School of Fine Art í Oxford. Þaðan útskrif- aðist hún árið 1967. Karólína bjó og starfaði í Bretlandi um árabil og var myndlist hennar mótuð af megin- straumum breskrar myndlistar- hefðar, en myndheimur hennar var íslenskur. Myndefni sitt sótti hún ekki síst í æskuminningar sínar, m.a. af mannlífinu á Hótel Borg á árum áður og sömuleiðis af farþegum og starfs- fólki um borð í MS Gullfossi. Karólína varð félagi í Hinu konunglega fé- lagi breskra vatnslita- málara, The Royal Wa- tercolor Society, árið 1992. Hún var einnig félagi í The New Art Club og Royal Society of Painter Printmak- ers frá árinu 1986. Karólína vann til fjölda verðlauna og má þar nefna The Dicks and Greenbury 1989, The 4th Triennale Modiale D’Estames Petit Format í Frakklandi 1990 og bjartsýnisverð- laun Bröstes 1997. Karólína hélt fjölda einkasýninga, m.a. í Bretlandi, Danmörku, Frakk- landi, Íslandi, Ítalíu, Namibíu, Spáni og Suður-Afríku. Auk þess tók hún þátt í samsýningum úti um allan heim. Karólína var tvígift. Fyrri maður hennar var Clive Percival, þau skildu. Seinni maður hennar var Fred Roberts, en hann lést árið 2002. Börn Karólínu eru Stephen Lárus og Samantha. Lifa þau móður sína. Andlát Karólína Lárusdóttir myndlistarkona

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.