Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 14
Útsýni Á góðum degi má sjá langleiðina til Grænlands ef vilji er fyrir hendi! Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Bolvíkingar hafa hug á að hefja sem fyrst vinnu við uppsetningu á útsýnis- palli á Bolafjalli og hafa sótt um fram- lag úr Framkvæmdasjóði ferða- mannastaða. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segist ekki efast um að með bættri aðstöðu muni umferð upp á fjallið aukast. Hann segir að útsýnispallurinn eigi eftir að verða aðdráttarafl fyrir ferða- menn og staðsetning mannvirkisins sé einstök. Þá einnig sú staðreynd að vegur sé upp á fjallsbrún í 630 metra hæð. Bæjarstjórinn miðar við að framkvæmdin gæti kostað tugi millj- óna, jafnvel yfir 100, en kostnaðar- áætlun hefur ekki verið fullunnin. Í gær voru veitt verðlaun í sam- keppni um útsýnispall á Bolafjalli og bar tillaga frá Landmótun, Sei- arkitektum og Argosi sigur úr být- um. Í áliti dómnefndar kemur fram að vinningstillagan sé látlaus en afar sterk hugmynd sem virði umhverfið og beri það ekki ofurliði. „Það er ljóst að útsýnispallur á Bolafjalli mun verða eitt af helstu kennileitum í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og verð- ur án efa einn vinsælasti viðkomu- staður ferðamanna á Vestfjörðum og þótt víða væri leitað,“ segir í tilkynn- ingu, en á Bolafjalli er ratsjárstöð. Hluti af klettabeltinu Nýr útsýnisstaður við Bolafjall verður hluti af klettabeltinu, segir í lýsingu á vinningstillögunni. Hann á að halla um þrjár gráður niður á við eftir 58,5 metra langhlið og skaga um fjóra metra fram fyrir fjallsbrúnina sem hann fylgir. Pallurinn byrjar í landhæð, en þegar á enda pallsins er komið er augnhæð komin niður fyrir landhæðina. Þá er ekki annað að sjá en hlíðar Bolafjalls, Djúpið, fjöllin og firðina, haf og himin. Breidd pallsins er breytileg og tek- ur form sitt eftir formi fjallsins, en pallurinn er hálfur annar metri þar sem hann er þrengstur. Á miðri leið verða gerðar tröppur í skarði í fjall- inu þannig að þar verður hægt að fara aftur upp. Handrið verður 1,25 m á hæð, en handlisti í eins metra hæð. Aðspurður segir Jón Páll að forvitnilegt verði að fylgjast með störfum þeirra sem taka að sér að koma festingum fyrir í bjarginu. Væntanlega þurfi menn að síga í öryggisbúnaði niður fyrir bjargbrún með stóra borvél í farteskinu til að bora bergbolta í fjallið. Uppbygging pallsins verður þannig að stálgrind verður fest í bjargið með skáskífum sem festar verða í bita og boltaðar neðar í bjargið. Afgerandi segull á svæðinu „Vissulega fylgir því talsverður kostnaður að byggja útsýnispallinn og gera nauðsynlegar úrbætur á fjall- inu, en það er líka eftir miklu að slægjast,“ segir Jón Páll. „Við höfum verið að vinna að því að fjölga ferða- mönnum og bætt aðstaða á Bolafjalli yrði afgerandi segull á svæðinu sem myndi draga til sín fólk.“ Hann nefnir að til viðbótar við venjulega ferða- menn komi um 100 þúsund farþegar af skemmtiferðaskipum. Tölvumyndir/Sei/Landmótun/Argos Bolafjall Gera á útsýnispall, laga bílastæði og breyta gönguleiðum samkvæmt vinningstillögu. Þegar ratsjárstöðin var reist var lagður þangað vegur, sem hefur verið opinn yfir hásumarið. Út fyrir ystu brún á Bolafjalli  Segja útsýnispall verða aðdráttarafl fyrir ferðamenn  Einstök staðsetning Spennandi valkostur Fremst skagar pallurinn fram yfir bjargbrúnina í rúmlega 600 metra hæð, tæpast fyrir lofthrædda, en spennandi möguleiki fyrir aðra. Yrði nýtt kennileiti Pallurinn er tæplega 60 metrar að lengd og lagar sig að fjallinu. Í fjarska sést Grænahlíð. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.