Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 18
FRÉTTASKÝRING Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Elín Hoe Hinriksdóttir, for-maður ADHD-samtak-anna, segir nauðsynlegtað bæta aðgengi ungs fólks með ADHD að geðlæknum. Dæmi eru um að ungmenni, sem hafa áður verið á ADHD-lyfjum, lendi í allt að tveggja ára bið eftir tíma hjá geðlækni til að komast á lyfin á ný. „Aðgengi að geðlæknum er sama og ekki neitt. Fyrir fullorðna einstaklinga sem vilja fara í grein- ingu þarf það að fara í gegnum sál- fræðing eða geðlækni. Ef þú ætlar að fá lyf þarf það að fara í gegnum geðlækni, lögum samkvæmt. Það getur verið allt að tveggja ára bið að komast að hjá geðlækni. Ef þú yfir höfuð kemst að,“ segir Elín og bætir við þetta geti verið gríðarlega haml- andi. „Við fáum mikið af símtölum frá fólki sem er að fara í nám eða er byrjað í námi og er komið í vand- ræði. Þau fá í rauninni litla sem enga þjónustu, allavega ekki læknisþjón- ustu,“ segir Elín. Hringja grátandi í samtökin Þrátt fyrir að fólk hafi áður ver- ið á lyfjunum er ekki hægt að fara til heimilislæknis og fá þau á nýjan leik, segir Elín. „Við höfum tekið við mörgum símtölum frá grátandi fólki. Þetta er það alvarlegt.“ Spurð segir hún þeim fjölga sem leita til samtakanna. ADHD- samtökin hafa um árabil séð um að veita einstaklingum með ADHD og aðstandendum fræðslu og beina þeim í réttan farveg. „Við sjáum fleiri einstaklinga leita til okkar, al- veg klárlega,“ segir Elín og á þar einkum við fólk yfir tvítugu en einn- ig eldra fólk frá 60 til 65 ára. Samtökin taka fólk einnig í ráð- gjöf ef þess þarf en Elín bendir á að margir leiti til þeirra til að fá upplýs- ingar um réttindi sín, t.d. hvað varð- ar vinnu. „Athyglisbrestur er eitt af ein- kennum sem fylgja ADHD og það er mjög hamlandi í vinnu og námi. Þeg- ar þú ert orðin/n eldri og komin/n t.d. í krefjandi nám þarftu stundum á aðstoð að halda og fara á lyf. Því miður eru bara alltof margir sem flosna upp úr námi. Það er ekki þar með sagt þótt þú farir á lyf að þú þurfir á þeim að halda alla ævi. Lyf- in eru kannski hækja sem hjálpar þér og þú gætir þurft á þeim að halda tímabundið á meðan þú ert í náminu.“ Lyfjameðferð nauðsynleg Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræð- ingur og höfundur bókarinnar Ferð- lag í flughálku – Unglingar og ADHD, segir rannsóknir sýna að lyfjameðferð og önnur meðferð skili bestum árangri fyrir ungt fólk með ADHD. „Rannsóknir sýna að besta leiðin til að vinna með ADHD er að greiningin komi snemma, þannig að ekki séu komnir fylgikvillar, nið- urbrot á sjálfsmyndinni og fleira. Ef þú greinist snemma sé hægt að grípa inn í. Rannsóknir sýna einnig að besta leiðin sé bæði lyfjameðferð og önnur meðferð. Getur verið fræðsla, getur verið sálfræði- meðferð, þjálfun í félagsfærni o.s.frv. Það fer eftir ýmsu því ADHD-unglingar eru jafn mismun- andi og við erum öll.“ Sólveig segir nauðsynlegt að grípa snemma inn í, annars geti ADHD valdið því að fólki gangi illa. „Þau dragast aftur úr í skóla- kerfinu þrátt fyrir góða námshæfi- leika að öðru leyti. Oft eiga þau erfitt með félagsleg samskipti þannig að einmanaleiki er oft tíður fylgifiskur. Svo getur hegðunarvandi líka fylgt.“ Allt að tveggja ára bið eftir geðlækni Morgunblaðið/Golli ADHD Athyglisbrestur og ofvirkni geta valdið því að fólk á erfitt með félagsleg samskipti. Einmanaleiki er því oft tíður fylgifiskur ADHD. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er allt ásömu bókinalært hjá Reykjavíkurborg. Í gær birti Persónu- vernd niðurstöðu sína í frumkvæðis- athugunarmáli þar sem borgin hafði misfarið með persónu- upplýsingar frá Þjóðskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí síðastliðnum. En það er ekki nóg með að borgin hafi brotið lög við vinnslu persónuupplýsinga, sem hún notaði svo til að ýta undir aukna þátttöku þeirra kjósenda sem meirihlutinn taldi líklegustu kjósendur sína, heldur sinnti borgin illa því að svara erindum Persónuverndar vegna málsins, eins og fram kemur í úrskurð- inum. Það leynimakk segir sína sögu um slæma samvisku borg- arstjórnarmeirihlutans í málinu, en í úrskurði Persónuverndar segir að í svörum Reykjavík- urborgar hafi „ekki komið fram fullnægjandi skýringar á því hvers vegna Persónuvernd voru ekki veittar upplýsingar um alla þætti málsins eftir að stofnunin óskaði sérstaklega eftir því með bréfi, dagsettu 14. maí 2018. Að mati Persónuverndar verður að telja það alvarlegt að ábyrgð- araðili að vinnslu persónu- upplýsinga, sem í þessu tilviki er stærsta sveitarfélag landsins, skuli láta undir höfuð leggjast að svara fyrirspurnum eftirlits- valds með skýrum og fullnægj- andi hætti.“ Borgaryfirvöld telja sig ekki þurfa að fara að lögum og reglum í þessu frekar en öðru og hafa ef til vill talið nauðsyn brjóta lög. Meirihlutinn var illa staddur fyrir kosningar, enda kom í ljós eftir kosningar að hann var fall- inn og þurfti nýja hækju til að haltra áfram. Viðreisn tók því hlutverki feginshendi. Til að draga úr kosninga- tapinu fór borgarstjórnar- meirihlutinn leið sem engum hefur til þessa dottið í hug. Hann misnotaði borgarkerfið – og braut í leiðinni lög – og lét senda helstu markhópum sínum sérstök skilaboð um að mæta á kjörstað. Þetta er nokkuð sem stjórn- málaflokkar reyna gjarnan að gera til að auka líkur á góðri niðurstöðu og er ekki gagn- rýnivert enda hljóta þeir að gera það sem hægt er til að styrkja stöðu sína í kosningum. Þeir sem stjórna hinu opinbera fyrir almenning, hvort sem það eru sveitarfélög eða ríki, geta hins vegar ekki leyft sér að mis- nota þá aðstöðu sína með þeim hætti sem meirihlutinn í Reykjavík hefur gerst sekur um. Gróft brot stjórnenda borg- arinnar í lýðræðislegum kosn- ingum liggur nú fyrir. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig þeir sem ábyrgð bera í borginni bregðast við. Borgin braut lög til að auka líkur vinstri manna á að hanga á meirihlutanum} Síbrotaborg Undarlegt erhversu oft illa ódrukknum þing- mönnum fipast þeg- ar þeir taka sér vald sem þeir hafa ekki. Nú síðast ákváðu nokkrir þeirra að refsa samþingmanni sínum með því að hafa af honum nefndarfor- mennsku og launaauka sem henni fylgir vegna ógætilegs tals á vertshúsi. Hvorki einstakir þingmenn né þingið sem stofnun hafa hús- bóndavald yfir þingmönnum ut- an húss og aðeins í takmörk- uðum tilvikum innan þinghúss. Nefndarformennska hefur ekk- ert með það galgopatal, leitt og ljótt, að gera. Þingmenn hafa ótal sinnum setið að sumbli, utan lands. Af því eru til sögur, sannar og logn- ar, og koma hinir mætustu menn við sögu, sumir löngu dánir sögufrægir og dáðir. Forðum var umhendis að sitja á hleri og þótti jafnvel skammarlegra en skraut- legt tal. Á löngum tíma hefur margt verið talað eftir að vínið tryggði að mönnum varð lausari tungan en endranær. Sjálfsagt fengi fæst af slíku tali fegurð- arverðlaun þótt í minningu gleð- skaparmanna hafi margt verið löðrandi í snilld. Það getur ekki ráðið því hvort mað- ur sé formaður nefndar hvort hann hefur setið að sumbli með jafningjum sínum og sagt meira en hann sjálfur síðar kaus. Það væri annað mál hefði maðurinn viljandi hrópað skæt- inginn yfir lýð sem kom engum vörnum við. Nú er látið eins og að sökin felist í því að hafa verið hleraður. En varla fær það stað- ist. Þar með væri þingheimur að telja að ekki sé lengur saknæmt að aka ökutæki ofurölvi. Lög- brotið felist í því að láta nappa sig. Hin bannfærða regla, sé hún til og skyndilega praktíseruð, hlýtur að vera sú að hafa ölvaður í lokuðum hópi sagt eitthvað sem allsgáðir væru ólíklegir til. Ef talið væri að slíkt athæfi útilokaði að slíkir yrðu nefnd- arformenn, svo ekki sé talað um þingforseta, þyrfti rannsókn og yfirheyrslur í hvert skipti. Ein- staklingi sem t.d. í þing- mannahópi vel slompaðra hefði stolið stærsta fiðrildi í heimi af skrifstofu umhverfisráðherra og jafn slompaður farið óboðinn í afmæli til fv. forsætisráðherra og gefið honum þar hið stolna fiðrildi hlyti eftir það að vera all- ar framabjargir bannaðar. Ófullir fara yfir strikið líka}Svo dæmi sé nefnt Í slensk tónlist hefur notið mikillar vel- gengni bæði hérlendis sem erlendis. Grunnurinn að þeirri velgengni er metnaðarfullt tónlistarnám um allt land í gegnum tíðina, sem oftar en ekki er drifið áfram af framsýnu hug- sjónafólki. Þjóðin stendur í þakkarskuld við einstaklinga sem hafa auðgað líf okkar með tónlistinni og bæði gleður og sameinar. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina stutt við eflingu tónlistarinnar bæði í gegnum stuðn- ing við menntun og svo sértækar aðgerðir á borð við stofnun Útflutningsskrifstofu ís- lenskrar tónlistar, Útflutningssjóðs, lagasetn- ingu um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar tónlistar og stofnun Hljóðrita- sjóðs. Á síðasta ári var gerð hagrannsókn á tekjum tónlistarfólks og hagrænu umhverfi tónlistargeirans á Íslandi. Helstu niðurstöður hennar voru að heildartekjur íslenska tónlistariðnaðarins á ár- unum 2015-16 voru um það bil 3,5 milljarðar kr., auk 2,8 milljarða kr. í afleiddum gjaldeyristekjum til samfélags- ins vegna komu tónlistarferðamanna til landsins. Ljóst er að þetta er umfangsmikill iðnaður á Íslandi sem drif- inn er áfram af sköpun og hugviti. Sem gott dæmi um vöxt og metnað í tónlistarstarfi má nefna starf Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Sam- hliða því að bjóða landsmönnum upp á glæsilega dag- skrá í hartnær 25 ár hefur hljómsveitin einn- ig tekið upp tónlist fyrir ýmsar kvikmyndir og sjónvarpsþætti í menningarhúsinu Hofi undanfarin ár. Í Hofi er búið að gera fram- úrskarandi aðstöðu til að vinna og framleiða slíka tónlist. Sem dæmi um verk sem tekin hafa verið upp er tónlistin fyrir kvikmyndina Lói – þú flýgur aldrei einn, en það er eitt umfangsmesta tónlistarverkefni sem ráðist hefur verið í fyrir kvikmynd hér á landi. Það er ótrúlega verðmætt og mikil viðurkenning fyrir Ísland að okkar tónlistarfólk hafi burði til að verða leiðandi í kvikmyndatónlist á heimsvísu ásamt því að laða til landsins hæfi- leikaríkt fólk frá öllum heimsins hornum. Það er mikilvægt að halda áfram að styrkja umgjörð skapandi greina í landinu. Stjórnvöld vilja að skapandi greinar á Ís- landi séu samkeppnishæfar og telja nauðsynlegt að þær nái að dafna sem best. Mikilvæg skref hafa verið stigin í uppbyggingu menningarhúsa á landsbyggðinni en ljóst er að þau hafa sannað gildi sitt víða um land og haft ótvíræð jákvæð margfeldisáhrif á tónlistar- og menning- arlíf bæja og nærsamfélaga. Höldum áfram veginn og styðjum við skapandi greinar sem auðga líf okkar svo mjög. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Lói skapar gjaldeyristekjur Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Athyglisbrestur og ofvirkni sem kallað er ADHD í daglegu tali, staf- ar af taugaþroskaröskun. Rösk- unin kemur yfirleitt snemma fram samkvæmt upplýsingum frá ADHD samtökunum eða um 7 ára aldur. Athyglisbrestur og ofvirkni er al- gerlega óháð greind. Nýjar rann- sóknir sýna að 5-10% af hundraði barna og unglinga glíma við of- virkni sem þýðir að 2-3 börn með ADHD gætu verið í hverjum bekk að meðaltali í öllum aldurshópum. Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræð- ingur segir að fjöldi barna með ADHD á Íslandi sé í samræmi við það sem er annars staðar á Norð- urlöndum. „Það sem er kannski að gerast er að það eru fleiri að gera greiningar. Greiningarnar búa ekki til ADHD, þær bara leiða það í ljós.“ Börn geta einnig verið með væg einkenni. Í hópi barna með ADHD eru þrír drengir á móti hverri einni stúlku. Nýjar rann- sóknir benda þó til að fleiri stúlkur séu með ADHD en talið hefur verið, en þær koma síður til greiningar. Athyglisbrestur og ofvirkni ADHD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.