Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar - tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Sjaldan hefur birst grein í fjöl- miðli með jafn öfugsnúnum titli og hér í Morgunblaðinu í gær. Höf- undur er Jón Baldvin Hannibalsson sem ber hálfsannleik, róg og hreinar lygar á borð fyrir lesendur undir yfirskriftinni „sannleikurinn er sagna bestur“. Tilefnið er viðtal sem við undirritaðir tókum við dóttur Jóns, Aldísi Schram, á dögunum. Al- dís hefur í marga áratugi mátt sæta því að vera útmáluð sem ómarktæk- ur geðsjúklingur og hefur það verið meginþemað í málsvörn Jóns frá því að fjölmargar konur komu ein af annarri fram með frásagnir um kyn- ferðisbrot, áreitni og ósæmilega hegðun hans í sinn garð. Höfum í huga að það var Jón Baldvin sem fyrstur hóf umræðu um veikindi dóttur sinnar opinberlega. Aldís hefur ekki haft sama aðgang að fjöl- miðlum enda „geðveik“. Samkvæmt læknisskýrslum sem Aldís leyfði undirrituðum að sjá var hún á sín- um tíma greind með geðhvörf. Í framhaldi af þessari opinberu um- ræðu um mál Aldísar hafa læknar útskýrt að geðhvörf lýsa sér alls ekki þannig að sjúklingurinn sé með óráði, ranghugmyndir og ómark- tækur með öllu. Þvert á móti er fólk fyllilega tengt við raunveruleikann nema rétt þegar mikil manía brýst fram en hún stendur venjulega stutt yfir. Sigursteinn Másson, fyrrver- andi formaður Öryrkjabandalags- ins, sem sjálfur hefur glímt við geð- hvörf, orðar þetta prýðilega á blaðsíðu fjögur í sama blaði og grein Jóns Baldvins birtist. „Ég þekki engin dæmi þess að fólk sem greinst hefur með geðhvörf sé í stöðugum ranghugmyndaheimi. Það er algerlega fráleitt að halda því fram á nokkurn hátt að taka beri minna mark á upplifun þeirra sem greinst hafa með geðhvarfasýki, slíkt ber vott um fáfræði og for- dóma.“ Ofangreind orð Sigursteins, sem duga auðvitað ein og sér til þess að jarða vægast sagt ósmekkleg „rök“ og ítrekaðar tilraunir Jóns Baldvins til að útmála Aldísi dóttur sína sem ómarktækan geðsjúkling, eru þó ekki eina röksemdin fyrir því að taka viðtal við hana í morgunútvarpi Rásar tvö. Aldís hefur það uppá- skrifað frá sérfræðingi í klínískri sálfræði, Gunnari Hrafni Birgissyni, að engin merki um geðhvörf fundust við skimun í ítrekuðum viðtölum og persónuleikaprófum árið 2014. Einnig er hún með vottorð frá lækni um andlegt heilbrigði sem gefið er út 2012. Um þetta fer Jón háðuleg- um orðum í grein sinni. Enda hent- ar það ekki málsvörninni um geð- veiki Aldísar að hún hafi verið greind með alvarleg áfalla- streitueinkenni vegna kynferðisof- beldis í áliti sérfræðingsins en ekki geðhvörf. Þá hafa ásakanir Aldísar, sem hún hefur haldið á lofti í áratugi, um til- tekin brot föður síns gegn konum verið staðfestar af þeim sjálfum. Aldís staðhæfir í viðtalinu að Jón Bald- vin hafi nýtt sér stöðu sína sem valdamaður í samfélaginu þegar hann fór fram á að hún yrði lokuð inni á spítala. Það voru orð Aldísar en ekki um- sjónarmanna. Að sjálfsögðu fær Al- dís að halda þessu fram í þættinum þegar hún getur stutt það gögnum sem sýna fram á að Jón Baldvin notar ýmist bréfsefni sendiráðsins eða titlar sig sérstaklega sem sendi- herra. Slíkt er með öllu óheimilt líkt og komið hefur fram í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins. Fréttamenn eru ekki ábyrgir fyrir orðum við- mælenda sinna, en það hefði verið fráleitt með öllu að birta ekki gögn sem sýna svart á hvítu að Jón Bald- vin gefur beiðni sinni sem foreldri um að svipta dóttur sína frelsi aukið vægi með því að skrifa undir sem sendiherra. Það er því hafið yfir vafa að hann reyndi að misnota að- stöðu sína hvað þetta varðar en það var hins vegar hvergi fullyrt af und- irrituðum að læknar og heilbrigðis- starfsfólk hefðu gefið afslátt af sinni fagmennsku þrátt fyrir tilraunir Jóns. Hann og lögregla þurfa síðan að útskýra frekar hvers vegna afskipti af Aldísi eru skráð sem aðstoð við erlent sendiráð. Því þannig er það svart á hvítu skráð hjá lögreglu; „aðstoð við erlent sendiráð“. Slík skráning verður varla til í tómarúmi og sú ásökun Aldísar því rétt. Merkilegt nokk þá sleppir Jón Bald- vin því algerlega í grein sinni að nefna þessi gögn sem þó eru veiga- mikil rök fyrir því að birta viðtalið. Sumt í grein Jóns er ekki bara rangt heldur líka yfirmáta ósmekk- legt. Hann leggur sérstaka lykkju á leið sína til að velta því upp hvort Tryggingastofnun ríkisins ætti ekki að endurskoða greiðslu örorkubóta til Aldísar af því hún hefur efasemd- ir um greininguna! Rétt er að hafa í huga að um örorkubætur var ekkert rætt í þessu viðtali og undirritaðir hafa enga hugmund um hvort Aldís fær slíkar bætur. Að sjálfsögðu spyrjum við hvorki Aldísi né Trygg- ingastofnun um þetta að fyrra bragði. Þó það nú væri. Þetta eru afar viðkvæmar persónuupplýsingar sem Aldís ein hefur rétt á að opin- bera og verður að teljast fáheyrt að faðir opni slíka umræðu um dóttur sína, jafnvel þótt í nauðvörn sé. Að hverju er verið að ýja? Að Aldís hafi verið að blekkja Tryggingastofnun í því skyni að fá örorkubætur? Að morgunútvarpið hafi brugðist skyldu sinni með því að upplýsa ekki málið? Eðlilega getum við hvorki né viljum fjalla um þetta, eða spurt Tryggingastofnun um málið án gagna. Rétt er að taka fram að reynt var að hafa samband við Jón fyrir birt- ingu viðtalsins til að fá viðbrögð en því var ekki svarað, auk þess sem því var haldið til haga í þættinum að hann neiti staðfastlega öllum ásök- unum um brot og áreitni. Að sjálf- sögðu stendur honum ennþá til boða að svara á sama vettvangi. Að lokum þetta: Mál Aldísar er þyngra en tárum taki. Í áratugi hef- ur hún mátt þola þöggun og útskúf- un út af meintum veikindum sínum. Í áraraðir hafa fjölmiðlar, undirrit- aðir þar ekki undanskildir, sýnt sögu hennar tómlæti, jafnvel þótt fólk sem greinist með geðhvörf sé ekki á nokkurn hátt „í stöðugum ranghugmyndaheimi“. Blaðamenn geta ekki í dag afgreitt sögu hennar sem „geðveiki“ eða „fjölskyldu- harmleik“. Fjöldi kvenna hefur staðfest ásakanir hennar í gegnum árin með því að stíga fram og segja frá hegðun Jóns Baldvins. Aldís styður mál sitt gögnum, svo sem sjúkraskýrslum, læknisvottorðum, lögregluskýrslum og skráningu, og svo sendiráðspappírum. Viðtalið við hana átti því fullt erindi við almenn- ing og vonandi er sá tími liðinn að hægt sé að afgreiða upplifun þeirra sem glíma við andleg veikindi sem óráðshjal. Það væri vel hægt að leið- rétta fleira í grein Jóns Baldvins Hannibalssonar enda tókst honum ekki einu sinni að veita fullnægjandi upplýsingar um spyrlana í þessu viðtali. Þeir voru nefnilega tveir en ekki einn. Jóni Baldvin svarað Eftir Helga Seljan og Sigmar Guðmundsson » Aldís styður mál sitt gögnum, svo sem sjúkraskýrslum, læknisvottorðum, lögregluskýrslum og skráningu, og svo sendi- ráðspappírum. Viðtalið við hana átti því fullt erindi við almenning. Helgi Seljan Helgi er fyrrverandi fréttamaður Kastljóss. Sigmar er fyrrverandi ritstjóri Kastljóss. Sigmar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.