Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 ✝ Kristrún Páls-dóttir fæddist í Fjallsseli, Fellum, Norður-Múlasýslu 21. ágúst 1951. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 31. jan- úar 2019. Foreldrar henn- ar voru Páll Eyjólfs- son, f. 30. mars 1919, d. 25. febrúar 1966, og Sigríður Einarsdóttir, f. 24. mars 1922, d. 20. apríl 2001. Alsystur hennar eru Ásgerður, f. 20. júlí 1955, og Einhildur Ingi- björg, f. 6. júní 1959, og samfeðra systkini eru Eyjólfur, f. 27. júní 1946, og Marta, f. 13. mars 1949. Krissa var í sambúð með Erni Valberg Úlfarssyni í tæp 30 ár, til ársins 2000, og eiga þau saman þrjár dætur og sjö barnabörn. Dætur þeirra eru: 1) Sigríður Ell- en, f. 9. janúar 1979, maki Kári Björn Þorsteinsson, f. 14. nóvem- ber 1974, synir þeirra Guðni Freyr, f. 7. mars 2005, Þorsteinn Ingi, f. 18. júlí 2007, og Fannar Örn, f. 16. október 2010. 2) Erna Sif, f. 31. ágúst 1981, maki Hlynur Ómarsson, f. 1. maí 1978, synir þeirra Ómar Örn, f. 29. des- ember 2009, og Dag- ur Jan, f. 28. ágúst 2015. 3) Arndís, f. 30. nóvember 1985, maki Sigurjón Jóns- son, f. 2. desember 1976, dætur þeirra Sara Líf, f. 10. október 2002, og Camilla Rún, f. 8. mars 2013. Krissa lauk gagnfræðaprófi frá Lindargötuskóla árið 1968. Hún starfaði hjá Máli og menn- ingu og Pennanum í yfir 30 ár. Einnig starfaði hún m.a. sem au pair í London, í eldhúsi, leikskóla og á röntgendeild Landakots og sem aðstoðarmaður sjúkraþjálf- ara í Árbæ. Útför Krissu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 8. febrúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku mamma. Með óendanlega sorg í hjarta kveðjum við dætur þínar þig. Ein- manaleikinn hellist yfir okkur við tilhugsunina um að þú sért ekki lengur hjá okkur. Það er óskiljan- legt að við munum ekki lengur fá daglega símhringingu frá þér. Þú sem vildir fylgjast með öllu í okkar lífi, samgleðjast okkur í öllu góðu, stóru sem smáu og stappaðir í okk- ur stálinu þegar erfiðleikar bját- uðu á. Þú sem vildir alltaf vita hvert við værum að ferðast til þess að geta kvatt okkur, fá skilaboð um að við værum komnar öruggar á áfangastað og heyra í okkur um leið og við værum komnar heim aftur. Þú sem settir með stolti nýj- an segul á ísskápinn úr ferðum okkar, ísskáp sem var orðinn svo hlaðinn slíkum seglum að varla sást í hann lengur. Þú sem trúðir alltaf á okkur og að við gætum gert allt sem við ætluðum okkur. Þú sem varst svo stolt af okkur í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur, þannig að fólk sem var okkur sjálf- um jafnvel ókunnugt vissi allt um líf og afrek okkar og barna- barnanna þinna, sama hversu smávægileg okkur fannst þau. Elsku besta amma, þú skilur eftir þig stórt skarð í lífi barna- barna þinna sem munu sakna þín alla tíð, yndislegu ömmu sem þeim fannst svo gott að heimsækja og gista hjá. Við eigum eftir að sakna þess að kíkja í heimsókn til þín og fá ömmukjötbollur, pönnukökur og bananarúllutertu sem þú gerðir með þínum einstaka hætti. Best í heimi fannst þeim að fá að gista hjá þér, eiga notalega stund með ömmu, spila á spil, spjalla um heima og geima og opna sig fyrir þér um ótrúlegustu hluti sem for- eldrarnir fengu aldrei að heyra. Það er sárt að hugsa til þess að þú fáir ekki að fylgjast áfram með barnabörnunum þínum vaxa úr grasi, litlu gullmolunum þínum sem þú dýrkaðir og dáðir og að þau yngstu fái ekki fleiri minning- ar með þér. Við munum varðveita minningarnar um ömmu Krissu í hjarta þeirra. Okkar yndislega mamma, þú barðist eins og ljón í þínum erfiðu veikindum, varst svo ótrúlega já- kvæð í gegnum hvern skellinn á fætur öðrum og hélst í húmorinn og vonina fram á síðasta dag. Af þér höfum við lært svo margt, mik- ilvægi nægjuseminnar, seiglunn- ar, að vera maður sjálfur alla tíð og að njóta þess sem maður á. Einnig hafa erfið veikindi þín kennt okkur mikilvægi þess að lifa í núinu og endurskoða forgangsröðunina i líf- inu til að njóta þess sem allra best. Við munum ávallt syrgja þig og halda minningu þinni á lofti fyrir okkur og barnabörnin sem hefðu viljað hafa þig hjá sér svo miklu lengur. Hvíl í friði hjá englunum, elsku mamma. Við vonum að þú sért komin til ömmu Siggu og afa Páls og allra hinna ástvina þinna og að við hittumst aftur þegar okkar tími er kominn. Elskum þig til tunglsins og til baka. Þínar dætur Sigríður (Sigga), Erna og Arndís. Amma Krissa. Þú varst alltaf svo góð við okkur strákana, við söknum þín. Þú verður alltaf með okkur í anda, alla tíð. Strákarnir hennar ömmu Krissu, Guðni Freyr, Þorsteinn Ingi og Fannar Örn. Í dag opnast himnarnir fyrir Krissu frænku minni. Þó að innst inni hafi ég vitað í hvað stefndi eru það alltaf ákveðin kaflaskil að kveðja einhvern sem var svona stór hluti af lífi manns. Þegar ég kom í heiminn bjó mamma í foreldrahúsum á Þórs- götunni ásamt systrum sínum Krissu og Einhildi og bjuggum við þar öll saman fyrstu ár ævi minn- ar. Ég eignaðist því strax 3-4 mömmur sem auðvitað var frá- bært og oft veitti nú sennilega ekkert af því að deila uppeldinu á mér. Krissa vann líka á leikskólanum mínum og þar sem mamma var í vaktavinnu þá dröslaðist Krissa oft með mig eftir leikskóla. Fólk hélt oft að Krissa væri mamma mín enda vorum við pínu lík, Krissa var ekkert að leiðrétta þetta enda held ég að henni hafi alltaf fundist hún eiga pínulítið í mér. Heimili Krissu var mér alltaf opið og gat ég alltaf leitað til henn- ar og rætt málin eða þegar mann vantaði aura fyrir smá skemmtun. Þó að samskipti og samvera okkar hafi eðlilega breyst með ár- unum er ég og hef alltaf verið þakklátur fyrir þá sterku taug sem myndaðist á milli okkar á uppvaxtarárum mínum. Það er mér mikils virði að hafa náð að heimsækja Krissu ásamt fjölskyldu minni núna rétt fyrir jól. Þá var hún enn full af bjartsýni og ætlaði sér að sigra illvíga mein- ið sem þó svo stuttu síðar varð banamein hennar. Ég veit að það verður tekið vel á móti henni Krissu og langaði að lokum að enda þessi minningarorð með laginu Fallegur dagur, sem ég veit að hún kunni að meta. Hvíldu í friði, elsku Krissa, minn- ing þín lifir áfram í dætrum þín- um, Siggu, Ernu Sif, Arndísi og öllum fallegu barnabörnunum þín- um. Veit ekki hvað vakti mig, vil liggja um stund. Togar í mig tær birtan, lýsir mína lund. Þessi fallegi dagur. Íslenskt sumar og sólin syngja þér sitt lag. Þú gengur glöð út í hitann, inn í draumbláan dag. Mávahvítt ský dormar dofið, inn í draum vindsins er það ofið, hreyfist vart úr stað. Konurnar blómstra brosandi sælar, sumarkjólar háir hælar, kvöldið vill komast að. (Bubbi Morthens) Páll Þórólfsson. Í dag kveðjum við æskuvinkonu okkar úr Miðbæjarskólanum við Tjörnina. Ungar stelpur stofnuðum við saumaklúbb sem við skírðum „Þráðlausa nálin“ og þá bættust tvær vinkonur til viðbótar í hóp- inn. En það var oftast eitthvað á nálinni eins og Krissa sagði ekki alls fyrir löngu. Þessir dagar voru sæludagar og ungviðið lék sér áhyggjulaust í miðbænum. Hver og ein stofnaði fjölskyldu en alltaf hélt vinskapurinn velli. Kristrún háði harða baráttu við veikindi sín en kom samt í saumó í nóvember síðastliðnum og við átt- um dásamlega stund saman. Söknuðurinn er mikill en hún er búin að fá hvíldina og minningarn- ar varðveitast. Með þessu ljóði kveðjum við hana og sendum dætrum hennar og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðj- um ykkur Guðs blessunar á þess- um erfiðu tímum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Halldóra (Dóra), Sigríður (Sigga), Áslaug, Agnethe (Agga), Kristín (Stína Árna), Kristín (Stína Bryn), Sól- fríður (Sóla) og Nanna. Með örfáum orðum langar mig að kveðja Krissu sem lést 31. jan- úar síðastliðinn eftir erfiða en hetjulega baráttu við krabbamein. Ég kynntist Krissu þegar ég var lítil stelpa. Ég og Arndís dóttir hennar kynntumst í leikskóla og urðum fljótt bestu vinkonur. Urðum við algjörlega óaðskiljan- legar og höfum verið síðan. Ég dvaldi því löngum stundum á heimili Krissu, nánast alla mína barnæsku og má segja að heimilið hennar hafi verið mitt annað heimili í uppvexti mínum. Þar fékk ég alltaf góðar viðtökur og var Krissa alltaf svo góð og almenni- leg við mig. Fyrir það er ég henni ævinlega þakklát. Krissa var einstaklega hress kona og var alltaf stutt í húmor- inn. Hún hafði góða nærveru og við hana var hægt að spjalla löngum stundum um heima og geima. Hún var sérstaklega ljúf og með hjarta úr gulli. Betri konu er erfitt að finna. Hún var góð við alla og það var gaman að fylgjast með því hversu góð hún var við öll barnabörnin sín. Krissa var einnig einstaklega góð í höndunum og prjónaði ofboðslega fallegar flíkur á barnabörnin. Ég dáðist svo að fallegu fötunum sem hún prjónaði á Camillu Rún. Þegar ég hrósaði henni fyrir prjónaskapinn sagðist hún ætla að prjóna galla fyrir barnið mitt þegar ég myndi eign- ast barn. Ég ætti að velja litinn og hún myndi prjóna. Ég hlakkaði mikið til að fá að vera svo heppin að eignast fallegan galla sem Krissa hefði prjónað á barnið mitt og þykir ofboðslega vænt um að hún hafi ætlað að gera það fyrir mig. Það voru einnig ófá skiptin sem hún saumaði og gerði við fötin mín og gaf ég henni iðulega litla gjöf í staðinn. Krissa var sérstak- lega góð í eldhúsinu, bæði að elda og baka. Ég var alltaf velkomin í mat og átti ég marga uppáhalds- rétti hjá henni og bakkelsi. Sér- staklega verð ég að nefna brauð- terturnar og bananarúllutertuna. Ég var sérstaklega hrifin af ban- anarúllutertunni og bakaði Krissa þá köku nokkrum sinnum sérstak- lega fyrir mig. Svona var Krissa, hún var alltaf til í að gera eitthvað fyrir aðra. Mig langar til að rifja upp of- boðslega fallega minningu sem ég á um Krissu frá því ég var lítil stelpa. Ég var sex ára gömul og fékk að gista hjá Arndísi í Álakv- íslinni. Þetta var með fyrstu skiptun- um sem ég gisti hjá henni en þær voru margar næturnar sem ég gisti á heimilinu eftir þessa nótt. Í þetta skipti átti ég erfitt með svefn og þegar Arndís var sofnuð fékk ég heimþrá og grét. Krissa kom til mín og sagðist ég vilja fara heim. Krissa lagðist hjá mér, tók í hönd- ina á mér, strauk mér um hárið og sagði mér að loka augunum. Hún sagði mér að hugsa um englana. Alla fallegu englana sem búa uppi í himnaríki. Ég lokaði augunum og reyndi að ímynda mér englana í himnaríki og við það sofnaði ég. Þessi fallega minning hefur verið mér sérstaklega minnisstæð síð- ustu daga og mun ég alltaf hugsa um alla fallegu englana í himnaríki þegar ég minnist Krissu. Finnst mér því við hæfi að ljúka þessum minningarorðum með eftirfarandi ljóði: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum.) Elsku Krissa mín, megi Guð varðveita þig og geyma. Minning- in um þig lifir í hjarta þeirra sem fengu að vera samferða þér á lífs- leiðinni. Elsku Sigga, Erna Sif, Arndís, Eina og Ása. Við Unnar sendum ykkur og fjölskyldum ykkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Helena Svava Jónsdóttir. Kristrún Pálsdóttir var ein af æskuvinkonum Nönnu Guðrúnar, konunnar minnar, en þær höfðu verið og voru alla tíð nánar vin- konur, allt frá barnaskólaárunum. Ég kynntist Kristrúnu eða „Strúnu“ eins og við vinirnir gjarnan kölluðum hana og vin- kvennahópurinn þeirra Nönnu minnar, á sumardögum 1967, eða fyrir rúmlega hálfri öld. Á þeim árum var mikið brallað og lífið var með eindæmum áhugavert. Fátt er dýrmætara en góð vin- átta og þessi stóri vinahópur hefur verið náinn og haldið saman í gegnum þykkt og þunnt á langri ævi. Á tímum hafa stundum svo sem eðlilegt er liðið mánuðir á milli þess að við höfum hist eða komið saman, ýmist vegna anna eða dvalar erlendis en vinskapur- inn var bundinn sterkum böndum og hefur skilið eftir sig góðar, ljúf- ar og hlýjar minningar. Kæra Kristrún – við Nanna Guðrún kveðjum þig og þökkum fyrir minninguna um þig og vin- áttu okkar, í fullri vissu um að þú hvílir nú í náðarríkum faðmi Guðs þar sem við munum öll hittast, þegar hans er viljinn. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Guð geymi þig, kæra vinkona. Lárus Atlason. Kristrún Pálsdóttir ✝ Ingvar PállSveinsson fædd- ist 2. apríl 1944 á Sléttu í Fljótum í Skagafirði. Hann lést 27. janúar 2019. Foreldrar hans voru Kristín Þor- bergsdóttir, f. 9.12. 1915, d. 26.10. 1999, og Sveinn Pálsson, f. 15.8. 1903, d. 28.7. 1992. Börn þeirra voru: Ólafur, f. 7.7. 1935, d. 18.3. 1994, Ásta, f. 25.7. 1942, d. 26.12. 2011, Bragi, f. 14.6. 1945, d. 28.11. 2006, Karl, f. 3.6. 1947, d. 22.3. 2018, og Þorbergur, f. 11.7. 1950, d. 12.6. 1997. Eftirlifandi eiginkona Páls er Sigurlína Stella Árnadóttir, f. 23.1. 1944. Synir þeirra eru: 1) Árni Sveinn, f. 3.3. 1972, maki Stefanía Dögg Hauksdóttir, f. 2.5. 1974. Börn þeirra eru Stella Karen, f. 11.9. 1995, unnusti Andri Freyr Hlynsson, f. 25.1. 1996, og Haukur Páll, f. 17.11. 2000. 2) Ómar Örn, f. 5.12. 1976. Páll fór ungur á hinn almenna vinnumarkað, síld á Siglufirði, raflínulagnir og byggingu Búrfells- virkjunar. Árið 1972 gerðist hann sendibílstjóri og starfaði við það þangað til hann tók að sér póstflutninga milli Akureyrar og Reykjavíkur árið 1993 sem hann var við í fjögur ár til ársins 1997. Síðustu starfs- árin var hann hjá Olíuverslun Ís- lands. Páll var virkur í félags- málum hjá Sendibílastöðinni sem og hjá Skagfirðingafélaginu í Reykjavík. Útför Páls fer fram í dag, 8. febrúar 2019, frá Laugarnes- kirkju og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi er látinn. Þú varst yndisleg persóna sem vildir allt fyrir alla gera. Söknuðurinn er óbærilegur en það er léttir að vita til þess að þér líði betur á þeim stað sem þú ert á núna. Það sem einkenndi þig mest var hversu jákvæður og glettinn þú varst en það hjálpaði þér örugglega mikið í þínum veikindum sem hrjáðu þig síð- ustu árin. Þú hafðir gaman af því að spila ólsen ólsen við barna- börnin og áttir það til að láta spil hverfa til að athuga hvort þau væru ekki örugglega með hugann við spilið, svo stríðinn varstu, sem fékk okkur oft til að hlæja og hafa gaman af. Börnin eiga ljúfar og góðar minningar um yndis- legan afa sem hafði gaman af að vera í kringum þau. Minningarn- ar lifa áfram í hjörtum okkar allra. Þakklæti er okkur efst í huga þegar við minnumst þín, takk fyrir allt. Árni Sveinn, Stefanía Dögg, Stella Karen, Andri Freyr og Haukur Páll. Hann var alltaf að. Eftir lang- an vinnudag var samt tími til að dytta að. Þrífa bílinn, bílskúrinn, gera við það sem aflaga hafði far- ið innanhúss eða utan, leikföng barna eða barnabarna og alltaf virtist vera tími til að rétta öðrum hjálparhönd. Á seinni árum ruddi listamaðurinn sér til rúms í formi tréskurðar og smíði. Umburðar- lyndi og jákvæðni var honum í blóð borin. Alltaf sama jafnaðargeðið og æðruleysið – sama hvað að hönd- um bar. Það var því erfitt að horfa upp á jafn félagslyndan mann verða fanga í eigin líkama, geta ekki lengur skapað sín lista- verk með hnífnum og deilt deg- inum með vinum og samferða- fólki – eins og hann hefði viljað. En Palli var ekki maður sem kvartaði og eftir að hann hætti að komast úr húsi naut hann þess að taka í spil með smáfólkinu sem heimsótti hann eða kenna því mannganginn. Það var jú alltaf opið hús hjá þeim Palla og Stellu, kaffi á könnunni og tími til að spjalla. En nú er hann frjáls úr viðjum líkamans og getur dansað á nýjum slóðum. Því dansa kunni hann og skemmta sér og öðrum. „Ég þarf að komast héðan, er bú- inn að hanga hér alltof lengi“ voru hans síðustu orð þegar ég kvaddi hann á Landspítalanum, nokkrum klukkustundum áður en hann kvaddi þennan heim. Elsku Palli, góða ferð og hjart- ans þakkir fyrir samfylgdina og fyrir alla þolinmæðina og um- burðarlyndið gagnvart mér og mínum. Kannski næ ég því ein- hvern tíma að komast með tærn- ar þar sem þú hafðir hælana í æðruleysinu. Sigurbjörg Árnadóttir. Í hóp okkar félaganna, sem kroppa í tré í Norðurbrún 1, er höggvið stórt skarð. Fallinn er félagi og vinur, Páll Sveinsson. Palli, eins og hann var ávallt kall- aður, var potturinn og pannan í starfinu þar til hann varð að hætta vegna veikinda. Hann hef- ur ekki getað verið með okkur síðustu tvö ár, en sambandið við hann hefur haldist gott, menn hafa hringt og komið til hans. Þegar við komum í Norður- brúnina var hann alltaf mættur fyrstur manna, tilbúinn að að- stoða og hjálpa hverjum þeim sem var hjálparþurfi, hvort sem það var við útskurð og/eða vélar. Hann átti mikið af vélum og verk- færum og var ósínkur að lána verkfærin sín. Palli sá um lager af timbri og viðhald á vélum og taldi ekki eftir þann tíma sem fór í aðstoð við aðra. Gott var að leita til Palla ef vantaði skrúfur, nagla og aðra smáhluti. Frásagnargleði Palla af upp- eldinu norður í Fljótum var lif- andi og höfðum við gaman af að heyra sögur af mönnum og mál- efnum. Fljótin voru Palla sér- staklega hjartfólgin. Palli hafði unnið víða og hafði frá mörgu að segja, skemmtum við okkur við að hlusta á hann. Er hans sárt saknað af okkur í Skurðstofunni á Norðurbrún og sendum við Stellu, Árna, Ómari og fjölskyldunni samúðar- kveðjur. Fyrir hönd félaganna á Skurð- stofunni, Norðurbrún, Willy og Kjartan. Páll Sveinsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.