Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 34

Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Ef mínir menn í Liverpool vinna Bournemouth á morgun væriþað frábær afmælisgjöf. Ég hlakka til að heimsækja Bítla-borgina með börnunum mínum, en í stað þess að halda upp á afmælið bauð ég þeim í helgarferð til Bretlands og hlakka til,“ segir Eyjólfur Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Axis í Kópavogi, sem er fimm- tugur í dag. Axis er ein stærsta trésmiðja landsins og þar vinna um 30 manns við innréttinga- og húsgagnasmíði. „Við Gunnar bróðir minn keyptum fjölskyldufyrirtækið af föður okkar árið 2006 og höfum rekið síðan. Vissulega var áskorun að komast í gegnum hrunið, en frá 2007-2009 féll veltan um 62%. Þrátt fyrir mikinn samdrátt tókst okkur þó að halda sjó og í dag er verkefnastaðan ljómandi góð,“ segir Eyjólfur sem er lögfræðingur að mennt. Sem slíkur starfaði hann í nokkur ár, fyrst hjá sýslumanninum á Ísafirði og síðar lögreglunni í Reykjavík. „Lögfræðin var millikafli, smíðin hefur alltaf verið mitt hálfa líf. Auðvitað fer mestur tími minn í að stýra og reka fyrirtækið en ég hef mikinn áhuga á iðnaði almennt. Ég skellti mér því í Tækniskólann til að læra húsgagnasmíði og er meistaranemi föður míns, Eyjólfs Axels- sonar,“ segir Eyjólfur sem utan vinnunnar hefur áhuga á golfi og þeg- ar stundir gefist sé frábært að skreppa á völlinn og sveifla kylfunni. „Á sumrin reyni ég líka að komast á hjólið. Leiðangur síðasta sumar frá Kirkjubæjarklaustri austur á Höfn var mikið ævintýri,“ segir Eyj- ólfur sem er faðir þriggja barna; 26, 17 og 15 ára. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smiður Hef mikinn áhuga á iðnaði almennt, segir Eyjólfur Eyjólfsson. Lögfræðingurinn sem fór í trésmíðina Eyjólfur Eyjólfsson er 50 ára í dag E yþór Haraldur Einars- son fæddist 8. febrúar 1929 í Neskaupstað. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1949 og lauk mag. sci- ent-prófi í náttúrufræði frá háskól- anum í Kaupmannahöfn 1958. Á starfsferli sínum vann Eyþór við rannsóknir á háplöntum, plöntu- landafræði og gróðurfari Íslands, einkum til fjalla, allt frá 1955 og landnámi plantna og framvindu gróðurs í jökulskerjum í Vatnajökli frá 1961. Auk þess fékkst hann við rannsóknir á sviði náttúruverndar, einkum hvað snertir hugsanlegar breytingar á flóru og gróðurfari af völdum verklegra framkvæmda. Eyþór var deildarstjóri grasa- fræðideildar Náttúrufræðistofnunar Íslands frá 1. janúar 1959 og for- stöðumaður stofnunarinnar samtals í 14 ár. Hann var stundakennari við MR 1958-1968 og skipulagði kennslu í grasafræði við Háskóla Íslands þegar líffræðikennsla þar var undirbúin, og stundakennari 1968-1989. Hann var í Náttúruverndarráði frá 1. jan. 1959, varaformaður 1972- 1978 og formaður 1978-1990. Eyþór var varaformaður stjórnar raunvís- Eyþór Einarsson grasafræðingur – 90 ára Á vettvangi Eyþór í fjallaferð en hann hefur m.a. setið í stjórn Ferðafélags Íslands og Landverndar. Náttúruverndar- og náttúruvísindamaður Fyrirlesarinn Eyþór hefur flutt fyrirlestra um gróður Íslands og nátt- úruvernd víða um heim, hér staddur á Náttúrufræðistofnun í Urriðaholti. Gísli Magnússon, múrari og skíða- maður, er áttræður í dag. Hann fagnar tímamótunum með fjölskyldu sinni og verður að heiman. Hér er hann ásamt einni fremstu skíðakonu heims, Annemarie Pröll, á góðri stundu í Austurríki. Árnað heilla 80 ára Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.