Morgunblaðið - 08.02.2019, Page 35

Morgunblaðið - 08.02.2019, Page 35
indadeildar Vísindasjóðs 1974-1978 og formaður 1978-1986. Eyþór var fulltrúi Íslands í náttúruverndar- nefnd Evrópuráðsins frá stofnun árið 1963 til ársins 1993 og formað- ur 1985-86. Eyþór átti sæti í ýmsum nefnd- um um fræðslu og rannsóknir á sviði náttúruvísinda og náttúru- verndar, bæði heima og erlendis, meðal annars á vegum Evrópuráðs og Norðurlandaráðs og Alþjóða- náttúruverndarsamtakanna (IUCN) og var formaður sumra þeirra. Hann var formaður Félags ís- lenskra náttúrufræðinga 1960-1962, ritari Hins íslenska náttúrufræði- félags 1960-1964 og formaður þess 1964-1966 og 1976-1980. Eyþór var í stjórn Ferðafélags Íslands 1968- 1979 og varaforseti þess 1977-1979. Hann var í stjórn Landverndar frá stofnun árið 1969 til ársins 1973 og í stjórn Surtseyjarfélagsins frá stofnun árið 1965. Eyþór var valinn félagi í Vísindafélagi Íslands 1987. Eyþór tók þátt í mörgum rann- sóknarleiðöngrum á starfsævinni, sótti fjölda alþjóðlegra funda er- lendis um grasafræði og náttúru- verndarmál og flutti fyrirlestra um gróður Íslands og náttúruvernd víða um heim. Hann var kjörinn fé- lagi New York Academy of Sciences 1982, félagi Vísindafélags Íslendinga 1987, kjörinn „Foreign Member“ Eistneska náttúruvernd- arfélagsins 1991, og kjörinn heið- ursfélagi Hins íslenska náttúru- fræðifélags 1993. Eyþór hefur tekið fjölda ljós- mynda af plöntum og gróðurfari og hafa sumar þeirra birst í bókum, á veggspjöldum og póstkortum. Ey- þór hefur ritað fjölda greina um náttúrufræðileg efni, þar sem áherslan hefur verið á grasafræði og náttúruvernd. Eyþór söng einn- ig lengi með Söngsveitinni Fílharm- óníu og var formaður hennar 1968- 1969. Fjölskylda Eyþór giftist 18.11. 1951 Svandísi Ólafsdóttur, f. 27. febrúar 1929, d. 19.7. 2013, kennara. Foreldrar Svandísar voru hjónin Páll Sigurðs- son, f. 1894, d. 1971, prentari í Reykjavík, og Margrét Þorkels- dóttir, f. 1898, d. 1984, húsfreyja. Kjörforeldrar hennar voru hjónin Ólafur Ásgeirsson, 1891, d. 1967, klæðskeri í Rvík, og Sigrid Ásgeirs- son, f. 1903, d. 1999, húsvörður. Börn Eyþórs og Svandísar eru 1) Margrét, f. 9.2. 1954, hjúkrunar- fræðingur MS og sálfræðinemi; 2) Ingibjörg, f. 20.12. 1957, íslensku- fræðingur og stundakennari við HÍ, eiginmaður hennar er Guðmundur Andri Thorsson, f. 31.12. 1957, rit- höfundur og alþingismaður. Dætur þeirra eru Svandís Roshni Guð- mundsdóttir, f. 28.2. 1995, tóm- stunda- og félagsmálafræðingur, og Sólrún Liza Guðmundsdóttir, f. 2.4.l 2000, framhaldsskólanemi; 3) Sig- ríður, f. 9.3. 1963, tónlistarmaður í Danmörku, börn hennar og Jens La Cour eru Jakob Einar La Cour, f. 28.2. 1993, tónlistarmaður og Kristín la Cour, f. 6.4. 2000, fjöl- listamaður. Sambýlismaður Sigríð- ar er Styrmir Guðlaugsson, f. 22.12. 1963, skrifari; 4) Þórey, f. 6.3. 1965, hómópati, börn hennar og Arnar Guðnasonar eru Eyþór Arnarson, f. 29.11. 1995, aðstoðarverslunarstjóri í timbursölu Byko, og Svanlaug Arnardóttir, f. 30.11. 2000, fram- haldsskólanemi. Sambýlismaður Þóreyjar er Lýður Pálsson, f. 30.6. 1966, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga. Bróðir Eyþórs var Einar Gylfi, f. 24.1. 1932, d. 20.1. 2011, húsgagna- smíðameistari í Reykjavík og annar eigenda Húsgagnaverslunar Ingvars og Gylfa. Foreldrar Eyþórs voru hjónin Gíslína Ingibjörg Haraldsdóttir, f. 10.7. 1904, d. 5.2. 1988, verkakona, síðast bús. í Reykjavík og Einar Einarsson, f. 6.2. 1902, d. 26.4. 1933, sjómaður í Neskaupstað, drukknaði. Úr frændgarði Eyþórs Einarssonar Eyþór Einarsson Gíslína Ingibjörg Haraldsdóttir verkakona í Neskaupstað Gylfi Einarsson úsgagna- smíða- meistari í Rvík h Einar Gylfason kaupmaður í Rvík Gylfi Einarsson frkvstj. og fv. fótbolta- kappi Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja í Grænanesi og Neskaupstað Jón Davíðsson skáld í Grænanesi í Norðfirði, síðar bóksali í Neskaupstað Þórey Jónsdóttir húsfreyja í Neskaupstað rni Davíðsson bóndi í Grænanesi ÁKristín Árnadóttir úsfreyja í Hátúni í Neskaupstað hBjarni Vilhjálmssonþjóðskjalavörður Vilhjálmur Bjarnason fv. alþingismaður Haraldur Brynjólfsson fiskmatsmaður í Neskaupstað Björg Jónsdóttir húsfreyja í Skálateigi Brynjólfur Einarsson bóndi í Skálateigi í Norðfirði Einar Brynjólfsson útvegsbóndi á Nesi Oddný Einarsdóttir húsfreyja í Árnesi í Trékyllisvík Valgeir Benediktsson bóndi í Árnesi og safnvörður í Kört Rafn Einarsson kipstjóri í Neskaup- stað s Elísa Kristbjörg afnsdóttir talsíma- vörður í Rvík R Helgi Gíslason frkvstj. Skóg- ræktar- félags Rvíkur Oddný Jónasdóttir húsfreyja á Nesi í Norðfirði Finnur Guðmundsson bóndi í Tunguhóli í Fáskrúðsfirði Ólöf Finnsdóttir húsfreyja á Strýtu í Hamarsfirði Ríkarður Jónsson myndhöggvari Finnur Jónsson listmálari Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Árnagerði Jónas Jónsson bóndi í Árnagerði í Fáskrúðsfirði Einar Einarsson sjómaður í Neskaupstað ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 101 árs Jensína Guðmundsdóttir 90 ára Eyþór Einarsson Finnbogi Guðmundsson Jón Fr Sigvaldason 80 ára Gísli Magnússon Guðlaug Björnsdóttir Hafsteinn Bragi Pálsson Sigríður Alfh Guðmundsd. 75 ára Guðlaug H. Ólafsdóttir Þóra Þórisdóttir 70 ára Dóra Gunnrún Guðmundsd. Elísabet María Haraldsd. Guðmundur Vikar Einarss. Guðrún Sigurðardóttir Jórunn Bjarnadóttir Kirsten E. Frederiksen Kristín Pálsdóttir Kristrún Jónsdóttir Ragnheiður Magnúsdóttir Rúnar H. Guðmundsson. Sigríður Jónsdóttir Sigurveig Árnadóttir 60 ára Agnieszka I. Kochaniewicz Anh Dao Katrín Tran Daði Kristjánsson Fanney Þorkelsdóttir Jóhanna Kristín Maríusd. Jónas Hilmarsson Ólafur Jensson Ólafur Unnarson Sigurbjörn L. Guðmundss. Valgarður Þórir Guðjónsson Zofia Wasowicz Zóphonías Már Jónsson Þórey Sumarliðadóttir 50 ára Astrid Boysen Bogdan Wesolowski Elda Thorisson-Faurelien Eyjólfur Eyjólfsson Helga Guðlaug Vignisdóttir Kristbjörg Magnúsdóttir Lye Hua Chin Piotr Luptak Sigríður Arna Ólafsdóttir Sigurpáll Örn Birgisson 40 ára Ahmed Labyad Andri Bergþór Þorsteinss. Atli Rafn Björnsson Bára Mjöll Þórðardóttir Björn Þorkelsson Charltan Radam Calzada Egil Ferkingstad Elva Bj. Bjarndal Þráinsd. Ingvi Steinn Jóhannsson Ludwika Anna Wojtania María Bóel Gylfadóttir Stefán Árnason Virginie Tissier Þorgeir Ellertsson Þórhildur Jónsdóttir 30 ára Adrian Robert Worobik Arnar Agnarsson Arnar Freyr Þórisson Bjarni Þór Guðmundsson Branislav Stibraný Esther Marloes Kapinga Heiða Kristín Másdóttir Kinga Jadwiga Kozlowska Lara Menéndez García Óttar Steinn Magnússon Patrik Todorov Piotr Plichta Rakel Sif Haraldsdóttir Rannveig Elba Magnúsd. Sara Dögg Johansen Sindri Jóhannsson Veronica Vivian Zupanic Til hamingju með daginn Valgerður Sólnes hefur varið doktors- ritgerð sína í lögfræði við Háskóla Ís- lands og lagadeild Kaupmannahafnar- háskóla. Ritgerðin heitir Eignarhald á landi: Dómar Hæstaréttar í þjóðlendu- málum (e. Clarifying land title: Land reform to eliminate terra nullius in Iceland). Leiðbeinendur voru dr. Davíð Þór Björgvinsson rannsóknaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands og dr. Peter Pagh prófessor við lagadeild Kaup- mannahafnarháskóla. Alþingi samþykkti lög nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta til að skýra og skilgreina eignarhald á landinu öllu, í því skyni að útkljá ágreining um eignarhald einkum á há- lendum landsvæðum utan byggðar. Miðuðu lögin að því að unnt væri að bera kennsl á eigendalaust land og koma því í ríkiseigu. Ráðgert var að þeir, sem tilkall gerðu til eignarréttar yfir landi, gætu haldið til streitu eign- arréttartilkalli sínu fyrir stjórnvöldum og dómstólum á grundvelli sérstakrar málsmeðferðar sem mælt var fyrir um í lögunum. Rannsóknin leiðir í ljós hvernig færðar eru sönnur á eignarrétt á landi í íslenskum rétti á grundvelli laga nr. 58/1998, eins og fyrir- mælum þeirra hef- ur verið beitt í dómaframkvæmd Hæstaréttar Ís- lands, og í því skyni er dogmatískri að- ferð beitt til að komast að niðurstöðu um gildandi rétt. Í rannsókninni er ís- lenska kerfið, sem byggist samkvæmt áðurgreindu á fyrirmælum laga nr. 58/1998 og dómaframkvæmd Hæsta- réttar, meðal annars borið saman við um margt hliðstætt kerfi í Noregi sem varðar úrlausn eignarhalds á nánar til- greindu landsvæði þar. Loks gefur rannsóknin til kynna hvernig íslenska kerfið hefur að geyma aðferð til að skýra og skilgreina eignarhald á landi, þar sem stuðst er við málsmeðferðar- reglur sem tryggja lágmarkskröfur um réttindavernd, ekki aðeins samkvæmt íslenskum rétti heldur og í sam- evrópsku tilliti. Valgerður Sólnes Valgerður Sólnes lauk BA í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 2007, mag.jur. frá sömu deild 2009 og LL.M.-gráðu frá Fordham Law School 2010. Valgerður starfaði sem aðstoðarmaður hæstaréttardómara um fimm ára skeið og hefur sinnt kennslu við lagadeild Háskóla Íslands frá 2012, þar af sem aðjunkt frá 2015 og lektor frá 2019. Foreldrar hennar eru Halla Elín Baldursdóttir grunnskólakennari og Jón Kr. Sólnes hæstaréttarlögmaður sem lést 2011. Doktor SÉRBLAÐ Tíska& förðun Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 15. febrúar Fjallað er um tískuna í förðun, snyrtingu, fatnaði og fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar, dekur o.fl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. febrúar NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur 30 ára Guðrún er Keflvík- ingur en býr í Grindavík. Hún er flugvirki og vinnur hjá Icelandair. Maki: Björn Olsen Daní- elsson, f. 1986, flugvirki hjá Icelandair. Börn: Bjarki Aran, f. 2015, og Arnar Þór, f. 2017. Foreldrar: Kolbeinn Jó- hannesson, f. 1952, vann hjá Icelandair, og Erna Sigurðardóttir, f. 1963, vinnur í íþróttahúsinu í Keflavík. Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir 30 ára Hulda er Reykvík- ingur, með BS-próf í sál- fræði og er í framhalds- námi í hagnýtri menning- armiðlun og kynfræði. Maki: Hildur Þóra Sigurð- ardóttir, f. 1986, forstöðu- kona í frístundamiðstöð- inni Kringlumýri. Foreldrar: Gunnar Mýr- dal, f. 1964, hjartaskurð- læknir, og Hildigunnur Guðmundsdóttir, f. 1967, kennari, stjúpfaðir: Ágúst K. Björnsson, f. 1956. Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir 40 ára Edda er Reyk- víkingur, söngkona og markaðsfræðingur og starfar sjálfstætt. Maki: Gunnar Ingi Jó- hannsson, f. 1979, hæsta- réttarlögmaður. Börn: Líf, f. 2010, Saga, f. 2012, Vaka, f. 2013, og Hrói, f. 2107, stjúpsonur er Karel, f. 1998 Foreldrar: Hörður Al- bertsson, f. 1953, d. 2018, og Helga Austmann, f. 1952, bús. í Rvík. Edda Hrund Austmann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.