Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 08.02.2019, Síða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Einstaklingur eins og þú þarf einnig að vera opinn fyrir nýjungum. Tveir kollar eru betri en einn þegar unnið er að áhugaverðu verkefni og enn betri ef það er leiðinlegt. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert hugsjónamaður sem tekur mál- stað þeirra sem minna mega sín. Svartsýni hvíslar í eyra þér – eða kannski er það bara innsæið að vara þig við. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú býrð yfir miklum fróðleik sem þú getur miðlað til annarra ef þú ert tilbúinn til að gefa af sjálfum þér. Forðastu alla fljótfærni þegar þú gerir upp hug þinn til annarra. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur verið erfitt að ákveða hvort maður eigi að láta eigin hagsmuni eða hags- muni annarra hafa forgang. Athugaðu samt mjög vel þinn gang, ekki er allt sem sýnist. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er margt sem leitar á hugann ein- mitt nú þegar þú þarft að vera í næði og ein- beita þér að ákveðnu verki. Það er ekki létt að bera sig eftir því sem maður þráir ef mað- ur veit ekki hvað maður vill. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samræður við fjölskyldumeðlimi, ekki síst foreldra, valda auðveldlega misskilningi og vinir þínir gætu valdið þér vonbrigðum í dag. Haltu þínu striki, þetta hefst allt saman. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki þreyta vinnufélagana með enda- lausum sögum af einkahögum þínum. Sjáðu allt það besta í sjálfum þér og öðrum og léttu þannig andrúmsloftið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert sérstaklega sannfærandi í samræðum þínum við samstarfsfélaga og ættingja. Þú kemur fyrstur auga á vandamál og sér fólk þig sem þann sem getur leyst það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur vanrækt heimilisstörfin og þarft að taka þér tak og taka til hendinni. Láttu þetta samt ekki leiða þig út í hluti sem þér eru á móti skapi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Haltu upp á velgengni þína og við- haltu bjartsýninni, en mundu eftir takmörk- unum þínum. Af þeim sökum skaltu gæta þess að gefa þér tíma til notalegrar einveru. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekkert að því að verðlauna sig þegar maður hefur staðið sig vel og veit af því. Tækifærin bíða handan hornsins en vandaðu val þitt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver á eftir að koma þér skemmti- lega á óvart. Vertu opinn fyrir nýjum óhefð- bundnum aðferðum til að draga úr streitu. Launað fyrir hrafninn,“ segirÓlafur Stefánsson á Leir: Nú líður á vetur og lengjast sé dag langt út í himinsins bláma. Þá vert er og kjörið að kveða einn brag, um krumma með gargið sitt ráma. Hann sveimar hér yfir, svartur sem hel, svangur að líkindum, greyið, – og sækir við gerðið, ég sé þetta vel, í sinukrafs, moðið og heyið. Krummi hann fylgir enn kynstofni’ og þjóð, frá komunni hingað, hans Flóka, – Og þjóðin og krummi þau krunka sín ljóð, í kuldanum, – það máttu bóka. Ævitíminn verður Pétri Stef- ánssyni að yrkisefni: Eins og ljúfur lækjarstraumur sem leið til sjávar finna kann, er ævitíminn eins og draumur, uns að dauðinn stöðvar hann. Hjálmar Freysteinsson skrifar á fésbókarsíðu sína: Á Klausturbar er kenndirí kemur margur þaðan glaður. Liggur refsing þar við því að þykjast vera ferðamaður. Og síðan stendur þar „Frá per- sónuvernd“: Á myndböndunum margt ég finn, misjafn ferill rakinn. Í dulargervi einn fer inn, annar á heimleið nakinn. Það er gamla sagan, – Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir á Boðn- armiði: Flest er núna fram á við fjarri nautnalindum. Verst er þó að finna ei frið fyrir gömlum syndum. Sigrún Haraldsdóttir svarar að bragði: „Hvaða hvaða … þetta er ekki rétta viðhorfið:“ Veitir bæði fró og frið, fögnuð gjarnan kyndir, gott finnst mér að gæla við gamlar, ljótar syndir. Og Ágúst H. Bjarnason: Séu mínar syndirnar saman-bornar þínum, lýsi’ eg þínar léttvægar, en líkast blý í mínum. Að síðustu Jón Gissurarson: Flestum yndi blíðar binda bernsku myndirnar. Undir lindum unaðs kynda æskusyndirnar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hrafninn, ævitíminn og syndirnar Í klípu „tja, einhver lokaÐi ekki dyrunum – og nú er kötturinn horfinn.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „þær eru dýrar en þær ná allt aÐ 140 orÐum á mínútu.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú ert ekki hér og heimurinn virðist tómur. ÁI! ÉG HELLTI KAFFI Í KJÖLTUNA Á MÉR! SYKUR? ATLI HÚNAKONUNGUR ER Á LEIÐ HEIM TIL MÖMMU MINNAR! GERÐU EITTHVAÐ! ALDREI HÉLT ÉG NÚ AÐ ÉG ÞYRFTI AÐ BJARGA ATLA HÚNAKONUNGI!! Þurfum við allt og hvenær eigumvið nóg? Slíkum spurningum er ekki auðvelt að svara. Víkverji hefur í gegnum tíðina lagt metnað sinn í að svara áleitnum spurningum og mun halda því áfram. Skiptir þá engu hvort svör við þeim spurningum séu gerð opinber eða geymdar í huga Víkverja. x x x Til þess að svara upphafsspurning-unni er ekki úr vegi að kanna hvort og þá hvernig hægt er að skil- greina allt. Eftir nokkra yfirlegu komst Víkverji að þeirri niðurstöðu að það væri ekki hægt að skilgreina orðið allt og þá varla hægt að svara spurningunni hvenær eigum við nóg. x x x Víkverji hefur undanfarin ár veriðá miklu breytingaskeiði og skiptir þá engu hvort Víkverji er karl eða kona. Allir geta farið á breytingaskeið óháð kyni og aldri. Á breytingaskeiði Víkverja sem staðið hefur yfir á sjöunda ár hefur hann meðal annars minnkað við sig hús- næði svo um munar. x x x Það vita þeir sem reynt hafa aðþað er þrautin þyngri að flytja í minna húsnæði. Þrátt fyrir að fjöl- skyldumeðlimir séu færri en áður fækkar ekki heimilismunum í sama mæli. Reyndar tekur það stundum nokkuð langan tíma fyrir þá brott fluttu að flytja endanlega með sitt hafurtask og oftar en ekki sitja ýms- ir hlutir eftir. x x x Þegar flutningum er lokið færastyfir alls konar tilfinningar. Til- finningar uppgjörs og hreinsunar, söknuðar eftir því sem var, en er nú liðið, tilhlökkunar á nýjum stað og nýjar áskoranir. x x x Það sem Víkverji hefur grætt mestá því að flytja í minna húsnæði er að ef Víkverja langar í eitthvað verður annað að fara í staðinn. Ef það má ekki fara þá er niðurstaðan sú að Víkverji þarf ekki allt og í rauninni á hann nóg. vikverji@mbl.is Víkverji Þannig skuluð og þið álíta sjálf ykkur vera dáin frá syndinni en lifandi Guði í Kristi Jesú. (Rómverjabréfið 6.11)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.