Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 41

Morgunblaðið - 08.02.2019, Side 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Kvikmyndin Lof mér að falla eftir Baldvin Z hlýtur flestar tilnefningar til Edduverð- launanna í ár, samtals 12. Myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Elín Sif Halldórsdóttir er tilnefnd fyrir leik í aðalhlutverki og Kristín Þóra Har- aldsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttur og Þor- steinn Bachmann fyrir leik í aukahlutverki. Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson hlýtur næstflestar tilnefningar, samtals 10. Myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Halldóra Geir- harðsdóttir er tilnefnd fyrir leik í aðal- hlutverki. Andið eðlilega eftir Ísold Uggadóttur hlýt- ur níu tilnefningar, en myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Kristín Þóra Haraldsdóttir er tilnefnd fyrir bestan leik í aðalhlutverki og Babetida Sadjo fyrir bestan leik í aukahlutverki. Þetta kom fram í gær þegar Íslenska kvik- mynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) kynnti tilnefningar ársins. Alls verða veitt verðlaun í 26 flokkum auk heiðursverðlauna á Edduhátíðinni 2019 sem fram fer í Austurbæ 22. febrúar og sýnd beint á RÚV, en útsend- ing hefst kl. 20.55. Í ár eru liðin 20 ár frá því Edduverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn. Alls voru 118 verk send inn í keppnina í ár, auk þess sem 214 innsendingar voru í fagverð- laun Eddunnar. Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 78 talsins, kvikmyndir eru sjö, stuttmyndir 16, heimildarmyndir 17 og 13 verk flokkast undir barna- og unglingaefni. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. jan- úar 2018 til 31. desember 2018. Kosning akademíumeðlima hefst 12. febr- úar og stendur í rúma viku. Að vanda gefst al- menningi kostur á að kjósa um sjónvarpsefni ársins á vefnum ruv.is. Kvikmynd Kona fer í stríð Andið eðlilega Lof mér að falla Leikstjórn Baldvin Z fyrir Lof mér að falla Benedikt Erlingsson fyrir Kona fer í stríð Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega Handrit Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson fyrir Lof mér að falla Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson fyrir Kona fer í stríð Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega Leikkona í aðalhlutverki Elín Sif Halldórsdóttir fyrir Lof mér að falla Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Andið eðlilega Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kona fer í stríð Leikari í aðalhlutverki Eysteinn Sigurðarson fyrir Mannasiði Gísli Örn Garðarsson fyrir Varg Paaru Oja fyrir Undir halastjörnu Leikkona í aukahlutverki Babetida Sadjo fyrir Andið eðlilega Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Lof mér að falla Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Lof mér að falla Leikari í aukahlutverki Kaspar Velberg fyrir Undir halastjörnu Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Mannasiði Þorsteinn Bachmann fyrir Lof mér að falla Kvikmyndataka Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Kona fer í stríð Ita Zbroniec-Zajt og Ásgrímur Guðbjartsson fyrir Andið eðlilega Jóhann Máni Jóhannsson fyrir Lof mér að falla Klipping Davíð Alexander Corno fyrir Kona fer í stríð Elísabet Ronaldsdóttir og Sigvaldi J. Kárason fyrir Varg Úlfur Teitur Traustason fyrir Lof mér að falla Hljóð Emmanuel De Boissieu og Frédéric Meert fyrir Andið eðlilega Aymeric Devoldere, Francois De Morant, Raphael Sohier og Vincent Cosson fyrir Kona fer í stríð Huldar Freyr Arnarson fyrir Varg Tónlist Atli Örvarsson fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn Davíð Þór Jónsson fyrir Kona fer í stríð Gyða Valtýsdóttir fyrir Undir halastjörnu Brellur Cem Olcer, Stephane Vogel og Annabelle Zoellin fyrir Kona fer í stríð GunHil fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn Kontrast og GunHil fyrir Flateyjargátuna Leikmynd Gunnar Pálsson og Marta Luiza Macuga fyrir Lof mér að falla Heimir Sverrisson fyrir Varg Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Kona fer í stríð Gervi Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Andið eðlilega Kristín Júlla Kristjánsd. fyrir Lof mér að falla Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Varg Búningar Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Andið eðlilega Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Lof mér að falla Margrét Einarsdóttir fyrir Flateyjargátuna Heimildamynd UseLess Svona fólk 1970-1985 690 Vopnafjörður Stuttmynd Islandia Nýr dagur í Eyjafirði To Plant a Flag Frétta- eða viðtalsþáttur Krakkafréttir Kveikur Fósturbörn Mannlífsþáttur Andstæðingar Íslands Hæpið Veröld sem var Sítengd Líf kviknar Menningarþáttur Kiljan Með okkar augum Fullveldisöldin Skemmtiþáttur Stundin okkar Heimilistónajól Áramótaskaupið 2018 Sjónvarpsmaður Alma Ómarsdóttir fyrir Fréttaannál 2018 Sigríður Halldórsdóttir fyrir Kveik Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Allir geta dansað Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar og Sögur – þættir um sköpun, skrif og lestur Viktoría Hermannsdóttir fyrir Sítengd Upptöku- eða útsendingarstjórn Björgvin Harðarson fyrir Pál Óskar í Höllinni Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað Þór Freysson fyrir Jólagesti Björgvins Barna- og unglingaefni Víti í Vestmannaeyjum Lói – þú flýgur aldrei einn Stundin okkar Leikið sjónvarpsefni Venjulegt fólk Mannasiðir Steypustöðin Sjónvarpsefni Kveikur Líf kviknar Með okkar augum Áramótaskaupið 2018 Kiljan Mannasiðir Sorgmædd Babetida Sadjo í Andið eðlilega. Ákveðin Halldóra Geirharðsdóttir í Kona fer í stríð. Undir áhrifum Kristín Þóra Haraldsdóttir í Lof mér að falla. Lof mér að falla með 12 tilnefningar  Kona fer í stríð með tíu tilnefningar til Eddunnar og Andið eðlilega með níu  Afhending 22. febrúar Íslensk-bandaríska kvikmynd-in Arctic sem var tekin upphér á landi, nánar tiltekið áNesjavöllum, í Bláfjöllum og við Fellsendavatn, ef marka má kvikmyndavefinn Klapptré, er það sem á ensku er kallað „star ve- hicle“, kvikmynd sem ein stjarna heldur algjörlega uppi, Mads Mikk- elsen hinn danski í þessu tilfelli. Mikkelsen er miklum leikhæfi- leikum gæddur og jafnvígur þegar kemur að gamanleik og drama. Hrollvekjandi var hann sem ill- menni í James Bond-myndinni Cas- ino Royale hér um árið en líklega hefur hann þó aldrei verið betri en í dramanu Jagten þar sem hann sýndi algjöran stórleik. Verri leikari en Mikkelsen hefði varla getað haldið uppi kvikmynd eins og Arctic sem krefst mikils af leikaranum þegar kemur að sann- færandi svipbrigðum og líkamstján- ingu í nístandi kulda. Mikkelsen hefur enda látið þau ummæli falla að tökur kvikmyndarinnar hafi ver- ið þær erfiðustu á ferli hans en þær stóðu yfir í 19 daga. Í myndinni segir af flugmanni sem brotlent hefur einhvers staðar á norðurpólnum, ef marka má titil myndarinnar. Áhorfandinn fær ekk- ert að vita annað um manninn en að hann er flugmaður sem heitir Over- gård (það stendur á úlpunni hans) og hefur þurft að dvelja ansi lengi, kaldur og hrakinn, í flaki flugvélar sinnar. Hann er kalinn á nokkrum tám og fingurnir eru næstir. Í byrjun myndar er Overgård að skrifa stafina S O S í snjóinn í von um að til hans sjáist úr lofti og á milli þess að veiða sjóbirting í gegn- um ís og éta hann hráan gengur hann upp á næstu hæð og sendir þar neyðarmerki með handsnúnu apparati. Engin kemur hjálpin og svona heldur þetta áfram, dag eftir dag, mínútu eftir mínútu. Við fylgj- umst með þjáðu og veðurbörðu and- liti Mikkelsens sem missir ekki von- ina í þessum óhugnanlegu aðstæðum. Dag einn kemur flugmaður þyrlu auga á Overgård en brotlendir þyrl- unni og lætur lífið. Ung kona sem er með í för kemst hins vegar af við illan leik. Overgård gerir að ljótu sári sem hún hefur fengið á kviðinn og dregur hana svo rænulausa með sér í flugvélarflakið. Þar hlúir hann að henni dögum saman en konan kemst í raun aldrei til meðvitundar, tekst aðeins að gefa frá sér nokkur hljóð og kreista hönd bjargvættar- ins. Konuna leikur hin íslenska María Thelma. Ástandið versnar svo til muna – og var það þó vont fyrir – þegar Overgård ákveður að yfirgefa flugvélarflakið og freista gæfunnar, ganga í átt að óvissunni og mögu- legri björgun með landakort í hendi. Og enn kárnar gamanið þegar hann slasast illa á fæti í þeim leiðangri og öll von virðist endanlega úti. Sem er að vísu heldur lítil breyting frá fyrra ástandi. Arctic sver sig í ætt við myndir á borð við 27 Hours og Touching the Void sem segja af ótrúlegri baráttu manna við að halda lífi, nú eða Djúpið sem líkt og þær er byggð á sannri sögu um ótrúlega baráttu mannsins við náttúruöflin. En þær eru, nota bene, sannsögulegar sem gefur þeim aukna vigt. Arctic er hreinn skáldskapur, eftir því sem ég kemst næst, en engu að síður mjög trúverðug, mikið raunsæisverk og þar skiptir líka miklu máli förðun og búningar sem Íslendingar sáu um. Myndatakan er einnig fyrirtak og íslensk náttúra nýtur sín vel, snjór svo langt sem augað eygir mestallan tímann. Íslendingur líka þar á ferð, líkt og í svo mörgum öðrum stöðum. Leikstjórinn Penna, sem er líka annar tveggja handritshöfunda, hef- ur kosið leið einfaldleikans, að veita sem allra minnstar upplýsingar og útiloka nánast allan texta og tal í myndinni. Við fáum ekkert að vita um aðalpersónuna en mótum hana þess í stað út frá gjörðum hennar og baráttuþreki. En það gerist lítið sem ekkert í myndinni, hún er að mestu röð endurtekninga sem leiðir óhjákvæmilega til þess að manni fer að leiðast þegar á hanan líður, þrátt fyrir allan sársauka Mikkelsens og vandaðan leik. Auðvitað er alltaf gaman að horfa á Mikkelsen, en öllu má nú ofgera. Engu að síður ágæt- ismynd og vel þess virði að sjá. Andlit norðursins Þjáður Mads Mikkelsen í kvikmyndinni Arctic sem fjöldi Íslendinga kom að. Sambíóin Arctic bbbnn Leikstjórn: Joe Penna. Handrit: Joe Penna og Ryan Morrisson. Aðalleikarar: Mads Mikkelsen og María Thelma Smáradóttir. Ísland og Bandaríkin, 2018. 97 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.