Morgunblaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 6. F E B R Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 40. tölublað 107. árgangur
VINNUR MIKIÐ
MEÐ TÍMA OG
HREYFINGU
VENJULEGT
ÍSLENSKT
FÓLK
TAKK FYRIR MIG 46TUMI MAGNÚSSON 49
Morgunblaðið/Kristinn
Líkkista Í mörg horn er að líta við
skipulagningu jarðarfarar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áætla má að kostnaður við útfarir sé
nokkuð á þriðja milljarð króna á ári.
Þórólfur Sveinsson, búfræðikandidat
á Ferjubakka í Borgarfirði, segir að
ef kostnaður við „venjulega“ útför sé
orðinn yfir milljón skipti hann veru-
legu máli fyrir talsverðan hóp fólks.
Þórólfur hefur kynnt sér útfarar-
siði og sagði frá í erindi sem hann
flutti í Snorrastofu í Reykholti fyrr í
vikunni. Þar lagði hann áherslu á hús-
kveðjuna sem var almennur hluti af
útförum fram yfir miðja síðustu öld.
Þórólfur telur að húskveðjan hafi orð-
ið almenn vegna þess að vantað hafi
vettvang fyrir persónulega kveðju.
Hann fjallaði einnig um kostnað við
jarðarfarir.
Kostnaður 2-3 milljarðar
Samkvæmt tölum frá árinu 2017
voru um 12% útfara gerð í kyrrþey.
Kostnaður við slíka athöfn er um 400
þúsund. Þórólfur gefur sér að kostn-
aður við það sem hann kallar „venju-
lega“ útför sé um 1.100 þúsund en
tekur fram að fólk standi að þessu
með ýmsum hætti og kostnaðurinn
fari eftir því. Miðað við þetta og að
um 2.300 útfarir séu á Íslandi á ári er
veltan ríflega 2,3 milljarðar króna.
Hann segir ljóst að margir hafi
vinnu og framfæri af þessari starf-
semi og hagsmuni af því að hvergi sé
dregið úr kostnaði. Nefna má útfar-
arþjónustur, legsteinaverkstæði,
veitingastaði og blómabúðir. Einnig
segir hann að tónlistarfólk og söng-
fólk hafi tekjur af tónlistarflutningi
við útfarir.
Venjuleg jarðarför kostar yfir milljón
Margir hafa hag af því að hvergi sé dregið úr kostnaði við útför
MStund fyrir persónulega … »18
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, heimsótti stjórnstöð NATO á Keflavík-
urflugvelli í gær ásamt Guðlaugi Þór Þórðar-
syni, utanríkisráðherra Íslands, Georg Kr.
Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, og
Jóni B. Guðnasyni, framkvæmdastjóra varnar-
málasviðs Landhelgisgæslunnar. Stjórnstöðin
er rekin af Landhelgisgæslunni en þar er ör-
yggiseftirliti sinnt á vegum NATO.
Tilganginn með heimsókn sinni til Íslands
sagði Pompeo á blaðamannafundi í Hörpu
ekki síst vera þann að styrkja tengslin við
bandamenn Bandaríkjamanna sem hefðu ver-
ið vanræktir á liðnum árum í tíð fyrri ríkis-
stjórna landsins.
Viðræður Pompeos við Guðlaug Þór snerust
m.a. um að komið yrði á sameiginlegum vett-
vangi til þess að stuðla að auknum viðskiptum
á milli ríkjanna tveggja auk umræðuna um
varnarmál og norðurslóðir. »4
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kynntist störfum Gæslunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Opinber heimsókn Mike Pompeos, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á Íslandi
Starfsfólk fjármálafyrirtækja á
Íslandi getur fengið mest 25%
kaupauka sem hlutfall af árs-
launum. Slíkt hámark er ekki hjá
öðrum starfsstéttum á Íslandi.
Ásta S. Fjeldsted, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs, segir það
hafa borið á góma hjá ráðinu að
taka upp þráðinn síðan reglur um
kaupauka voru síðast til umræðu.
„Við hjá Viðskiptaráði horfum
alltaf til þess að við séum ekki að
innleiða hér á landi meira íþyngj-
andi reglugerðir en gengur og
gerist í löndunum í kringum okk-
ur. Það gilda strangari reglur hér
á landi.“ »14
Reglur um kaup-
auka íþyngi ekki
„Þau voru bara búin að vera að
bíða, þau höfðu líka leitað. Það var
ljúfsár tilfinning að þrátt fyrir að
faðir minn væri látinn þá fann ég
strax að þau höfðu alla tíð viljað
tengjast mér,“ segir Gunnar Smith
sem frá unga aldri hefur leitað föð-
ur síns. Á síðasta ári komst hann
loks á snoðir um hvar föður sinn og
fjölskyldu hans var að finna en í
viðtali í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins rekur hann sögu sína sem
hefur alla tíð markast af þessari
leit.
„Ég er auðvitað búinn að bíða svo
lengi og þetta hefði getað verið
hvernig sem var. Þau ekki vitað af
mér. Ég var svo hræddur við að
þegar ég loksins fyndi þau kæmi ég
að lokuðum dyrum,“ segir Gunnar.
Morgunblaðið/Hari
Ljúfsárt Gunnar Smith fann fjöl-
skyldu föður síns eftir langa leit.
Fann föður
sinn eftir
áratuga leit
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Valkostirnir eru skýrir fyrir stjórn-
völd, það er annaðhvort að vera með
vinnumarkaðinn í fanginu út kjör-
tímabilið eða fá vinnufrið og byggja
upp betra, réttlátara og stöðugra
samfélag,“ segir Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður VR, eftir að verka-
lýðsfélögin höfnuðu tilboði Samtaka
atvinnulífsins í gær.
Gagntilboði Eflingar, VR, Verka-
lýðsfélags Grindavíkur og Verka-
lýðsfélags Akraness var síðan hafn-
að af Samtökum atvinnulífsins.
Vilji fyrir kerfisbreytingum
Ragnar segist skynja vilja stjórn-
valda til að koma í gegn kerfisbreyt-
ingum, m.a. í húsnæðismálum.
„Síðan eru mál er snúa að verð-
tryggingunni sem eru í stjórnarsátt-
málanum. Það ætti að vera auðsótt
að sækja þar fram. Mitt mat á stöð-
unni er að þetta sé leysanlegt og það
er til mikils að vinna fyrir alla aðila.“
Að sögn Ragnars eru deilendur þó
komnir áfram í nokkrum málum.
„Sérstaklega í húsnæðismálum. Ég
held að það sé nokkuð breið sátt um
að það þarf að gera eitthvað. Það eru
bara aðrir þættir sem snúa að skatt-
kerfisbreytingum, verðtryggingunni
og öðrum kerfisbreytingum sem við
höfum verið að þrýsta á sem standa
út af borðinu og þurfa að liggja fyrir
svo hægt sé að skrifa undir samn-
inga.“
Hann telur ljóst að samningar
muni ekki nást nema með aðkomu
stjórnvalda. »2
Kostir stjórnvalda skýrir
Verkalýðsfélögin hafna tilboði SA SA hafna gagntilboði