Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Í dag kveð ég elsku frænku mína alltof snemma. Ég minnist Öllu Huldu með hlýhug og þökk í hjarta fyrir góðu stundirnar sem við áttum saman. Samskipti okkar hafa verið lítil síðastliðin tvö ár enda barátta hennar við fíknina erfiðari en nokkru sinni fyrr, en þar áður þegar vel gekk áttum við frábæra tíma saman. Alla Hulda var án efa ein allra fyndnasta manneskja sem ég hef kynnst, alltaf tilbúin í allt grín og hláturinn svo mikill og innilegur, með sitt breiða bros og frekjuskarðið sem fór henni svo einstaklega vel. Hún átti svo auð- velt með að bregða sér í einhvern góðan karakter og vera með eitt- hvert spaug, hvort sem það var hálfgert uppistand, dans eða söngur, alltaf svo mikið grín, svo gaman. Hún var með risastórt hjarta og ef eitthvað bjátaði á vildi hún allt fyrir alla gera og það skein alltaf í gegn hvað hún vildi vel. Dýravinur mikill, elskaði öll dýr þó svo að hún væri með of- næmi fyrir þeim svo til öllum. Ég á ótal dýrmætar minningar um elsku frænku mína og er mikið þakklát fyrir tæknina í dag, ég á ótrúlega mikið til af minningum á stafrænu formi. Við frænkur lögðum okkur mikið fram við að bregða hvor annarri og höfðum mjög gaman af, sungum hvíta máva, röðuðum kálblöðum á hausana á okkur, snérum okkur í hringi á skrifborðsstólum og hlupum af stað, það var alltaf svo gaman og mikið hlegið. Síðast- liðnir dagar hafa verið erfiðir en í hvert skipti sem ég fer að skoða bara þau augnablik sem ég á með henni í símanum enda ég bros- andi og hálfhlæjandi, það er ein- mitt það sem lýsir Öllu best. Al- veg frá barnsaldri varð ég hænd að Öllu Huldu og urðum við Aðalheiður Hulda Jónsdóttir ✝ AðalheiðurHulda Jóns- dóttir fæddist 4. desember 1975. Hún lést 7. febrúar 2019. Útför hennar fór fram 15. febrúar 2019. frænkurnar mjög nánar, hef ekki tölu á því hversu oft við höfum verið spurðar hvort við værum systur við svöruð- um, ekki alveg, bara systkinabörn. Elsku Alla mín, núna ertu komin á betri stað, ekki leng- ur fangi fíkninnar, núna ertu frjáls. Með sting í hjarta og miklum söknuði kveð ég þig, elsku frænka mín. Hugur minn er hjá yndislegu börnunum þínum og foreldrum. Sofðu rótt, fallegi engill. Margs er að minnast, margs er að sakna. Elska þig alltaf. Þín frænka Sunneva Ævarsdóttir. Ég sit hér á Spáni og hugsa til þín, elsku Alla mín, ég hafði allt eins búist við þessum fréttum en þær koma samt eins og þungt högg. Líf þitt hafði verið erfitt, sérstaklega undanfarin ár sem voru þér mjög þungbær. Það er stundum sagt um ungt fólk sem deyr af völdum til dæmis krabba- meins og hefur farið í gegnum mikinn sársauka að það sé hvíld- inni fegið. Það sama má segja um fíkilinn, alkóhólistann, á seinni stigum þess sjúkdóms líður fólk miklar kvalir, skömm og mikið niðurbrot. Þú varst orðin þreytt á að takast á við sjúkdóminn sem tók alltaf meira og meira frá þér. Þú sagðir við mig á afmælisdag- inn þinn að oft hefði það verið slæmt en aldrei eins og nú. Ég skynjaði litla sem enga von hjá þér, það er erfitt að hlusta en geta lítið gert til bjargar. Við kynntumst í Færeyjum sem börn og nutum þar lífsins í leik við lækinn, í fjörunni og í því frelsi sem þorpið veitti okkur, æv- intýrin eru dásamleg hjá börnum sem leika sér saman áhyggjulaus í núinu. Það er og verður alltaf sterk tenging á milli þeirra sem kynnast á þann hátt sem börn. Þannig var það hjá okkur, ég kynntist þér, þessu glaðlynda og skemmtilega barni sem þú varst. Seinna flutti ég til Íslands og hitti þig aftur. Það tók ekki lang- an tíma að rifja upp gömul kynni en ég varð fljótlega vör við það að eitthvað hafði gerst hjá þér, seinna sagðir þú mér frá skugg- anum í lífi þínu, þú hafðir verið misnotuð af fullorðinni mann- eskju sem barn. Manneskju sem þú hafðir treyst. Það var erfitt að horfa á þessa manneskju sem ég hafði kynnst sem barni í Haldórs- vík vera komna með svona stórt ör á sálina. Þegar þú sagðir mér frá þessu vissi ég strax að þetta var sannleikur og þú yrðir aldrei söm og áður. Þú reyndir þitt besta við það að eiga við lífið en það gekk misjafnlega, skugginn var þarna ómeðhöndlaður og það var þér um megn að lifa með honum. Því leitaðir þú í áfengi og lyf til að deyfa þann sársauka sem barnið þú, Alla mín, hafðir orðið fyrir. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvernig þú, Alla, hefðir verið ef engin skuggi hefði komið inn í þitt líf. Það er ekki hægt að kenna öllu um þó að skuggi liti líf en svo sannarlega hefur hann áhrif sem oft eru vanmetin. Þegar ég kynntist Öllu var hún lífsglöð og áhyggjulaus. Skemmtilegri manneskju hef ég varla kynnst, það var oft gaman hjá okkur og mikið hlegið. Hún var mikill dýravinur sem að lýsir henni vel. Hún var mér góð og ég fann að henni þótti vænt um mig, Hláturinn, stóra brosið og væntumþykjan lifa í minningunni um frábæra manneskju sem við nú syrgjum. Alla átti góða að, þá sérstak- lega foreldra og börn sem stóðu með henni alla tíð. Hún elskaði þau heitt og þau hana. Ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur með von um að góður Guð styrki ykkur í þeirri miklu sorg sem þið takist nú á við. Þín vinkona Eydna Fossádal. Elsku fallega og hjartahlýja vinkona mín! Þegar ég vaknaði við skilaboð um að þú værir farin frá okkur fylltist ég svo mikilli sorg og vonleysi. Þú varst besta vinkona mín og ég á líf mitt að svo mörgu leyti þér að þakka, þegar ég var húsnæðislaus í leit að hús- næði leyfðir þú mér að búa hjá þér um tíma og tókst á móti börn- unum mínum með svo miklum kærleika. Þú varst skemmtileg- asta, fyndnasta og ein sú stríð- nasta vinkona sem ég hef átt og alltaf hafðir þú samband við mig ef mér leið ekki vel, bara eins og þú hefðir fundið það á þér. Líf þitt hafði svo sannarlega ekki verið auðvelt en alltaf lýstir þú upp líf annarra með hlátri eða gjöfum eða bara með því að vera þú. Þú glæddir hjörtu margra og varst alltaf boðin og búin að hjálpa þeim sem minna máttu sín en ég vildi að þú hefðir verið jafn góð við þig og aðra. Þú varst svo hæfi- leikarík á svo mörgum sviðum, heimilið þitt var svo fallegt og notalegt að koma til þín. Ég vil votta foreldrum þínum og börn- um, sem ég veit að þú elskaðir svo heitt, mína dýpstu samúð. Ég elska þig að eilífu. Þín vinkona Katrín (Kata). Mig langar til að minnast vin- konu minnar hennar Öllu Huldu með nokkrum orðum. Við Alla ólumst upp í sömu göt- unni og erum jafn gamlar, hún var þó í öðrum bekk, en skólinn var lítill og bekkirnir líka svo það skipti ekki miklu máli í hvaða bekk maður var, allir gátu verið vinir. Mér þótti óendanlega gaman að koma heim með þér eftir skóla, þú áttir svo mikið barbí og sæti hundurinn þinn Bobbi sem þú elskaðir svo mikið tók hressilega á móti okkur. Þú varst alltaf svo brosmild, stríðin og skemmtileg persóna og hafðir svo sannarlega útlitið með þér. Þú varst alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Þú hafðir í nógu að snúast við að sækja, skutla, og hlusta á þá sem þurftu á þér að halda. Þú elskaðir tónlist og veltir fyr- ir þér textum og það var alltaf músík í bakgrunni þar sem þú varst. Mér er það mjög minnisstætt þegar þú spilaðir Never Ever með All Saints á „repeat“ og við Elva Björk vorum komnar með grænar bólur af laginu. Þú stúd- eraðir texta og hlóst að okkur þegar við byrjuðum að tuða yfir hversu oft þú spilaðir lagið. Elsku Alla, mikið er það sorg- legt að lífið hjá þér hafi farið á þann veg sem raun er. Þú áttir allt það besta skilið, en áttir svo oft á tíðum erfitt með að elska þig sjálfa skilyrðislaust. Það velur enginn að lifa með þeim sjúkdómi sem þú gerðir og það er engin leið að skilja af hverju sumir hafna þar sem þú hafnaðir. Það dýpsta í okkur sem mann- verum er að reyna að lifa því besta lífi sem við mögulega get- um, með það í farteskinu sem við höfum. Þú valdir ekki þinn sjúk- dóm, þú varst fórnalamb sjúk- dóms, elsku vinkona. Við Anton munum að eilífu minnast þín sem yndislegrar per- sónu. Það er þér að þakka að við kynntumst. Ég mun aldrei gleyma þeim degi þegar þú sagðir mér að þú þekktir frábæran og góðan strák sem héti Anton. Þú vildir endilega kynna mig fyrir honum, sagðir að við myndum passa svo vel saman, sem var svo sannarlega rétt hjá þér. Þú gafst ekki upp fyrr en ég hafði farið með þér heim til Ant- ons og kynnt mig fyrir honum. Þú varst alltaf svo stolt af því að hafa kynnt okkur, brostir breitt og varst stolt í brúðkaupinu okkar. Þú elsku vinkona munt ávallt lifa í hjörtum okkar hjóna. Við hjónin sendum fjölskyldu þinni okkar dýpstu samúðar- kveðjur með von um að þau finni styrk í kærleika hvert til annars til að takast á við sorgina. Elsku vinkona, hvíldu í friði Hjördís Helga og Anton. Elsku Alla okkar. Nú er víst komið að kveðju- stund og er óhætt að segja að hún komi allt of fljótt. Það er sárt til þess að hugsa, hve lífið hefur ver- ið þér erfitt og ósanngjarnt. Síð- ustu ár voru mjög erfið, bæði fyrir þig og okkur sem elskuðum þig af öllu hjarta, en við komum til með að minnast þín eins og við þekkt- um þig best. Við munum eftir stóra brosinu þínu, frekjuskarðinu, freknunum og hlátrasköllunum þínum, en fyrst og fremst minnumst við þín fyrir það hversu dásamleg og góð manneskja þú varst. Þú vildir allt fyrir alla gera og skipti engu máli um hvaða greiða þú varst beðin, alltaf var svarið: „Já já, ekkert mál.“ Börnin okkar elskuðu að vera hjá þér og sóttu mikið í þig, það mátti líka ýmislegt gera sem ekki mátti heima, t.d. horfa á drauga- myndir eða baka köku eftir klukkan 12 á miðnætti svo eitt- hvað sé nefnt. Þú varst ótrúlega barngóð og varst alltaf ánægðust þegar nóg var af krökkum í heimsókn, enda fannst þeim alltaf gaman að heim- sækja Öllu frænku. Elsku Alla, við söknum þín svo mikið, en þú átt alltaf stað í hjarta okkar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn að aldrei deyr: dómur um dauðan hvern. (Úr Hávamálum) Ástarkveðja, Guðmundur (Gummi), Lóa, Diljá Líf og Ýmir Loki. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS JÚLÍUS JÓSEFSSON plötu- og ketilsmiður, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 10. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 20. febrúar klukkan 13. Böðvar Magnússon Jósef Rúnar Magnússon Ragnar Sveinn Magnússon Marjorie Nivin Mota Arce barnabörn og barnabarnabörn Elsku eiginkona mín, móðir og amma, SVALA HANNESDÓTTIR KASTENHOLZ, 53902 Bad Münstereifel Iversheim Euskirchener Str. 131, lést 11. febrúar. Hún verður jarðsungin 8. marz klukkan 14 frá St. Laurentius-kirkju í Iversheim. Þeim sem vilja minnast hennar bendum við á líknarfélög. Með kærleik og þakklæti, Ulrich, Susanne og Freyja Kær bróðir minn og frændi okkar, MAGNÚS INDRIÐASON frá Húsey í Skagafirði, er látinn. Útför hans fer fram frá Goðdalakirkju laugardaginn 23. febrúar klukkan 14. Inda Indriðadóttir systrabörn og fjölskyldur þeirra Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR SVERRIR ARASON, lést mánudaginn 11. febrúar á Hrafnistu, Reykjavík. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 15. Ragnheiður Halldórsdóttir Magnús Emil Bech Ari Halldórsson Björn Alexandersson Jóhann Reynir Halldórsson Hilda Julnes Kristinn Þórður Halldórsson Katrín Elly Björnsdóttir Helga Halldórsdóttir Brjánn Birgisson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR KRISTINN ÞÓRÐARSON bifvélavirkjameistari, frá Stóragerði, Skagafirði, lést þriðjudaginn 12. febrúar á HSN Sauðárkróki. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 22. febrúar klukkan 15. Sólveig Jónasdóttir Þórey Gunnarsdóttir Eiður Baldursson Jónas Kristinn Gunnarsson Kristín Anna Hermannsdóttir Brynjar Þór Gunnarsson Sigríður Garðarsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Úthlíð 12, lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi sunnudaginn 10. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 18. febrúar klukkan 13. Laufey Barðadóttir Ævar Guðmundsson Margrét Barðadóttir Þorsteinn Barðason Guðrún Þ. Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, MÁLFRÍÐUR FINNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, frá Hvilft í Önundarfirði, síðast til heimilis í Efstaleiti 14, Reykjavík, lést á Hrafnistu miðvikudaginn 13. febrúar. Útförin fer fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á ABC barnahjálp. Guðm. Stefán Maríasson Kristín Jónsdóttir Áslaug Maríasdóttir Skúli Lýðsson Bryndís H. Maríasdóttir Kristján Einarsson Árni Maríasson Guðrún Oddsdóttir Hildur Maríasdóttir Þórður Oddsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.