Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 KRINGLU OG SMÁRALIND DÖMUSKÓR SKECHERS WINDOM SNOWY VATNSHELDIR DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI OG LOÐFÓÐRI. STÆRÐIR 36-41. 517.99 Vatnajökulsþjóðgarði hefur frá upphafi verið ætlað að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins, m.a. með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar gæða svæðisins en sérstakt ákvæði þess efnis kom inn í lög um þjóðgarðinn við breytingu árið 2016. Stjórn þjóðgarðsins vinnur nú að mótun atvinnustefnu og vill tryggja að tekið sé tillit til sjónarmiða hagsmunaaðila við mótun hennar, samhliða vernd þjóðgarðsins. Lögð er áhersla á að eiga gott samstarf við alla þá sem nýta þjóðgarðinn beint eða óbeint til atvinnusköpunar. Þeim og öðrum sem áhuga hafa er boðið til samráðsfunda þar sem efnisatriði atvinnustefnunnar verða rædd. Fundir verða haldnir á öllum rekstrarsvæðum þjóðgarðsins, auk þess sem haldinn verður einn fundur í Reykjavík. Að auki verður boðið upp á vefkönnun þar sem leitað er eftir sjónarmiðum um sömu efni og tekin verða til umræðu á samráðsfundum. Nánari upplýsingar um samráðsfundina og vefkönnunina er að finna á vef þjóðgarðsins, www.vjp.is. Samráð um mótun atvinnustefnu fyrir Vatnajökulsþjóðgarð Samráðsfundir verða haldnir sem hér segir: Reykjavík, Hótel Natura við Nauthólsveg, 21. febrúar kl. 15-17 Smyrlabjörgum, 25. febrúar kl. 15 - 17 Vík í Mýrdal, Kötlusetri, 27. febrúar kl. 15-17 Egilsstöðum, Hótel Héraði, 28. febrúar kl. 16-18 Húsavík, Fosshóteli, 5. mars kl. 15-17 Vefkönnunin verður opin frá 21. febrúar til 7. mars. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Því er fagnað á facebókar-síðu Vina Saltfiskmóans að stakkstæði við Sjó- mannaskólann verður hlíft í komandi deiliskipulagsvinnu á reitnum. Þar segir að um fullnaðarsigur sé að ræða í baráttu félagsins fyrir þessum merku menningarminjum. Vitnað er til bréfs frá skipulags- og byggingarsviði borgarinnar sem lagt var fram á fundi skipulags- og sam- gönguráðs á miðvikudag. Þar segir m.a. að stakkstæðið hafi verið af- markað af Borgarsögusafni og 15 metra helgunarreitur umhverfis það eins og lög um menningarminjar geri ráð fyrir. Í frekari vinnu og undir- búningi að deiliskipulagi svæðisins sem nú standi yfir sé gert ráð fyrir að öll mannvirki verði utan helgunar- svæðis stakkstæðisins og því tekið fullt tillit til þess. Vinir Saltfiskmóans er íbúafélag í nágrenni Sjómannaskólans, sem hef- ur barist fyrir því að stakkstæðið verði verndað. Það er frá 1920 og tal- ið það síðasta sinnar tegundar í Reykjavík. Fornminjar eftir örfáa mánuði „Við munum áfram standa vörð um stakkstæðið og í framhaldinu óska eftir samstarfi við Reykjavíkurborg, Borgarsögusafn og Minjastofnun um hvernig stakkstæðið verði best verndað gegn gróðri sem með tíð og tíma, verði ekkert að gert, mun kaf- færa stakkstæðið. Einnig er okkur umhugað um hvernig Saltfiskmóinn verði gerður sem aðgengilegastur fyrir almenning sem útivistarsvæði,“ segir á síðu Saltfiskmóans. Málið var rætt á fundi skipulags- og samgönguráðs borgarinnar á mið- vikudag og þar lagt fram svar við fyr- irspurn frá fulltrúum Sjálfstæðis- flokksins. Þeir óskuðu skýringa vegna þess ósamræmis sem birtist í kynningu Vaxtarhúsa annars vegar og auglýsingu borgarinnar frá 1. júní 2018 hins vegar. Bent er á að örfáir mánuðir eru þar til stakkstæðið telst til fornminja samkvæmt lögum um menningarminjar. Svar frá umhverfis- og skipulags- sviðs var lagt fram á fundinum og þar segir meðal annars: „Í kynningar- gögnum og forsendum fyrir hug- myndasamkeppni um hagkvæmt húsnæði sem unnin var í aðdraganda samkeppninnar var afmörkun reits Sjómannaskólans og uppbyggingar- svæðum innan hans, ekki skilgreind nákvæmlega enda um hugmynda- samkeppni að ræða. Afmörkun var ekki ljós Vaxtarhús unnu þannig sínar til- lögur út frá þeim forsendum um mögulega uppbyggingarreiti og að þeir væru ekki endilega bundnir af ákveðinni staðsetningu innan reits- ins. Vaxtarhús gerði síðar breytingu á sinni tillögunni í þá veru að færa hagkvæmt húsnæði yfir á þann reit sem þeim var ætlaður skv. drögum að deiliskipulagi reitsins þegar það lá fyrir að þeir kæmust áfram í sam- keppninni. Stakkstæðið hefur verið afmarkað af Borgarsögusafni og 15 metra helg- unarreitur umhverfis það eins og lög um menningarminjar nr. 80/2012 gera ráð fyrir. Nákvæm afmörkun var ekki ljós fyrr en eftir að tillögu Vaxarhúsa hafði verið skilað inn.“ Umdeilt svæði við Sjómannaskólann N óa tú n Skipholt Saltfiskmóinn Mörk deiliskipulags Stakkstæði 15 m helgunarsvæði H ei m ild : B or ga rs ög us af n Stakkstæði verður hlíft  Fullnaðarsigur segja Vinir Saltfiskmóans Maður sem fannst látinn í sjónum norðan við Vatnagarða í Reykjavík í apríl í fyrra sigldi líklega á staur og féll útbyrðis og drukknaði. Maðurinn var ölvaður þegar atvik- ið átti sér stað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgöngu- slysa. Maðurinn hafði verið að yfirfara vélbúnað bátsins, sem er opinn skemmtibátur eða harðbotna slöngubátur, að kvöldi 19. apríl 2018 og sjósetja eftir vetrar- geymslu. Að því loknu hélt hann í prufusiglingu rétt fyrir miðnætti frá Snarfarahöfn og um Kleppsvík. Þegar félaga mannsins fór að lengja eftir honum fóru þeir að líta eftir honum og fannst bátur hans mannlaus í gangi við bryggju Sam- skipa við Vogabakka. Höfðu þeir samband við lögreglu um klukkan eitt eftir miðnætti og hófst þá víð- tæk leit að manninum. Maðurinn fannst látinn í sjónum undir morgun um það bil 200 metra frá landi og talsvert frá sigl- ingasvæðinu. Í frétt mbl.is þann dag var haft eftir lögreglu að eng- inn grunur væri um saknæmt at- hæfi. Talinn hafa siglt á staur og fallið útbyrðis  Skýrsla um lát manns í apríl í fyrra Morgunblaðið/Eggert Snarfarahöfn Maðurinn sigldi það- an í prufusiglingu í apríl í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.