Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN
Brauðbox
lítið 11.900 kr.
Brauðbox stórt
14.900 kr.
Box 4l 4.990 kr.
Vigt 14.900 kr.
Piparkvörn
9.990 kr.
Box 1,65l 3.490 kr.
Box 1l 2.990 kr.
Box 2l 3.690 kr.
Ketill 2,75l 15.790 kr
Eldhúsrúllustandur
5.500 kr.
Ekki er óþekkt að ríkisstjórnkomi að kjarasamningum á
lokametrum til að höggva á hnút
og tryggja að samningar geti
náðst.
Þetta getur veriðskynsamlegt,
en getur vitaskuld
aldrei komið í veg
fyrir að samnings-
aðilar sýni ábyrgð
og semji.
Þeir geta ekkisett fram fullkomlega óraun-
sæjar kröfur og beðið svo eftir að
ríkisvaldið skeri þá úr snörunni.
Þá er afar sérkennilegt, svovægt sé til orða tekið, þegar
settar eru fram kröfur á hendur
kjörnum fulltrúum almennings
um að þeir afsali sér valdi í hend-
ur fólks í einu verkalýðsfélagi
sem að auki hefur veikt umboð
eftir rýran stuðning félagsmanna
í kosningu.
Það að Efling telji raunsætt eðaviðeigandi að gera kröfu um
að tiltekin skýrsla tveggja áhuga-
manna um aukna skattheimtu
verði gerð að skattastefnu Íslands
er verulegt áhyggjuefni.
Ríkisstjórn sem féllist á slíkakröfu gæti eins hætt störfum
samdægurs. Hún hefði þegar sýnt
að hún væri búin að missa tökin.
Sú staða sem upp er komin íkjaraviðræðunum er graf-
alvarleg. Því miður virðast sumir
sem að viðræðunum koma taka
þeim af léttúð og ábyrgðarleysi.
Slík framganga verður aðbreytast eigi ekki illa að fara.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Efling krefst
framsals valds
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Nokkur brögð eru að því innan og
utan höfuðborgarsvæðisins að fjór-
hjólum sé ekið um göngustíga eða
aðra slóða sem ökutækjum er bann-
að að aka eftir.
Lesandi Morgunblaðsins sendi
meðfylgjandi mynd sem tekin var
milli Langavatns og Reynisvatns og
sýnir ökumann fjórhjóls aka um stíg
sem ætlaður er hestum og gangandi
vegfarendum. Eins og skiltið sýnir
er sérstaklega tekið fram að ökutæki
megi ekki fara þarna um. Viðkom-
andi lesandi segist eiga þarna leið
um annað slagið og yfirleitt rekist
hann á fjórhjól, stundum mörg í einu
þar sem augljóslega séu ferðamenn
undir stýri í skipulagðri hópferð.
Slíkar ferðir hafa einnig verið tíðar
við Úlfarsfell, göngufólki til ama.
Fjórhjólum ekið
um göngustíga
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Heimilisfólk á Dvalarheimilinu
Jaðri í Ólafsvík hefur orðið fyrir
ónæði vegna hringinga í heimilis-
síma, þar sem hringjendur tala
ensku, segjast vera frá tölvufyr-
irtæki og vilja laga tölvur viðkom-
andi með aðstoð eigendanna.
Helgi Kristjánsson segir að
nokkrir íbúanna hafi fengið svona
hringingar og hann þar á meðal.
Hann segir að konur hafi hringt í
karla og karlar í konur. „Konan,
sem hringdi í mig, sagði að málið
varðaði tölvuna mína,“ segir hann.
„Mér fannst eins og búinn væri til ys
og hávaði í bakgrunninum og var
strax á varðbergi enda þótti mér
þetta gervilegt, þakkaði fyrir og
lagði á.“
Þegar Helgi heyrði af svipuðum
hringingum innan heimilisins og í
Ólafsvík var hann viss um að maðk-
ur væri í mysunni. „Það er undar-
legt að hringt sé í eldra fólk á sama
svæði í sömu viku með sama erind-
ið,“ segir hann.
Vara við svikahröppum
Á Facebook-síðu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu kemur fram að
lögreglu hafi borist ábendingar um
símhringingar frá óprúttnu fólki,
sem talar iðulega ensku, segist vinna
fyrir tölvufyrirtæki og nefnir gjarn-
an Microsoft Windows í því sam-
bandi. Það býður fram aðstoð vegna
vandamála sem eiga að hafa komið
upp í tölvum og það fengið tilkynn-
ingar um.
„Hér er um að ræða ýtna og
tungulipra svikahrappa sem eru að
reyna að komast yfir viðkvæmar
upplýsingar í þeim tilgangi að hafa
fé af fólki og því rétt að hafa það
hugfast,“ segir á síðu lögreglunnar.
Erlendir svika-
hrappar í símanum
Reyna að komast
yfir upplýsingar til
að hafa fé af fólki
Morgunblaðið/Golli
Svikarar Óþekktir hringja í grun-
lausa í von um að hafa af þeim fé.