Morgunblaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég verð ekki sátt fyrr en breytingar verða gerðar á lögum sem banna ónauðsynleg læknisfræðileg inngrip á intersex einstaklingum sem oftast eru gerð þegar þeir eru börn,“ segir Krist- ín María Björnsdóttir. Dóttir Kristínar Maríu, Kittý And- erson, er intersex einstaklingur, sem þýðir að hún fæddist með ódæmigerð kyneinkenni. Kittý gekkst undir að- gerð sem ungbarn og glímir enn við af- leiðingar aðgerðarinnar. „Mér þykir ekki þægilegt að vera í sviðljósinu en ég ákvað að stíga fram á þessum tíma vegna gríðarlegra von- brigða með frumvarp ríkisstjórnar- innar um kynrænt sjálfstæði. Ég er mjög ánægð með þann hluta frum- varpsins sem snýr að transfólki en hefði viljað sjá bann við óafturkræfu inngripi í líf og heilsu intersex barna verða að veruleika. Að vísu er skref stigið á áttina með því að stofna nefnd sem fjalla á um málefni inter- sex einstaklinga,“ segir Kristín sem bindur vonir við að nefndin vinni hratt og vel, því á meðan hún sé að störfum sé hætta á óafturkræfum inngripum barna sem ekki passa í ákveðna kvenkyns- og karlkyns- kassa samfélagsins. „Ég vil stíga fram og vara foreldra við því að samþykkja aðgerðir á börn- um sem ekki eru lífsnauðsynlegar, eins og að fjarlægja eistu úr stúlkubörnum sem getur kallað á annars ónauðsyn- lega hormónagjöf. Taka ákvörðun út frá fyrirfram ákveðinni stærð sníps hvort honum skuli breytt í getnaðarlim eða snípurinn minnkaður og barnið kyngreint eftir því,“ segir Kristín sem telur að samfélagið og þá sérstaklega læknar þurfi að breyta viðhorfum sín- um í stað þess að breyta börnunum. Leyfa þeim sem fæðast með ódæmi- gerð kyneinkenni að vera eins og þau eru þar til þau hafi þroska og séu nægjanlega upplýst til þess að taka ákvörðun hvort þau kjósi að vera eins og þau eru eða samþykki aðgerðir og hugsanlega hormónameðferðir í kjöl- farið. Óþarfi að fjarlægja eistun „Ég eignaðist yndislega heilbrigða dóttur á Landspítalanum í Reykjavík árið 1982. Fljótlega eftir heimkomu kom í ljós að Kittý var kviðslitin og fór fljótlega í aðgerð sem gekk vel fyrir utan það að saumar sem áttu að leys- ast upp gerðu það ekki og það fór að grafa í þeim,“ segir Kristín sem skynj- aði strax án þess að nokkuð væri sagt að eitthvað væri að. Hún segir mægðurnar hafa verið fastagesti á barnadeild Landspítalans í nokkurn tíma. Dag einn ræddi barna- læknir við Kristínu og sagði henni að eitthvað væri að barninu, hugsanlega væri um litningagalla að ræða en það yrði að bíða eftir barnalækni sem var að koma úr námi frá Bandaríkjunum. „Fréttirnar voru mikið áfall og biðin í fullkominni óvissu í tvo mánuði var löng. Þegar nýi barnalæknirinn kom útskýrði hann fyrir mér á mjög var- færnislegan hátt að Kittý væri fædd með XY-litninga, þ.e.a.s. karlkyns kyn- kirtla, kvenkyns kynfæri og leggöng en hvorki leg né eggjastokka,“ segir Kristín sem segist í raun enga útskýr- ingu hafa fengið hvað kynkirtlar væru, annað en að þeir þjónuðu engum til- gangi og ef þeir yrðu ekki fjarlægðir væri aukin hætta á að Kittý fengi krabbamein. „Hver samþykkir ekki aðgerð á barni sem hefur engar afleiðingar nema saklausa hormónagjöf og minnk- ar stórlega líkur á krabbameini?“ spyr Kristín sem vissi ekki þá að kynkirtl- arnir voru innvortis eistu og hræðslan við aukna hættu á krabbameini átti einungis við þegar eistu gengu ekki niður hjá drengjum. Kittý fór fljótlega í aðra kviðslits- aðgerð og þá voru eistun tekin. Skömmin og leyndarmálið „Ég veit að barnalækninum gekk gott eitt til þegar hann ráðlagði mér að segja engum, ekki einu sinni fjölskyld- unni frá ódæmigerðum kyneinkennum Kittýjar,“ segir Kristín sem bendir á að leynd leiði til skammar. Kristín seg- ist hafa burðast með leyndina og skömmina í tæpa tvo áratugi sem vald- ið hefði henni og Kittý óþarfa vanlíðan. „Ég sagði samt foreldrum mínum og systrum frá en engum öðrum. Sem betur fer gerði ég það því síðar eign- aðist ég frænku með XY-litninga og við rannsókn kom í ljós arfgengt frávik sem erfist í kvenlegg,“ segir Kristín sem segir að barnalæknirinn hafi reynst henni vel og meðhöndlað Kittý á grundvelli vitneskju sem réð ríkjum á þeim árum. Það sé hins vegar þyngra en tárum taki að vita til þess að enn sé verið að framkvæma ónauðsyn- legar aðgerðir á börnum. Tilveran hrundi og traustið fór Kristín segir að eftir aðgerðina hafi Kittý lifað eðlilegu lífi og farið í læknis- skoðun einu sinni á ári. „Ég var alltaf að leita að tækifæri til þess að segja Kittý að hún þyrfti að fara í hormónameðferð þegar hún kæmist á kynþroskaaldurinn og að hún gæti ekki eignast börn. En hve- nær er rétta tækifærið til þess?“ spyr Kristín sem notaði tækifærið þegar Kittý lýsti því yfir níu ára að hún ætl- aði að eignast átta börn og sagði henni að það gætu ekki allar konur eignast börn. „Þegar Kittý nálgaðist kynþrosk- ann var ekki hægt að bíða lengur með hormónameðferðina og ég sagði henni sannleikann. Það var skelfilegt, við vorum nýflutt frá Skotlandi vegna skilnaðar míns og föður hennar og við heimkomuna lenti Kittý í einelti í skól- anum. Það versta var að hún missti allt traust til mín. Ég hafði haldið sann- leikanum frá henni. Það bitnaði á trausti hennar til annarra,“ segir Kristín sem er þakklát fyrir að hafa unnið traust Kittýjar aftur en það tók langan tíma. Rænd heilsunni Kristín segir að hefðu læknar ekki tekið eistu Kittýjar hefðu þau framleitt hormón sem líkami Kittýjar þurfti til að lifa heilbrigðu lífi. „Af því að eistun voru tekin svo Kittý gæti fallið inn í einhverskonar norm þá hefur hún þurft að ganga í gegnum breytingaskeiðið nokkrum sinnum þrátt fyrir að hún sé enn á fer- tugsaldri,“ segir Kristín og bætir við að Kittý hafi litið á sig sem frík þar til hún eignaðist yndislega frænku með sömu breytileika og hún og sá hana sem fullkomna mannveru. „Kittý fór sem skiptinemi til Ástra- líu 18 ára og þar ákvað hún að skamm- ast sín ekki lengur fyrir XY-breyti- leikann sitt,“ segir Kristín sem er ótrúlega stolt af dóttur sinni og hennar baráttu fyrir intersex fólk. Átti að fela XY-litninga dótturinnar  Vill vara foreldra við að samþykkja aðgerðir á börnum sem ekki eru lífsnauðsynlegar  Leyndinni fylgir skömm  Læknar þurfa að breyta viðhorfi í stað þess að breyta börnum  Stolt af dóttur sinni Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson Móðir Kristín María Björnsdóttir stígur fram til að vara við óafturkræfum inngripum í líf barna með XY-breytileika. Umboðsmaður barna gaf í maí 2015 út álit um aðgerðir á börn- um sem fæðast með ódæmi- gerð kyneinkenni. Þar segir m.a. að gera megi ráð fyrir að að minnsta kosti tvö til þrjú inter- sexbörn fæðist á Íslandi á ári og dæmi séu um að skurðaðgerðir séu gerðar á þeim börnum. Ónauðsynleg og óafturkræf inn- grip í líkama ungbarna sam- ræmist ekki réttindum þeirra og réttara væri að intersex börn gætu sjálf tekið ákvörðun um skurðaðgerð og/eða hormóna- meðferð þegar þau hafa mótað eigin kynvitund og hafa náð þeim aldri og þroska sem þarf til þess að geta tekið upplýsta ákvörðun. Virða ekki réttindi barna UMBOÐSMAÐUR BARNA Barátta Kristín María með skilaboð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.