Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 24
AFP
Múrinn Trump Bandaríkjaforseti á
leið á blaðamannafund í gær.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
lýsti í gær yfir neyðarástandi á
landamærum Bandaríkjanna og
Mexíkó í þeim tilgangi að tryggja
meira fjármagn til mannvirkjagerð-
ar á landamærum Bandaríkjanna og
Mexíkó. „Allir vita að múrar virka,“
sagði Trump þegar hann tilkynnti
um ákvörðun sína.
Forsetinn hafði áður samþykkt
málamiðlunartillögu sem þingmenn
úr báðum flokkum stóðu að, þar sem
demókratar féllust á að verja mætti
tæplega 1,4 milljörðum bandaríkja-
dala í nýjar girðingar á landamær-
unum í stað þeirra 5,7 milljarða sem
Trump og repúblíkanar vildu fá. Um
leið þýddi málamiðlunin að hluti
bandarískra ríkisstofnanna myndi
áfram fá fjármögnun og þær þyrftu
því ekki að loka, líkt og þær gerðu í
desember síðastliðnum.
Segja ákvörðunina valdníðslu
Demókratar á Bandaríkjaþingi
brugðust illa við ákvörðun Trumps.
Sögðu Nancy Pelosi, leiðtogi demó-
krata í fulltrúadeildinni og Chuck
Schumer, leiðtogi þeirra í öldunga-
deildinni, að ákvörðun Trumps bryti
í bága við lög og stjórnarskrá Banda-
ríkjanna, og að hún gerði Bandaríkin
óöruggari, þar sem fjármagni sem
ætlað væri her og landvörnum yrði
nú beint í landamæragirðingar.
Þá tilkynnti Letitia James, yfir-
saksóknari New York-ríkis, að ríkið
hygðist reyna að fá ákvörðun
Trumps hnekkt fyrir dómstólum.
Forsetinn sagði hins vegar að hann
væri öruggur um að ákvörðunin yrði
á endanum dæmd lögleg.
Lýsti yfir neyðarástandi
Demókratar segja ákvörðun Trumps ólöglega og hóta að fá henni hnekkt
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
Baldvin Ómar Magnússon
Lögg. Fasteignasali
Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177
baldvin@huseign.is
Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is
Glæsilegt einbýlishús við Miðskóga 14 á Álftanesi.
Húsið er staðsteypt með fallegum garði, stórri verönd til suðurs,
heitur pottur og fallegu sjávar- og fjallasýn frá húsi. 5 svefnherbergi.
Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar Magnússon í síma 898-1177
eða á skrifstofu Húseignar í síma 585-0100.
Miðskógar 14,
225 Garðabær
Opið hús
þriðjudaginn 19. febrúar
kl. 17.30-18.00
Þessir leigubílstjórar biðu í röðum á Valentínusardaginn
til þess að geta keypt eldsneyti á bílinn sinn á bensínstöð
við landamæri Venesúela og Kólombíu.
Viðvarandi eldsneytisskortur hefur verið í landinu,
þrátt fyrir að það sé olíuframleiðsluríki, og bíða því
margir bílstjórar tímunum saman til þess að geta fyllt á.
AFP
Valentínusardagur í Venesúela
Beðið eftir eldsneyti
Pedro Sanchez
tilkynnti í gær að
hann hygðist
rjúfa þing og
boða til nýrra
kosninga hinn
28. apríl næst-
komandi, eftir að
fjárlagafrum-
varp minnihluta-
stjórnar hans var
fellt á miðviku-
daginn var.
Þetta verða þriðju þingkosning-
arnar á Spáni á síðustu fjórum ár-
um, en ríkisstjórn Sanchez tók við
fyrir átta mánuðum þegar ríkis-
stjórn Mariano Rajoy hrökklaðist
frá völdum eftir vantraust.
Stjórn Sanchez þurfti að treysta
á stuðning katalónskra aðskiln-
aðarsinna á þingi, en þeir ákváðu
að draga hann til baka í mótmæla-
skyni við réttarhöld yfir tólf leið-
togum aðskilnaðarsinna, sem hóf-
ust í vikunni.
Sanchez boðar til
nýrra kosninga
Pedro
Sanchez
SPÁNN
Sajid Javid, inn-
anríkisráðherra
Bretlands, sagði
í gær að hann
myndi reyna að
aftra Shamimu
Begum, tánings-
stúlku frá Lond-
on, frá því að
snúa aftur til
landsins, en Beg-
um gekk til liðs
við öfgasveitir Ríkis íslams í Sýr-
landi ásamt tveimur vinkonum sín-
um árið 2015. Þar giftist hún ein-
um vígamanni samtakanna og ber
barn hans undir belti.
Sagði Javid að ef fólk hefði
stutt hryðjuverkasamtök myndi
hann ekki hika við að koma í veg
fyrir að það gæti snúið aftur til
Bretlands, þar sem það væri ógn
við öryggi landsins. Richard Bar-
rett, fyrrverandi yfirmaður MI6-
leyniþjónustunnar sagði hins veg-
ar að Begum ætti að fá að snúa
aftur.
Fær ekki að snúa
heim frá Sýrlandi
Sajid
Javid
BRETLAND
Luigi Di Maio, varaforsætisráðherra
og leiðtogi Fimmstjörnuhreyfingar-
innar á Ítalíu, tilkynnti í gær að flokk-
ur sinn ætlaði að ganga til liðs við
fjóra aðra flokka í Evrópu fyrir kosn-
ingarnar til Evrópuþingsins, sem
haldnar verða í maí næstkomandi.
Sagði Di Maio tilganginn þann að
gefa evrópskum kjósendum valkost
við hina hefðbundnu stjórnmála-
flokka.
Með Fimmstjörnuhreyfingunni
verða pópúlistaflokkurinn Zivi Zid frá
Króatíu, Kukiz’15 frá Póllandi, Liike
Nyt frá Finnlandi og Akkel-flokkur-
inn frá Grikklandi. Sagði Di Maio að
samstarfið væri einkum fyrir flokka
sem teldu sig ekki vera hluta af hreyf-
ingum hægrisinnaðra þjóðernisflokka
eða þeim hefðbundnu flokkum sem
ráðið hefðu ríkjum á Evrópuþinginu í
tuttugu ár. Bætti hann við að þeir
væru að leita að tveimur flokkum til
viðbótar.
Sendiherrann snýr aftur
Tilkynningin kom sama dag og
franska utanríkisráðuneytið tilkynnti
að sendiherra landsins á Ítalíu myndi
halda aftur til Rómar, en hann var
kallaður heim í lok síðustu viku í mót-
mælaskyni við endurteknar ögranir
ítalskra stjórnvalda.
Var það ekki síst heimsókn Di Ma-
ios til fulltrúa mótmælahreyfingar-
innar „gulu vestanna“ í Frakklandi
sem olli ákvörðun Frakka, en Di Maio
var meðal annars að leita hófanna hjá
hreyfingunni um samstarf vegna
Evrópuþingkosninganna.
Sagði Di Maio að hann væri ánægð-
ur að heyra að sendiherrann væri á
leiðinni aftur til Rómar og að hann
vildi eiga fund með honum. Sögðu
sérfræðingar í alþjóðasamskiptum
hins vegar óvíst að samskipti ríkjanna
myndu skána á næstunni.
Stofna nýja
flokkaþyrpingu
Bjóða sig fram
saman til Evrópu-
þingsins í maí
AFP
Milliríkjadeilur Sendiráð Frakka í
Róm hefur staðið tómt í heila viku.
Narendra Modi, forsætisráðherra
Indlands, sagði í gær að hryðju-
verkahópar og bakhjarlar þeirra
myndu þurfa að svara fyrir hryðju-
verkaárás í Kasmír-héraði á fimmtu-
daginn var, þar sem að minnsta kosti
41 maður lét lífið. Sökuðu indversk
stjórnvöld nágranna sína í Pakistan
um að skjóta skjólshúsi yfir íslamska
vígamenn og lofaði Arun Jaitley,
fjármálaráðherra Indlands, því að
hann hygðist einangra Pakistana á
alþjóðavettvangi. Stjórnvöld í Pak-
istan höfnuðu hins vegar allri að-
komu sinni að ódæðinu.
Tildrög árásinnar voru þau að
vörubíll hlaðinn sprengiefni sprakk í
miðri bílalest, sem var að flytja ind-
verska hermenn og lögreglumenn
aftur úr orlofi. Tvær rútur urðu fyrir
mesta tjóninu og lifði enginn af í
fremri rútunni. Greint var frá því í
indverskum fjölmiðlum að hryðju-
verkasamtökin Jaish-e-Mohammed
hefðu lýst yfir ábyrgð sinni á hryðju-
verkinu.
Hyggjast
einangra
Pakistan
Reiði í Indlandi
eftir hryðjuverk