Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 16.02.2019, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi sem mun vera menntaður bakari skrifaði grein hér í Morgunblaðið síðastliðinn þriðjudag og skaut þar nokkrum föstum og lítt dulbún- um skotum að mér og minni stétt. Tilefnið er væntanlega gagn- rýni mín á forystu verkalýðshreyfing- arinnar í tengslum við innkaup fyr- ir íbúðarfélagið Bjarg. Hvergi í mínum málflutningi er vegið að fyrirtæki framkvæmdastjórans heldur er verið að hvetja til vand- aðra vinnubragða við inn- kaupaferla. Framkvæmdastjórinn, sem hefur getið sér gott orð við að kenna bændum að vinna sín störf og veitingamönnum að reka sín fyrirtæki, sér nú ástæðu til þess að gerast málsvari verkalýðshreyfing- arinnar og senda inn grein til að svara gagnrýni minni. Þrátt fyrir að málflutningurinn sem hann kynnir til sögunnar sé með nokkrum ólíkindum verður ekki komist hjá því að svara hon- um. Margt sem þar kemur fram er svo yfirlætisfullt, langsótt og rangt að erfitt er að gera upp við sig hvar skuli byrja. Rétt þykir að rekja sig í gegnum greinina og svara því sem þar kemur fram jöfnum höndum. Framkvæmdastjórinn stærir sig af góðum árangri við markaðs- setningu og sölu á eldhúsinnrétt- ingum til einstaklinga og teflir fram tölfræði því til stuðnings. Þrátt fyrir að vera þekktur fyrir að vera talnaglöggur verður ekki séð hvar hann nær í þessar tölur því hvergi opinberlega kemur fram hjá innlendum framleiðendum hversu margar eldhúsinnréttingar þeir selja til einstaklinga. Gott og vel, ekki ætla ég að deila við hann um að honum gangi vel að selja einstaklingum eldhúsinnréttingar. Hann kvartar þó yfir því að bygg- ingarverktakar vilji ekki kaupa af honum eldhúsinnréttingar eins frá- bærar og hann segir þær vera og gerir þeim upp þær hvatir að þeir vilji kaupa dýrari innréttingar og með því hækka íbúða- verð. Einstaklingar kaupa eldhúsinnrétt- ingu einu sinni til tvisvar á lífsleiðinni. Verktakar sem byggja íbúðir vinna við að kaupa innréttingar í miklu magni aftur og aftur. Er hugsanlegt að þar finnist skýr- ingin á því að þessir aðilar versli ekki við framkvæmdastjórann, þ.e. að reynsla þeirra af vörunni eða þjón- ustunni sé ekki nægjanlega góð? Það er að mínu mati yfirlætisfullt að kvarta yfir að ákveðinn hópur manna kaupi tiltekna vöru og úti- loka fyrirfram að það hafi eitthvað með vöruna eða þjónstuna að gera. Því næst fer framkvæmdastjór- inn í að lýsa tilgangi og hlutverki Bjargs en um hann hefur ekki ver- ið deilt. Undirritaður styður heils- hugar viðleitni við að byggja ódýrt fyrir láglaunafólk. Gagnrýni mín snýr að gagnsæi og vöntun á út- boðum. Í greininni er jafnframt lýst framkvæmd verðkönnunar sem fram fór um innréttingar. Athygli- vert er að nú eru aðilar farnir að tala um verðkönnun í stað þess að tala um útboð áður. Á þessu er grundvallarmunur varðandi leik- reglur. Útboð leggur skyldur á bjóðanda að gæta fullkomins jafn- ræðis, s.s. varðandi undirbúning, gögn, að opna tilboð að viðstöddum bjóðendum, greina frá niðurstöðu o.s.frv. Í litlum verkum þar sem menn telja slíkt íþyngjandi fara menn í verðkönnun og gæta yfir- leitt að ofangreindum skilyrðum engu að síður. Það var hins vegar ekki gert í þessari verðkönnun og það hef ég gagnrýnt, sagt að slík vinnubrögð séu ekki verkalýðsfor- ystunni sem stendur á bak við íbúðafélagið Bjarg til sóma. Við framkvæmd þessarar verðkönn- unar má gera margar athugasemd- ir en ég læt nægja að nefna hér þrjú atriði: a) Verkönnun á innréttingum sem unnin var af þriðja aðila tiltók eitt ákveðið fjölbýlishús. Nokkru seinna kemur frétta- tilkynning frá Bjargi um að samið hafi verið um innrétt- ingar í öll verkefni Bjargs sem líklegt er að telji 1.400- 1.500 íbúðir á næstu 4-5 ár- um. b) Fyrirskrifuð var vara frá ein- um bjóðandanum í útboðs- gögn. Það var reyndar ein- mitt aðilinn sem samið var við síðar í ferlinu. Það bendir a.m.k. til að verkkaupi hafi verið búinn að kynna vörur eins bjóðandans fyrr og betur heldur en annarra. c) Niðurstaða verðkönnunar- innar hefur ekki ennþá verið birt mér sem þátttakanda, 14 mánuðum eftir að hún fór fram. Ég hef bæði munnlega og skriflega óskað eftir því við framkvæmdastjóra Bjargs að mér verði kynnt nið- urstaðan úr þessari verðkönn- un sem varð grundvöllur stærsta innréttingasamnings Íslandssögunnar. Í grein sinni segir framkvæmda- stjóri IKEA „er þetta ferli eins heilbrigt og frekast má vera“. Bet- ur hlýtur að hafa verið staðið að málum gagnvart honum til þess að hann komist að þessari niðurstöðu. Í fyrrgreindri grein eru upp- runalönd þessara innréttinga talin upp handahófskennt. Ekki get ég verið að deila um það því ég hef engar upplýsingar um þetta atriði. Það hefur hins vegar verið yfirlýst stefna fyrirtækis framkvæmda- stjórans að leita þangað sem fram- leiðslukostnaður er lægstur til hagsbóta fyrir viðskiptavini fyrir- tækisins. Ég hef ekkert út á þá stefnu að setja en framleiðslu- kostnaður er oftar en ekki lægri þar sem laun eru lág. Framkvæmdastjórinn segir í grein sinni að 51% af kostnaði við innréttingarnar sé innlendur kostn- aður og nefnir nokkra kostnaðarliði í því samhengi. Flestir þessir liðir geta ekki vegið þungt utan vinna við samsetningu og uppsetningar- vinna. Þeir sem til þekkja telja þessa tölu með hreinum ólíkindum þ.m.t. undirritaður því almennt er uppsetningarkostnaður um 20% af innréttingum. Sé þetta rétt verður almenningur að taka þetta til sín, þ.e. að uppsetningarkostnaður um- ræddra innréttinga sé svona miklu hærri en hjá öðrum og verður að taka það með í reikninginn þegar keypt er innrétting. Láta má nærri að innrétting sem keypt er fyrir 500.000 kr. hjá framkvæmdastjór- anum endi þá í kostnaði upp á 1.000.000 með uppsetningu á með- an 500.000 kr. innréttingar frá öðr- um endi í kostnaði upp á 600.000 kr með uppsetningu. Ég held að framkvæmdastjórinn verði að endurskoða útreikninga sína og kanna hvort villa hafi verið gerð. Í lok greinarinnar koma fram ósmekkleg orð í garð íslenskra framleiðenda sem verður að svara. Lagst er svo lágt að halda því fram að til þess að íslenskir framleiðendur gætu framleitt inn- réttingar í þetta verkefni þyrfti að flytja inn vinnuafl og koma þeim fyrir í einhvers konar þrælabúðum. Hann spyr „hvort það sé betra að Pólverji vinni þessa vinnu á heima- slóðum eða hér á Íslandi þar sem honum stendur til boða að deila sameiginlegu rými með 15 sam- löndum sínum á okurleigukjörum“. Þarna spyrðir hann íslenska fram- leiðendur saman við fréttir af glæpalýð sem stundað hefur það að safna saman erlendu vinnufólki í óboðlegt húsnæði á óboðlegum kjörum til þess eins að bæta sinn málstað. Þetta er ósmekklegt. Að gefnu tilefni vil ég taka fram að mitt fyrirtæki hefur ekki átt við- skipti við starfsmannaleigur, hefur ekki flutt inn vinnuafl eða ráðið farandverkamenn. Allir starfsmenn hafa á Íslandi fasta búsetu, flestir eru Íslendingar en mér finnst ósmekklegt að gera upp á milli starfsmanna minna eftir því í hvaða landi þeir eru fæddir. Ég kannaði það sérstaklega og komst að því að 92% starfsmanna minna búa í eigin húsnæði. Mér finnst í þessari umræðu allri hafa verið tal- að niður til útlendinga sem starfa hjá íslenskum fyrirtækjum og hafa hjálpað til við uppbyggingu á Ís- landi. Slíkir starfsmenn greiða skatta og skyldur á Íslandi, þ.m.t. félagsgjöld til verkalýðsfélaganna, og taka þátt í samneyslunni. Það á ekki við um Pólverjann í dæmisögu framkvæmdastjórans sem best er að láta vinna á heimaslóðum. Í niðurlagi umræddrar greinar er talað um tapsára bjóðendur sem reyni að hindra þetta göfuga verk- efni og þar virðist hann vera að tala um undirritaðan sem er sá eini sem gagnrýnt hefur vinnubrögðin opinberlega. Eins ómálefnaleg og þessi athugasemd er verður ekki komist hjá því að svara henni. Fyr- irtæki mitt tekur þátt í hundruðum útboða á hverju ári. Við vitum fyr- irfram að við fáum ekki öll þessi verkefni en útboðsfyrirkomulagið tryggir samkeppni sem hjálpar okkur að þróa fyrirtæki okkar sem starfrækt hefur verið í meira en 80 ár án þess að hafa nokkurn tíma þurft að hlaupa undan skuldum eða þiggja afskriftir vegna rekstrarerf- iðleika. Við verðum því ekki „tap- sárir“ þegar við verðum undir í út- boðum enda tryggir útboðsfyrir- komulagið sanngirni. Ef við teljum óeðlilega staðið að verki teljum við það vera rétt okkar og skyldu að gagnrýna það sem betur má fara og vonandi verður það til þess að slíkri gagnrýni verði tekið mál- efnalega og aðilar noti hana til að bæta vinnubrögð sín. Skætingur og smjörklípur leysa engan vanda. Að lokum skal tekið fram að ég hef ekkert út á fyrirtæki fram- kvæmdastjórans að setja og viður- kenni hér með að ég versla þar stundum og vonast til að verða þar áfram velkominn. Ég ítreka að ég hef ekki verið að gagnrýna þátttakendur í verðkönnuninni heldur fyrirkomulag hennar og ákvarðanatöku hjá Bjargi íbúða- félagi sem hlýtur að vera fram- kvæmdastjóranum óviðkomandi. Ég skil því ekki tilefni greinaskrifa hans og hvers vegna hann kýs að tala niður íslenska byggingaverk- taka og innréttinga- og húsgagna- framleiðendur. Ég óska honum og fyrirtæki hans hins vegar alls hins besta. Eftir Eyjólf Eyjólfsson »Ég skil ekki tilefni greinaskrifa hans og hvers vegna hann kýs að tala niður íslenska byggingaverktaka og innréttinga- og hús- gagnaframleiðendur. Eyjólfur Eyjólfsson Höfundur er stjórnarmaður í félagi húgsgagna- og innréttinga- framleiðenda og framkvæmdastjóri Axis húsgagna. Bakari hengir smið Umræða um far- símanotkun barna og unglinga virðist vera komin af leið. Það má ekki banna börnum að vera með síma í skól- um segja sumir. Á sama tíma tala margir foreldrar um hvernig börn hafa ánetjast tölvum og símum og erfitt sé að ná athygli þeirra eða búa til tímaramma um notkun. Hvers vegna skólinn er undanskilinn þeirri umræðu er ómögulegt að skilja. Hlutverk og skyldur foreldra er margþætt en í grunninn snýst þetta um að gæta að hag og heilsu barnanna. Við fylgjum viðmiðum um að svefnþörf sé á bilinu 9 til 12 klukkustundir og að þau sæki skóla, sem er að meðaltali 5 til 6 klukkustundir á dag. Að undan- skildum þessum tveimur grunn- þáttum hafa börn um 6 til 10 klukkustundir á virkum dögum til frístundar, þ.m.t. til að nýta í skjá- tíma. Ein helsta áskorun foreldra í dag er að gæta þess að skjátími raski ekki svefni, líkamlegri virkni og annarri hegðun sem styður við góða heilsu. Á meðan flestir for- eldrar horfa til skjátíma innan urnar. Hvað eru þau að gera sem ekki getur beðið þar til eftir að skóla lýkur? Það er skólaskylda og það er mikilvægt að barnið læri, hlusti og taki þátt í kennslunni óháð hvaða dóm það leggur á það. Við vitum öll hve truflandi síminn getur verið og það mikilvægasta er að barnið hefur ekki endilega þroska til að meta hvenær það er betra að fylgjast með í tíma en að vera í símanum. Ný tækni færir okkur áskoranir og það tekur tíma að finna jafn- vægið á nýjan leik. Við fögnum því þegar kennarar virkja nemendur til náms með tækninýjungum en þeir eiga líka að fá óskipta athygli nemenda meðan á kennslu stendur. Það er kennara að ákveða hvernig skal nota tækni við kennslu, hvar og hvenær. Það er engin ástæða til þess að börn séu með farsíma í tímum þó að það kunni að vera gott að þeir hafi hann í skápnum eða ofan í tösku án þess að það trufli kennslu eða nám barnsins. Það gilda alls konar reglur í sam- félaginu og það má líka setja regl- ur um notkun síma á skólatíma. Verkefnið um skjátíma barna er ekki bara foreldra heldur er það verkefni samfélagsins í heild. Við erum enn að þróa hvernig sam- félagið nýtir og vinnur með nýja tækni. Eins og svo oft þá tekur tíma að finna hvaða form á að vera á því. Börn fá nægan tíma í tölv- um, þau hafa aðlagast nýrri tækni og nýta sér hana óspart, bæði heima og í skóla. Þau hafa hins vegar ekki endilega vit á því hve- nær það er viðeigandi og hvenær ekki. Breytum viðhorfi til takmörk- unar á símanotkun í skólum, bæði til að efla nám og félagsvitund barna. veggja heimilis mætti líka bæta við skjátíma þeirra á meðan skóla stendur. Æskilegur skjátími barna á aldr- inum 2 til 5 ára er ein klukku- stund. Minna er um viðmið fyrir eldri börn þó almennt sé ráðlagt að stilla skjátíma grunnskólabarna af og setja þeim mörk. Rannsókn Há- skólans í Michigan í Bandaríkjun- um segir að lengd tímans sem var- ið er í tölvu skipti ekki öllu máli heldur hvað sé gert í tölvunni. Hvernig börn nota skjátíma hefur meira spágildi um vandamál á sviði tilfinningagreindar eða félagsfærni en lengd hans. Því er mikilvægt að huga bæði að því hvað börn gera í símum og tölvum og hve lengi. Því er gott að velta því fyrir sér hvaða gagn börn hafa af því að hafa síma meðferðis í skólastof- Þurfa börn síma í skólastofum? Eftir Valgerði Sig- urðardóttur og Völu Pálsdóttur »Hvaða gagn hafa börn af því að hafa síma meðferðis í skóla- stofurnar? Hvað eru þau að gera sem ekki getur beðið þar til eftir að skóla lýkur? Valgerður Sigurðardóttir Valgerður er borgarfulltrúi. Vala er formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. Vala Pálsdóttir Morgunblaðið/Hari Sími í tíma „Það mikilvægasta er að barnið hefur ekki endilega þroska til að meta hvenær það er betra að fylgjast með í tíma en að vera í símanum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.