Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 16.02.2019, Síða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Skattsvik hafa tíðk- ast mun lengur en elstu menn muna og löngu áður en land byggðist. Snjallir sí- brotamenn stunda enn sína iðju og spila á veikleika eftirlitskerfa og löggjafar. Skattsvik vel yfir 100 milljarðar á ári Skattsvik eru áætluð vel yfir 100 milljarðar á ári eða um 10% af skatttekjum og um 4-6% af vergri landsframleiðslu. Skattsvikin eru mest í tengslum við virðisaukaskatt, tekjuskatt og tryggingagjald. Samtals nema þessi þrír liðir a.m.k um 2/3 af skatttekjum ríkisins. Þessi skatt- stofnar vega þyngst í að halda uppi okkar velferðarkerfi og sam- félagsverkefnum. Fjölmiðlar og umfjöllun þeirra Ráðherrar eru iðnir við að setja í gang starfshópa til að greina skattsvikavandann og enn á ný hefur starfshópur greint hluta vandans, nú undir formennsku Jóns Sigurðssonar, fv. ráðherra og seðlabankastjóra. Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra á þakkir skildar fyrir frumkvæði og ákveðni í málinu, en nefndin fjallaði m.a. um kennitöluflakk, keðjuábyrgð verktaka og marg- víslega brotastarfsemi. Nokkur svipuð vandamál voru tekin fyrir af nefnd sem þáverandi fjármála- ráðherra skipaði árið 2017 og greinarhöf- undur veitti for- mennsku. Þar var fjallað um skattsvik í víðum skilningi og hvernig ráðast má gegn glæpastarfsemi á þessu sviði. Meðal tillagna starfshóps- ins var að lögfesta reglur um keðjuá- byrgð, gera meiri kröfur um hæfn- isskilyrði til að stofna hlutafélög og stunda virðisaukaskattsviðskipti og auka eftirlit með skilum virð- isaukaskatts. Mikilvægi fjölmiðla sýnir sig vel í þessum málum, en tillögur nefnd- ar Ásmundar hafa fengið góða kynningu. Þá eru meiri líkur á því að eitthvað gerist. En fáir muna eftir tillögum nefndarinnar frá árinu 2017 nema tillögu um að taka 10.000 krónu seðilinn úr um- ferð. Sú umfjöllun og grín sem gert var að þeirri tillögu drap ein- faldlega niður fjölmiðlaumfjöllun um mikilvægari tillögur nefndar- innar. Það hentar sumum að fjalla háðslega um þetta, en ýmsir aðrir en almenningur eða láglaunafólk hefur gagn af notkun 10.000 krónu seðilsins. Hvers vegna eiga síbrota- menn að reka fyrirtæki? Nauðsynlegt er að herða hæf- isskilyrði til að stofna hlutafélag og almennt að stunda atvinnu- rekstur, fá virðisaukaskattsnúmer og gerast þannig innheimtumenn ríkisins. Almenningur þarf að taka bílpróf til að keyra bíl og löggild- ingu til að sinna ýmsum verk- efnum, en nánast hvaða skúrkur sem er getur stofnað hlutafélag og ráðið fólk í vinnu, greitt laun og innheimt virðisaukaskatt. Ein- staklingum sem hafa ítrekað brot- ið af sér og sett fyrirtæki í gjald- þrot ætti að vera óheimilt að taka að sér innheimtu virðisaukaskatts. Slíkir síbrotamenn geta ekki borið ábyrgð á ráðningu starfsmanna, að skila tilskildum launasköttum og lífeyrissjóðsgreiðslum. Skattsvikarar eru á góðum launum Refsingar fyrir skattalagabrot hafa of lítinn fælingarmátt og gild- ir það jafnt um fésektir sem fang- elsisdóma. Fésektir innheimtast illa og fangelsisdómar eru yfirleitt skilorðsbundnir. Vel innan við 10%, jafnvel nálægt 5%, af fésekt- um innheimtast og ótímabært að fagna þegar við heyrum háar sekt- artölur nefndar í fjölmiðlum. Skortur á rýmum í fangelsum opn- ar oft á þá leið að hinir sakfelldu taka út refsingu með samfélags- þjónustu, hvort sem það er fyrir líknar- eða félagasamtök, t.d. með þrifum eða viðhaldi í nokkra mán- uði. Hvatinn er því mikill að stunda skattsvik enda ávinningur af því umtalsverður. Það eru fín laun að hafa svikið undan skatti fyrir tugi milljóna og taka svo að sér að skúra opinberar byggingar í þrjá mánuði. Kjarasamningar snúast um meira en laun Í apríl 2018, fyrir bráðum ári síðan, undirrituðu ASÍ og SA sam- komulag um eftirlit með launum og starfskjörum starfsmanna starfsmannaleiga sem er hluti af því vandamáli sem tengist skatt- svikum og svartri atvinnu- starfsemi. Loksins virðist þetta mál ætla að tengjast kjarasamn- ingum. Það er löngu tímabært að taka á brotum á launafólki, hvort sem það snýst um kjarasamninga, skattsvik eða þvinguð óboðleg bú- setuúrræði. Hér virðist tíðkast ný tegund fjárkúgunar og þrælahalds í tengslum við skattsvik og kennitöluflakk. Ríkisstjórn á réttri leið Það er að myndast samstaða í þjóðfélaginu um að taka á ýmsum meinsemdum og segja má að „metoo“ hafi verið gott fordæmi. Í velferðarmálum mun mikið vinnast ef tekið er á skattsvika- málum og tryggja öllum, einnig erlendum verkamönnum, almenn mannréttindi, húsnæði og kjör samkvæmt kjarasamningum. Það er einstakt tækifæri núna, sem ríkisvald, Samtök atvinnulífsins og stéttarfélög hafa til að tryggja þeim er verst standa í samfélag- inu bætt lífskjör. Því ber að fagna að í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar er áhersla lögð á samráð við aðila vinnumarkaðarins um keðjuábyrgð, unnið verði gegn kynbundnum launamun, mansali og kennitöluflakki, eins og segir orðrétt í stjórnarsáttmála. Einnig verði unnið að bættu aðgengi að öruggu húsnæði og styðja við ungt fólk og tekjulága inn á hús- næðismarkaðinn. Þetta eru mikil- væg velferðarmál sem eru von- andi flest að raungerast nú á síðari hluta kjörtímabilsins. Eftir Þorkel Sigurlaugsson » Það er löngu tíma- bært að taka á sí- brotamönnum sem stunda skattsvik, brjóta kjarasamninga, stunda kennitöluflakk og nú- tíma þrælahald. Þorkell Sigurlaugsson Höfundur er formaður velferðar- nefndar Sjálfstæðisflokksins. thorkellsig@gmail.com Skattsvik, þrælahald og svört atvinnustarfsemi Þórdís K.R. Gylfa- dóttir ráðherra ferða- mála sagði í grein í Morgunblaðinu sl. helgi að hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu væri ekki lengur á dagskrá. Aftur á móti sagðist hún ekki afhuga því að leggja önnur gjöld á ferðaþjónustuna. Þórdís spurði hvort ekki væri eðlilegt að fyrirtæki greiddu einskonar afnotagjald fyrir að fá að nýta land í opinberri eigu til að stunda þar ferðaþjónustu í þeim tilgangi að stýra aðgangi að takmörkuðum gæðum. Tveir af hverjum þremur ferða- mönnum fara um landið á bíla- leigubílum. Vandséð er hvaða „fyrirtæki“ á að borga fyrir komu þeirra á „land í opinberri eigu“. Þessi hugmynd gengur ekki upp nema að ráðherrann sé að boða kvótakerfi í ferðaþjónustunni. Að fyrirtæki kaupi kvóta af ríkinu fyrir aðgang að ferðamannastöðum, sem þau síðan selji ferðamönnum. Er þetta kannski náttúru- passinn afturgenginn? Hefur reynslan af út- boði Isavia á aðstöðu við flugstöðina á Kefla- víkurflugvelli ekkert kennt? Ferðamenn eru drjúgir skattgreið- endur Gróflega áætlað höfðu ríkissjóður og sveitarfélög um 100 milljarða króna í bein- ar tekjur af ferðamönnum árið 2017. Þar af var virðisaukaskattur um 46 milljarðar króna. Með fjölg- un ferðamanna hafa tekjur ríkisins af virðisaukaskattinum aukist stór- lega. Kostnaður ríkisins af ferða- mönnum er aðeins brot af þessum tekjum. Það vantar ekki fjármagn til að vernda viðkvæma ferðamannastaði og stýra umferð. Þar að auki eru til margar betri og áhrifaríkari leiðir til þess en að rukka á hverjum stað. Því miður hafa margir ekki enn áttað sig á því hvað ferðamenn skila þjóðfélaginu miklum ávinningi. Þess vegna spretta aftur og aftur upp hugmyndir um að láta þá með ein- hverjum hætti borga enn meira og meira. Ferðaþjónustan er eina út- flutningsatvinnugreinin sem inn- heimtir virðisaukaskatt fyrir ríkis- sjóð. Hann kemur úr vasa ferða- manna, þannig að þeir eru nýir skattgreiðendur hér á landi. Röggsamur ráðherra kemur á óvart Þórdís Kolbrún hefur sýnt rögg- semi í málefnum ferðaþjónustunnar og ýtt mörgum góðum úrbótum af stað. Hún hefur staðið einarðlega gegn hugmyndum um hækkun virð- isaukaskattsins á atvinnugreinina, vitandi hvað sú hækkun gæti haft slæmar afleiðingar fyrir þessa um- svifamestu atvinnugrein landsins. Þess vegna kemur þessi hugmynd hennar um nýja óútfærða gjaldtöku verulega á óvart. Er verið að boða kvótakerfi í ferðaþjónustunni? Eftir Þóri Garðarsson Þórir Garðarsson » Það vantar ekki fjár- magn til að vernda viðkvæma ferðamanna- staði og stýra umferð. Höfundur er stjórnarformaður Gray Line. Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi Einbýli/tvíbýli. Húsið er á tveimur hæðum ásamt innréttaðri 2ja til 3ja herbergja séríbúð á jarðhæð og innbyggðum bílskúr. Stærð alls 314,4 fm. Frábær staðsetning við lokaðan botnlanga. Afhending fljótlega. Verð 119 millj. Dan V. S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 Ólafur Guðmundsson sölustjóri s. 896 4090 Þórarinn Friðriksson lögg. fasteignasali s. 844 6353. Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Seljugerði - 108 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.