Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 34

Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 34
34 MESSURá morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Ég hitti Karólínu verðandi mágkonu mína fyrst í London 1974. Ég hafði ný- lokið stúdentsprófi og var á heim- leið eftir útskriftarferð til Mal- lorca og Karólína og Clive höfðu boðið mér að dvelja hjá sér í nokkra daga í úthverfi London. Fjölskyldan tók mér opnum örm- um og þarna fékk ég í fyrsta sinn indverskan mat, sá lokaleik HM í fótbolta í beinni útsendingu og fór í verslunarleiðangur með Karól- ínu. Þarna kynntist ég líka börn- unum þeirra Clive, Stephen og Samantha, og var grundvöllur lagður að ævalangri vináttu okkar allra. Við Lúðvíg nutum gestrisni þeirra í tvígang á jólum og ára- mótum og fengum þá ánægju að kynnast jólahaldi í Bretlandi, m.a. tókst okkur að baka frægt pipar- kökuhús, mér og börnunum til mikillar ánægju. Eitt kvöldið sát- um við Lúðvíg og Clive og horfð- um á kvikmynd í sjónvarpinu. Karólína var nálægt með trönur, sem yfirleitt voru alltaf innan seil- ingar. Allt í einu segir hún bróður sínum að hann verði að sitja kyrr og áður en við vitum af er hún bú- in að fullgera portrett af Lúðvíg okkur öllum að óvörum. Portrett sem ávallt síðan hefur skipað heiðurssess á okkar heimili. Yfir- leitt þegar ég heimsótti Karólínu í Bretlandi fórum við út að versla saman. Hún elskaði svartar dragtir og fallegar hvítar blússur. Þegar heim var komið voru nýju fötin mátuð og áður en við vissum af var hún komin með pensil í hendurnar og byrjuð að mála. Að kvöldi dags voru nýju fötin því ekki lengur svarthvít, heldur búin að taka lit af afrekum dagsins. Þannig var Karólína, ótrúlega atorkusöm, vandvirk og full af húmor, sem oft er eins og rauður þráður í verkunum hennar. En myndirnar hennar geyma einnig alvarlegri hliðar, fullar af yndis- legum englum sem örugglega hafa tekið vel á móti henni núna. Eftir að við Lúðvíg fluttum heim frá Danmörku og Karólína fór að vera meira á Íslandi, jókst samgangur okkar. Henni þótti gott að hittast og ræða gamla daga og var þá oft hlegið að ýms- um uppákomum. Það gladdi hana mikið þegar Stephen og Louise fluttu til Íslands með Boyd og eignuðust síðan tvíburana Elis og Ida hér á landi. Einnig voru sam- skipti hennar við Samantha og Chris og börnin þeirra tvö, Abi- gail og Owen, mjög góð og voru þau dugleg að heimsækja Ísland. Karólína var afkastamikill listamaður og prýða verk hennar fjölmörg heimili bæði hér á landi og erlendis. Þannig verður hún áfram með okkur á hverjum degi um ókomna tíð. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir góða vináttu og kærleik sem aldr- ei bar skugga á. Ég votta börnum hennar, tengdabörnum og barna- börnum mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Margrét Guðmundsdóttir. Elsku Karólína, föðursystir mín, er nú látin. Mér hefur alltaf þótt einstaklega vænt um hana og ávallt fundið að þessi mikla vænt- umþykja væri gagnkvæm. Alveg fram undir það síðasta glöddumst við báðar svo innilega þegar við hittumst. Það er gott að vita til þess hvað Karólína var ánægð á Sóltúni og hversu vel var séð um hana þar. Karólína Lárusdóttir ✝ Karólína Lár-usdóttir fædd- ist 12. mars 1944. Hún lést 7. febrúar 2019. Útför Karólínu fór fram 15. febr- úar 2019. Mér þykir vænt um það að fjölskylda hennar, vinir og vin- konur heimsóttu hana reglulega enda bar herbergi Karól- ínu þess merki en það var stútfullt af konfektkössum og fallegum fjölskyldu- myndum. Karólína var allt- af umkringd lista- verkum sínum og þótti mér afar spennandi að sjá verk sem hún var að vinna við þá stundina. Karólína var með eindæmum fær og einlæg listakona sem mál- aði lífið og gæddi verk sín falleg- um litum og tilfinningum. Það er einstakt að geta horft á listaverk og þekkja strax persónur og leik- endur úr eigin fjölskyldu og fá innsýn í líf pabba og fjölskyldu hans á árum áður. Þetta eru ómetanlegar fjölskylduminningar en einnig minningar heillar þjóðar. Karólína var hörkudugleg og einstaklega hæfileikarík. Það þarf kraft, þor og einskæran vilja til að láta drauma sína rætast. Hún hafði þetta allt og mun um aldur og ævi verða dáð listakona. Nafn Karólínu mun aldrei gleymast heldur mun minningin um þessa einstöku konu lifa áfram í lista- verkum hennar sem við og svo margir hafa unun af á degi hverjum. Ég lít til baka með þakklæti fyrir yndislegar samverustundir í gegnum árin. Karólína var alltaf svo hress, stórskemmtileg og fyndin. Það var stutt í glottið og stríðnishláturinn sem pabbi hefur örugglega heyrt ótal sinnum. Það var alltaf gaman hjá okkur. Ég sakna þín elsku besta Kar- ólínan mín. Ég mun ávallt hafa myndina sem þig langaði að mála af litlu stelpunni að dansa í huga mér og minninguna um þig í hjarta mér. Hvíl í friði. Edda Lára Lúðvígsdóttir. Allt er í heiminum hverfult. Allt er ákveðið fyrirfram og eng- inn getur flúið örlög sín. En nú er komið að leiðarlokum. Karólína var litríkur persónu- leiki, hugmyndarík og lét sér detta ýmislegt í hug og þá varð að framkvæma það strax. Hún hafði dásamlega kímnigáfu sem birtist svo oft í myndum hennar. Í lista- manninum leyndist einnig við- skiptaáhugi. Hún hafði áhuga á fasteignamarkaðinum og naut sín vel í að kaupa og selja og áttum við margar skemmtilegar stundir við þá iðju. Á sínum fyrstu hjú- skaparárum í Bretlandi, skiptu þau hjónin nokkrum sinnum um húsnæði og kom það alltaf í hlut Karólínu að gera húsnæðið upp. Hún flísalagði, veggfóðraði, mál- aði og saumaði. Hún var einstak- ur fagurkeri, allt var vandað og fallegt í kringum hana. Hún heill- aðist af fábrotnum og einföldum hlutum og voru hýbýli hennar aldrei yfirhlaðin en ávallt smekk- leg. Listagyðjan fór svo sannarlega ekki fram hjá Karólínu og frá unga aldri var hún ákveðin í að feta þá braut. Eftir menntaskóla fór hún til Bretlands og hóf list- nám með styrkri aðstoð ömmu sinnar og nöfnu, sem hún segist standa í eilífri þakkarskuld við. Sennilega hefur enginn listamað- ur á Íslandi upplifað við opnun sýningar að löng röð myndast og allt selst upp, nema Karólína Lár- usdóttir. Hún kunni þá list að skapa listaverk sem þúsundir fengu að njóta og eiga. Ég ætla að láta öðrum eftir að gera hennar farsæla listaferli skil. Karólína var falleg persóna, bæði að utan sem innan. Hún mátti aldrei neitt aumt sjá og var AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Tónlistin er í höndum Sönghópsins Synkópu, Kristjáns Edelstein og Ey- þórs Inga Jónssonar. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Jón Ágúst Eyjólfsson. AKURINN kristið samfélag | Sam- koma kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta á léttu nótunum kl. 11. Sigríður Thorla- cius söngkona kemur í heimsókn og syngur nokkur lög, Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szkléanár organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í umsjá Kristnýjar Rósar Gúst- afsdóttur djákna, Benjamíns Hrafns Böðvarssonar guðfræðinema og sr. Sigurðar Jónssonar. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Prestur er Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdal Guð- finnssonar. Hressing og samfélag á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli kl. 11 í safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Sigrún Ósk, Guðmundur Jens og Þórarinn Kr. Ólafsson. Messa kl. 17 í Bessastaða- kirkju. Sérstök gestahljómsveit er Mandólín. Ástvaldur organisti, Margrét djákni og sr. Hans Guðberg leiða stundina. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjón- ar. Kór Breiðholtskirkju syngur, org- anisti er Örn Magnússon. Sunnudaga- skóli á sama tíma. Ensk messa kl. 14 Sr. Toshiki Toma þjónar. BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hólmfríður, Jónas Þórir og Pálmi leiða samveruna. Foreldrar og afar og ömmur hvött til þátttöku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur, Jónas Þórir við hljóðfærið. Messuþjónar aðstoða. Prestur er Pálmi Matthíasson. Heitt á könnunni og spjall eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Gunnar Sigurjónsson. Gospelkór Smárakirkju sér um söng. Stjórnandi er Matthías Baldursson. Veitingar í safnaðarsal að messu lok- inni. Dómkirkja Krists konungs, Landa- koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Séra Elínborg Sturlu- dóttir, Kári Þormar dómorganisti og Dómkórinn. Barnastarfið á kirkjuloft- inu. Æðruleysismessa kl. 20, Kristján Hrannar sér um tónlistina og sr. El- ínborg og sr. Díana Ósk leiða stund- ina. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta og barnastarf kl. 11. Sr. Guð- mundur Karl Ágústsson þjónar og kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Arn- hildar Valgarðsdóttur. Hulda Jónsdóttir og Guðný Jónsdóttir syngja einsöng. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Erna Blöndal. Kvöldvaka kl. 20. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Barnakór Fríkirkjunnar, hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunn- arssyni, organista. Söngvaskáldið Svavar Knútur spilar og syngur fyrir gesti. Við hvetjum fjölskyldur ferming- arbarna til að mæta og vera með börn- um sínum í guðsþjónustunni. Kaffiveit- ingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots org- anista. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún djákni. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjón- ar og kór Grafarvogskirkju syngur. Org- anisti er Hákon Leifsson. Sunnudaga- skóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Dans, söngvar og sögur. Pétur Ragn- hildarson hefur umsjón og Stefán Birkisson leikur á píanó. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Messa kl. 13. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson þjónar og Vox Po- puli syngur. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir, Ásta Haralds- dóttir organisti og félagar úr Kirkjukór Grensáskirkju þjóna ásamt messu- hópi og fermingarbörnum vorsins. Kaffi á undan og eftir messu. Sunnu- dagaskólinn er í Bústaðakirkju. Kyrrð- ar- og fyrirbænamessa kl. 12 á þriðju- dag. Tekið er á móti bænaefnum í síma 528 4410. Núvitundariðkun á fimmudag kl. 18.15-18.45. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Útvarpsmessa og barnastarf kl. 11. Prestar eru Karl V. Matthíasson og Leifur Ragnar Jónsson. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðar- kirkju syngur. Barnastarf í umsjá Böðv- ars og Bryndísar Böðvarsdóttur. Kirkju- vörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi í boði eftir messuna. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Þorvald- ur Karl Helgason messar. Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgelið. Félagar í Barbörukórnum syngja. Bylgja Dís leið- ir fjölbreytta dagskrá í sunnudagaskól- anum. Hressing á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorg- unn kl. 10. Sr. María Ágústsdóttir fjallar um prédikanir sr. Sigurbjörns Einarssonar. Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Hópur messuþjóna að- stoðar. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa mið- vikud. kl. 8. Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kvennakórinn Léttsveitin sér um messusöng. Stjórnandi og organisti er Gísli Magna Sigríðarson. Prestur er Ei- ríkur Jóhannsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er Karen Lind Ólafs- dóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu, Markús og Heið- björt leiða hann. HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 14. Kór Útskála- og Hvalsnessókna syngur undir stjórn Keiths Reed. Sameiginleg messa fyrir báðar sóknir prestakalls- ins. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma með lofgjörð og fyrirbænum kl. 13. Börnin byrja inni á sal með for- eldrum/forsjáraðilum, en á meðan samkoman varir verður sérstök fræðsla fyrir þau. Ólafur H. Knútsson prédikar. Kaffi að samverustund lok- inni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudag kl. 11. Ukulele-messa, Arnór leiðir okkur í tónlist og söng, takið ukulele-in ykkar með. Sr. Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum. Sunnudaga- skóli á sama tíma. Eftir messu bjóða sóknarnefnd og foreldrar ferming- arbarna upp á súpu og brauð. Miðvikudagur 20. feb. kl. 12. Kyrrðar- stund í kapellu vonarinnar, súpu og brauð eftir stundina. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj- unnar. Sunnudagaskólinn í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Neskirkju við Hagatorg klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédik- ar. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar söng og leikur á píanó. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar. Org- anisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Barna- og unglingakórar við kirkjur á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í at- höfninni. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða við helgihaldið. Hafdís Davíðsdóttir leiðir sunnudagaskólann á sama tíma. Léttur hádegisverður í safnaðarheimili eftir stundina. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Erla Rut Káradóttir organisti og Kór Laugarneskirkju. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari. Sunnudaga- skóli á meðan. Kaffi og samvera á eft- ir. Íhugunarguðsþjónusta kl. 20. Sr. Hjalti Jón Sverrisson og sr. Henning Emil Magnússon. Mán. 18.2. kl. 20. Félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni. Gospelkvöld. Þri 19.2. kl. 20 Kyrrðarbæn. Fim 21.2. kl. 9.30-11.30 Foreldra- samvera á Kaffi Laugalæk. Kyrrðar- stund og opið hús í Áskirkju kl. 12. Hásalurinn Hátúni 10. Helgistund kl. 16. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Óskar Einarsson stjórnar kór Lindakirkju. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónustan kl. 11. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn leiðir helgihaldið og prédikar. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar. Meðhjálp- ari er Hildur Backman.Sunnudagaskóli kl. 13. Umsjón Berglind og Þórður. Mosfellskirkja í Grímnesi | Guðs- þjónusta kl. 17. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjón- ustuna. Organisti er Jón Bjarnason. NESKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Safnast saman í kirkjunni og eftir sameiginlegt upphaf fara börn- in í safnaðarheimilið þar sem Gunnar Thomas Guðnason, Ari Agnarsson og sr. Skúli S. Ólafsson sjá um stundina. Í messunni syngur Háskólakórinn und- ir stjórn Douglas Brotchie organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björns- dóttir. Að loknum stundunum er létt hressing, kaffi og samfélag á torginu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri- Njarðvík | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson þjónar og kirkjukór- inn leiðir söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Meðhjálpari er Pétur Rúðrik Guðmundsson. Sunnu- dagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón hafa Heiðar Örn Hönnuson og Regína Rósa Harðardóttir. SALT kristið samfélag | Sameigin- legar samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukórinn syngur, organisti er Ester Ólafsdóttir, prestur er Guðbjörg Arn- ardóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma, umsjón Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir ásamt leiðtogum. Súpa og brauð eftir messu. Messa kl. 20, Kór Mennta- skólans á Laugarvatni syngur, stjórn- andi er Eyrún Jónasdóttir. Prestur er Guðbjörg Arnardóttir. SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, ávaxtahressing í lokin. Guðsþjón- usta kl. 14, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, Kór Seljakirkju leiðir söng og lofgjörð, organisti er Tómas Guðni Egg- ertsson, kaffi og kökusneið í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Spjall um mannúðarmál. Gunnar Kvaran selló- leikari talar. Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Þórdís sér um sunnudaga- skólann. Félagar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safn- aðarheimilinu. Kyrrðarstund á miðvikudag kl. 12. Súpa eftir stundina. Bænastund föstudag kl. 9.30. Kaffi og spjall eftir stundina. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Egill Hallgrímsson. Organisti er Jón Bjarnason. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Henning Emil Magnússon verður sett- ur í embætti í Garðaprestakalli af sr. Halldóru Þorvarðardóttur prófasti í af- leysingum. Jóhann Baldvinsson org- anisti stjórnar kór Vídalínskirkju. Sunnudagaskóli í umsjá Jónu Þórdísar Eggertsdóttur og fræðara sunnudaga- skólans. Veitingar að athöfn lokinni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur Bragi J. Ingi- bergsson. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Maríu og Bryndísar. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Baldur, Sirrí og Guðmundur. Messa kl. 14. Fermingarbörn lesa. GB prédikar. Orð dagsins: Verka- menn í víngarði. (Matt. 20) Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonSaurbæjarkirkja á Rauðasandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.