Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 38

Morgunblaðið - 16.02.2019, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 ✝ Guðrún Sig-urðardóttir fæddist á Brúnum undir Vestur- Eyjafjöllum 6. febr- úar 1934. Hún lést á 85 ára afmælis- daginn sinn. 6. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Júl- íana Björg Jóns- dóttir og Sigurður Vigfússon, ábúendur á Brúnum. Albræður Guðrúnar voru Jón, f. 13. júlí 1925, d. 29. janúar 1992, og Vigfús, f. 25. júní 1925, d. 18. september 2005. Hálfsystkini Guðrúnar, sammæðra og börn Bjargar og Sigmundar Þorgils- sonar, seinni manns hennar, eru Halldóra Ingibjörg, f. 29. júní 1940, og Sigurður, f. 15. septem- ber 1941. Guðrún giftist 7. nóvember 1954 Hjalta Bjarnasyni frá Strönd í Vestur-Landeyjum, f. 26. október 1928, d. 8. ágúst 2010. 1960, d. 2005, maki Anna Stein- þórsdóttir, f. 1962. Börn: Víðir Þór, f. 1980. Synir hans eru Víðir Snær, f. 2006, og Kristinn Dan, f. 2010. Halla Guðrún, f. 1981, maki Eiður Már Guð- bergsson, f. 1977. Börn þeirra eru Andri, f. 2003, Sunna, f. 2005, og Daníela Diljá, f. 2011. Örvar Snær, f. 1990, maki Beata Joanna Kusina, f. 1993. 4) Brynja, f. 1968, maki Jón Berg Sigurðsson, f. 1967. Börn Brynju frá fyrra hjónabandi eru Gunnar, f. 1989, maki Kristín Fjóla Jóhannsdóttir, f. 1990. Dætur Gunnars og Kristínar eru Íris Björk, f. 2011, Rakel Sara, f. 2011, og Brynja Líf, f 2017. Hjalti, f. 1995, maki Emma Lind Guðmundsdóttir, f. 1996, og Harpa Rún, f. 2003. Guðrún ólst upp á Brúnum og síðar á Ásólfsskála undir Vestur- Eyjafjöllum. 1954 hófu Guðrún og Hjalti búskap í Hólmahjáleigu Austur- Landeyjum. 1976 brugðu þau hjón búi og settust að á Hvols- velli. Þar vann Guðrún um ára- bil á saumastofunni Sunnu og síðar kenndi hún á gítar við tón- listarskóla Rangæinga. Útför Guðrúnar fer fram frá Stórólfshvolskirkju í dag, 16. febrúar 2019, klukkan 13. Börn Guðrúnar og Hjalta eru: 1) Arnbjörg, f. 1954, maki, Ámundi H. Þorsteinsson, f. 1949. Börn: Guðrún Ingibjörg, f. 1974. Synir hennar eru Sighvatur Bjarki, f. 1995, og Gabríel Brynjar, f. 1998. Björgvin, f. 1980, Maki, Stefanía Guð- björg Sigurbjörnsdóttir, f. 1980. Björgvin og Stefanía eiga syn- ina Marinó Mána, f. 2010, og Ás- geir Örn, f. 2013. Fyrir átti Björgvin Nökkva Baldur, f. 1999. Jökull Tandri, f. 1990, maki Kristine Mærsk Verner, f. 1993. 2) Arnar, f. 1958, maki Arna Ragnarsdóttir, f. 1961. Börn, Elísa, f. 1985, maki. Þor- gils Óttar Baldursson, f. 1984. Þau eiga tvö börn, Írisi Evu, f. 2015, og Bastían Baldur, f. 2018. Ragnar Ingi, f. 1988, og Eva, f. 1990, maki Davíð Örn Ingason, f. 1986. 3) Sigurður Þröstur, f. Elsku mamma. Að ferðalokum finn ég þig, sem mér fagnar höndum tveim. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Þín, Brynja. Elsku tengdamamma. Takk fyrir þessu stuttu en yndislegu kynni sem gáfu mér svo mikið. Við hittumst aftur seinna. Kveðja frá Jónsa þínum. Jón Berg Sigurðsson. Elsku besta ástkæra amma mín. Þegar ég fæddist varðstu amma í fyrsta skipti, ég var svo lánsöm að vinna í ömmulottóinu, þvílíkur heiður að eignast þig sem ömmu. Ég fékk þann heiður að gera þig líka að langömmu í fyrsta skipti, synir mínir unnu í stærsta langömmulottóinu þá. Betri ömmu og langömmu er varla hægt að hugsa sér. Amma mín sýndi og gaf frá sér svo mik- inn þokka, kærleika, hugrekki, jákvæðni, umhyggju, styrk, hversu einstök, dugleg, yndisleg og falleg hún var. Amma mín bakaði bestu kleinurnar, flat- kökurnar og pönnukökurnar sem til voru. Það voru ófá skipt- in sem ég var í Litlagerðinu hjá ömmu og afa, hvort sem það var í pössun, með foreldrum mínum, á jólunum, páskunum, um sum- ar eða vetur, eða ein hjá ykkur afa. Alltaf var amma að baksa í eldhúsinu, að finna eitthvert gotterí í gogginn, eða úti í garði að huga að og hlúa að blómunum sínum, já eða inniblómunum, sem voru hennar líf og yndi. Amma kenndi mér svo margt. Þegar ég myndi eignast blóm ætti ég alltaf að tala við þau, því þá liði þeim betur. Þegar ég byrjaði að búa, fékk ég fyrsta inniblómið mitt frá þér, blóm sem ég var búin að hafa auga- stað á lengi, þegar ég var að fara komstu askvaðandi með blómið og sagðir „hérna, taktu það með þér, þetta er orðið fyrir okkur afa þínum, mundu svo að tala við það reglulega“. Þetta blóm á ég enn þann dag í dag 26 árum seinna. Ég fékk þann heiður að fá að fara með ömmu margoft á saumastofuna sína, sem hún var að vinna á þegar ég var lítil stelpa, sem mér fannst mjög spennandi. Þegar ég eignaðist frumburðinn minn kom amma færandi hendi með teppi af saumastofunni sem hún átti í fórum sínum og sagði: „Settu þessa teppalufsu í botninn á vagninum, það heldur góðum hita og þá sefur litli Sighvatur Bjarki miklu betur.“ Þetta teppi hefur fylgt vagninum síðan þá og gerir enn. Amma mín kunni að spila á gítar, orgel og harmonikku, ég var dáleidd af hæfileikum henn- ar að kunna á öll þessu hljóð- færi. Amma gat allt, alveg sama hvað það var. Eitt skipti bað ég ömmu um hvort hún gæti sett saman nokkrar línur, við eitt- hvert skemmtilegt lag um okkur æskuvinkonurnar, því mig lang- aði að koma Björgu vinkonu á óvart í 20 ára afmælinu hennar. Amma hélt það nú, 30 mínútum seinna hringdi hún í mig og söng textann í gegnum símann og spilaði á gítarinn. Sagði svo við mig: „Þú rúllar þessu upp í af- mælinu hennar, Inga mín.“ Já, ég rúllaði því upp og söng text- ann þinn fyrir framan fullt af fólki, öllum til mikillar gleði. Þegar við Björg og Sonja hitt- umst rifjast alltaf upp afmælið þar sem ég söng textann þinn við lagið „Tvær úr Tungunum“ fyrir 25 árum núna í júní næst- komandi. Við stöllurnar eigum margar góðar minningar úr Litlagerð- inu. Það er svo margs að minn- ast, það er svo margt að þakka, í gegnum þessi 45 ár sem ég fékk að vera í kringum þig, takk fyrir að leyfa mér að drullumalla úti í garðinum, takk fyrir að vera til staðar fyrir mig og veita mér öll ráðin þín, takk fyrir að leyfa mér að vera til staðar fyrir þig, takk fyrir að vera amma mín og langamma peyjanna minna. Þín dótturdóttir Guðrún Ingibjörg. Okkur langar að senda þér erindi úr sálminum sem verður sunginn í útförinni þinni í dag. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson) Hvíldu í friði, elsku amma. Gunnar, Hjalti og Harpa Rún. Friður, gleði og kærleikur eru mér fremst í huga þegar ég minnist elsku ömmu minnar. Það var alltaf létt yfir heimilinu þegar við heimsóttum ömmu og afa í Litlagerði á Hvolsvelli í gegnum árin. Amma tók alltaf vel á móti okkur, knúsaði, kyssti og bauð okkur velkomin. Alla jafna voru allskyns kræsingar á boðstólum, nýbakaðar pönnu- kökur, vöfflur og kökur og iðu- lega ís í eftirrétt sem gamli afi borðaði mest af. Amma var glaðlynd, jákvæð og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Hún fylgdist vel með og þegar ég heimsótti hana í seinni tíð og ætlaði að færa henni ýms- ar fréttir fór það oft á hinn veg- inn að hún sagði mér hvað frétta væri af fjölskyldunni og í frétt- um almennt. Ömmu þótti afar vænt um fjölskylduna sína og fólk fann fyrir væntumþykjunni og kærleikanum sem frá hjarta hennar geislaði. Hún var bar- áttukona mikil og þrátt fyrir að vera búin að berjast við veikindi um nokkurt skeið kveinkaði hún sér ekki og sýndi að mér fannst mikinn styrk og æðruleysi. Amma var mjög hæfileikarík; skrifaði texta og samdi ljóð eins og enginn væri morgundagur- inn. Einnig spilaði hún á gítar og stýrði söng eins og herfor- ingi. Amma hafði mjög gaman af blómum og plöntum og ég man það í æsku að hún var oft að dunda sér við að hlúa að plöntunum um leið og hún spjallaði við þær. Amma varð fyrir áfalli árið 2005 þegar sonur hennar (og pabbi minn) Þröstur lét lífið eft- ir erfið veikindi, það tók mikið á hana og alla fjölskylduna. Afi lést svo fimm árum síðar. Amma kvaddi þennan heim á 85 ára afmælisdaginn sinn en hana langaði að eyða honum með afa og pabba enda er lífið hér á jörðinni bara stoppistöð í eilífri hringrás sálarinnar. Amma fór einfaldlega aftur heim, þangað sem leið okkar allra liggur. Ég kveð ömmu mína að sinni með söknuði. Ég er mjög hepp- in að hafa átt svo góða ömmu í gegnum árin og er þakklátur fyrir umhyggjuna og ömmuást- ina sem hún sýndi mér. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu, er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir.) Þar til við sjáumst næst, elsku amma. Víðir Þór Þrastarson. Elsku langamma. Margs er að minnast, margs er að sakna. Langamma okkar lést á afmælisdaginn sinn, 6. febrúar síðastliðinn. Hún mun alltaf verða amma okkar í Litla- gerðinu. Við bræðurnir viljum þakka henni fyrir samfylgdina með okkur, elsku ástkæra langamma okkar. Takk fyrir öll faðmlögin þín, knúsin, kossana, væntum- þykjuna, kærleikann. Takk fyr- ir að leyfa okkur að leika í stóra garðinum ykkar afa, fá að hjálpa þér að slá túnið og raka, hreinsa beðin, rústa gangstétt- inni fyrir framan húsið með Bjögga frænda og laga hluti, klifra í trjánum þínum. Takk fyrir bestu og uppáhaldsflat- kökurnar, kleinurnar og allar pönnukökurnar þínar. Takk fyr- ir að smita okkur bræðurna af tónlistarhæfileikunum þínum. Langafi sótti þig á afmælis- daginn þinn svo þú gætir klárað að halda upp á afmælið, með honum, Þresti frænda, Göggu frænku og öllum hinum, við biðjum að heilsa þeim öllum. Ég er kominn heim. Er völlur grær og vetur flýr og vermir sólin grund. Kem ég heim og hitti þig, verð hjá þér alla stund. Við byggjum saman bæ í sveit sem brosir móti sól. Þar ungu lífi landið mitt mun ljá og veita skjól. Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, já, ég er kominn heim (Jón Sigurðsson/ bróðir langömmu okkar) Það er stórt skarð í hjörtum okkar, þín er sárt saknað af okkur öllum. Hafðu þökk fyrir allt og allt, Minning þín er ljós í lífi okkar, sem við munum varðveita um ókomna tíð, Guð blessi minn- ingu þína. Ástar- og saknaðarkveðjur. Þínir langömmustrákar, Sighvatur Bjarki og Gabriel Brynjar. Í dag kveðjum við yndislega konu, Guðrúnu föðursystur okkar. Henni frænku okkar var margt til lista lagt, hún var hag- mælt, handverk lék í höndunum ám henni og spilaði hún bæði á gítar og harmonikku. Reyndar spiluðu þau systkinin, Vigfús, Jón og Guðrún öll á nikkuna og mjög líklega verður slegið upp balli hjá himnaföðurnum nú þegar systkinin eru sameinuð á ný. Guðrún var góð heim að sækja, en hún og Hjalti maður hennar bjuggu á Hvolsvelli þar sem þau áttu fallegt heimili og fallegan garð sem Guðrún hafði mikið yndi af. Það var alltaf eitthvað til með kaffinu þegar maður kom í heimsókn, sér- staklega voru flatkökurnar hennar í miklu uppáhaldi hjá okkur og þegar maður kvaddi þá átti hún alltaf sterkt og hlýtt faðmlag og ávallt fór maður með hlýju í hjartanu frá henni. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur sendum við börnum og barnabörnum Guðrúnar og eft- irlifandi systkinum, Sigurði og Halldóru, og fjölskyldum þeirra. Blómin falla fölskva slær á flestan ljóma, Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Hulda, Sigrún og Trausti Jónsbörn. Í dag verður jarðsett kær söngsystir Guðrún Sigurðar- dóttir og langar okkur að minn- ast hennar með örfáum orðum. Guðrún söng með okkur um ára- bil og orti marga texta fyrir kór- inn ásamt skemmtivísum við ýmis tækifæri. Við minnumst hennar með virðingu og þakk- læti og kveðjum með þessum texta, Sólarsöng Ljósbrár, sem hún samdi fyrir kórinn: Þegar húmar hausta fer og hjartað birtu þráir, kátar Ljósbrár sína söngva syngja fyrir þig. Bjartir, blíðir ómar, bænaþrungnir hljómar, stefin stríð og lipur, stæla, gleðja þig. Ef að þrautir þyngja, þá er ráð að syngja, lyfta örmum eða taka ofurlítil spor. Flétta söngvaseið um vetur, sumar, haust og vor. Loks er koma langir dagar, ljómar vorið blítt, þá mun Ljósbrá sólarsöngva syngja létt og þýtt. Þegar húmar hausta fer og hjartað birtu þráir, kátar Ljósbrár sína söngva syngja fyrir þig. (Guðrún Sigurðardóttir) Blessuð sé minning Guðrún- ar, gott er að eiga góðs að minn- ast. F.h. Kvennakórsins Ljósbrár, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir. Guðrún Sigurðardóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda i ll i undirbúnings og framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju að leiðarljósi og f fa legum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Í dag er dagur- inn sem ég kveð þig, elsku hjartans systir mín. Í ein- lægni og með nístandi sár í hjart- anu sit ég hér og skrifa minn- ingargrein um þig. Ég velti því fyrir mér hvað það er mikið rangt, aðeins 39 ára gömul í blóma lífsins, ástfangin af Pétri þínum og strákunum hans þremur. Mér þykir það svo sárt að ég get ekki hugsað þetta til enda en samt í leiðinni finn ég fyrir óendanlegu þakklæti fyrir hve við vorum hreinskilnar og ein- lægar hvor við aðra. Elsku systir, takk fyrir allt. Lífið er eins og stórsjór og öldu- gangurinn oft mikill en alltaf féll allt í lygnan sjó aftur. Við eigum margar fallegar og góðar minningar saman og börn- in mín misstu mikið þegar þau misstu þig og það er eins með okkur öll hin. Í sorginni huggum við hvert annað með allri þeirri ást sem þú Harpa Lind Pálmarsdóttir ✝ Harpa LindPálmarsdóttir fæddist 22. ágúst 1979. Hún lést 6. febrúar 2019. Útför Hörpu Lindar fór fram 15. febrúar 2019. áttir svo auðvelt með að deila, ég held minningu þinni á lofti alla daga, alltaf. Ég elska þig út í geim og aftur heim. Sé þig í sumar- landinu þegar minn tími kemur. Sigrún. Elsku Harpa frænka. Ég kveð þig núna eftir rúm 20 ár með brotið hjarta. 39 ára er enginn aldur til að fara, en ég er engu að síður svo þakklátur fyrir tímann sem ég fékk með þér og met hans svo mikið, öll faðmlög- in, ráðin, stuðningurinn og ástin. Ég gleymi því seint þegar ég fékk símhringingu frá þér eftir önn í skólanum þegar ég ströggl- aði verulega í náminu, ég hunsaði þá svona nokkurn veginn það sem mamma hafði að segja um það, en þitt álit á mér hafði svo mikil áhrif á mig að ég fór að standa mig á ný. Ég lærði svo mikið af þér en það sem stendur upp úr er hvað þú varst góð manneskja og vildir gera allt fyr- ir hvern sem er og varst alltaf svo yndisleg og hlý. Þú ert hetj- an mín. Þinn Eiður Smári Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.