Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 42

Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 HRÖKKBRAUÐ Við félagar í Lions hér á Húsavík ætlum á sunnudag fram íReykjadal og sjá þar leikritið Brúðkaupið eftir GuðmundÓlafsson; uppfærslu sem mér er nær að halda að hálf sveitin komi að. Þetta verður ævintýri og gaman að halda upp á afmælið svona,“ segir Jóhannes Sigurjónsson á Húsavík sem er 65 ára í dag. Hann er Húsvíkingur í húð og hár; á að baki langan feril sem blaða- maður og ritstjóri; fyrst sem útgefandi Víkurblaðsins frá 1979 og fram yfir aldamót og svo Skarps, sem komið hefur út frá 2002. „Oft gerist að til mín á skrifstofuna kemur fólk til að spjalla um daginn og veginn. Einhverju sinni kom gamall bóndi austan úr Keldu- hverfi, Þórhallur Guðmundsson, og sagði mér í óspurðum fréttum að skyrtan sem hann klæddist þá væri orðin 50 ára gömul. Ég smellti mynd af karli og birti frásögn um flíkina. Málið vakti mikla athygli og Þórhallur, sem er löngu látinn, fékk þarna 15 mínútna frægð. Þetta er minnisstæðasta fréttin á ferlinum,“ segir Jóhannes um störf sín. Þegar starfinu sleppir segist Jóhannes sýsla við margt, enda þótt áhugamál og vinna samtvinnist að nokkru. „Ég les mikið og svo hef ég verið að dunda mér við skriftir; held til haga sönnum sem lognum sög- um af Þingeyingum og bækur eru orðnar fjórar. Eins og íslenskra karlamanna er háttur fylgist ég líka spenntur með enska boltanum og með Manchester United hef ég haldið frá 1968,“ segir Jóhannes sem á fimm börn, og barnabörnin eru sex talsins. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Húsvíkingur „Ég dunda mér við skriftir,“ segir Jóhannes í viðtalinu. Þingeyingasögum er haldið til haga Jóhannes Sigurjónsson er 65 ára í dag B rynjar Halldórsson fædd- ist 16. febrúar 1934 á Gilsbakka í Öxarfirði. Hann fluttist ársgamall að Gilhaga og hefur átt þar lögheimili síðan. „Foreldrar mínir stofnuðu þá býlið Gilhaga sem er helmingur að jörðinni Gilsbakka og af- leggjarinn þangað er skammt frá skólahúsinu Lundi. Það er þónokkuð þéttbýlt þarna, ein sjö íbúðarhús auk sumarbústaða.“ Brynjar var í barnaskólanum í Lundi í Öxarfirði, tók landspróf frá Héraðsskólanum Laugum í Reykjadal og hefur setið allmörg námskeið, að- allega í tölvubókhaldi og útskurði. „Ég fór einnig út til Noregs að læra skóg- rækt og þar kynntist ég konunni minni.“ Brynjar var skólastjóri í Lundi í Öxarfirði 1955-57 og á Kópaskeri 1960- 61. Hann var stundakennari við Mið- skólann í Lundi í allmörg ár og síðan reikningshaldari við sama skóla 1982- 91 og vann við reikningshald fyrir nokkra bændur 1990-2005. Brynjar var starfsmaður Kaupfélags Norður- Þingeyinga á Kópaskeri 1962-64, síðan sauðfjárbóndi á Gilhaga 2 sem hann stofnaði og skógarbóndi þar frá 2003 Brynjar Halldórsson, skógarbóndi og handverksmaður – 85 ára Hjónin Brynjar og Hildur fyrir um 20 árum en þau kynntust þegar Brynjar var í skógræktarnámi í Noregi. Þúsundþjalasmiður á Gilhaga í Öxarfirði Ásamt dætrunum Sigrún, Brynjar og Laufey fyrir fimm árum. Reykjavík Sigurður Matthías Kristjánsson Johannessen fæddist 16. janúar 2018 kl. 14.53. Hann vó 4.010 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Lísa Margrét Sigurðardóttir og Kristján H. Johannessen. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.