Morgunblaðið - 22.02.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 22.02.2019, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. F E B R Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  45. tölublað  107. árgangur  HÁRPRÚÐ INNSETNING HRAFNHILDAR MYND- LISTAR- VERÐLAUN ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA UM ELDHÚS PENINGUR ER TÍMI 33 16 SÍÐNA SÉRBLAÐTÍSKUVIKA Í MÍLANÓ 30 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Verkalýðsfélögin fjögur sem vísað höfðu deilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara slitu í gær viðræðum og hófu undirbúning að sameiginleg- um verkfallsaðgerðum. Munu þau funda um helgina til að fara yfir stöðu mála, en samninganefnd Efl- ingar samþykkti í gær að hefja á mánudag leynilega atkvæðagreiðslu um skæruverkfall 8. mars næst- komandi. Þá vísaði Starfsgreinasambandið jafnframt viðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins til ríkis- sáttasemjara. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að viðræðuslitin og undirbúningur atkvæðagreiðslu um verkfalls- boðun sé alvarlegur hlutur sem feli í sér verulegan þjóðhagslegan kostnað, jafnvel þótt verkföll séu ekki hafin. „Það að slíta viðræðum er fyrsta skrefið til þess að hefja verkfallsaðgerðir, sem eru allra tap í samfélaginu og draga úr getu atvinnurekenda og fyrirtækja í landinu til að standa undir sjálfbærum launahækkunum til framtíðar,“ segir hann. Mikið í húfi að geta afstýrt verkföllum „Auðvitað vona ég að til þessara aðgerða komi ekki. Það er mikið í húfi að geta afstýrt þeim, en jafn- vel þó að viðræðum hafi verið slitið fer verkefnið ekki frá okkur. Við munum þurfa að hittast aftur fyrir at- beina ríkissáttasemjara og halda áfram viðræðunum þar sem frá var horfið. Það liggur hins vegar fyrir að það ber mikið í milli,“ bætir Halldór Benjamín við. Hann segir að tilboð Samtaka atvinnulífsins mark- ist af því rými sem fyrirtækin í landinu geti staðið undir á næstu árum. „Og við förum fram úr því að okkar viti. Hver næstu skref í deilunni verða þarf tíminn að leiða í ljós en eftir sem áður halda áfram viðræður okkar við aðra viðsemjendur, SGS á vett- vangi ríkissáttasemjara, eins og var viðbúið að myndi gerast á þessum dögum, og eins samflot iðnaðar- manna og Landssambands verslunarmanna. Í þeim viðræðum er fullur hugur beggja vegna borðs að klára gerð kjarasamnings og byggja í þeim samningi undir frekari lífskjarabót launamanna,“ segir Hall- dór Benjamín við Morgunblaðið. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir hins vegar að tilboð SA hafi verið óásættanlegt og mun undirbúningur verkfallsaðgerða vera langt kominn. Verkföll blasa við Morgunblaðið/Eggert Vindasamt Stefán Ólafsson, Viðar Þorsteinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir ganga frá fundi ríkissáttasemjara í gær eftir að viðræðum hafði verið slitið.  Verkalýðsfélögin slitu viðræðum í gær  Boðað til atkvæðagreiðslu um skæru- verkfall 8. mars  Verkefnið fer ekki frá okkur, segir Halldór Benjamín MBoðað til atkvæðagreiðslu »2, 8, 18 Tveir af ástsælustu körfuknatt- leiksmönnum Íslands, Hlynur Bær- ingsson og Jón Arnór Stefánsson, léku sinn síðasta landsleik í gær- kvöldi þegar íslenska landsliðið mætti landsliði Portúgals í Laug- ardalshöll í síðasta heimaleik lands- liðsins í forkeppni fyrir Evrópu- meistaramótið 2021. Hlynur og Jón Arnór voru heiðr- aðir áður en flautað var til leiks en báðir hafa þeir leikið með landslið- inu frá árinu 2000. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sendi þeim kveðjur en hann var erlendis. Jón Arnór var stigahæstur í 100. landsleik sínum með 17 stig og Hlynur skoraði fimm stig og tók 12 fráköst í sínum 125. landsleik. Íslenska landsliðið vann leikinn mjög örugglega, 91:67. Þetta var fyrsti sigur Íslands í forkeppninni. Morgunblaðið/Hari Kveðja Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, Þorvaldur Ólafsson, Jón Arnór Stefánsson, Hlynur Bæringsson og Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ. Voru kvaddir með sigri í Höllinni  Hafa leikið 225 landsleiki á 19 árum Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, leggst gegn þeim áformum að heim- ila innflutning á ógerilsneyddum mjólkurafurðum. „Það bara má ekki gerast. Ég held að það sé ennþá möguleiki að bregðast við því,“ segir hann en fyrir liggur lagafrumvarp sem heimilar slíkan innflutning. Að sögn Karls getur verið mæði- visnu veira í ógerilsneyddri sauða- og geitamjólk. „Í Evrópu, og nánast alls staðar í heiminum, er mæði- visnu veiran landlæg. Hún hefur ekki verið á Íslandi mjög lengi en hún barst til landsins 1933, með inn- fluttu sauðfé frá Þýskalandi. Hún dreifðist um allt land og tók langan tíma að uppræta hana. Áður en tókst að uppræta veiruna hafði hún lagt að velli 150.000 kindur og þurfti að lóga 600.000 fjár.“ Hann segir íslenskt sauðfé mjög móttækilegt fyrir veirunni og ekki þurfi nema eina veiru til að sýkja sauðfé. Veiran hefur verið í Evrópu í árhundruð og því hefur sauðfé þar aðlagað sig veirunni. „Við viljum ekki fá þetta inn aftur.“ »18 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mjólk Veiran gæti verið í ógeril- sneyddri mjólk frá útlöndum. Mæðiveiki gæti fylgt mjólkinni  Ógn af innfluttri ógerilsneyddri mjólk  Hreyfing er komin á atvinnu- líf og fasteigna- markað á Blönduósi eftir uppbyggingu gagnavers á svæðinu. Er sveitarfélagið nú að úthluta lóðum fyrir íbúðir eftir langvarandi kyrrstöðu á markaðnum. Að sögn Valdimars O. Hermanns- sonar sveitarstjóra er bjartsýni nú ríkjandi í samfélaginu og segir hann framkvæmdina hafa verið hvalreka fyrir verktaka og þetta 940 manna samfélag. Þannig má til að mynda nefna að fyrsta einbýlis- húsið sem rís á Blönduósi í tíu ár var byggt í fyrra. »6 Gagnaver reyndist Blönduósi hvalreki Landsbyggðin Frá Blönduósi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.