Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
GÆÐA TRÉLÍM
Á FRÁBÆRU VERÐI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Söfnunarátak fjölskyldu og vina Jóns
Þrastar Jónssonar, sem hvarf spor-
laust í Dublin fyrir 13 dögum, hefur
skilað rúmum 5.000 evrum af 10.000
evra markmiði. Síðdegis í gær höfðu
alls 103 veitt átakinu lið, sem hófst
fyrir þremur dögum. Enn er hægt að
styrkja leitina en átakið er að finna á
söfnunarsíðunni gofundme.com.
Fjölskyldan hefur staðið fyrir
skipulagðri leit að Jóni alla vikuna en
ekki haft erindi sem erfiði. Borgara-
þjónusta utanríkisráðuneytisins hef-
ur verið í sambandi við aðstandendur
Jóns frá 10. febrúar. Þá hafa sendi-
herra Íslands í London og ræðismað-
ur Íslands á Írlandi einnig haft milli-
göngu í samskiptum við yfirvöld á
Írlandi.
„Hlutverk borgaraþjónustunnar í
þessum málum er fyrst og fremst að
styðja aðstandendur og leiðbeina
þeim um hvert þeir eigi að leita. Þetta
er lögreglumál á Írlandi, Írland er
rannsóknarvettvangurinn. Það ríkir
algjört traust á milli írskra og ís-
lenskra lögregluyfirvalda með þetta
mál. Borgaraþjónustan mun halda
áfram að veita aðstandendum stuðn-
ing,“ segir Sveinn H. Guðmarsson,
fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins. Alþjóðadeild lögreglunnar á Ís-
landi hefur einnig verið í samskiptum
við lögregluna á Írlandi.
Heimamenn í Dublin hafa boðið
fram aðstoð sína síðustu daga og
skutlað Íslendingunum sem eru að
leita milli leitarsvæða.
Alls eru 13 Íslendingar úti í Dublin
að leita að Jóni um þessar mundir.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í
gær mun fjöldi írskra sjálfboðaliða
aðstoða fjölskylduna við leit um
helgina.
Safna fyrir leitinni að Jóni
Söfnunarátak fyrir Jón Þröst Jónsson Leitað um helgina
Leitað Jón Þröstur Jónsson hvarf
um morguninn 9. feb. í Dublin.
Stefán Gunnar Sveinsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Samninganefnd Eflingar boðaði í
gær til atkvæðagreiðslu innan fé-
lagsins um boðun skæruverkfalls 8.
mars næstkomandi, eftir að viðræð-
um verkalýðsfélaganna VR, Efling-
ar, Verkalýðsfélags Akraness og
Verkalýðsfélags Grindavíkur við
Samtök atvinnulífsins hafði verið
formlega slitið á fundi hjá ríkissátta-
semjara fyrr um daginn.
Þá fól stjórn og trúnaðarráð
Verkalýðsfélags Grindavíkur Herði
Guðbrandssyni, formanni félagsins,
að hefja skipulag verkfallsaðgerða.
Segir í ályktun félagsins að það sé al-
farið á ábyrgð atvinnurekanda ef
komi til verkfalla, þar sem SA hafi
haft 52 daga síðan samningar losn-
uðu til að koma með raunhæft tilboð
að borðinu, en ekki gert.
„Allar verkfallsaðgerðir þarf að
samþykkja í kosningu og nú hefst sú
vinna,“ segir Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður Eflingar, í samtali
við Morgunblaðið, en atkvæða-
greiðsla félagsins hefst á mánudags-
morgun og lýkur að kvöldi næstkom-
andi fimmtudags, 28. febrúar.
Samkvæmt tilkynningu frá samn-
inganefnd Eflingar mun fyrirhuguð
vinnustöðvun ná til allra þrifa, hrein-
gerninga og frágangs herbergja og
annarrar gistiaðstöðu, þar með talið
á göngum, salernum og í sameigin-
legu rými á öllum hótelum og gisti-
húsum innan höfuðborgarsvæðisins,
Hveragerðis og Sveitarfélagsins Ölf-
uss. Þá á vinnustöðvunin, verði hún
samþykkt, að hefjast kl. 10 að
morgni 8. mars og ljúka á miðnætti
sama dag nema kjarasamningar hafi
tekist fyrir þann tíma.
Markviss undirbúningur
Fulltrúar verkalýðsfélaganna
fjögurra munu hittast um helgina, en
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, sagði að félögin fjögur væru að
skipuleggja aðgerðaáætlanir sínar
sameiginlega, en samninganefnd VR
mun funda með forystu félagsins í
dag um stöðuna.
„Við hér hjá Eflingu höfum verið
að vinna mjög markvisst að því
undanfarið að undirbúa hvað ætti að
gera ef þessi stund rynni upp, þann-
ig að við erum komin mjög langt í
þeirri vinnu,“ segir Sólveig Anna og
bætir við að margt fært fólk hafi
komið að undirbúningi aðgerðanna.
Aðspurð hvort verkalýðsfélögin
hafi stefnt að verkfallsaðgerðum
allan tímann, segir Sólveig Anna að
hún hafi heyrt af þeirri umræðu í
samfélaginu. „Þetta eru skilaboðin
frá vissum hópi innan samfélagsins,
að það hafi aldrei verið neinn alvöru
samningsvilji hjá okkur í Eflingu, að
við höfum bara verið að þessu til að
komast að þessum tímapunkti. Það
er alrangt,“ segir Sólveig Anna.
„Auðvitað förum við inn í samninga í
þeim tilgangi að ljúka þeim og ná ár-
angri, en að sjálfsögðu skrifum við
ekki undir samning sem uppfyllir að
engu leyti þær kröfur sem fé-
lagsmenn settu fram,“ segir Sólveig
Anna. Hún segir jafnframt að tilboð
Samtaka atvinnulífsins hafi gert ráð
fyrir kaupmáttarrýrnun.
Að lokum segir Sólveig Anna að
það sé rangt að framganga verka-
lýðsfélaganna sé ógn við stöðugleik-
ann í samfélaginu. „Það getur aldrei
ríkt nein sátt í samfélaginu um lög-
mál sem byggjast á því að sumt fólk
sé svo mikils virði að það eigi millj-
ónir og milljarða skilið á meðan ann-
að fólk þarf að vinna alla sína ævi án
þess að komast af á laununum. Það
er samfélagslegt hneyksli og bláköld
staðreynd í íslensku samfélagi sem
enginn getur neitað.“
Engin óskastaða neins
„Þetta er náttúrlega alvarleg
staða og ég hvet aðila til þess að nýta
þann tíma sem er framundan til að
reyna sitt ýtrasta til að ná samning-
um, því verkfallsaðgerðir eru í eðli
sínu alvarlegar og geta ekki verið
óskastaða neins,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra í
samtali við mbl.is í gær.
Sagði Katrín að ríkisstjórnin hefði
ekki fundað vegna stöðunnar á
vinnumarkaði. „Við kynntum hug-
myndir okkar að samfélagslegum
umbótum til þess að greiða fyrir
samningum, við ræddum við þessa
aðila á þriðjudaginn. Við teljum að
þær aðgerðir skipti verulegu máli
fyrir launafólk í landinu, hvort sem
um ræðir uppbyggingu á félagslegu
húsnæði, skattkerfisbreytingar sem
nýtast þeim tekjulægstu eða leng-
ingu fæðingarorlofs,“ segir Katrín.
Þá segir hún ríkisstjórnina hafa
gengið að kröfu verkalýðshreyfing-
arinnar um að upplýsa félögin um
þær aðgerðir sem stjórnvöld hyggj-
ast leggjast í. „Þetta eru allt gríðar-
lega stór lífskjaramál og umfang
þessara aðgerða höfum við metið á
um 30 milljarða. Þannig að við telj-
um að við höfum sýnt á spilin.“
Katrín segir að það skipti almenn-
ing verulegu máli að það náist saman
um kjarasamninga og að fyrrnefnd-
um verkefnum verði hrint í fram-
kvæmd.
Vilja meiri festu í viðræðurnar
Starfsgreinasambandið ákvað
einnig í gær að vísa viðræðum sínum
við Samtök atvinnulífsins til ríkis-
sáttasemjara. Björn Snæbjörnsson,
formaður sambandsins, sagði við
mbl.is í gær að forysta þess hefði
viljað færa viðræðurnar á næsta stig.
„Þetta eru svo sem búnar að vera
ágætis viðræður en við viljum fá
meiri festu í þetta,“ segir Björn, en
nú sé þess beðið að ríkissáttasemjari
boði til fundar.
Björn sagði jafnframt að auðvitað
vonaðist hann til þess að viðræðurn-
ar myndu ganga upp. Björn sagðist
hins vegar ekki hafa neina skoðun á
ákvörðun VR, Eflingar, Verkalýðs-
félags Akraness og Verkalýðsfélags
Grindavíkur um að slíta sínum samn-
ingaviðræðum. „Hvert og eitt félag
skoðar sína stöðu,“ sagði Björn.
Boðað til atkvæðagreiðslu
Efling og Verkalýðsfélag Grindavíkur undirbúa verkfallsaðgerðir Félögin fjögur funda um helgina
Forsætisráðherra hvetur aðila til að reyna sitt ýtrasta til að ná samningum SGS fer til sáttasemjara
Morgunblaðið/Eggert
Viðræðuslit Halldór Benjamín Þorbergsson ræðir við fjölmiðla eftir að viðræðunum var slitið í gær.
Framsýn stéttarfélag á Húsavík fundaði í
gær um kjaramál og samþykkti samhljóða
ályktun þar sem lýst var yfir miklum von-
brigðum með tillögur ríkisstjórnarinnar í
skattamálum. „Framsýn hafði vænst þess
að tillögur stjórnvalda kæmu þeim lægst
launuðu best, enda afar mikilvægt að auka
ráðstöfunartekjur þeirra umfram aðra
hópa launamanna er búa við mun betri
kjör,“ segir meðal annars í ályktuninni.
Þá skorar félagið á stjórnvöld og SA að
„láta af þeim hroka sem endurspeglast í
tillögum þeirra er varða skattamál, vel-
ferðarmál og launahækkanir til lausnar
kjaradeilunni“. Þá er ítrekað að samstaða
hafi skilað verkafólki bestum kjörum.
Skorað á stjórn-
völd og SA
FRAMSÝN FUNDAÐI Í GÆR UM KJARAMÁLIN
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Kjaramál Aðalsteinn Baldursson á fundi Framsýnar í gærkvöldi.