Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Veður víða um heim 21.2., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Hólar í Dýrafirði 8 alskýjað
Akureyri 8 skýjað
Egilsstaðir 1 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 8 skýjað
Nuuk -8 skúrir
Þórshöfn 8 þoka
Ósló 0 skýjað
Kaupmannahöfn 7 rigning
Stokkhólmur -2 snjókoma
Helsinki -7 heiðskírt
Lúxemborg 12 léttskýjað
Brussel 12 alskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 14 léttskýjað
París 13 heiðskírt
Amsterdam 8 súld
Hamborg 8 súld
Berlín 9 skýjað
Vín 12 heiðskírt
Moskva -5 snjóél
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 14 heiðskírt
Aþena 14 léttskýjað
Winnipeg -16 snjókoma
Montreal -5 snjókoma
New York 3 þoka
Chicago -1 þoka
Orlando 24 þoka
22. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:00 18:23
ÍSAFJÖRÐUR 9:13 18:20
SIGLUFJÖRÐUR 8:56 18:03
DJÚPIVOGUR 8:32 17:51
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag S 13-20 m/s og rigning, mikil SA-til.
Snýst í SV 15-23 m/s síðdegis með slyddu eða jafn-
vel snjókomu en þurrt að kalla NA-lands. Kólnar í
veðri og hiti um og undir frostmarki um kvöldið.
Hægur vindur að morgni en vaxandi A-átt og rigning um hádegi, fyrst SA-lands en N-lægari á V-
verðu landinu. Sunnan 18-25 m/s A-til síðdegis og rigning en 13-18 V-til í kvöld. Hiti 2-10 stig.
Guðrún Erlingsdóttir
Jóhann Ólafsson
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigð-
isráðherra kynnti á blaðamanna-
fundi í gær að 630 milljónum króna
yrði varið í að styrkja geðheil-
brigðisþjónustu í fremstu línu heil-
brigðisþjónustunnar. Svandís segir
að fénu verði annars vegar varið til
að efla fyrsta stigs þjónustu heilsu-
gæslunnar með aukinni aðkomu sál-
fræðinga og hins vegar til að efla
sérhæfðari þjónustu á sviði geðheil-
brigðismála með áframhaldandi
uppbyggingu geðheilsuteyma í öll-
um heilbrigðisumdæmum landsins.
Geðheilsuteymi séu ætluð þeim sem
þurfi meiri og sérhæfðari þjónustu
en veitt er á heilsugæslustöðvum.
Milljónirnar 630 skiptast þannig
að sálfræðingar á höfuðborgarsvæð-
inu fá 45, Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins 322, Heilbrigðisstofnun
Vesturlands 46, Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða 21, Heilbrigðisstofnun
Norðurlands 50, Heilbrigðisstofnun
Austurlands 35, Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 58 og Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja 53 milljónir.
Fram kom á fundinum með Svan-
dísi að undirbúningur vegna ákvörð-
unar hennar um að fela Landspítala
að sinna börnum og ungmennum í
fíknivanda sé farinn af stað.
Notendafulltrúar ráðnir
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar,
fagnar því að Landspítala sé falið að
sinna börnum og ungmennum í
fíknivanda. Geðhjálp hafi gagnrýnt
og þekki tilfelli þar sem börn með
margþættan vanda hafi verið send
af BUGL inn á fíknideild Land-
spítala fyrir fullorðna.
„Við fögnum því að meira fjár-
magn sé veitt til geðheilbrigðismála.
Okkur hefur fundist hlutirnir ganga
allt of hægt fyrir sig en það er gott
að nú skuli þjónustan bætt,“ segir
Anna Gunnhildur, sem telur nauð-
synlegt að ráða fleiri sálfræðinga
fyrir fullorðna. Það úrræði myndi
nýtast tekjulágu og meðaltekjufólki
sérstaklega vel.
„Stofnun og styrking geðheil-
brigðisteyma á höfuðborgarsvæðinu
og úti um allt land líkt og teymið
sem starfað hefur í austurborg
Reykjavíkur er jákvætt. Geðheilsu-
teymin hafa sýnt fram á að þau eru
mjög verðmætur stuðningur við fólk
með geðrænan vanda,“ segir Anna
Gunnhildur, sem bendir á að með
geðheilsuteyminu í austurborg
Reykjavíkur hafi fólk með reynslu
af geðheilbrigðiskerfinu starfað með
teyminu og verið mjög góður stuðn-
ingur við notendur geðheilsu-
teymisins.
„Það er mikilvægt fyrir fagfólk og
notendur að starfa saman. Það á
víst að auglýsa um mánaðamótin
eftir notendafulltrúum til starfa í
geðheilsuteymum í austur- og
vesturborg Reykjavíkur,“ segir
Anna Gunnhildur en um eitt stöðu-
gildi er að ræða í hvort geðheilsu-
teymi sem brjóta má niður í smærra
hlutfall og því er líklegt að nokkrir
notendafulltrúar verði ráðnir í
hlutastörf, sem er mjög jákvætt.
Anna Gunnhildur segir nauðsynlegt
að vinna hefjist við að binda í lög
samvinnu ríkis og sveitarfélaga um
þjónustu.
Geðheilbrigðis-
þjónusta á
landsvísu efld
630 milljónir í geðheilbrigðismál
Notendafulltrúar í geðheilsuteymin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átak Svandís Svavarsdóttir kynnir
átak í geðheilbrigðisþjónustu.
630 milljónir
» Geðheilbrigðisþjónusta í
fremstu línu heilbrigðisþjón-
ustunnar verður efld.
» Fyrsta stigs þjónusta heilsu-
gæslunnar verður efld með
aukinni aðkomu sálfræðinga.
» Sérhæfðari þjónusta á sviði
geðheilbrigðismála verður efld.
Skúli Halldórsson
Gunnlaugur Árnason
Víða um land flæddi sjór upp á
hafnarbakka á stórstraumsflóði í
gærmorgun. Einna mest urðu áhrif-
in á Flateyri þegar rafmagn sló út í
bænum eftir að sjór flæddi inn í
masturshús á bryggjunni en þar eru
rafmagnstöflur fyrir hafnarsvæðið.
Háflóð var þegar sjórinn flæddi
yfir höfnina. Ágústa Guðmunds-
dóttir, hafnarvörður á Flateyri,
sagði við 200 mílur á mbl.is í gær að
yfirleitt flæddi eitthvað yfir bryggj-
una á háflóði en ekki eins langt og
raunin varð í gærmorgun.
Starfsmönnum Orkubús Vest-
fjarða tókst að koma rafmagni á að
nýju en höfnin var lengur án raf-
magns en íbúarnir. Nokkurt tjón
varð vegna þessa. Að sögn Ágústu
reiknuðu rafvirkjar ekki með því að
setja rafmagnstöflur aftur upp á
sama stað. „Ég hugsa að þeir finni
nýjan stað, en það mun taka ein-
hverja daga,“ sagði Ágústa.
Flæddi upp um niðurföll
Í Stykkishólmshöfn var sjávar-
staðan hærri en sést hefur þar í bæ í
tugi ára, að sögn fréttaritara
Morgunblaðsins. Hólmarar, komnir
yfir miðjan aldur, höfðu ekki séð svo
mikil flóð fyrr. Á flóðinu flæddi yfir
veginn út í Súgandisey og var hann
ekki ökufær nema stórum farar-
tækjum. Háflóð var kl. 8.05 og mæld-
ist sjávarstaðan 5,10 metrar.
Hrannar Pétursson hafnarvörður
sagðist ekki muna eftir svona miklu
flóði. Stórstreymt er þessa dagana
en flóðið var um 20 cm hærra en
hann bjóst við og áhrifin mjög greini-
leg. Ástæðuna telur hann vera mikla
lægð yfir hafinu út af Breiðafirði sem
hefur ýtt meira sjómagni á undan
sér inn Breiðafjörðinn. Hrannar
sagðist þakka fyrir að ekki hefði ver-
ið vestanátt því þá hefði ástandið í
höfninni orðið mun verra. Tjón var
lítið, það flæddi upp um niðurföll í
húsum sem standa lægst og skoða
þurfti rafmagnskassa og landteng-
ingar á hafnarsvæðinu.
Breiðafjörður er þekktur fyrir
mikinn mun á sjávarföllum og
straumum sem þeim fylgja. Í gær-
kvöldi var stórstraumsfjara og
hæðarmunur milli flóðs og fjöru um
5,20 metrar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur Á háflóði í gær flæddi yfir veginn út í Súgandisey, nokkuð sem sjaldan hefur gerst áður.
Hafa vart séð áður
svo mikla sjávarhæð
Víða flæddi yfir hafnarbakka á stórstraumsflóði í gær
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Flateyri Nokkurt tjón varð á hafnarsvæðinu í gær þegar rafmagn sló út í
masturshúsinu á bryggjunni og rafmagn fór ekki af öllum bænum um stund.