Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
Óli Björn Kárason alþingismaðurfjallar um skatta og kjaramál í
grein hér í Morgunblaðinu í fyrra-
dag. Þar segist hann vera „sammála
þeim forystumönn-
um verkalýðshreyf-
ingarinnar sem
halda því fram að
tekjuskattskerfi ein-
staklinga sé rang-
látt og að hvatar
kerfisins séu vit-
lausir. Launafólki er
oft refsað fyrir að bæta sinn hag.
Við eigum samleið í baráttunni um
að lækka skatta á venjulegt launa-
fólk.“
Hann segir svo að hann eigi„hins vegar enga samleið með
þeim sem telja nauðsynlegt að láta
kjarabaráttu snúast um að rýra kjör
annarra. Hugmyndir um marg-
þrepa tekjuskatt með sérstöku há-
tekjuþrepi 55% (og jafnvel hærra)
er dæmi um hvernig höfð eru enda-
skipti á hlutunum. Kjarabaráttan
sem miðar að því að jafna lífskjör
niður á við leiðir okkur í efnahags-
legar ógöngur. Markmiðið á að vera
að jafna upp á við – lyfta þeim upp
sem lökust hafa kjörin – létta undir
með þeim og fjölga tækifærunum.“
Hægt er að taka undir þessi sjón-armið. Áherslan á að vera á að
létta byrðar sem flestra en ekki að
þyngja byrðar fárra. Það getur
aldrei orðið réttmæt kjarabarátta
og ekki hagsmunir launamanna.
Ríkið getur létt byrðarnar, enþað geta sveitarfélögin einnig
gert. Þau leggja háa og vaxandi
skatta á almenning, en af ein-
hverjum ástæðum beinast aldrei
kröfur að þeim um lækkun skatta
eða bætt kjör.
Er það ekki tímaskekkja í ljósiþróunar skattlagningar hjá
ríki og sveitarfélögum?
Óli Björn Kárason
Lífskjörin þarf
að jafna upp á við
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Persónuvernd hefur kveðið upp úr-
skurð þess efnis að vinnsla Alþingis
á persónuupplýsingum um fyrrver-
andi alþingismann og núverandi
varaþingmann samrýmist lögum um
persónuvernd, en upplýsingarnar
eru birtar í alþingismannatali.
Var það hinn kjörni fulltrúi sem
sjálfur leitaði til Persónuverndar í
mars sl. vegna þeirra upplýsinga
sem um hann er að finna á þing-
vefnum. Hafði hann áður óskað eftir
því við Alþingi að upplýsingarnar
yrðu teknar úr birtingu. Þeirri
beiðni fulltrúans var þó hafnað.
Yfir 100 ára gömul hefð
Í kvörtuninni segir að þingmaður-
inn fyrrverandi, sem missti þingsæti
sitt í síðustu kosningum, geti ekki
sætt sig við að birtar séu upplýsing-
ar um foreldra, skólagöngu, starfs-
feril, maka og börn í alþingismanna-
tali eftir að setu á þingi sé lokið.
Bent er á í bréfi frá Alþingi að sú
framkvæmd að halda skrá yfir þá
sem tekið hafa sæti á Alþingi sé yfir
100 ára gömul. Þær upplýsingar séu
einnig aðgengilegar í handbókum
Alþingis, sem gefnar hafa verið út
frá árinu 1984. Er með þessu ætlað
að veita almenningi upplýsingar um
þá sem kjörnir hafa verið fulltrúar
hans á þingi.
Þingmaður vildi afmá upplýsingar
Vill ekki að upplýsingar um sig séu
aðgengilegar almenningi á vef þingsins
Morgunblaðið/Ómar
Lokað Sá sem um ræðir er enn á
þingi sem varamaður flokks síns.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps
leggur þunga áherslu á mikilvægi
þess að flugþjónusta við Vopnafjörð
og Þórshöfn verði ekki skert. Miklu
máli skipti að jaðarbyggðir landsins
búi við traustar og skilvirkar al-
menningssamgöngur og örugga
sjúkraflutninga. Kemur þetta fram í
ályktun frá fundi sveitarstjórnar í
tilefni af drögum að stefnu um al-
menningssamgöngur sem sam-
gönguráðherra hefur kynnt.
Lagt er til að hætt verði að
styrkja flug til Þórshafnar, Vopna-
fjarðar og Hafnar og í staðinn lögð
áhersla á almenningssamgöngur á
landi. Áformin koma fram í drögum
að heildarstefnu í almennings-
samgöngum sem eru til umsagnar í
samráðsgátt stjórnarráðs.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Horna-
fjarðar hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem þessum áformum er
harðlega mótmælt og talin hætta á
að flugsamgöngur við Höfn leggist
af, verði af þessum áformum.
Í ályktun sveitarstjórnar Vopna-
fjarðar kemur fram að veðurfar á
Norðausturlandi bjóði ekki upp á að
íbúar svæðisins geti reitt sig ein-
göngu á vegasamgöngur, sér í lagi á
stað eins og Vopnafirði þar sem all-
ar slíkar samgöngur séu um langa
fjallvegi. „Það þarf varla að taka
fram að forsenda þess að hér sé
hægt að halda úti byggð og þjón-
ustu og nýta mannvirki og fjárfest-
ingar sem skila þjóðarbúinu gríðar-
legum verðmætum er gott aðgengi
að sjúkraþjónustu og góðar sam-
göngur almennt.“
Vopnafjörður HB Grandi hefur
byggt upp fiskvinnsluna.
Mótmæla skerð-
ingu á flugi
Samgöngur á landi ekki öruggar