Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hreinleiki íslenskrar kjötfram- leiðslu skapar tækifæri fyrir land- búnað á Íslandi. Heimurinn stendur enda frammi fyrir vaxandi vanda- máli vegna ofnotkunar sýklalyfja í landbúnaði. Sú ofnotkun getur jafn- vel leitt til dauðsfalla hjá mönnum vegna baktería sem hafa orðið ónæmar fyrir sýklalyfjum. Þetta segir Lance Price, prófessor við lýðheilsudeild George Wash- ington-háskóla og stjórnandi rannsóknaseturs við skólann sem rannsakar ónæmi gegn sýklalyfjum (ARAC). Price hélt í gærkvöldi fyrirlestur á Hótel Sögu um þær ógnir sem stafa af sýklalyfjaónæmum bakteríum. Fundurinn var hluti af fundaröð Framsóknarflokksins sem ber yfir- skriftina Ísland tækifæranna. Price segir notkun sýklalyfja í landbúnaði geta leitt til baktería sem eru ónæmar fyrir lyfjunum. Þegar dýrunum sé hrúgað saman, jafnvel svo tugþúsundum skiptir, geti þar reynst gróðrarstía fyrir slíkar bakteríur. Við slátrun geti bakteríurnar borist með kjötinu og í menn við meðhöndlun. Smit og sýkingar Bakteríurnar geti mögulega valdið banvænum sýkingum. Þær séu sérstaklega hættulegar þegar ónæmiskerfið er veikt. Til dæmis þegar fólk er undir álagi. Þá geti salmonella og kampýló- bakter smitast með kjötinu og valdið niðurgangi og veikindum. Um tvær milljónir slíkra tilfella komi upp í Bandaríkjunum á ári hverju. Áætlað hafi verið að 23 þúsund manns látist árlega á sjúkrahúsum í Bandaríkjunum vegna fjölónæmra baktería. „Þessi tala nær aðeins til sjúkrahúsa. Það er ekki ósennilegt að dauðsföllin séu nær því að vera 100 þúsund á ári,“ segir Price. Spurður hvort hann geti útskýrt á máli leikmanna hvers vegna bakt- eríurnar séu svona hættulegar bend- ir Price á að þegar sýkingar berist í blóðrásina geti þær verið lífshættu- legar. Þangað geti þær t.d. borist frá nýrunum. Besta ráð læknisins sé að beita sýklalyfjum en þegar þau virki ekki sé lítið hægt að gera. Leggjast á bæn „Þá er að biðja fyrir því að sjúk- lingurinn komist af. Það er ekki góð staða fyrir lækni,“ segir Price og bendir á að nú sjáist bakteríur sem séu ónæmar fyrir yfir 20 sýkla- lyfjum og jafnvel þeim öllum. Spurður hvort þetta sé meira vandamál í einum kjötflokki en öðrum segir Price að vandamálið sé fremur svæðisbundið. „Á Indlandi, svo dæmi sé tekið, eru bakteríur vandamál í kjúklinga- framleiðslu. Þar er ónæmi gagnvart bakteríum á háu stigi. Sömu sögu er að segja frá Suður-Evrópu. Evrópusambandið er með reglur um notkun sýklalyfja í landbúnaði. Það er hins vegar farið misjafnlega eftir þeim. Notkun sýklalyfja er mun meiri í Suður-Evrópu en í norður- hluta álfunnar. Slíkar fjölónæmar bakteríur eru einnig vandamál í Suð- austur-Asíu og Kína.“ Spurður um dæmi þess að tekist hafi að snúa taflinu við nefnir Price framleiðslu á kjúklingakjöti í Banda- ríkjunum. Árið 2012 hafi innan við 4% kjúklingakjöts verið framleidd án sýklalyfja. Nú sé hlutfallið yfir 40%. Breytingin sé ekki síst tilkomin vegna eftirspurnar frá neytendum sem vilji heilnæmara kjöt. Ýmsar ástæður séu fyrir því að sami árangur hafi ekki náðst við framleiðslu á svína- og nautakjöti. Sú staðreynd sé til vitnis um að herða þurfi róðurinn í þessu efni. Spurður hvernig hann sjái fyrir sér stöðuna í Bandaríkjunum árið 2030 spáir Price að þá verði um 80% kjúklingakjöts framleidd án sýkla- lyfja. Hvað varðar stærri dýr telji hann að framleiðendum muni fjölga sem vilja fá viðurkenningu þess efnis að kjötið sé framleitt á ábyrgan hátt með tilliti til sýklalyfja. Það séu hagsmunir framleiðenda, enda vilji neytendur í auknum mæli slíka vöru. Minni hagnaður Spurður um þróun nýrra sýkla- lyfja bendir Price á að mörg lyfja- fyrirtæki hafi hætt þróun slíkra lyfja. Það sé enda mun ábatasamara að þróa lyf sem sjúklingar þurfa að taka daglega til dauðadags. „Lyfjafyrirtækin horfa til hagn- aðar á ársfjórðungum. Þegar lyfin eru tilbúin til markaðssetningar reyna fyrirtækin að selja eins mikið og mögulegt er til að hámarka hagn- aðinn meðan einkaleyfið gildir.“ Price segir Ísland njóta þess að ónæmi gegn sýklalyfjum sé einna minnst hér í heiminum. Hann telur aðspurður að Íslend- ingar ættu að gera miklar kröfur varðandi notkun sýklalyfja í land- búnaði. Gera eigi þá kröfu að aðeins sé heimilt að flytja inn ferskt kjöt að uppfylltum ströngustu skilyrðum um framleiðslu þess. „Það á sér stað bylting í matvæla- iðnaði. Neytendur eru farnir að gefa því meiri gaum hvernig matvörur eru framleiddar og vilja mestu gæð- in. Ef Íslendingar væru duglegri að koma því á framfæri hvernig þeir stunda landbúnað, og hvaða áhrif það hefur á bragð og gæði vörunnar, tel ég að í því fælust mikil tækifæri,“ segir vísindamaðurinn Lance Price. Hætta af óþoli gegn sýklalyfjum  Sérfræðingur segir ofnotkun sýkla- lyfja í landbúnaði mikið vandamál Ljósmynd/Aðsend - Birt með leyfi Sérfræðingur Lance Price er kennari við George Washington-háskóla. Hann varar við ofnotkun sýklalyfja. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 Fjölmiðlar hafa undanfarin ár birt fréttir af því að sýklalyf séu að verða gagnslítil í baráttunni gegn sjúkdómum. Fyrirsagnirnar eru gjarnan grípandi og vekja ugg. Spurður hvort fjölmiðlar séu að taka of djúpt í árinni svarar Price að þessar viðvörunarbjöllur þurfi að klingja. „Við höfum séð þessar bakteríur. Á Indlandi sjáum við til dæmis bakteríur sem eru ónæmar fyrir flestum, jafnvel öllum sýkla- lyfjum. Fyrir aðeins tveimur árum fékk kona í Nevada, sem ferðast hafði til Indlands, sýkingu. Þegar konan var heim komin reyndu læknar í Las Vegas að bjarga henni en hún lést af bakteríusýkingu sem var ónæm fyrir öllum lyfjum,“ segir Price og bendir á að notkun sýklalyfja sé mikil í landbúnaði BRIKS-ríkjanna; Brasilíu, Rúss- lands, Indlands, Kína og S-Afríku. Íbúar þessara landa séu að tileinka sér vestræna lífshætti. Því fylgi aukin kjötneysla. Til að mæta eftirspurninni sé byggður upp verksmiðjulandbún- aður að bandarískri fyrirmynd sem einkennist af mikilli notkun sýkla- lyfja. Litlar takmarkanir séu til dæmis á notkun þeirra á Indlandi og í Kína. Með því skapist hætta á útbreiðslu fjölónæmra baktería. Spurður hvort raunsætt sé að þessar þjóðir muni snúa af þessari braut segir Price að tregðulög- málið sé sterkt. Tilhneigingin sé að viðhalda óbreyttu ástandi. „Ein leið til að breyta þessu er að hafa alþjóðlegar reglugerðir, eða viðskiptasamninga, sem taka þessa ógn gegn heilsu almennings til greina,“ segir Price. Viðvörunarbjöllur klingja FJÖLÓNÆMAR BAKTERÍUR GETA DREGIÐ FÓLK TIL DAUÐA VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.