Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.
22. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.35 119.91 119.63
Sterlingspund 155.53 156.29 155.91
Kanadadalur 90.49 91.01 90.75
Dönsk króna 18.131 18.237 18.184
Norsk króna 13.901 13.983 13.942
Sænsk króna 12.817 12.893 12.855
Svissn. franki 119.18 119.84 119.51
Japanskt jen 1.077 1.0832 1.0801
SDR 166.04 167.02 166.53
Evra 135.32 136.08 135.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.3836
Hrávöruverð
Gull 1345.75 ($/únsa)
Ál 1833.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.3 ($/fatið) Brent
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Fjarskiptafyrirtækið Nova hefur
tekið í notkun fyrsta 5G-sendinn á
Íslandi og hóf í gær prófanir á 5G-
farsíma- og netþjónustu. Fyrirtækið
sótti um 5G-tilraunaleyfi hjá Póst-
og fjarskiptastofnun (PFS) fyrr í
þessum mánuði og hefur fyrsti send-
irinn verið settur upp á þaki höfuð-
stöðva Nova við Lágmúla. Í versl-
uninni er búið að setja upp
þráðlausan netbeini sem móttekur
5G-merki en gert er ráð fyrir að til-
raunirnar muni taka nokkra mánuði.
Viðskiptavinir fyrirtækisins mega
búast við því að geta nýtt sér 5G
internet árið 2020 en sú tímasetning
er háð nokkrum óvissuþáttum. Til
dæmis hvað varðar endabúnað en í
gær kynnti Samsung nýjan Galaxy
S10-farsíma sem er sá fyrsti sem
styður 5G.
Tífalt hraðara net
„Við segjum 2020 en þetta getur
verið fyrr og getur verið síðar. Fyrst
kemur kerfið og tæknin. Síðan koma
tækin. Úthlutun á tíðnileyfi frá Póst-
og fjarskiptastofnun er eitt af því
sem þarf að klára áður en 5G er kom-
ið til viðskiptavina. Þetta eru því
nokkur skref,“ segir Margrét
Tryggvadóttir, forstjóri Nova.
Frá upphafi hefur Nova fjárfest í
fjarskiptatækni fyrir um sjö millj-
arða króna. Á síðasta ári nam fjár-
festingin einum milljarði. Á þessu ári
verður fjárfest í 5G-tækni samhliða
öðrum fjarskiptakerfum en áætlanir
fyrirtækisins gera ráð fyrir um millj-
arðs fjárfestingu á þessu ári. Þegar
uppfærslu fjarskiptakerfis Nova
verður lokið munu notendur njóta að
meðaltali tífalt meiri nethraða en
þekkist með 4G.
Margrét segir 5G-net vera stað-
kvæmdarvöru fyrir ljósleiðarateng-
ingar og í því felist mikil tækifæri
fyrir landsmenn.
„Það er ekki komin ljósleiðara-
tenging um allt land. Þetta býður
upp á heilmikil tækifæri og samtal
við yfirvöld um það hvernig eigi að
gera þetta. En þetta er hagkvæmara
og ég tel að þetta sé samtal sem eigi
eftir að fara fram,“ segir Margrét.
Gríðarlegur vöxtur hefur verið á
netnotkun viðskiptavina Nova á síð-
ustu misserum. Á fyrri árshelmingi
ársins 2018 nam meðalnotkun sex
gígabætum en í dag er notkunin að
nálgast 10 gígabæt að meðaltali.
Samkvæmt tölum PFS nota við-
skiptavinir NOVA 54% af allri
gagnanotkun í farsímum.
„5G er eðlileg þróun. Við töluðum
um 4G sem eitthvert rosalegt stökk
en þetta er stanslaus þróun til að
takast á við aukningu á netnotkun
sem kallar á aukna afkastagetu fjar-
skiptakerfa,“ segir Margrét og bætir
því við að stór stökk í nethraða hafi
yfirleitt leitt af sér stofnun fjölda
nýrra fyrirtækja og jafnvel beinar
samfélagsbreytingar. Uppbygging
fjarskiptakerfa sé því mikilvæg inn-
viðafjárfesting.
Að sögn Margrétar verður 5G-
netið byggt upp eftir þörfum. „Þegar
við byggðum upp 4G fór uppbygg-
ingin eftir því hvar þörf væri á meiri
afköstum. Við munum því kortleggja
í sífellu hvar þörf er fyrir að bæta af-
köstin.“
Tóku í notkun fyrsta
5G-sendi landsins
5G Margrét Tryggvadóttir, lengst til vinstri, ásamt 5G-teymi Nova í gær.
Stefnt er á að 5G-netið verði komið í gagnið árið 2020
Tilnefningarnefnd á vettvangi
Origo hefur gert tillögu til aðal-
fundar um fimm stjórnarmenn.
Fyrir aðalfundi liggur tillaga um
að breyta fjölda stjórnarmanna
þannig að í stað þess að í félaginu
sé starfandi fimm manna stjórn
með einum varmanni verði enginn
varamaður kosinn.
Tilnefningarnefndin hefur gert
það að tillögu sinni að stjórn fé-
lagsins haldist óbreytt að öðru
leyti en því að í stað Emilíu
Þórðardóttur, sem sæti hefur átt í
stjórn félagsins frá 2016, og Lofts
Bjarna Gíslasonar, sem setið hefur
í stjórninni frá 2014, komi þau
Svafa Grönfeldt, fyrrverandi rekt-
or HR og núverandi formaður
stjórnar MIT DesignX, og Hjalti
Þórarinsson, sem leiðir nú við-
skiptaþróun á sviði gervigreindar
hjá Microsoft. Svafa hefur ekki átt
sæti í stjórn félagsins áður en
Hjalti hefur setið í varastjórn þess
frá árinu 2017. Tilnefning-
arnefndin gerir tillögu um að
áfram eigi sæti í stjórninni þau
Guðmundur Jóhann Jónsson, for-
stjóri Varðar, Hildur Dungal, lög-
fræðingur hjá innanríkisráðuneyt-
inu, og Ívar Kristjánsson,
framkvæmdastjóri ATMO Select
ehf.
Leggja til að Svafa komi ný inn í stjórn
Hagnaður tryggingafélagsins Varð-
ar nam 1.246 milljónum króna í
fyrra og jókst um
30% frá fyrra ári.
Arðsemi eigin
fjár reyndist
19,2%.
Iðgjöld ársins
námu 10,8 millj-
örðum króna og
jukust um 11%
frá fyrra ári þeg-
ar þau námu 9,7
milljörðum
króna. Tjón árs-
ins jukust um 9% og fóru úr 7,2
milljörðum tæpum í ríflega 7,8 millj-
arða. Segir í tilkynningu frá félag-
inu að afkoma af vátrygginga-
starfsemi hafi verið jákvæð að
undanskildum sjótryggingum en
stórt tjón féll á félagið á síðasta ári.
Lögboðnar ökutækjatryggingar
voru reknar með tapi eins og
undanfarin ár en félagið segir að af-
koma greinarinnar hafi þó batnað
talsvert milli ára. Rekstrarkostn-
aður lækkaði milli ára um 4% og
nam tæpum 2,2 milljörðum króna. Í
byrjun síðasta árs keypti félagið
Okkar líftryggingar og segir Guð-
mundur Jóhann Jónsson, forstjóri
Varðar, að samþætting starfsem-
innar hafi skilað sér í umtalsverðum
samlegðaráhrifum.
Fjáreignatekjur drógust saman
um 24% milli ára og enduðu í 896
milljónum, samanborið við 1.181
milljón á árinu 2017. Eigið fé félags-
ins hækkaði um 9% og nam í lok árs
rúmum 6,7 milljörðum króna. Eign-
ir félagsins stóðu í 21,7 milljörðum
og höfðu aukist um 8% á árinu. Eig-
infjárhlutfall félagsins var 31% í lok
árs og stóð nærri því sem það var í
tólf mánuðum fyrr.
Samsett hlutfall batnaði talsvert
milli ára. Það reyndist 92,3% en
hafði verið 98,3% ári fyrr.
Samkvæmt upplýsingum frá fé-
laginu eru viðskiptavinir þess nú um
65 þúsund talsins. Meðaltals fjöldi
stöðugilda á vettvangi þess var á
síðasta ári 86,5.
Hagnaður Varðar
jókst um 30%
Samsett hlutfall reyndist 92,3%
Vörður
Guðmundur
Meðfylgjandi stuttri umfjöllun á
bls. 15 í ViðskiptaMogga í gær, þar
sem fjallað var um Viðskiptaþing
Viðskiptaráðs Íslands, sem haldið
var í liðinni viku, voru birtar fimm
myndir. Þau mistök urðu að sumar
myndanna voru af þingi ráðsins
sem haldið var í febrúar 2018. Beð-
ist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
Rangar myndir birtust með frétt
Til að sjá gengið
eins og það er
núna á
Skannaðu kóðann