Morgunblaðið - 22.02.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.02.2019, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 Leysingar Eftir kuldatíð hefur hlánað hressilega á höfuðborgarsvæðinu eins og víðar. Þessi töskum hlaðna kona lét færðina ekki vefjast fyrir sér á göngu sinni yfir Klambratún, enda stígvéluð. Hari Nokkrar árlegar ráðstefnur vekja heimsathygli. Ein þeirra er öryggis- ráðstefnan í München sem stofnað var til árið 1963. Upphaflegur til- gangur var að gefa þýskum stjórnmála- mönnum og herfor- ingjum tækifæri til að hitta fulltrúa mikil- vægustu bandamanna sinna. Þetta skipti miklu þegar inn- an við 20 ár voru liðin frá lokum síð- ari heimsstyrjaldarinnar og Þjóð- verjar höfðu ekki verið áratug í NATO. Fram til ársins 1989 ríkti enginn vafi um mikilvægustu bandalagsþjóð Þjóðverja. Bandaríkjamenn skipuðu sérstakan sess. Gagnkvæm sam- skipti þjóðanna voru mikil meðal annars vegna hundruð þúsunda bandarískra hermanna í stöðvum í Þýskalandi. Ráðstefnan í München var haldin í fyrri viku. Hún snýst nú ekki ein- ungis um innri samskipti vestrænna bandamanna heldur sækja hana fulltrúar ríkja frá öllum heims- hornum. Fyrri hluti lokadagsins er til dæmis jafnan helgaður Mið- Austurlöndum og að þessu sinni fór utanríkisráðherra Írans þar mikinn og svaraði ræðu sem Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, flutti daginn áður. Pence hvatti evrópska bandamenn Bandaríkjanna til að rifta kjarnorkusamningnum við Ír- ana og setja þá að nýju í spenni- treyju efnahagsþvingana. Undirtónn ráðstefnunnar er þó enn að treysta samband Þjóðverja og Bandaríkjamanna. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Donald Trump Bandaríkjaforseti bein- ir oft spjótum að An- gelu Merkel Þýska- landskanslara. Á ráðstefnunni svar- aði Merkel úrtölum forsetans um viðskipti ríkjanna með því að hæðast að fullyrð- ingum um að þýskir bílaframleiðendur ógni þjóðaröryggi Banda- ríkjanna. Auk þess mætti minnast þess að stærstu bílasmiðjur BMW væru ekki í Bæj- aralandi heldur Bandaríkjunum. Þýska blaðið Die Welt benti á að tvær fylkingar bandarískra þátttak- enda hefðu sótt München-ráðstefn- una í ár. Annars vegar fulltrúar ríkisstjórnarinnar sem töluðu í skip- unartóni til Þjóðverja og annarra bandamanna sinna, þeir skyldu huga að eigin öryggi og gæta sín á Rúss- um og Kínverjum. Fór Mike Pence varaforseti fyrir þessum hópi. Hins vegar var demókratinn Nancy Pe- losi þingforseti í forystu fyrir beggja flokka hópi bandarískra þingmanna, úr öldungadeildinni og fulltrúadeild- inni. Þeir voru 55, fleiri en nokkru sinni fyrr. Vildu þingmennirnir stað- festa hollustu Bandaríkjamanna við NATO og samstöðu með banda- mönnum sínum, ekki síst Þjóð- verjum. Frá München hélt Pelosi til Brussel og bar lof á NATO og ESB. Tímamót alþjóðakerfis Öllum er ljóst að hart er tekist á milli flokka á Bandaríkjaþingi þótt þeir sameinist að baki NATO. Nú ríkir einnig mikil spenna í sam- skiptum löggjafarvaldsins, þingsins, og framkvæmdavaldsins, forsetans. Spennan birtist ekki aðeins í átök- um um bandarísku fjárlögin og hvort nægu fé sé veitt til gæluverk- efna forsetans eins og Mexíkó- múrsins sem Mexíkanar áttu að vísu að borga samkvæmt kosningaloforði Trumps. Hún birtist einnig í afstöð- unni til alþjóðamála og einkum til fjölþjóðasamtaka. Bandarísku þingmennirnir sem fjölmenntu til München vildu árétta stuðning sinn við alþjóðlega kerfið sem Bandaríkjamenn lögðu grunn að fyrir 75 árum með bandalögum og alþjóðastofnunum. Greinendur alþjóðastjórnmála telja að þetta kerfi sæti nú meiri árásum og þrýstingi en nokkru sinni fyrr. Innan frá sé vegið að því af po- púlisma, þjóðernishyggju og forræð- ishyggju. Utan frá sæti það „vaxandi þrýstingi frá herskáum Rússum og rísandi Kínverjum“ svo að vitnað sé í grein tveggja bandarískra prófess- ora í nýjasta hefti tímaritsins For- eign Affairs. Þeir segja að alþjóða- kerfið sjálft sé ekki aðeins í húfi heldur einnig einstæð efnahagsleg farsæld og friðurinn sem það hefur getið af sér. Alþjóðakerfið sem virkjaði Vest- ur-Þjóðverja og Japani til samstarfs þrátt fyrir blóðug styrjaldarátök var reist á frjálslyndri stefnu þar sem viðskipti og öryggi féllu í einn far- veg. Atlantshafsbandalagið (NATO) og Efnahagsbandalag Evrópu, síðar Evrópusambandið (ESB), voru reist á þessum grunni. Sömu sögu er að segja um Efnahags- og framfara- stofnunina (OECD), GATT sem varð að Alþjóðaviðskiptastofnuninni og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn svo að dæmi séu nefnd. Í samtali við Mike Pompeo, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, í Kastljósi mánudaginn 18. febrúar kom fram að hann telur eitt af meg- inverkefnum sínum sem ráðherra að fylgjast með hvort störf þessara fjöl- þjóðlegu stofnana séu viðunandi í ljósi bandarískra hagsmuna. Að baki býr hollusta við stefnu Trumps um Bandaríkin í fyrsta sæti. Sumir túlka hana sem óvild í garð frjáls- lynda, fjölþjóðlega kerfisins. Í ársskýrslu München-ráðstefn- unnar 2019 sagði Wolfgang Isch- inger, forstöðumaður hennar: „Frjálslynda alþjóðakerfið virðist vera að riðlast. Við stöndum á tíma- mótum: einu skeiði lýkur og við sjáum aðeins móta fyrir útlínum nýs stjórnmálaskeiðs.“ Forræði í stað frjálslyndis Þátttaka í fjölþjóðlegu samstarfi og stofnunum krefst þess að ríki séu til þess búin að slá af eigin hags- munum og stefnu til sátta við banda- menn sína og samstarfsþjóðir. Þetta er einkenni frjálslynda alþjóða- kerfisins. Kerfið fellur illa að stefnu og starfsháttum ríkisstjórna sem að- hyllast forræðis- eða valdboðs- hyggju (e: authoritarianism). Undir þá skilgreiningu falla stjórnvöld í Rússlandi og Kína. Ýmsir halda því fram að draga megi einstaka stjórn- ir í evrópskum lýðræðisríkjum í þennan dilk vegna stjórnarhátta þeirra. Þá er spurning hvaða stimpil á að setja á framgöngu Trumps á al- þjóðavettvangi. Heima fyrir sætir forsetinn nú sérstakri gagnrýni og málsókn vegna valdboðsins um að nýta al- mannavarnasjóði til að fjármagna Mexíkó-múrinn. Áður var unnt að draga hug- sjónalínu milli kommúnista og lýð- ræðislegra andstæðinga þeirra. Vissulega áttu menn samskipti yfir þessa línu en hún lá alltaf í loftinu og skipti Evrópu milli austurs og vest- urs. Eins og málum er nú háttað skipt- ir ekki sambærileg hugsjónabarátta mönnum og þjóðum í skýrar fylk- ingar. Forðast er að minnast á átök milli menningarheima eða með vísan til trúarbragða. Til að greina núverandi stöðu má ef til vill draga skil milli þeirra sem aðhyllast frjálslyndi í samskiptum manna og þjóða og hinna sem vilja að forræðishyggja ráði. Það eru lík- lega útlínur umskipta af því tagi sem Ischinger ýjar að í orðunum hér að ofan. Vegna kosninga til þings ESB í maí nk. eru umræður um þessa nýju markalínu milli flokka í Evrópu há- værar. Samhliða auknu stjórnlyndi og valdboði á heimavelli er krafist minni afskipta frá Brussel. Flokkar sem boða hefðbundið frjálslynt lýð- ræðiskerfi heima fyrir og í alþjóð- legum samskiptum vara við áhrifum öfgaafla. Á ráðstefnunni í München var Angela Merkel fulltrúi hófseminnar. Haft var á orði að ræða hennar hefði vakið mun meiri hrifningu en það sem Mike Pence sagði. Merkel vék að alþjóðakerfinu og sagði það sam- fallið og í mörgum smábrotum. Í orðunum felst spá og viðvörun um óvissu. Við slíkar aðstæður skiptir miklu fyrir vopnlausa smáþjóð á viðkvæmu svæði að utanríkisráðherra öfl- ugasta ríkis heims segi tímabært að hætta vanrækslu tvíhliða samskipta við hana á sviði viðskipta og öryggis- og varnarmála. Eftir Björn Bjarnason »Má ef til vill draga skil milli þeirra sem aðhyllast frjálslyndi í samskiptum manna og þjóða og hinna sem vilja að forræðishyggja ráði. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Alþjóðastraumar frjálslyndis og forræðishyggju Ríkisstjórnin hefur nú kynnt tillögur sínar til um- bóta í skattkerfinu og eru þær gott skref í átt að aukn- um jöfnuði í landinu með þrepaskiptu skattkerfi sem gagnast lágtekjufólki best. Forsætisráðherra hefur einn- ig boðað aðgerðir til að byggja upp heilbrigðan leigu- markað til frambúðar. Það á að gera með stórauknum stofnframlögum í almenna íbúðakerfið. Hægt er að líta á þetta sem endurreisn verkamannabústaðakerfisins, sem illu heilli var aflagt. Þannig býðst tekjulægri hópum að leigja húsnæði á betri kjörum en þeim hefði annars boðist þar sem ríki og sveitarfélög leggja til allt að 30 pró- sent af stofnkostnaði. Þetta er afar mikilvægt, þar sem hækk- andi leiga hefur étið upp stóran hluta kjara- bóta síðustu ára. Þá er lykilatriði að með þessu er horft út fyrir stórhöfuðborgar- svæðið og til stendur að byggja upp al- mennar íbúðir víðar um land þar sem hús- næðisskortur á landsbyggðinni gerir fólki erfiðara að búa utan Reykjavíkur og ná- grennis. Stjórnmálamenn verða í störfum sínum að horfa lengra en til næstu kosninga. Með því að byggja hér upp félagslegan leigu- markað á nýjan leik er verið að horfa til lengri tíma. Alltof lengi hefur opinber stefna einskorðast við að allir eigi sitt eigið húsnæði, sem er ágætt fyrir þá sem eiga efnaða að. Fyrir tekjulágt fólk og ungt fólk getur það hins vegar reynst ókleifur múr að safna fyrir útborgun og leigja á almennum leigumarkaði á sama tíma. Það er fólkið sem þarf félagsleg úrræði og fljótlega munu liggja fyrir tillögur stjórnvalda um stuðning við fyrstu kaup á húsnæði. Það er mikil- vægt að gefa fólki raunverulegt val um að eignast eigið húsnæði eða leigja áfram á heilbrigðum leigumarkaði hvar sem er á landinu. Til að stuðla að uppbyggingu heilbrigðs leigumarkaðar hef- ur forsætisráðherra talað um að ríkið nýti Keldur og jafnvel Keldnaholt sem land undir þróunarvinnu. Það verður skipulagt í samvinnu við borg- ina sem fyrst og þar byggt upp blandað svæði meðfram upp- byggingu annars áfanga borg- arlínu. Þar getur ríkið notað eignir sínar til að tryggja að ákveðinn hluti verði hag- kvæmar leiguíbúðir. Ég tel það góðan val- kost til að veita fólki aðgang að ódýrari leiguíbúðum eftir þörfum með greiðum að- gangi að hágæða almenningssamgöngum. Ég vil einnig nefna að mér finnst brýnt að skoða möguleika á því að ungt fólk af landsbyggðinni sem sækir framhalds- skólanám á höfuðborgarsvæðinu hafi mögu- leika á hagkvæmu húsnæði sem sérstaklega er ætlað þeim nemendum. Eins og stendur eru einungis til staðar nemendagarðar fyrir háskólanema. Þá er auðvitað nauðsynlegt að byggja áfram upp eins og verið er að gera. Það er mikil þörf fyrir heimavist á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhalds- skólanema af landsbyggðinni til að styðja enn frekar við jafnrétti til náms. Byggjum upp til framtíðar og gerum um- bætur sem standast tímans tönn. Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur »Mikilvægt er að gefa fólki raunverulegt val um að eignast eigið húsnæði eða leigja áfram á heilbrigðum leigumarkaði hvar sem er á landinu. Lilja Rafney Magnúsdóttir Höfundur er þingmaður Vinstri grænna og formaður atvinnuveganefndar. Gefum fólki val í húsnæðismálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.