Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Leysingar Eftir kuldatíð hefur hlánað hressilega á höfuðborgarsvæðinu eins og víðar. Þessi töskum
hlaðna kona lét færðina ekki vefjast fyrir sér á göngu sinni yfir Klambratún, enda stígvéluð.
Hari
Nokkrar árlegar
ráðstefnur vekja
heimsathygli. Ein
þeirra er öryggis-
ráðstefnan í München
sem stofnað var til árið
1963. Upphaflegur til-
gangur var að gefa
þýskum stjórnmála-
mönnum og herfor-
ingjum tækifæri til að
hitta fulltrúa mikil-
vægustu bandamanna
sinna. Þetta skipti miklu þegar inn-
an við 20 ár voru liðin frá lokum síð-
ari heimsstyrjaldarinnar og Þjóð-
verjar höfðu ekki verið áratug í
NATO.
Fram til ársins 1989 ríkti enginn
vafi um mikilvægustu bandalagsþjóð
Þjóðverja. Bandaríkjamenn skipuðu
sérstakan sess. Gagnkvæm sam-
skipti þjóðanna voru mikil meðal
annars vegna hundruð þúsunda
bandarískra hermanna í stöðvum í
Þýskalandi.
Ráðstefnan í München var haldin í
fyrri viku. Hún snýst nú ekki ein-
ungis um innri samskipti vestrænna
bandamanna heldur sækja hana
fulltrúar ríkja frá öllum heims-
hornum. Fyrri hluti lokadagsins er
til dæmis jafnan helgaður Mið-
Austurlöndum og að þessu sinni fór
utanríkisráðherra Írans þar mikinn
og svaraði ræðu sem Mike Pence,
varaforseti Bandaríkjanna, flutti
daginn áður. Pence hvatti evrópska
bandamenn Bandaríkjanna til að
rifta kjarnorkusamningnum við Ír-
ana og setja þá að nýju í spenni-
treyju efnahagsþvingana.
Undirtónn ráðstefnunnar er þó
enn að treysta samband Þjóðverja
og Bandaríkjamanna. Oft var þörf
en nú er nauðsyn. Donald Trump
Bandaríkjaforseti bein-
ir oft spjótum að An-
gelu Merkel Þýska-
landskanslara.
Á ráðstefnunni svar-
aði Merkel úrtölum
forsetans um viðskipti
ríkjanna með því að
hæðast að fullyrð-
ingum um að þýskir
bílaframleiðendur ógni
þjóðaröryggi Banda-
ríkjanna. Auk þess
mætti minnast þess að
stærstu bílasmiðjur
BMW væru ekki í Bæj-
aralandi heldur Bandaríkjunum.
Þýska blaðið Die Welt benti á að
tvær fylkingar bandarískra þátttak-
enda hefðu sótt München-ráðstefn-
una í ár. Annars vegar fulltrúar
ríkisstjórnarinnar sem töluðu í skip-
unartóni til Þjóðverja og annarra
bandamanna sinna, þeir skyldu huga
að eigin öryggi og gæta sín á Rúss-
um og Kínverjum. Fór Mike Pence
varaforseti fyrir þessum hópi. Hins
vegar var demókratinn Nancy Pe-
losi þingforseti í forystu fyrir beggja
flokka hópi bandarískra þingmanna,
úr öldungadeildinni og fulltrúadeild-
inni. Þeir voru 55, fleiri en nokkru
sinni fyrr. Vildu þingmennirnir stað-
festa hollustu Bandaríkjamanna við
NATO og samstöðu með banda-
mönnum sínum, ekki síst Þjóð-
verjum. Frá München hélt Pelosi til
Brussel og bar lof á NATO og ESB.
Tímamót alþjóðakerfis
Öllum er ljóst að hart er tekist á
milli flokka á Bandaríkjaþingi þótt
þeir sameinist að baki NATO. Nú
ríkir einnig mikil spenna í sam-
skiptum löggjafarvaldsins, þingsins,
og framkvæmdavaldsins, forsetans.
Spennan birtist ekki aðeins í átök-
um um bandarísku fjárlögin og
hvort nægu fé sé veitt til gæluverk-
efna forsetans eins og Mexíkó-
múrsins sem Mexíkanar áttu að vísu
að borga samkvæmt kosningaloforði
Trumps. Hún birtist einnig í afstöð-
unni til alþjóðamála og einkum til
fjölþjóðasamtaka.
Bandarísku þingmennirnir sem
fjölmenntu til München vildu árétta
stuðning sinn við alþjóðlega kerfið
sem Bandaríkjamenn lögðu grunn
að fyrir 75 árum með bandalögum og
alþjóðastofnunum.
Greinendur alþjóðastjórnmála
telja að þetta kerfi sæti nú meiri
árásum og þrýstingi en nokkru sinni
fyrr. Innan frá sé vegið að því af po-
púlisma, þjóðernishyggju og forræð-
ishyggju. Utan frá sæti það „vaxandi
þrýstingi frá herskáum Rússum og
rísandi Kínverjum“ svo að vitnað sé í
grein tveggja bandarískra prófess-
ora í nýjasta hefti tímaritsins For-
eign Affairs. Þeir segja að alþjóða-
kerfið sjálft sé ekki aðeins í húfi
heldur einnig einstæð efnahagsleg
farsæld og friðurinn sem það hefur
getið af sér.
Alþjóðakerfið sem virkjaði Vest-
ur-Þjóðverja og Japani til samstarfs
þrátt fyrir blóðug styrjaldarátök var
reist á frjálslyndri stefnu þar sem
viðskipti og öryggi féllu í einn far-
veg. Atlantshafsbandalagið (NATO)
og Efnahagsbandalag Evrópu, síðar
Evrópusambandið (ESB), voru reist
á þessum grunni. Sömu sögu er að
segja um Efnahags- og framfara-
stofnunina (OECD), GATT sem varð
að Alþjóðaviðskiptastofnuninni og
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn svo að
dæmi séu nefnd.
Í samtali við Mike Pompeo, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, í
Kastljósi mánudaginn 18. febrúar
kom fram að hann telur eitt af meg-
inverkefnum sínum sem ráðherra að
fylgjast með hvort störf þessara fjöl-
þjóðlegu stofnana séu viðunandi í
ljósi bandarískra hagsmuna. Að baki
býr hollusta við stefnu Trumps um
Bandaríkin í fyrsta sæti. Sumir
túlka hana sem óvild í garð frjáls-
lynda, fjölþjóðlega kerfisins.
Í ársskýrslu München-ráðstefn-
unnar 2019 sagði Wolfgang Isch-
inger, forstöðumaður hennar:
„Frjálslynda alþjóðakerfið virðist
vera að riðlast. Við stöndum á tíma-
mótum: einu skeiði lýkur og við
sjáum aðeins móta fyrir útlínum nýs
stjórnmálaskeiðs.“
Forræði í stað frjálslyndis
Þátttaka í fjölþjóðlegu samstarfi
og stofnunum krefst þess að ríki séu
til þess búin að slá af eigin hags-
munum og stefnu til sátta við banda-
menn sína og samstarfsþjóðir. Þetta
er einkenni frjálslynda alþjóða-
kerfisins.
Kerfið fellur illa að stefnu og
starfsháttum ríkisstjórna sem að-
hyllast forræðis- eða valdboðs-
hyggju (e: authoritarianism). Undir
þá skilgreiningu falla stjórnvöld í
Rússlandi og Kína. Ýmsir halda því
fram að draga megi einstaka stjórn-
ir í evrópskum lýðræðisríkjum í
þennan dilk vegna stjórnarhátta
þeirra. Þá er spurning hvaða stimpil
á að setja á framgöngu Trumps á al-
þjóðavettvangi.
Heima fyrir sætir forsetinn nú
sérstakri gagnrýni og málsókn
vegna valdboðsins um að nýta al-
mannavarnasjóði til að fjármagna
Mexíkó-múrinn.
Áður var unnt að draga hug-
sjónalínu milli kommúnista og lýð-
ræðislegra andstæðinga þeirra.
Vissulega áttu menn samskipti yfir
þessa línu en hún lá alltaf í loftinu og
skipti Evrópu milli austurs og vest-
urs.
Eins og málum er nú háttað skipt-
ir ekki sambærileg hugsjónabarátta
mönnum og þjóðum í skýrar fylk-
ingar. Forðast er að minnast á átök
milli menningarheima eða með vísan
til trúarbragða.
Til að greina núverandi stöðu má
ef til vill draga skil milli þeirra sem
aðhyllast frjálslyndi í samskiptum
manna og þjóða og hinna sem vilja
að forræðishyggja ráði. Það eru lík-
lega útlínur umskipta af því tagi sem
Ischinger ýjar að í orðunum hér að
ofan.
Vegna kosninga til þings ESB í
maí nk. eru umræður um þessa nýju
markalínu milli flokka í Evrópu há-
værar. Samhliða auknu stjórnlyndi
og valdboði á heimavelli er krafist
minni afskipta frá Brussel. Flokkar
sem boða hefðbundið frjálslynt lýð-
ræðiskerfi heima fyrir og í alþjóð-
legum samskiptum vara við áhrifum
öfgaafla.
Á ráðstefnunni í München var
Angela Merkel fulltrúi hófseminnar.
Haft var á orði að ræða hennar hefði
vakið mun meiri hrifningu en það
sem Mike Pence sagði. Merkel vék
að alþjóðakerfinu og sagði það sam-
fallið og í mörgum smábrotum. Í
orðunum felst spá og viðvörun um
óvissu.
Við slíkar aðstæður skiptir miklu
fyrir vopnlausa smáþjóð á viðkvæmu
svæði að utanríkisráðherra öfl-
ugasta ríkis heims segi tímabært að
hætta vanrækslu tvíhliða samskipta
við hana á sviði viðskipta og öryggis-
og varnarmála.
Eftir Björn
Bjarnason »Má ef til vill draga
skil milli þeirra sem
aðhyllast frjálslyndi í
samskiptum manna og
þjóða og hinna sem vilja
að forræðishyggja ráði.
Björn
Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Alþjóðastraumar frjálslyndis og forræðishyggju
Ríkisstjórnin hefur nú
kynnt tillögur sínar til um-
bóta í skattkerfinu og eru
þær gott skref í átt að aukn-
um jöfnuði í landinu með
þrepaskiptu skattkerfi sem
gagnast lágtekjufólki best.
Forsætisráðherra hefur einn-
ig boðað aðgerðir til að
byggja upp heilbrigðan leigu-
markað til frambúðar. Það á
að gera með stórauknum
stofnframlögum í almenna
íbúðakerfið. Hægt er að líta á þetta sem
endurreisn verkamannabústaðakerfisins,
sem illu heilli var aflagt. Þannig býðst
tekjulægri hópum að leigja húsnæði á betri
kjörum en þeim hefði annars boðist þar sem
ríki og sveitarfélög leggja til allt að 30 pró-
sent af stofnkostnaði.
Þetta er afar mikilvægt, þar sem hækk-
andi leiga hefur étið upp stóran hluta kjara-
bóta síðustu ára. Þá er lykilatriði að með
þessu er horft út fyrir stórhöfuðborgar-
svæðið og til stendur að byggja upp al-
mennar íbúðir víðar um land þar sem hús-
næðisskortur á landsbyggðinni gerir fólki
erfiðara að búa utan Reykjavíkur og ná-
grennis.
Stjórnmálamenn verða í störfum sínum
að horfa lengra en til næstu kosninga. Með
því að byggja hér upp félagslegan leigu-
markað á nýjan leik er verið að horfa til
lengri tíma. Alltof lengi hefur opinber
stefna einskorðast við að allir eigi sitt eigið
húsnæði, sem er ágætt fyrir þá sem eiga
efnaða að. Fyrir tekjulágt fólk og ungt fólk
getur það hins vegar reynst ókleifur múr að
safna fyrir útborgun og leigja á almennum
leigumarkaði á sama tíma. Það er fólkið
sem þarf félagsleg úrræði og fljótlega munu
liggja fyrir tillögur stjórnvalda um stuðning
við fyrstu kaup á húsnæði. Það er mikil-
vægt að gefa fólki raunverulegt val um að
eignast eigið húsnæði eða leigja áfram á
heilbrigðum leigumarkaði hvar
sem er á landinu.
Til að stuðla að uppbyggingu
heilbrigðs leigumarkaðar hef-
ur forsætisráðherra talað um
að ríkið nýti Keldur og jafnvel
Keldnaholt sem land undir
þróunarvinnu. Það verður
skipulagt í samvinnu við borg-
ina sem fyrst og þar byggt upp
blandað svæði meðfram upp-
byggingu annars áfanga borg-
arlínu. Þar getur ríkið notað
eignir sínar til að tryggja að
ákveðinn hluti verði hag-
kvæmar leiguíbúðir. Ég tel það góðan val-
kost til að veita fólki aðgang að ódýrari
leiguíbúðum eftir þörfum með greiðum að-
gangi að hágæða almenningssamgöngum.
Ég vil einnig nefna að mér finnst brýnt
að skoða möguleika á því að ungt fólk af
landsbyggðinni sem sækir framhalds-
skólanám á höfuðborgarsvæðinu hafi mögu-
leika á hagkvæmu húsnæði sem sérstaklega
er ætlað þeim nemendum. Eins og stendur
eru einungis til staðar nemendagarðar fyrir
háskólanema. Þá er auðvitað nauðsynlegt
að byggja áfram upp eins og verið er að
gera. Það er mikil þörf fyrir heimavist á
höfuðborgarsvæðinu fyrir framhalds-
skólanema af landsbyggðinni til að styðja
enn frekar við jafnrétti til náms.
Byggjum upp til framtíðar og gerum um-
bætur sem standast tímans tönn.
Eftir Lilju Rafneyju
Magnúsdóttur
»Mikilvægt er að gefa
fólki raunverulegt
val um að eignast eigið
húsnæði eða leigja áfram á
heilbrigðum leigumarkaði
hvar sem er á landinu.
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Höfundur er þingmaður Vinstri grænna og
formaður atvinnuveganefndar.
Gefum fólki val
í húsnæðismálum