Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 22

Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 ✝ Arnþór Krist-ján Jóhannes Jónsson var fæddur í Möðrudal, N-Múl., 21. febrúar 1933. Hann lést á dval- arheimilinu Ísafold í Garðabæ 15. febr- úar 2019. Foreldrar hans voru Jóhanna Arn- fríður Jónsdóttir frá Möðrudal á Hólsfjöllum, f. 16. janúar 1907, d. 6. maí 1986, og Jón Eyjólfur Jó- hannesson frá Fagradal á Fjöll- um, f. 9 apríl 1906, d. 5. október 1981. Arnþór var annar elstur af ára var Guðbjörg Ásgeirsdóttir, alltaf kölluð Stella. Þau héldu góðum vinskap eftir að þau slitu sambúð. Stella lést árið 2012. Arnþór var tónlistarmaður mikill og var lengi með eigin hljómsveit, Tónatríóið, og spilaði um land allt og einnig með öðr- um hljómsveitum. Addi var einn- ig með í leikritum og kvik- myndum. Sem ungur maður vann Addi hjá Geir í Eskihlíð. Hann starfaði einnig lengi á þungavinnuvélum og við vörubílaakstur hjá Vél- tækni og fleiri fyrirtækjum. Addi flutti til Hafnar í Horna- firði og bjó hjá Jóhanni og Hall- dóru systur sinni eftir að hafa lent í alvarlegu slysi árið 1976. Síðar flutti hann með þeim suður þar sem hann fyrst bjó í Kópa- vogi og síðan í Garðabæ. Útförin fer fram frá Digranes- kirkju í dag, 22. febrúar 2019, klukkan 15. átta systkinum: 1) Gunnlaugur Aðal- steinn, látinn. Maki Sigríður Jóna Clau- sen. 2) Þórlaug Aðal- björg, látin. Maki Sigbjörn Sigurðsson 3) Gunnþórunn Anna. Maki Helgi Ei- ríkur Magnússon, látinn. 4) Viggó Arn- ar, látinn. Maki Her- dís Eiríksdóttir. 5) Valgerður Steinunn. Maki Jón Sæ- mundsson. 6) Halldóra Jóna. Maki Jóhann Marion Magnússon Snæ- land, látinn. 7) Kristín Dúlla. Maki Ólafur Rúnar Þorvarðarson. Sambýliskona Adda til margra Þá er Addi frændi farinn í sitt síðasta ferðalag. Okkar fyrstu kynni af Adda voru þegar hann og Stella gáfu okkur páfagaukana Stínu og Stjána. Addi frændi flutti inn á heim- ilið okkar þegar við vorum börn eftir alvarlegt slys sem hann lenti í. Addi var mjög barngóður og var mikið sungið og spilað á gítar og harmonikku. Addi reyndi að kenna okkur á gítar en við tókum ekki svo vel við og lærðum við aldrei að spila nokkuð af viti. Okkar fyrstu kynni af rokki og róli voru hjá Adda. Við hlustuðum mikið á Elvis Presley með Adda og var sungið hátt og líka dansað. Munum við með gleði eftir ferðunum til Reykjavíkur þar sem Addi bauð okkur í Þjóðleik- húsið. Við sátum alltaf í stúku eins og prinsessur og horfðum niður á leikarana. Við fórum líka með Adda í gamla útvarpshúsið þar sem við sáum fólkið sem við höfðum heyrt í útvarpinu. Addi þekkti svo marga þarna og við fengum að sjá hvar allar plöturnar voru geymd- ar og velja hvor sitt lagið, með ABBA og Olivia Newton-John. Addi þekkti mikið af litríku fólki og vorum við svo heppnar að fá að hitta nokkra af þeim. Með Adda upplifðum við menningu stórborgarinnar. Addi gaf Hörpu fyrsta hjólið, appelsínugult hjól með banana- sæti og lærði hún að hjóla á þessu æðislega hjóli. Þegar við urðum eldri stóð aldrei á Adda að hjálpa okkur, hvort sem það var með bílana okkar, íbúðir eða hús. Við vitum að það hefur verið tekið vel á móti þér hinumegin við hæðina. Pabbi hefur nú verið fyrstur í flokki að taka á móti Herforingj- anum ásamt foreldrum þínum, systkinum og mörgum fleirum. Nú andar suðrið sæla vindum þýðum; á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum. Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum um hæð og sund í drottins ást og friði; kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði; blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum. Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysu í sumardal, að kveða kvæðin þín, heilsaðu einkum, ef að fyrir ber engil, með húfu og rauðan skúf, í peysu; þröstur minn góður, það er stúlkan mín. (Jónas Hallgrímsson) Þínar frænkur Alma Dögg Jóhannsdóttir og Harpa Mjöll Jóhannsdóttir Snæland. Elsku besti Addi minn. Nú er komið að kveðjustund, minningarnar streyma í huga minn. Elsta minningin sem ég á er um jólasvein sem kom í Barma- hlíðina og það í eitt skipti á bílnum hans Viggós. Minningarnar um töffarann sem spilaði á gítar eða harmon- ikku og söng rokklög, alltaf var gleði og kærleikur í kringum þig, flottari frænda var ekki hægt að eiga. Seinna þegar þú komst í Barmahlíðina og við hlustuðum á Elvis og sungum saman, ræddum um lögin hans. Þú kenndir mér að dansa við Tutti Frutti, og mikið var gaman alltaf í kringum þig. Elsku Addi, takk fyrir allar minningarnar sem við krakkarnir eigum um þig, takk fyrir að vera fallegi og góði frændi minn. Þín frænka, Jóhanna Jóna. Í dag kveð ég góðan vin og fé- laga Arnþór Jónsson, eða Adda eins og hann var ævinlega kall- aður. Á árum áður ók Addi flutn- ingabíl milli Reykjavíkur og Eg- ilsstaða og oft í misjöfnu veðri eins og gengur. Síðar vann hann um tíma í ofnaverksmiðjunni Runtal. En fyrst og fremst átti tónlistin hug hans allan. Á Grettisgötunni hjá þeim Adda og Stellu var oft gestkvæmt og þétt setinn bekkurinn. Sumir komu þar til að fá sína fyrstu tilsögn í tónlist, aðrir til að spjalla. Síðustu árin dvaldi Addi á dvalarheimili fyrir aldraðra og þangað heim- sótti ég hann oft. Þegar leikið var á hljóðfæri, harmonikku eða gítar tók hann gjarnan lagið og söng þá manna hæst. Ég kveð Adda með hlýjum huga. Herdís Eiríksdóttir. Arnþór Kristján Jóhannes Jónsson  Fleiri minningargreinar um Arnþór Kristján Jóhannes Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. HINSTA KVEÐJA Elsku Addi frændi. Ég á eftir að sakna þín. Alltaf varstu með bros á vör þegar ég hitti þig. Það var svo gaman að heimsækja þig og púsla með þér. Þinn frændi, Jón Ágúst. Elsku frændi. Það er alltaf erfitt að kveðja, þó svo kominn hafi verið tíminn fyrir þína hvíld. Ég mun aldrei gleyma þér, eða okkar góðu stundum saman. Ekki var langt í hláturinn, já eða Elvis, gamla góða Elvis. Ég bið endilega að heilsa honum og ímynda mér ykk- ur taka nokkur lög saman. Þinn frændi Jóhann. ✝ María GuðrúnGuðmunds- dóttir fæddist á Kaldeyri við Ön- undarfjörð 19. ágúst 1933. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 10. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Friðriksson, f. 22. desember 1892 á Kvíanesi, Staðarsókn, V- Ísafjarðarsýslu, d. 5. janúar 1974, og Guðrún Jóna Kristjáns- dóttir, f. 1. júlí 1892 í Svalvog- um í Dýrafirði, d. 14. mars 1972. María var elst fjögurra systk- ina, þau eru: Ólafur, f. 1934, d. 2015, Kristjana, f. 1936, og Jón, f. 1942. María giftist 17. október 1953 Gunnlaugi Einari Kristjánssyni, f. 8. maí 1930, d. 20. mars 2017. Börn þeirra eru. 1) Guðrún, f. 1953, maki Jónas Steinþórsson, f. 1952, þau eiga þrjú börn. 2) Kristján, f. 1956, maki Dallilja Inga Steinarsdóttir, f. 1959, þau eiga þrjú börn. 3) Guðmundur, f. 1959, maki Dag- björt I. Bærings- dóttir, f. 1964, þau eiga fjögur börn, 4) Þröstur, f. 1961, maki Helga Guð- mundsdóttir, f. 1964, þau eiga þrjú börn. 5) Jóhann, f. 1962, maki Vaka Helga Ólafsdóttir. f. 1958, hann á þrjú börn. Barnabörn og barnabarnabörn eru 27 tals- ins. María bjó á Efstabóli við Ön- undarfjörð til 14 ára aldurs, þá fluttist hún til Flateyrar, þar sem hún hafði ráðið sig í vist. Hinn 1. júlí 1951 flutti hún til Stykkishólms og gerðist vinnu- kona hjá fjölskyldu Ebenesar Ásgeirssonar, sem flutti á sama tíma til Stykkishólms. María vann m.a. í fiski, í eld- húsi St. Franciskusspítalans, og yfir 20 ár á Dvalarheimili aldr- aðra í Stykkishólmi, þar til hún lét af störfum sakir aldurs. Útför Maríu fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 22. febrúar 2019, klukkan 14. Elsku langamma. Allar minningarnar sem við eigum saman, ég mun aldrei gleyma þeim. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég byrjaði að vinna á Dvaló, hvað þú varst stolt af mér, hvað ég væri dugleg og ynni vel, og væri dugleg að hjálpa öllum, væri alltaf á hlaupum. Minningarnar sem ég á heima hjá þér á Tjarnarási með dollurnar að búa til virki, hús og í dollukasti, og þegar ég var yngri kom ég oft til þín og afa og fór stundum með þér í búðina, þá setti ég fjölnota bón- uspoka á hausinn til þess að vita ekki hvenær við færum af stað. Það var gott að koma til ykkar langafa og fá mjólk, kex og kökur, allar þessar minningar elska ég og mun aldrei gleyma þeim. Ég er glöð að hafa fengið að vinna á Dvaló síðastliðið ár þar sem þú bjóst og fengið að passa uppá þig. Þú verður alltaf ofarlega í hjarta mínu og ég mun elska þig alla ævi og reyna að fara varlega í umferð- inni eins og þú baðst mig svo oft um. Ég mun heldur ekki gleyma „eitt djúsglas“ fyrir nóttina og smá kex ef það var í boði. Útilegurnar sem ég átti með þér og langafa í Skógarnesi voru í miklu uppáhaldi hjá mér, alltaf með nammi og eitthvert góðgæti- .Það voru forréttindi að hafa lang- ömmu eins og þig, alltaf að hrósa mér. Ég elska þig alltaf og veit að þú verður með mér, ég vona að þér líði vel núna hjá langafa. Hvíldu í friði, elsku langamma, Margrét Lilja. María Guðrún Guðmundsdóttir ✝ Guðrún BetaGrímsdóttir, fæddist 25. maí 1923 í Leiti í Ör- lygshöfn við Pat- reksfjörð. Hún andaðist í Brák- arhlíð, hjúkrunar- og dvalarheim- ilinu í Borgarnesi, 17. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin María Jónsdóttir, húsmóðir, f. 11.4. 1893, d. 1.11. 1946, og Grímur Árnason, útvegsbóndi, f. 30.11. 1891, d. 2.1. 1972. Guðrún var þriðja í röðinni í 10 systkina hópi, en systkini hennar eru: Ólína Sigríður, f. 19.7. 1920, d. 1934, Hrefna, f. 22.9. 1921, d. 15.2. 1924, Arn- gerður Jóhanna, f. 13.6. 1925, Guðmundur Bjarni, f. 21.10. 1926, d. 24.1. 2001, Rakel, f. 25.6. 1928, d. 18.7. 2016, Elín Gréta, f. 3.1. 1930, Kristrún, f. 3.7. 1931, Sólveig, f. 20.1. 1933, og Óskar Veturliði, f. 11.4. 1934. Eiginmaður hennar var Ein- ar Tómas Guðbjartsson, f. 27. júlí 1911, d. 23. ágúst 1979. föður sínum ung að árum og vann öll almenn sveitastörf og aðstoðaði við uppeldi systkina sinna. Þegar heimili foreldra hennar leystist upp í kjölfar veikinda föður hennar, þá bjó Kristrún hjá henni og Einari. Fyrstu sambúðarárin voru þau Einar í Kollsvíkinni, en flutt- ust síðan í Örlygshöfn og byggðu sér lítið hús á Gjögr- um, en þar var Einar kaup- félagsstjóri, við Sláturfélagið Örlyg. Árið 1950 fluttu þau úr sveitinni sinni til Súðavíkur. Eftir það bjuggu þau í Flatey, á Ásum í Saurbæ, Vegamótum á Snæfellsnesi, Hellissandi, Selfossi og Laugarvatni, þar sem hann vann við kaup- félögin, sem útibús- eða kaup- félagsstjóri. Þau fluttu í Borgarnes 1967. Guðrún starf- aði einnig í verslunum kaup- félaganna og sá um veit- ingarekstur á Vegamótum. Í Borgarnesi vann hún í versl- unum Kaupfélags Borgfirð- inga til sjötugs. Þau voru bæði mikið samvinnufólk. Þau Ein- ar unnu mikið við byggingu á húsi sínu, sem þau reistu á Böðvarsgötu 17, er þau fluttu í Borgarnes. Einnig gerðu þau upp lítinn sumarbústað. Síðustu fimm árin bjó hún í Brákarhlíð. Útför Guðrúnar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 22. febrúar 2019, klukkan 14. Hann var frá Láganúpi í Kolls- vík. Kjördóttir þeirra er María Jóna Einarsdóttir, f. 13.2. 1953 í Súðavík. Eigin- maður hennar er Hreggviður Hreggviðsson, f. 14.2. 1951. Sonur Maríu og Halldórs Guðlaugssonar, f. 28.8. 1953, er Einar Guðmar, f. 10.6. 1975, eiginkona hans er Halla Kristjánsdóttir, f. 16.4. 1981, dóttir þeirra er El- ísabet María, f. 2016. Börn Maríu og Hreggviðs eru: 1) Magnús, f. 15.8. 1982, unnusta hans er Fía Ólafsdóttir, f. 25.2. 1989. 2) Guðrún Jóna, f. 21.3.1984, eiginmaður hennar er Sigurður Hjalti Magnússon, f. 30.4. 1983, þeirra börn eru: Signý Ylfa, f. 2001, Hregg- viður Magnús, f. 2008, og Starkaður Enok, f. 2010. 3) Sesselja Hreggviðsdóttir, f. 23.8. 1992. Guðrún ólst upp á Grundum í Kollsvík á næsta bæ við Einar. Hún reri til fiskjar með Það er ein bæn sem hljóðar svo: Guð gefðu mér hlutverk í lífinu og líf til að sinna því hlut- verki. Hún mamma fékk mörg hlut- verk í lífinu og langt og farsælt líf til að sinna þeim. Fyrsta hlutverkið var að vera góð og hjálpsöm dóttir og systir, sem aðstoðaði við upp- eldi systkina sinna og gekk til verka með föður sínum, s.s. að róa til fiskjar og að sinna úti- verkum. Mörg þeirra verka voru það erfið að þau gengu nærri henni, en ekki var kvart- að. Vildi til að hún var hraust og metnaðargjörn. Annað hlutverk sem hún var trú, en það var að vera eigin- kona og leit hún upp til Einars manns síns og hélt myndar- heimili, sem prýtt var ýmiss konar hannyrðum. Einnig var ætíð til nóg með kaffinu og rausnarlega tekið á móti öllum sem komu. Það stóra hlutverk að ganga mér í móðurstað, þó að ég ætti aðra mömmu og ala mig upp og koma mér til manns, var ekki lítið, þó held ég að ég hafi verið frekar hlýðin. Því hlutverki sinnti hún út í æsar ásamt pabba. Ömmuhlutverkið var stórt og kölluðum við öll í fjölskyldunni hana ömmu. Ef hefði verið handrit til staðar fyrir það hlut- verk er ég ekki viss um að höf- undur hefði haft hugmyndaflug að skrifa það hlutverk sem hún lék. Allavega ekki dottið í hug öll prakkarastrikin sem hún framkvæmdi með ömmubörn- unum. Eitt stærsta hlutverk hennar í lífinu var að rækta samband við systkini sín, en þau hafa alla tíð verið einstaklega sam- heldin og náin. Einnig var mik- ið vináttusamband við systkini pabba og frændfólk þeirra beggja. Þá entist vinátta við marga sem hún vann með út ævina, svo og þá sem þau pabbi kynnt- ust á öllum þeim stöðum sem þau bjuggu á. Í sumarfríum var ferðast og frændfólk og vinir heimsóttir. Það hlutverk í lífinu sem hún var einstaklega trú var að sinna í verki samvinnuhugsjóninni og helst var ekki verslað nema í kaupfélaginu. Enda unnu þau pabbi þar alla tíð. Leitun að jafn miklum kaupfélagsmanneskjum og þau voru. Væri akkur fyrir hvaða fyrirtæki sem er að hafa jafn trúa manneskju í vinnu og hún var. Það hlutverk sem var efst á lista ungmennafélagsins í henn- ar ungdæmi var bindindi á vín. Enda var messuvínið við ferm- inguna, sem hún kyngdi ekki og ætlaði að reyna að skyrpa út úr sér, þegar út væri komið, eina vínið sem hún drakk um ævina. Þá reykti hún eina og hálfa sígarettu við tannpínu og þar lauk reykingum hennar. Vestfirðingshlutverkið litaði öll önnur hlutverk hennar í líf- inu og neitaði hún m.a. að kalla sig Borgnesing, þrátt fyrir meira en hálfrar aldar búsetu í Borgarnesi. Hún sagðist vera Vestfirðingur og ekkert annað. Hafðu þökk fyrir allt. Þín dóttir, María Jóna Einarsdóttir. Er ég minnist Guðrúnar tengdamóður minnar, koma ýmsir eiginleikar í huga, sem ekki eru öllum gefnir. Þar má nefna heiðarleika, dugnað, sjálfsaga, reglusemi, auðmýkt gagnvart minnimáttar, að fresta engu sem hægt er að gera í dag, snyrtimennsku og myndarskap í öllu og gestrisni. Einnig var Guðrún einstök áhugamanneskja um samvinnu- hreyfinguna og kaupfélögin, björgunarsveitir og veru í kvenfélaginu heima í Borgar- nesi. Einar heitinn og Guðrún bjuggu og störfuðu víða við lítil kaupfélög vestanlands, en af öllum þeim stöðum sem hún unni, var henni sérstaklega minnisstæð vera í Dölunum þar sem þau ráku Kaupfélagið í Saurbæ. Þar tók á móti þeim sérstakur hlýhugur og sam- heldni. Við hjónin, Guðrún og börn okkar bjuggum undir sama þaki á Böðvarsgötu 17 í Borgarnesi. En slíkt treysta sér ekki allir til að gera. Ef María brá sér af bæ, lét hún undirritaðan og börnin ekki skorta fæðu, enda þeirrar skoðunar að húshald og eldamennska væri eingöngu konum fært og ætlað. Það má segja að auðveldara væri að telja upp það sem Guð- rún gerði ekki í höndunum, en það sem hún gerði og gerði vel. Ýmis námskeið sótti hún hvað handverk snerti og handverks- sýningar sem hún hafði áhuga á. En prjóna- og saumaskapur stóðu þar sannarlega upp úr, enda afkastamikil með afbrigð- um á þeim sviðum. Guðrún var líka mikil barna- og dýragæla. Gæsir voru af dýrum efstar á blaði, enda hélt hún aligæs fyrir vestan. Mikill og trúr Vestfirðingur er genginn með Guðrúnu og virðingarverð persóna í verki. Hún og Einar heitinn voru ævi- félagar í Slysavarnafélaginu, nú Landsbjörg, enda upplifðu þau tvo hörmulega sjóskaða í ná- lægð með eins árs millibili og tóku þátt í að aðstoða við björg- un í þeim síðari. Hreggviður Hreggviðsson. Guðrún Beta Grímsdóttir  Fleiri minningargreinar um Guðrúnu Betu Gríms- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.