Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Hálsmen 10.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 9.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Eyrnalokkar 5.500,- Eyrnalokkar 5.500,- Skíðaíþróttin er skemmtileg og nú fara í hönd góðir dagar fyrirnorðan. Við verðum hér við fram yfir helgi og ætlum að njótaþess besta sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Við erum með íbúð á leigu og erum í bæ þar sem er frábært að vera,“ segir Dögg Hjaltalín, bókaútgefandi hjá Sölku, en hún er 42ja ára í dag. „Lífið snýst að sjálfsögðu mikið um bækurnar. Rekstur útgáf- unnar er umsvifamikill og í mörg horn að líta og ég les mikið, bæði handrit og aðrar bækur sem tengjast Sölku en einnig allskyns bæk- ur sem vekja áhuga minn. Ég lauk nýlega við Brennu-Njálssögu sem ég hafði ekki lesið síðan í skóla og svo er ég alltaf með ljóða- safn Tómasar Guðmundssonar á náttborðinu. Núna er ég líka að hlusta á og lesa bókina Becoming, ævisögu Michelle Obama, fyrrver- andi forsetafrúar Bandaríkjanna. Ég kemst alls ekki yfir allar þær bækur sem mig langar til að lesa enda hef ég áhuga á mörgu,“ seg- ir Dögg sem var blaðamaður til fjölda ára. Starfaði lengst á Við- skiptablaðinu, rak eigin bókabúð og var síðan um nokkurt skeið upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, svo eitthvað sé nefnt. Vetrarfrí í grunnskólum landsins er nú framundan og þá bregða margir undir sig betri fætinum. „Það vill svo skemmtilega til að mjög margir vina minna eru fyrir norðan í fríi og því ætla ég að halda upp á afmælið mitt þar, skála og bjóða upp á eitthvað gott í gogginn eftir vonandi góðan dag í brekkunum,“ segir Dögg sem er gift Ólafi Finnbogasyni fasteignasala hjá Mikluborg. Dæturnar eru þrjár; Agnes sem er nýorðin tvítug, Freyja sem verður níu ára á mánudaginn og yngst er Rán sem verður þriggja ára í vor. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Ófeigur Salka „Lífið snýst mikið um bækurnar,“ segir Dögg Hjaltalín. Dagar á Akureyri Dögg Hjaltalín útgefandi er 42ja ára í dag B ryndís Víglundsdóttir fæddist 22. febrúar 1934 í Reykjavík. „Heimili okkar var við Laugaveg 70 þar sem við vorum á veturna. Faðir minn byggði sumarbústað í Fossvoginum, sunnan og austan við þar sem Borgarspítalinn stendur nú. Þar var yndislegt að vera og busluðum við krakkarnir í Fossvoginum þegar féll að á kvöldin eftir sólríka daga því að þá var sjórinn volgur. Mikið fuglalíf var í móunum allt í kring og ævintýrin alls staðar. Ég fór ung í sveit austur í Rangárvallasýslu til Jóns Árna- sonar, bónda á Lækjarbotnum í Landsveit, og konu hans Steinunnar Loftsdóttur. Hjá þeim átti ég mörg góð sumur og get ekki nógsamlega þakkað að fá að kynnast hinum fornu búskapar- og lífsháttum sem voru enn stundaðir á Lækjar- botnum árin sem ég var þar.“ Bryndís var í Austurbæjarskóla og tók stúdentspróf frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1955, tók kennarapróf frá KÍ 1956, var í námi við Iowa State Teacher’s College 1958-59 og við Perkins School for the Blind, Boston University, 1961- Bryndís Víglundsdóttir, kennari og fv. skólameistari – 85 ára Á Möltu Á myndinni, tekinni í október 2015, eru, ásamt Bryndísi, Grímur, Geirlaug og börn þeirra: Guðmundur Ottó, Grímur Dagur með fuglinn og Snæfríður og eiginmaður Snæfríðar, Jónas sem er Maltverji og er lengst til vinstri. Slær ekki slöku við Lestrarstund Bryndís les fyrir Frosta Þey, son Bryndísar Gyðu, sonar- dóttur hennar, og Gísla Katrínarsonar manns hennar. „Ég hef stundað það að segja börnum sögur og hvet fólk til að gera slíkt hið sama.“ Súðavík Malía Charlotta Antonsd. Christensen fæddist 14. júní 2018 kl. 6.17. Hún vó 3.944 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Eva Rós Gunn- arsdóttir og Anton Ívar Ísaksson Christensen. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.