Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 27
62, og tók sérkennarapróf þar. Hún
var einnig í námi við University of
Southern Florida, Tampa, 1980-81.
Bryndís var kennari við Austur-
bæjarskólann 1956-58 og 1959-61,
var við kennslu og nám við Perkins
School for the Blind, 1961-64, kenn-
ari við Heyrnleysingjaskólann 1964-
68, kennari við Perkins School for
the Blind 1968-72, skólastjóri skóla
fyrir fjölfötluð börn 1972-73, kenn-
ari við Flataskóla í Garðabæ 1973-
76 og skólastjóri Þroskaþjálfaskóla
Íslands 1976-97. Hún vann einnig að
menntamálum fjölfatlaðra á
Norðurlöndum og á alþjóðlegum
vettvangi.
„Þegar ég lauk launavinnu tók við
tími afskipta og stuðnings við af-
komendur og þátttaka í félagsstarfi
aldraðra. Ég er upphafsmaður
rannsóknar um framlag eldri borg-
ara til samfélagsins sem Rann-
sóknastofnun Kennaraháskóla Ís-
lands gerði með Samband íslenskra
sparisjóða að bakhjarli. Að lokinni
rannsókninni sem fræðimenn telja
einstaka að umfangi og uppbygg-
ingu fóru rannsakendur, þær Ingi-
björg Harðardóttir, lektor við KHÍ,
og Amalía Björnsdóttir, dósent við
KHÍ, ásamt mér í hringferð um
landið og kynntum við eldri borg-
urum niðurstöðurnar við afar góðar
viðtökur hvarvetna. Alls var haldinn
21 fundur.“
Bryndís hefur enn fremur sinnt
ritstörfum og þýðingum og flutt
fjölda erinda í útvarpinu. Hún var
t.d. með þáttaröðina Á indíána-
slóðum sem voru 30 erindi flutt í
RÚV um indíána Norður-Ameríku á
árunum 1975-1980. Hún stofnaði
hljóðbókaútgáfuna Gaman að lifa
2007 með Elínu Sigurgeirsdóttur
tannlækni og voru gefnar út nokkr-
ar bækur, m.a. frumsamdar sögur
eftir Bryndísi eins og Sögur af
Munda.
Bryndís hlaut riddarakross hinn-
ar íslensku fálkaorðu 1989 vegna
starfa að málefnum fatlaðra og var
sæmd gullmerki Skólameistara-
félags Íslands 2001.
„Í gær var ég á fundi með fólki
sem er að vinna að verkefni sem er
kallað Snorri deaf og snýst um það
að tengja heyrnarlaust fólk á Ís-
landi og heyrnarlaus skyldmenni í
Norður-Ameríku. Það þarf að huga
að mörgu í tengslum við verkefnið
sem er bæði skemmilegt og gef-
andi.“
Fjölskylda
Eiginmaður Bryndísar (giftu sig
23.6. 1962) var Guðmundur Bjarna-
son, bóndi og skógræktarmaður hjá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur, f.
16.8. 1922 í Álfadal á Ingjaldssandi,
d. 26.4. 1983. Foreldrar hans voru
hjónin Jóna Guðmundsdóttir, hús-
móðir þar, f. 15.10. 1889, d. 10.5.
1979, og Bjarni Ívarsson, bóndi þar,
f. 5.4. 1888, d. 5.9. 1970.
Börn Bryndísar og Guðmundar
eru: 1) Grímur Guðmundsson raf-
eindavirkjameistari, f. 17.4. 1964 í
Boston, maki: Geirlaug Ottósdóttir,
táknmálstúlkur og grunnskólakenn-
ari, börn þeirra: Bryndís Gyða,
Snæfríður, Guðmundur Ottó og
Grímur Dagur; 2) Sólbjört Guð-
mundsdóttir, ráðgjafi og jógakenn-
ari, stofnandi og eigandi Ljósheima,
f. 23.11. 1969 í Boston, maki: Pálmi
Símonarson verkfræðingur.
Systkini: Bergþóra, f. 3.1. 1931, d.
10.12. 2006, húsfreyja og skrifstofu-
maður í Reykjavík; Sigrún, f. 22.5.
1932, húsfreyja í Reykjavík; Jón, f.
30.6. 1930, bakarameistari í Reykja-
vík; Björgvin, f. 4.5. 1946, verk-
fræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Bryndísar voru hjónin
Margrét Grímsdóttir húsmóðir, f.
12.8. 1908 í Reykjavík, d. 19.12.
1999, og Víglundur Jósteinn Guð-
mundsson bifreiðarstjóri, f. 30.9.
1905 á Stokkseyri, d. 15.1. 1987.
Úr frændgarði Bryndísar Víglundsdóttur
Bryndís
Víglundsdótttir
Víglundur Jósteinn Guðmundsson
bílstjóri í Reykjavík
Þóranna Þorsteinsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Þorsteinn Oddsson
bóndi á Ragnheiðarstöðum,
síðar verkamaður í Reykjavík
Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja á Ragnheiðarstöðum í Flóa
Guðný Pétursdóttir
vinnukona í Rvík
Hörður Ársælsson
bifvélavirki í Rvík
Ársæll Harðarson forstöðum. hjá
Icelandair og formaður stjórnar
Íslenska-kínverska viðskiptaráðsins
Guðbjörg
orsteinsdóttir
húsfr. í
Reykjavík
Þ
Þorsteinn
Ingvarsson
akarameistari
í Rvík
b
Þorsteinn
Þorsteinsson fv.
skólameistari
Fjölbrautaskóla
Garðabæjar
Magnús Pétursson
iðnverkamaður í Rvík
Siguroddur Magnússon
rafverktaki
Bogi Þór Siguroddsson
eigandi og stjórnar-
formaður Johan Rönning
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja Reykjavík
Guðmundur Sigurðsson
kaupmaður í Reykjavík
Sigurður Hansson
sjómaður í Hull
Magnús
Gíslason
verslunarmaður
í Garði
Ásta Magnúsdóttir
ráðuneytisstjóri
mennta- og
menningarmála-
ráðuneytisins
Gísli Matthías
Sigurðsson bóndi
að Miðhúsum í
Garði
Jón Grímsson
formaður á Stokkseyri
Ingveldur Jónsdóttir
húsfreyja á Stokkseyri
Grímur Jónsson
sjómaður í Reyjavík
Sumarlína Pétursdóttir
húsfr. í Reykjavík
Pétur Árnason
bóndi í Miðdal
Margrét Benjamínsdóttir
húsfreyja í Miðdal í Kjós
Margrét Grímsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði
GLÆSILEGUR BORÐBÚNAÐUR
FYRIR HÓTEL OG VEITINGASTAÐI
Ágúst Einar Birgir Björnssonfæddist 22.2. 1935 á Sjón-arhóli í Hafnarfirði. For-
eldrar hans voru hjónin Guðbjörg
Jónsdóttir, f. 1894, d. 1993, húsfreyja
á Sjónarhóli, og Björn Eiríksson, f.
1894, d. 1983, bifreiðarstjóri.
Birgir lauk Barnaskóla Hafnar-
fjarðar 1948, tók sveinspróf í vél-
virkjun 1956, hlaut meistararéttindi
1960 og lauk vélstjóraprófi 1957.
Birgir starfaði m.a. hjá Vélsmiðj-
unni Kletti, rak Bílaleiguna hf. og
verslunina Hjólið í nokkur ár. Síðan
starfaði hann hjá Loftleiðum á
Keflavíkurflugvelli, Steypustöð
Breiðholts og Slippstöðinni á Akur-
eyri. Birgir varð forstöðumaður
íþróttahúss FH í Kaplakrika 1989 og
starfaði þar til 67 ára aldurs. Þá fór
hann til Englands og lærði kylfu-
smíði hjá Golfsmith og starfaði við
það sér til ánægju.
Birgir var virkur þátttakandi í
starfi Sjálfstæðisflokksins á sínum
yngri árum og var meðal annars for-
maður Stefnis – félags ungra sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði.
Birgir lék 500 meistaraflokksleiki
í handbolta með FH á 20 ára ferli
sínum og var fyrirliði allan tímann.
Einnig þjálfaði hann liðið í mörg ár.
Hann varð 27 sinnum Íslands-
meistari með FH. Birgir lék 29
landsleiki fyrir Ísland, var m.a. fyrir-
liði landsliðsins er Ísland tók í fyrsta
sinn þátt í heimsmeistarakeppni í
handbolta 1958. Birgir var einnig
þjálfari landsliðsins um tíma og átti
sæti í landsliðsnefnd HSÍ.
Birgir var einn af stofnendum
Golfklúbbsins Keilis og var m.a. for-
maður klúbbsins í tvö ár. Hann fékk
margar viðurkenningar fyrir störf
sín í þágu íþróttanna, m.a. er hann
heiðursfélagi í FH, fékk gullmerki
HSÍ, Keilis, ÍBH, KA og heiðurs-
kross ÍSÍ.
Hinn 18.4. 1959 kvæntist Birgir
Ingu Magnúsdóttur, f. 10.3. 1939,
bús. í Hafnarfirði. Börn þeirra eru
Magnús, f. 1959, Sólveig, f. 1961 og
Laufey, f. 1966.
Birgir lést 2. september 2011.
Merkir Íslendingar
Birgir
Björnsson
101 árs
Snæbjörn Gíslason
100 ára
Ágústína Sveinsdóttir
95 ára
Jóhanna Gunnlaugsdóttir
90 ára
Guðrún Guðmundsdóttir
Steinunn Guðbjörg Jónasd.
85 ára
Bryndís Víglundsdóttir
Ragnheiður Þórðardóttir
80 ára
Guðrún Bjarnadóttir
Guðrún Pála Hannesdóttir
Helga Jarþrúður Jónsdóttir
Hrönn Vilborg Hannesdóttir
75 ára
Ingvar Benediktsson
Mary Pat Frick
Sigrún Magnúsdóttir
Svala Ernestdóttir
Þórarinn Jónsson
70 ára
Arndís Lilja Albertsdóttir
Auður Reinhardsdóttir
Erna Kristjánsdóttir
Eyjólfur Garðarsson
Fríða Kristín E. Guðjónsd.
Guðfinna Ingimarsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Jens P. Hjaltested
Jósep Sigurjónsson
Kristín Katla Árnadóttir
Kristján Benediktsson
Ómar Árni Kristjánsson
Svanfríður Hagvaag
Sveinbjörn Jónsson
60 ára
Barbara Muczynska
Elí Leó Dýri Nönnuson
Guðlaug Böðvarsdóttir
Guðrún Sverrisdóttir
Hanna Magnúsdóttir
Jónas Arndal Leifsson
Jónína Valsdóttir
Kolbrún Eggertsdóttir
Nanna Kristjana Árnadóttir
Stefán H. Sigmundsson
Sævar Berg Ólafsson
Una Guðrún Einarsdóttir
50 ára
Belinda Mirandilla
Bergur Garðarsson
Bjarki Haraldsson
Guðrún Geirsdóttir
Ómar Dagbjartsson
Stefanía A. Halldórsdóttir
Sverrir Þór Gústafsson
Þór Emilsson
Þórhalla Sigmundsdóttir
40 ára
Aðalheiður Elín Bergsdóttir
Alfreð Hjörtur Samúelsson
Árni Víkingur Hafsteinsson
Davíð Halldór Erlingsson
Elínborg Jóhannesdóttir
Guðbjörg Rúna Vilhjálmsd.
Helga Björk Gunnarsdóttir
Karl Henry Hákonarson
Kulisara Tonan
Margrét A. Hauksdóttir
Ragnar Már Róbertsson
Ragnheiður Kolsöe
30 ára
Arnar Jónsson
Ágústa Ýr Sveinsdóttir
Elma Rut Jónsdóttir
Estera Natalia Mikulska
Karen Lena Óskarsdóttir
Margrét Lilja Gunnarsdóttir
Saga Líf Friðriksdóttir
Steinar Þorri Tulinius
Þór Högni Hrafnsson
30 ára Börkur er Njarðvík-
ingur og er sölu- og þjón-
ustustjóri hjá ALP.
Maki: Guna Mezule, f.
1991, sölustjóri í höfuð-
stöðvum ABG Group í
London.
Börn: Natalía Björk, f.
2009, og Óttar Bjarni, f.
2013.
Foreldrar: Bjarni Stein-
grímsson, f. 1957, bifreið-
arstj., og Guðmundína
Lára Guðmundsdóttir, f.
1959, d. 1995, hjúkrunarfr.
Börkur Óðinn
Bjarnason
40 ára Haukur ólst upp á
Álftanesi en býr í Reykja-
vík. Hann er tölvufræði-
menntaður og er forritari
hjá Námfús.
Dóttir: Sara Lilja, f. 2000.
Bræður: Magnús Valur, f.
1983, Benjamín Hrafn, f.
1986, og Samúel Örn, f.
1992.
Foreldrar: Böðvar Magn-
ússon, f. 1956, rafsuðu-
maður, og Karitas Hrönn
Hauksdóttir, f. 1957, vinn-
ur á sambýli.
Haukur Már
Böðvarsson
40 ára Valdi er Akureyr-
ingur en býr á Dalvík. Hann
er málmsuðum. og vinnur
á bifreiðaverkstæði Bjarn-
héðins.
Maki: Saga Árnadóttir, f.
1971, hársnyrtir.
Börn: Birgitta Ösp, f. 2001,
og Rebekka Rut, f. 2007.
Foreldrar: Valdimar Valdi-
marsson, f. 1951, d. 2015,
bifreiðarstj., og Helga Ing-
ólfsdóttir, f. 1953, hús-
móðir á Ysta-Felli í Köldu-
kinn.
Valdimar Geir
Valdimarsson
Til hamingju með daginn