Morgunblaðið - 22.02.2019, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019
Samsýning feðganna Björns Hauks
Pálssonar og Páls Hauks Björns-
sonar verður opnuð í dag, föstudag,
klukkan 16 í Listasal Mosfells-
bæjar. Sýninguna kalla þeir Tómir
fossar. Björn Haukur er stýrimaður
að mennt og sýnir nú myndverk í
fyrsta sinn en Páll Haukur er
menntaður í myndlist og hefur ver-
ið virkur í sýningarhaldi bæði hér-
lendis og erlendis.
Á sýningunni munu natúralískar
myndir föðurins eiga samtal við ab-
straktverk sonarins svo úr verður
nokkurs konar tvöfalt landslag þar
sem fossar eru í aðalhlutverki.
Feðgaverk Málverk föðurins, Björns
Hauks Pálssonar, til vinstri og verk eftir
soninn, Pál Hauk, við hliðina.
Feðgar sýna sam-
an Tóma fossa
Tónlistarkonan
Sóley kemur
fram í menning-
arhúsinu Mengi
við Óðinsgötu í
kvöld, föstudag,
og hefjast tón-
leikarnir kl. 21.
Sóley hyggst
bjóða gestum að
hlýða á verk í
vinnslu sem kannar enda veraldar.
Með henni koma fram Albert Finn-
bogason á altsaxófón, Jón Óskar
Jónsson á trommur og Margrét
Arnardóttir á harmóniku. Um þess-
ar mundir vinnur Sóley að nýrri
plötu þar sem hún kannar ný hljóð
og rými, ljóð um heimsenda og
lagasmíðar fyrir harmóníkudróna,
theremín, raddir, mellotron og
hljóðgervla.
Sóley flytur verk í
vinnslu í Mengi
Sóley
Stan & Ollie
Sannsöguleg mynd um Stan Laurel
og Oliver Hardy, eitt vinsælasta
gríntvíeyki kvikmyndasögunnar. Í
myndinni er sjónum beint að ferli
þeirra undir lokin. Leikstjóri er Jon
S. Baird og með aðalhlutverk fara
Steve Coogan og John C. Reilly.
Metacritic: 75/100
Fighting with My Family
Gamanmynd sem byggist á sönnum
atburðum og segir af glímudrottn-
ingu sem hóf atvinnuferil 13 ára að
aldri og var yngst kvenna til að
fara með sigur af hólmi í Davis
glímukeppninni. Leikstjóri er
Stephen Merchant og með aðal-
hlutverk fara Florence Pugh, Nick
Frost, Jack Lowden og Dwayne
Johnson. Metacritic: 70/100
Serenity
Matthew McConaughey og Anne
Hathaway fara með aðalhlutverkin
í þessari glæpamynd. Í henni segir
af Baker Dill sem leigir út bát sinn
til sjóstangaveiðimanna sem vilja
glíma við hákarla. Dag nokkurn
kemur fyrrverandi eiginkona hans
að máli við hann og biður um held-
ur óvenjulegan greiða. Leikstjóri er
Steven Knight. Metacritic: 38/100
Bíófrumsýningar
Grín, glíma
og greiði
Skondnir Steve Coogan og John C.
Reilly í hlutverkum Steina og Olla.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Skáldsagan Elín, ýmislegt eftir
Kristínu Eiríksdóttur og ljóðabókin
Kóngulær í sýningargluggum eftir
Kristínu Ómarsdóttur hafa verið til-
nefndar til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2019 fyrir Íslands
hönd. Þetta var tilkynnt í gær.
Landsbundnar dómnefndir til-
nefna þetta árið samtals 13 verk til
verðlaunanna, en sameiginleg nor-
ræn dómnefnd velur vinningshafa
ársins og verða verðlaunin afhent
við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi 29.
október í tengslum við þing Norður-
landaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur
verðlaunagripinn Norðurljós og 350
þúsund danskar krónur, sem sam-
svarar tæpum 6,4 milljónum ísl. kr.
Frá Álandseyjum er tilnefnd
skáldsagan Det finns inga monster
eftir Liselott Willén. Frá Danmörku
eru tilnefnt smásagnasafnið Efter
solen eftir Jonas Eika og skáldsagan
de eftir Helle Helle. Frá Finnlandi
eru tilnefndar skáldsögurnar Trist-
ania eftir Mariönnu Kurtto og Där
musiken började eftir Lars Sund.
Frá Grænlandi er tilnefnd smá-
sagna- og ljóðabókin Arpaatit qa-
qortut eftir Pivinnguaq Mørch. Frá
Noregi eru tilnefndar ljóðabókin
Det er berre eit spørsmål om tid eft-
ir Eldrid Lunden og Jeg lever et liv
som ligner deres. En levnetsbeskri-
velse eftir Jan Grue, en bókin er
skilgreind sem sjálfsævisögulegur
prósi. Frá samíska málsvæðinu er
tilnefnd ljóðabókin Ii dát leat dat
eana eftir Ingu Ravna Eira. Frá Sví-
þjóð eru tilnefndar ljóðabókin Non-
sensprinsessans dagbok. En sjuk-
skrivning eftir Isabellu Nilsson og
skáldsagan Människan är den vack-
raste staden eftir Sami Said.
Í umsögn íslensku dómnefndar-
innar, sem í sitja Kristján Jóhann
Jónsson, Kolbrún Bergþórsdóttir og
Sunna Dís Másdóttir, segir um
skáldsöguna Elín, ýmislegt:
„Ríkjandi þemu í skáldskap Krist-
ínar Eiríksdóttur eru þrá eftir ást og
skilningi, baráttan við sambands-
leysi, einmanaleiki, misnotkun, of-
beldi og óhugnaður. Skáldsagan El-
ín, ýmislegt er skýrt dæmi um þetta.
Þar birtist öflug rödd ungrar konu í
listrænum og markvissum texta.“
Um Kóngulær í sýningargluggum
segir: „Í ljóðum Kristínar Ómars-
dóttur lítur sakleysið út eins og
skyrsletta á vegg, bréfið undir kodd-
anum spyr: ertu þarna? Spegillinn
handsamar mynd ljóðmælandans
þegar hann greiðir morgunbleikt
hárið, landdreymnar hafmeyjar
stinga höfði upp úr sjónum, gler-
brjóst eru auglýst og torgið snarað
með sjóndeildarhringnum. Kristín
hefur alltaf reynt hressilega á þan-
þol tungumálsins. Frumlegar ljóð-
myndir hennar eru óvæntar og
stundum súrrealískar.“
Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs hafa verið veitt síðan 1962
og eru veitt fyrir fagurbókmennta-
verk sem er samið á einu af norrænu
tungumálunum. Markmiðið með
verðlaununum er að vekja áhuga á
bókmenntum og tungumálum
grannþjóðanna sem og menningar-
legri samkennd þeirra.
Skrifstofa hvorra tveggja bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
hefur verið til húsa í Norræna hús-
inu frá 2014. Náið samstarf skrif-
stofunnar við bókasafnið í Norræna
húsinu skilar sér í því að allar til-
nefndu bækur ársins voru aðgengi-
legar á frummálunum á bókasafninu
í Norræna húsinu frá og með deg-
inum í gær. Einnig eru allar vinn-
ingsbækurnar frá upphafi aðgengi-
legar til útláns á safninu.
Elín og Kóngulær tilnefndar
Morgunblaðið/Eggert
Lukkulegar Hólmfríður Matthíasdóttir útgáfustjóri Forlagsins, sem tók við
viðurkenningu fyrir hönd Kristínar Ómarsdóttur, og Kristín Eiríksdóttir.
13 verk tilnefnd Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs afhent 29. október
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Eygló Harðardóttir myndlistarkona
hlaut í gærkvöldi Íslensku mynd-
listarverðlaunin fyrir árið 2018 og
voru þau afhent við hátíðlega athöfn
í Iðnó. Verðlaunin hlaut hún fyrir
sýninguna Annað rými sem sett var
upp í Nýlistasafninu. Hlaut Eygló
eina milljón króna í verðlaun.
Þá hreppti myndlistarmaðurinn
Leifur Ýmir Eyjólfsson hvatningar-
verðlaun ársins fyrir sýninguna
Handrit sem sjá má í D-sal Lista-
safns Reykjavíkur-Hafnarhúss.
Leifur fékk 500 þúsund krónur.
Fjórir listamenn voru í forvali til
viðurkenningarinnar Myndlistar-
maður ársins, auk Eyglóar þau Guð-
mundur Thoroddsen, fyrir sýn-
inguna Snip Snap Snubbur í Hafnar-
borg, Hekla Dögg Jónsdóttir fyrir
Evolvement í Kling & Bang, og
Steinunn Gunnlaugsdóttir fyrir úti-
listaverkið Litlu hafpulsuna, sem
sett var upp í Reykjavíkurtjörn í
tengslum við sýninguna „Cycle
Music & Art – Þjóð meðal þjóða.“
Í forvali til hvatningarverðlaun-
anna voru auk Leifs Ýmis þau Auður
Ómarsdóttir fyrir sýninguna Stöng-
in inn í Kling & Bang, og Fritz
Hendrik fyrir Draumaregluna, sem
einnig var sett upp Kling & Bang.
Snýst um virðingu myndlistar
Íslensku myndlistarverðlaunin
voru fyrst afhent í fyrra.
Myndlistarráð stendur að verðlaun-
unum sem hafa þann tilgang að
vekja athygli á því sem vel er gert á
sviði myndlistar á Íslandi. Í umsögn
dómnefndar um hina fallegu sýningu
Annað rými sem Eygló hlaut verð-
launin fyrir, segir að með verkum
sem í senn voru fínleg og stórkarla-
leg, en unnin í viðkvæman efnivið,
hafi listakonan opnað „fyrir gáttir
sem áhorfandinn gat smeygt sér inn
fyrir og aukið skynjun sína og næmi
á kostnað hinnar vanabundnu rök-
hyggju. Eygló virðist umhugað um
að áhorfendur verka hennar skynji
að ekkert eitt svar sé rétt, að allar
víddir hafi sama vægi og að upplifun
þeirra geti verið persónuleg og án
endastöðvar“. Pappír var meginefni
verkanna.
Eygló segir verðlaunin hafa komið
sér á óvart enda sé það svo langt frá
vinnu sinni við að móta sýningar að
hugsa um formlegar viðurkenn-
ingar. „En auðvitað hefur þetta góð
áhrif. Þegar sýningum lýkur er
verkunum pakkað aftur niður í
myrkur en með tilnefningunum
beinist kastljós aftur að öllum þess-
um sýningum og það er ánægjulegt,
og að þær veki umtal. Ég held að öll
þessi verk hafi gott af umræðunni.
En auðvitað er þetta mikill heiður og
ég er mjög ánægð.“
Þegar spurt er um skoðun hennar
á verðlaunum sem þessum fyrir
myndlist, þá segist hún líta á þau
sem mikilvægt framlag til umræð-
unnar í samfélaginu. „Þetta er ekki
keppnisíþrótt og ég hefði verið
ánægð með að sjá verðlaunin fara til
allra hinna tilnefndu. Þetta snýst
ekki um persónur heldur mynd-
listina í samfélaginu, um virðingu
hennar og um sýningarnar.“ Verð-
laun séu veitt í öðrum listgreinum og
eigi vitaskuld einnig að vera veitt í
myndlistargeiranum.
Þegar spurt er hvernig verðlauna-
féð muni nýtast segir hún peninga
og tíma vera samofna hjá flestum
myndlistarmönnum. „Peningur er
tími og ég get unnið!“ Og hún segir
þrjú sýningarverkefni í farvatninu,
öll fyrir norðan: í Safnasafninu í
Eyjafirði, í Alþýðuhúsinu á Siglu-
firði og í verksmiðjunni á Hjalteyri.
„Er mjög hvetjandi“
Á sýningunni Handrit í Hafnar-
húsinu hefur Leifur Ýmir raðað á
hillur sem ná upp í loft leirplötum
sem hann hefur brennt og skrifað á
tilfallandi orð og setningar. „Saman
mynda leirtöflurnar handrit, bók,
sem gengið er inn í. Leirinn minnir á
forgengileika tungumálsins, sem við
mótum og brjótum að vild, rétt eins
og efniviðinn,“ segir í umsögn dóm-
nefndar sem segir Leifi takast með
„eftirminnilegum hætti að samþætta
inntak og efnivið …“
„Þetta er mjög hvetjandi,“ segir
Leifur um verðlaunin. Hann kveðst
hafa verið að undirbúa verkfallsverk
sem gjörning „en nú get ég ekki far-
ið í verkfall, þetta er svo hvetjandi
að ég verð að halda áfram!“
Hann segir þetta vera afar
ánægjuleg viðbrögð eftir alla þá
miklu vinnu sem fór í sýninguna
Handrit. „Það var mikil törn en það
er gaman að hafa mikið að gera. Það
er líka ávanabindandi en nú ætla ég
aðeins að anda,“ segir hann og
hyggst leggjast í rannsóknir. Hann
fékk listamannalaun í fyrsta skipti,
þrjá mánuði, og hyggst nota tímann
vel. En hvað gerir Leifur Ýmir við
verðlaunaféð?
„Það fer í það að lifa og halda
áfram. Það býr til tíma fyrir mig til
að sinna listinni.“
Eygló hreppti verðlaunin
Íslensku myndlistarverðlaunin féllu Eygló Harðardóttur í skaut Leifur
Ýmir Eyjólfsson hlaut hvatningarverðlaunin „Peningur er tími,“ segir Eygló
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viðurkenning Eygló Harðardóttir og Leifur Ýmir Eyjólfsson tóku við verðlaununum í Iðnó í gærkvöldi.