Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Ferminga- myndatökur Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ýmsar skoðanir komu fram í um- ræðum um skýrslu Sigríðar Á. And- ersen dómsmálaráðherra um Schen- gen-samstarfið sem kynnt var fyrir tveimur vikum og rædd á Alþingi í gær. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að alvarlegir veikleikar eru á stjórnskipulagi landamæra- eftirlits hér á landi. Mannafla skortir til að framkvæmd samstarfsins hér á landi uppfylli gæðakröfur og bæta þarf búnað og áhættugreiningar við eftirlit við landamærin. Sigríður segir að þó að víða sé pottur brotinn upp- fylli Ísland engu að síður skuldbind- ingar sínar á þessu sviði. „Við vissum vel af þessum ann- mörkum, t.d. að við séum ekki búin að taka alla gagna- grunna í notkun, en við höfum und- anfarið sett mikið fé í að efla landa- mæravörslu og fjölga landa- mæravörðum. Þetta helst í hend- ur við þróun lög- gæslunnar. Það hefur verið mikil þróun í þessu samstarfi undanfarin ár,“ segir Sigríður. „Ný tól og tæki hafa verið tekin í notkun og nýir gagnagrunnar og tölvukerfi. Öll ríki eru að innleiða ný vinnubrögð, Ísland þar með talið og öll ríkin undirgang- ast svona úttektir.“ 15 þingmenn úr öllum flokkum, auk Sigríðar, tóku til máls þegar um- ræða um skýrsluna hófst á þingfundi í gær. Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, sagðist ekki vera sammála ráðherra um að úttektin hefði almennt komið vel út. „Að- gerðalisti stjórnvalda eftir úttektina er gríðarlega umfangsmikill og Ís- land er langt frá því að uppfylla skuldbindingar sínar sem þátttak- andi í þessu samstarfi,“ sagði hann og velti fyrir sér hvort málaflokkurinn hefði setið á hakanum. Schengen ekki eina leiðin Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, sagðist þeirrar skoðun- ar að Schengen væri ekki eina leiðin í landamæraeftirliti og að Ísland fengi falleinkunn í skýrslunni. „Það er verið að setja gríðarlega fjármuni í þetta kerfi. Á síðustu fjárlögum voru þetta 836 milljónir og í fjármálaáætlun 2019-2022 eru þetta 3,5 milljarðar króna,“ sagði Birgir. „Það eru heil- miklir peningar og ég hefði viljað sjá þá einhvers staðar annars staðar.“ Ekki væru öll ríkin, sem ættu aðild að EES-samningnum, aðilar að Schen- gen. „Og þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé nauðsynlegt að við séum í því,“ sagði Birgir. Fáum meira en við leggjum til Spurð um þessa gagnrýni segir Sigríður að landamæraeftirlit sé vissulega með ýmsum hætti. Sum þeirra landa sem ekki séu í Schengen, eins og t.d. Bretland, hafi úrræði á borð við leyniþjónustur, sem ekki séu til staðar hér. „Öll ríkin eru mjög áfram um að vera áfram í samstarf- inu,“ segir Sigríður. „Við stöndum fyllilega undir okkar hlutverki. Þetta kostar peninga, en það þarf að hafa í huga að við erum að fá meira fé úr þessu samstarfi en við leggjum í það og það hefur gert okkur kleift að styrkja eftirlitið og minnka ýmsan kostnað, m.a. við meðferð hælis- umsókna.“ Spurð hvaða upphæðir sé um að ræða segir Sigríður að framlag Ís- lands inn í Schengen-samstarfið sé um ein milljón evra á ári. „Árin 2014- 2020 fengum við aftur á móti um 16,5 milljónir evra út úr því,“ segir hún. Sigríður segir að grannt sé fylgst með þróun mála, bæði í ráðuneytinu og hjá embætti ríkislögreglustjóra. „Það er mikil áhersla lögð á að við náum að uppfylla þau tilmæli sem að okkur er beint og við þurfum að halda vel á spöðunum til að svo megi verða.“ Vantar fleira fólk og meiri búnað  Schengen-skýrsla var rædd á Alþingi í gær  Við stöndum undir okkar hlutverki, sagði ráðherra Sigríður Á. Andersen Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Foreldrar grunnskólabarna í norðan- verðum Grafarvogi virðast almennt óánægðir með hugmyndir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um breytingar í skólamálum. Kom það fram á hitafundi stjórnenda sviðsins með foreldrum í Kelduskóla í gær. Breytingarnar felast í því að leggja niður skóla í Staðahverfi og sameina tvo skóla sem áður voru í fjórum hlutum. Skóla- og frístundasvið er að rýna þróun nemendafjölda í grunnskólum í norðanverðum Grafarvogi. Það snertir tvo skóla; Kelduskóla, sem varð til við sameiningu Víkurskóla og Korpuskóla á sínum tíma, og Vætta- skóla sem varð til við sameiningu Borgaskóla og Engjaskóla. Sam- kvæmt upplýsingum Helga Gríms- sonar sviðsstjóra er nú 61 nemandi í Kelduskóla Korpu þar sem nem- endur í 1.-7. bekk fá kennslu. Hann segir að þetta sé fámennasti grunn- skólinn sem rekinn er af sveitarfélagi á suðvesturhorni landsins. Ekki sé hægt að halda úti þeim gæðum náms, kennslu og félagstenginga sem sviðið telji æskileg. Vinnuhugmyndin er að leggja skólann niður og aka börn- unum í Vættaskóla. Jafnframt mun gert ráð fyrir að sameina starfsemi Kelduskóla Vík við Vættaskóla Engi og Vættaskóla Borgir. Þéttingarreitir við Borga- skóla eru að byggjast upp, sam- kvæmt upplýsingum Helga, og vís- bendingar um að það kalli á aukið húsnæði við skólann. Það valdi því að flutningar árganga á milli Borga- skóla og Engjaskóla á skólagöngunni verði meiri en æskilegt sé talið. „Engar ákvarðanir hafa verið teknar enda málið ekki enn komið inn á borð skóla- og frístundaráðs með formlegum hætti. Við erum fyrst og fremst að ná samtali við skóla- samfélagið og ræða þá möguleika sem eru í stöðunni til að stuðla að far- sælu og faglega sterku skólastarfi,“ segir Helgi í skriflegu svari til Morg- unblaðsins. Ánægð með starfið Íbúar í Staðahverfi eru óánægðir með að missa skólann. Þá þarf að aka börnunum í næsta hverfi, með sama hætti og unglingunum hefur verið ek- ið. „Ég hef heyrt í foreldrum sem eiga börn í yngri bekkjunum. Þau eru mjög ánægð með starfið í skólanum. Þó alltaf sé verið að ræða um stækk- un skóla og faglegra starf er ekkert sem bendir til að starfið verði fag- legra þótt fleiri séu í bekknum,“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, íbúi í Staðahverfi og foreldri barna í ung- lingadeildum. Hún er ein af frumbyggjum hverf- isins og lýsir endalausri baráttu fyrir skóla hverfisins. Fyrst fyrir því að fá skóla sem svo var byggður of lítill. Mygla kom upp, unglingarnir sendir tímabundið í burtu en komu ekki aft- ur. Hún segir að við sameiningu við Víkurskóla hafi átt að bæta göngu- leiðir úr hverfinu en það hafi ekki verið gert. Jóhanna segir að íbúar hafi einnig áhyggjur af áhrifum þess á fast- eignaverð íbúða í hverfinu og áhuga barnafólks á að flytja þangað þegar skólinn væri farinn. Fylgt eftir í borgarstjórn Skóla- og frístundasvið kynnti stjórnendum foreldraráða skólanna og skólaráðum stöðuna. Í fyrradag var haldinn fundur með starfs- mönnum Vættaskóla og opinn fundur með foreldrum. Í gær var komið að fundi með starfsmönnum Kelduskóla og opnum fundi með foreldrum. Valgerður Sigurðardóttir, íbúi í Grafarvogi og borgarfulltrúi, segir að fram hafi komið á íbúafundunum að fólk væri mjög óánægt með þessar hugmyndir. Það væri búið að fá nóg af sameiningum og vitnaði til þess að ekki væri enn búið að standa við þau loforð sem þá voru gefin. Hún segist munu fylgja þessu máli eftir á næsta fundi skóla- og frí- stundaráðs eða jafnvel í borgar- stjórn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þung á brún Foreldrar og aðrir íbúar voru ekki ánægðir með hugmyndir skóla- og frístundaráðs borgarinnar að breytingum í skipulagi grunnskólanna í norðanverðum Grafarvogi. Salur Kelduskóla var fullur og margir stóðu. Lýsa megnri óánægju með breytingar á skólum  Hitafundur um skólamál í norðanverðum Grafarvogi Tillaga borgarstjórnarflokks Sjálf- stæðisflokksins um kjarapakka Reykjavíkurborgar var felld á borg- arstjórnarfundi í gær, en henni var ætlað að verða innlegg borgarinnar í yfirstandandi kjaraviðræður. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var harðorður í ræðum sínum í um- ræðum um tillögurnar, sem stóðu yf- ir í á þriðju klukkustund. Sagði hann borgina hafa komið til móts við íbúa, sérstaklega fjölskyldufólk, með ýms- um aðgerðum, svo sem lækkun leik- skólagjalda og hækkun húsaleigu- bóta, og að flestar aðgerðirnar hefðu átt eitt sameiginlegt: að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði verið á móti þeim. Þá sagði Dagur tillögur Sjálfstæð- isflokksins koma þeim tekjuhæstu mun betur en þeim sem erfitt eiga með að ná endum saman. Þær væru ótrúverðugar og stæðust enga skoð- un. Flokkurinn hefði tekið sér stöðu hins óábyrga afneitunarsinna í mál- efnum Orkuveitunnar á sínum tíma, þegar björgunaraðgerða var þörf til að rétta reksturinn við í kjölfar hrunsins, „og ætli núna, á einhvern lýðskrumshátt, að slá því fram að það sé ekkert mál að lækka orku- gjöld“. Tillagan var lögð fram í fjórum lið- um. Í þeim fólst m.a. að útsvarspró- sentan í borginni yrði lækkuð úr 14,52% í 14% á næsta ári, að lækka rekstrargjöld heimilanna sem nemi um 36 þúsund krónum á hvert heim- ili að jafnaði á ársgrundvelli, að tryggja hagstætt húsnæði með því m.a. að semja við ríkið um kaup á Keldnalandi og fara þar í tafarlausa uppbyggingu og að falla frá sérstök- um innviðagjöldum og byggingar- réttargjöldum yrði stillt í hóf. Kosið um hverja tillögu Borgarfulltrúi Miðflokksins lagði til að kosið yrði um tillögurnar hverja fyrir sig. Var sú tillaga sam- þykkt, en allar voru tillögurnar felld- ar með 12 og 13 atkvæðum á móti. „Nú standa yfir mjög erfiðar kjaradeilur á vinnumarkaði. Þess vegna tel ég það mikil vonbrigði að meirihlutinn sjái sér ekki fært að samþykkja tillöguna, sem lýtur að lækkun launaskatts, lækkun gjalda á heimilin, hagkvæmu húsnæði og að endingu gjöldum sem borgin leggur á húsbyggjendur. Fyrrnefndar að- gerðir myndu skila miklu fyrir tug- þúsundir borgarbúa,“ sagði Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, í samtali við mbl.is. „Kjarapakkan- um“ var hafnað  Borgarstjóri var harðorður um tillögurnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.