Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
Bandaríski leikarinn Luke Perry
lést í Kaliforníu í fyrradag, aðeins
52 ára að aldri en fyrir viku var
hann fluttur á sjúkrahús eftir að
hafa fengið alvarlegt heilablóðfall.
Hann lést á sjúkrahúsinu í faðmi
fjölskyldu sinnar.
Perry var einn aðalleikara hinna
gríðarvinsælu sjónvarpsþátta Bev-
erly Hills, 90210 sem hófu göngu
sína árið 1990 og lauk tíu árum
seinna. Undir lokin lék hann í hin-
um vinsælu þáttum Riverdale og
var í Los Angeles við tökur á einum
slíkum þætti þegar hann fékk slag.
Perry lætur eftir sig unnustu og tvö
börn.
AFP
Látinn Leikarinn Luke Perry.
Luke Perry látinn,
52 ára að aldri
Martina Petro-
vic, forstöðu-
maður MEDIA
Desk í Króatíu,
kynningar- og
upplýsingastofu
MEDIA Pro-
gramme sem er
á vegum fram-
kvæmdastjórnar
Evrópusam-
bandsins, heldur fyrirlestur í dag
kl. 16 í sal 2 í Bíó Paradís. Í hon-
um mun hún bera saman árangur
íslenskrar og króatískrar kvik-
myndagerðar og þá sérstaklega
hvað varðar styrkjaveitingar frá
MEDIA TV Programming-sjóðn-
um.
Yfirskrift viðburðarins er Ís-
land & Króatía – Farsælt sam-
starf!
Ísland & Króatía –
Farsælt samstarf!
Martina Petrovic
Sýning nýrrar heimildarmyndar í
tveimur hlutum, Leaving Never-
land, í sjónvarpi í Bandaríkjunum
síðustu daga hefur vakið mikla at-
hygli og umtal. Í myndinni lýsa tveir
karlmenn, Wade Robson og James
Safechuck, því á nákvæman og slá-
andi hátt hvernig tónlistarmaðurinn
Michael Jackson
beitti þá ítrekað
kynferðisofbeldi
þegar þeir voru
enn á barnsaldri.
Jackson var
þekktur fyrir að
hafa unga drengi
í kringum sig og
ferðuðust þeir
með honum á tón-
leikaferðum.
Hann var einn dáðasti og vinsælasti
tónlistarmaður síðustu áratuga en
lést árið 2009, fimmtugur að aldri, af
blöndu sterkra svefnlyfja.
Margir aðdáenda Jacksons hafa
tekið til varna á samfélagsmiðlum og
þá hefur fjölskylda hans og dánarbú,
sem er metið á hundruð milljarða
króna, sent frá sér harðorða yfirlýs-
ingu. „Fólk lýgur en ekki staðreynd-
ir,“ segir þar. „Michael var og verð-
ur alltaf 100 prósent saklaus af
þessum fölsku ásökunum.“
Árið 1993 rannsakaði lögregla
vestanhafs ásakanir 13 ára pilts sem
sagði Jackson hafa níðst á sér. Þá
vörðu þeir Safechuck og Robson,
enn á barnsaldri, Jackson báðir. Þeir
sögðu foreldrum sínum og lögreglu-
mönnum að söngvarinn hefði aldrei
snert þá.
Robson segist nú hafa verið sjö
ára þegar Jackson byrjaði að beita
hann ofbeldi og þegar hann var
yfirheyrður 11 ára hefði strax komið
upp í hugann allt það sem Jackson
hefði sagt við sig frá byrjun, að ef
einhver kæmist að því hvað þeir
gerðu þá myndu þeir báðir fara í
fangelsi til æviloka.
Árið 1994 var það mál gegn Jack-
son fellt niður en hann greiddi fjöl-
skyldunni sem kærði hann 23 millj-
ónir dala í sátt utan dómstóla. Árið
2003 var aftur höfðað mál gegn
Jackson fyrir meint kynferðislegt
ofbeldi gegn dreng. Það fór fyrir
dóm og féllst Robson á að bera vitni
fyrir Jackson og sagði aftur að hann
hefði ekki brotið á sér. Safechuck
neitaði Jackson hins vegar um að
bera vitni. Jackson var sýknaður í
því máli en nokkur ár liðu þar til
Robson og Safechuck sögðu fjöl-
skyldum sínum frá því að hann hefði
brotið ítrekað á þeim. Móðir Safe-
chuck kveðst hafa dansað af gleði er
hún frétti lát söngvarans.
Breska ríkisútvarpið, BBC, og
það norska, NRK, hafa í kjölfar upp-
lýsinganna ákveðið að útvarpa ekki
tónlist Michaels Jacksons.
Segja Jackson hafa
ítrekað níðst á þeim
Michael Jackson
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 15. mars
Fermingarblaðið er
eitt af vinsælustu
sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 11. mars.
SÉRBLAÐ
Maðurinn er grimmasturdýra. Þetta virðistítalska leikstjóranumMatteo Garrone vera
hugleikið í nýjasta verki sínu, Dog-
man eða Hundamanninum en Garr-
one er einna þekktastur fyrir kvik-
mynd sína um Gomorra-mafíuna í
Napólí á Ítalíu og er á svipuðum slóð-
um villimennsku og miskunnarleysis í
Dogman. Í henni segir af rindilsleg-
um hundasnyrti, Marcello (Fonte),
sem stundað hefur kókaínsölu í hjá-
verkum en hefur ákveðið að hætta því
og þá m.a. vegna ungrar dóttur sinn-
ar sem hann ann heitt. Marcello -
leikinn með tilþrifum af Fonte sem
hlaut fyrir þann leik Evrópsku kvik-
myndaverðlaunin í fyrra sem besti
leikari í aðalhlutverki - rekur hunda-
snyrtistofuna Dogman sem myndin
dregur nafn sitt af og lætur vel að
hundunum sem hann fær til sín í
snyrtingu, strýkur þeim og kjassar
og talar við þá blíðlega, jafnt gæfa
hunda sem grimma. Í upphafi mynd-
ar er hann að þvo tjóðruðum hundi
sem lítur út fyrir að geta bitið af hon-
um höfuðið í heilu lagi og er upphafs-
atriðið fyrirboði um það sem koma
skal. Hundasnyrtistofa Marcello er í
sóðalegu úthverfi ónefndrar borgar á
Ítalíu (Napólí?) og þegar hann er ekki
að sinna hundum situr hann ýmist
með félögum sínum að snæðingi, leik-
ur með þeim fótbolta eða nýtur sam-
vista við dóttur sína.
Dag einn kemur til hans vígalegur
náungi að nafni Simone, höfðinu
hærri og kraftalega vaxinn enda fyrr-
verandi hnefaleikakappi. Simone er
ógnandi í tilburðum, krefst þess að
Marcello útvegi honum kókaín án taf-
ar og skeytir engu um þau svör að
hann sé hættur að selja dóp og auk
þess með dóttur sína hjá sér. Ljóst er
að Simone mun ganga í skrokk á
Marcello fái hann ekki kókaín sem
hann svo fær og nokkrum dögum síð-
ar neyðir Simone Marcello til að
brjótast inn í hús. Á flóttanum kemst
Marcello að því að hundur er í neyð í
húsinu og snýr aftur til að bjarga
honum. Marcello er greinilega ljúf-
menni og Simone nýtir sér varnar-
leysi hans og góðmennsku og fær
hann til að fremja mun alvarlegri
glæp sem dregur dilk á eftir sér. En
Marcello er ekki allur þar sem hann
er séður og stefnir allt í rafmagnað
uppgjör kjölturakkans og bolabítsins
í seinni hluta myndar. Líkt og í dýra-
ríkinu snýst þetta á endanum um að
éta eða vera étinn og dýrin í skóg-
inum eru langt frá því að vera vinir í
Dogman.
Fonte er brjóstumkennanlegur í
hlutverki Marcellos og samúð áhorf-
andans er öll með honum. Pesce er,
líkt og Fonte, mjög sannfærandi í
hlutverki óþokkans Simone og var út-
liti hans m.a. breytt með andlitsgervi
til að gera hann enn skelfilegri. Það
tókst heldur betur.
Samleikur þessara tveggja leikara
er virkilega góður og oftar en ekki er
áhorfandinn á nálum líkt og hann sé
að fylgjast með dansi óttaslegins
nautabana frammi fyrir óðu nauti. Og
Simone ógnar ekki aðeins tilveru
Marcello heldur allra íbúa þessa fá-
tæklega hverfis einhvers staðar á
Ítalíu og eftirminnilegt er atriði þar
sem nokkrir náungar, líklega allir
glæpamenn, ræða sín á milli hvað eigi
að gera við kauða, líkt og hann sé óð
skepna sem þurfi að lóga. Enginn vill
þó taka verkið að sér.
Sagan í Hundamanninum er í
grunninn einföld og í raun ekkert
nýtt að finna í henni, sem er miður því
gaman hefði verið að láta koma sér
örlítið á óvart. Þá er ákveðið gat í frá-
sögninni sem hefði mátt stoppa í og
felst í því að Marcello fer á brott úr
hverfinu í heilt ár. Engum sögum fer
af því hvað gerðist á þessu ári eða
hvort fjarveran breytti Marcello á
einhvern hátt. Kannski á það að vera
ráðgáta, hver veit. En endirinn bætir
fyrir það og er, einn og sér, bíóferð-
arinnar virði.
Dogman er vægðarlaus mynd, á
köflum ljót og ofbeldisfull. Ef hún
væri steik þá væri hún blóðug. Útlit
kvikmyndarinnar er í takt við það;
drungalegt, litir daufir og lýsingin oft
kuldaleg, eins og sjá má af stillunni
hér fyrir ofan. Garrone er áhugaverð-
ur leikstjóri og gaman verður að sjá
hverju hann teflir fram næst.
Að éta eða vera étinn
Bíó Paradís
Dogman bbbmn
Leikstjórn: Matteo Garrone. Handrit:
Matteo Garrone, Ugo Chiti og Massimo
Gaudioso. Aðalleikarar: Marcello Fonte,
Adamo Dionisi, Edoardo Pesce og
Nunzia Schiano. Ítalía, 2018.103 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Sýnd 8. mars kl. 20.
Ofbeldissamband Hrottinn
Simone þjarmar að hunda-
snyrtinum Marcello í Dogman.