Morgunblaðið - 06.03.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 06.03.2019, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Hugsun Seta við hafið er kjörin til hugleiðslu. Kristinn Hægt er að halda því fram að það geti skipt launafólk meira máli hvaða hug- myndafræði sveit- arstjórnir vinna eftir við álagningu skatta og gjalda en hvaða stefnu ríkissjóður hef- ur á hverjum tíma. Út- svarsprósentan skiptir láglaunafólk a.m.k. meira máli en hvað ríkið ákveður að innheimta í tekjuskatt. Í heild greiðir íslenskt launafólk meira í útsvar en tekjuskatt. Árið 2017 fengu sveitarfélögin nær 193 milljarða í sinn hlut af launatekjum í formi útsvars en ríkissjóður 139 milljarða að teknu tilliti til barna- og vaxtabóta. Lækkun útsvars er því stærra hagsmunamál fyrir flesta en að lækka tekjuskattspró- sentu ríkisins. Launamaður með 300 þúsund krónur í mánaðarlaun greiðir helm- ingi meira í útsvar en í tekjuskatt til ríkisins ef hann greiðir þá nokk- uð, að teknu tilliti til bóta. Þannig hefur skattastefna sveitarfélaga meiri áhrif á ráðstöfunartekjur launafólks en stefna ríkisins í álagningu tekjuskatts. Lagfæringar á tekjuskattskerfi ríkisins bera tak- markaðan árangur gagnvart þeim sem hafa lág laun. Lægri ráðstöfunartekjur Samkvæmt lögum getur útsvar orðið hæst 14,52% en lægst 12,44% af tekjum. Í Reykjavík er útsvar- sprósentan í hámarki líkt og í 57 öðrum sveitarfélögum. Mikill meiri- hluti skattgreiðenda þarf að greiða hámarksútsvar og verður að sætta sig við lægri ráðstöfunartekjur en íbúar sveitarfélaga þar sem meiri hófsemdar er gætt. Allt frá árinu 2005 hefur Reykjavík lagt hámarksútsvar á íbúana. Fyrir þann tíma var útsvarið lægra og oft nokkru lægra en vegið með- altal. Eina sveitarfé- lagið á höfuðborg- arsvæðinu sem leggur á hámarksútsvar er Reykjavík, en lægst er álagningin á Seltjarn- arnesi og í Garðabæ. Það skiptir venjulegan launa- mann verulegu máli hvar hann ákveður að halda heimili sitt. Sá sem kemur sér fyrir í sveitarfélagi þar sem lágmarksútsvar er inn- heimt greiðir sem jafngildir viku- launum lægra en félagi hans sem er búsettur í Reykjavík, svo dæmi sé tekið. Á árunum 2016 og 2017 hækk- uðu útsvarstekjur sveitarfélaganna að jafnaði um 9,9% að raunvirði á ári. Fasteignaskattar hækkuðu um 8,8%. Í fjármálaáætlun 2019 til 2023 kemur fram að frá því að út- svarsprósentan var hækkuð árið 2011 vegna tilfærslu málefna fatl- aðs fólks til sveitarfélaganna hafi tekjur af útsvari hækkað úr 7,4% af vergri landsframleiðslu í 8,1%. Reiknað er með að tekjurnar haldi áfram að aukast á komandi árum og verði 8,3% af vergri landsfram- leiðslu árið 2023. Þá er reiknað með að þær verði um 72 millj- örðum króna hærri en á síðasta ári. Frá árinu 2011 til 2018 jukust tekjur sveitarfélaga um 296 millj- arða króna á föstu verðlagi, en þar af var 170 milljörðum ráðastafað í aukinn launakostnað eða um 57%. Samkvæmt greiningu Samtaka at- vinnulífsins fór 27% af tekjuauk- anum í annan rekstrarkostnað. Reykjavík í kjörstöðu Ekkert sveitarfélag er í betri stöðu en Reykjavík til að leggja sitt af mörkum þegar kemur að kjarasamningum. Ekki aðeins vegna þess að í höfuðborginni er útsvar í hæstu hæðum, heldur ekki síður vegna eignarhalds á Orku- veitu Reykjavíkur. Árið 2017 voru skatttekjur Reykjavíkur á hverja fjögurra manna fjölskyldu um 890 þúsund krónum hærri á föstu verðlagi en 2013. Heildartekjur A-hluta borg- arsjóðs voru 1,3 milljónum króna hærri á hverja fjölskyldu. Á föstu verðlagi voru útsvar- stekjur í heild liðlega 16 millj- örðum hærri og fasteignaskattar 3,5 milljörðum. Á mánudag kynnti borgarstjórn- arflokkur Sjálfstæðisflokksins til- lögur um lækkun útsvars og lækk- un rekstrargjalda heimilanna. Með þessu eigi höfuðborgin að leggja sín lóð á vogarskálarnar til að greiða fyrir samningum á vinnu- markaði. Það er því ekki tilviljun að sjálfstæðismenn tali um „kjara- pakkann“ þegar þeir kynna tillög- urnar. Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka útsvarið úr 14,52% niður í 14%. Ár- lega skilar lækkunin um 84 þúsund krónum í vasa fjölskyldu með tvo sem fyrirvinnu á meðallaunum. Lagt er til að aðgerðin verði fjár- mögnuð með bættum innkaupum sem felast í auknu aðhaldi og út- boðum á öllum sviðum borgarinnar. Þrátt fyrir þessa lækkun yrði út- svarið í Reykjavík nokkru hærra en það er í Garðabæ og á Seltjarn- arnesi. Þá leggja borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins til að árleg rekstr- argjöld heimila verði lækkuð um 36 þúsund krónur með lækkun á hit- unarkostnaði, raforkuverði, sorp- hirðugjaldi og vatnsgjaldi. (Það kemur eflaust einhverjum á óvart að í Reykjavík er hitun húsa dýrari en á Selfossi, Akureyri og Egils- stöðum. Kostnaður við að kynda hús í Reykjavík er 30% hærri en á Egilsstöðum. Í Reykjavík er raf- orkuverð einnig hærra.) Í tillög- unum er lagt til að 13 milljarða áformaðar arðgreiðslur frá fyr- irtækjum borgarinnar verði að mestu nýttar til að standa undir lækkuninni Í tillögu borgarfulltrúanna segir orðrétt: „Að hverfa frá arðgreiðslum og lækka rekstrargjöld heimila í Reykjavík er pólitísk ákvörðun. Sú ákvörðun mun létta byrðar heim- ilanna í borginni og auka kaup- máttinn. Samþykki borgin fyrsta og annan lið kjarapakkans mun það jafngilda því að fjölskylda með tvo sem fyrirvinnu á meðallaunum m.v. árið 2017 fái u.þ.b. 200 þúsund í viðbótarlaunagreiðslur á árs- grundvelli. Aðgerðirnar auka ráð- stöfunartekjur þessara heimila um 120.000 kr. eftir skatta.“ Áfellisdómur Borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins benda á að húsnæð- isverð í Reykjavík hafi hækkað um 100% á síðustu átta árum. Þeir halda því fram með réttu að höf- uðborgin eigi að vera leiðandi og aðgerðir í húsnæðismálum geti haft mikla þýðingu í kjarasamningum og á lífskjör almennt. Þess vegna eigi borgin að semja við ríkið um kaup á Keldnalandinu án skilyrða um aðrar fjárveitingar ríkisins. Skipulagning Keldnalandsins fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili eigi að hefjast án tafar samhliða stór- átaki í vegaframkvæmdum og bættum almenningssamgöngum. Stilla eigi byggingarréttargjöldum í hóf og leggja af svokölluð inn- viðagjöld. Allt miðar þetta að því að lækka byggingarkostnað. „Sum geta það, önnur ekki,“ svaraði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, þegar blaðamaður mbl.is spurði hvort sveitarfélögin ættu almennt að koma með innlegg í kjara- viðræður. Þetta mat Eyþórs er örugglega rétt. Ef niðurstaða meirihluta borgarstjórnar verður hins vegar sú að Reykjavík geti lít- ið sem ekkert lagt af mörkum til að bæta kjör íbúanna, er það þungur áfellisdómur yfir stjórn og rekstri höfuðborgarinnar síðustu árin. Eftir Óla Björn Kárason »Eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem leggur á hámarks- útsvar er Reykjavík, en lægst er álagningin á Seltjarnarnesi og í Garðabæ. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Sveitarfélögin og kjarasamningar Tekjuskattur og útsvar 2017 Milljarðar króna H ei m ild : Fj ár m ál aá æ tlu n 20 19 -2 02 3 Tekjuskattur ríkissjóðs 138,7 Barnabætur 9,3 Vaxtabætur 4,3 Útsvar 192,7 Stjórnvöld leggja ríka áherslu á að efla menntun í land- inu með hagsmuni nemenda og þjóð- arinnar allrar að leiðarljósi. Í stjórn- arsáttmálanum er sérstaklega kveðið á um mikilvægi þess stuðla að við- urkenningu á störf- um kennara og efla faglegt sjálfstæði þeirra. Einnig er þar áréttað að til að bregðast megi við yfirvofandi skorti á kennurum hér á landi þurfi ríki, sveitarfélög og stéttarfélög að vinna vel saman. Ef ekkert er að gert blasir grafalvarleg staða við okkur. Ef miðað er við óhagstæðustu sviðs- mynd mannfjöldaþróunar og óbreyttan fjölda útskrifaðra grunnskólakennara gera spár okkar ráð fyrir að manna þurfi tæplega 1.200 kennarastöður í grunnskólum með starfsfólki án kennsluréttinda eftir fjögur ár, 2023. Þá yrði hlutfall starfsfólks starfandi við kennslu án kennslu- réttinda 23% en samsvarandi hlutfall var 8,6% árið 2017. Ljóst er að þegar vantar leikskólakenn- ara í um 1.800 stöðugildi til þess að uppfylla ákvæði laga um hlut- fall fagmenntaðra leikskólakenn- ara. Í gær kynnti ég fyrstu skrefin sem við hyggjumst stíga í þá átt að auka nýliðun í kennarastétt. Þær tillögur eru byggðar á vinnu starfshóps sem skipaður var um það verkefni en í honum áttu sæti fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambandi Íslands, Háskólanum á Akureyri, Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Listaháskóla Ís- lands, samtakanna Heimilis og skóla og Samtökum iðnaðar- ins. Að auki komu að vinnunni fulltrúar fjármála- og efna- hagsráðuneytis og samgöngu- og sveit- arstjórnarráðu- neytis. Um er að ræða þrjár sértækar aðgerðir sem allar koma til fram- kvæmda næsta haust. Launað starfsnám Fyrst ber að nefna að leik- og grunnskólakennaranemum á lokaári meistaranáms býðst frá og með næsta hausti launað starfsnám. Markmið þessa er að stuðla að því að nemar sem komn- ir eru af stað í M.Ed.-nám klári nám sitt á tilsettum tíma og að þeir skili sér til kennslu að námi loknu. Lagt er upp með að innan starfsnámsins verði gætt að því að nemar hafi svigrúm til að vinna að lokaverkefni sínu. Með þessari aðgerð er einnig stefnt að auknu flæði þekkingar milli háskóla ann- ars vegar og leik- og grunnskóla hins vegar. Um er að ræða átaks- verkefni sem verður endurmetið reglulega með það að leiðarljósi að efla kennaranám enn frekar. Styrkur til kennaranema Kennaranemar á lokaári í leik- og grunnskólafræðum geta sótt um styrk til þess að auðvelda þeim að sinna lokaverkefni sínu jafnhliða launuðu starfsnámi. Mennta- og menningarmálaráðu- neyti greiðir þann styrk sem hvata til þess að nemar klári nám sitt á tilsettum tíma. Styrkurinn nemur allt að 800.000 kr. og greið- ist í tvennu lagi. Fyrri greiðslan verður bundin við skil verkefn- isáætlunar lokaverkefnis og sú seinni við skil á samþykktu loka- verkefni. Fjölgum leiðsagnarkenn- urum Ljóst er að brotthvarf nýrra kennara úr starfi í skólum er tölu- vert og mest er hættan á því fyrstu þrjú ár þeirra í starfi. Til þess að mæta þeirri áskorun verður gert átak í því að fjölga leiðsagnarkennurum í íslenskum skólum, en það eru starfandi kennarar sem hafa sérþekkingu á því að taka á móti og þjálfa nýja kennara til starfa. Boðið er upp á 30 eininga nám fyrir starfandi kennara sem dreifist á þrjár ann- ir, við bæði Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands, þar sem kennarar geta bætt við sig sér- hæfingu í starfstengdri leiðsögn. Mennta- og menningarmálaráðu- neytið mun styrkja skólana til þess að fjölga slíkum kennurum og er markmiðið að eftir fimm ár verði 150 leiðsagnarkennarar starfandi. Styrkurinn samsvarar innritunargjöldum í námið og verða forsendur hans meðal ann- ars þær að skólastjóri styðji um- sókn kennara í námið og hins veg- ar að tryggja þurfi jafna dreifingu þessara styrkja milli skóla og landshluta. Framtíðin og fagmennskan Þessar aðgerðir eru aðeins upphafið, fleiri eru til skoðunar í ráðuneytinu og snerta þær til dæmis hvernig styrkja megi nem- endur í öðru kennaranámi, s.s. framhaldsskóla- og listkennara- námi og hvernig skapa megi fleiri hvata til þess að fjölga kennara- nemum, til dæmis gegnum Lána- sjóð íslenskra námsmanna. Annar mikilvægur liður í þessu stóra verkefni okkar að bæta menntakerfið og stuðla að bættu starfsumhverfi kennara er nýtt frumvarp sem nú er til umfjöll- unar í Samráðsgátt stjórnvalda. Með því verður í fyrsta sinn lög- fest ákvæði um hæfni sem kenn- arar þurfa að búa yfir til sam- ræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra. Frumvarpið er mik- ilvægt skref í þá átt að tryggja betur réttindi og starfsöryggi kennara óháð skólastigum. Frum- varpið eykur ábyrgð skólastjórn- enda til þess að velja inn þá kenn- ara sem búa yfir þeirri hæfni, þekkingu og reynslu sem þeir leita eftir hverju sinni. Þannig er stuðlað að aukinni viðurkenningu á störfum kennara og faglegu sjálfstæði þeirra sem aftur verður til þess að efla skólaþróun og fjölga tækifærum fyrir skólafólk. Kennsla er fagið sem öll önnur fagmennska grundvallast á. Ef við stefnum að því að eiga fram- úrskarandi vísindamenn, lista- menn, frumkvöðla, blaðamenn, múrara, íþróttafólk, viðskipta- fræðinga, stjórnmálafræðinga eða stýrimenn þurfum við að eiga góða kennara. Fagmennska kennaranna – elja, trú og ástríða er það sem stuðlar að framförum fyrir okkur öll. Eftir Lilju Alfreðsdóttur » Frumvarpið er mikilvægt skref í þá átt að tryggja bet- ur réttindi og starfs- öryggi kennara óháð skólastigum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. Mjög góð fjárfesting

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.