Morgunblaðið - 06.03.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
Veður víða um heim 5.3., kl. 18.00
Reykjavík 1 heiðskírt
Hólar í Dýrafirði -2 léttskýjað
Akureyri 0 alskýjað
Egilsstaðir -5 skýjað
Vatnsskarðshólar 2 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 4 skýjað
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 3 rigning
Stokkhólmur -4 skýjað
Helsinki -6 léttskýjað
Lúxemborg 6 rigning
Brussel 9 skýjað
Dublin 9 rigning
Glasgow 6 skúrir
London 10 skúrir
París 11 rigning
Amsterdam 9 léttskýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 7 skúrir
Vín 10 heiðskírt
Moskva 3 súld
Algarve 16 skýjað
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -14 snjókoma
Montreal -9 léttskýjað
New York -2 snjókoma
Chicago -10 snjókoma
Orlando 12 rigning
6. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:19 19:01
ÍSAFJÖRÐUR 8:27 19:02
SIGLUFJÖRÐUR 8:10 18:44
DJÚPIVOGUR 7:49 18:29
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á fimmtudag Norðaustan 10-18 og snjókoma í
fyrstu syðst á landinu, annars mun hægari og bjart
með köflum en stöku él við N- og A-ströndina. Frost
yfirleitt 0 til 8 stig.
Norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörðum og Suðausturlandi í kvöld. Snjókoma eða él, en víða þurrt
og bjart veður suðvestantil á landinu. Frost 0 til 8 stig, en hiti 0 til 5 stig syðst á landinu.
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Um fjörutíu hælisleitendur tóku sér
mótmælastöðu við móttökumiðstöð
Útlendingastofnunar að Bæjar-
hrauni í Hafnarfirði í gærmorgun.
Var þess krafist að íslenska ríkið
hætti að vísa hælisleitendum frá
landi, að þeir fengju umsóknir sínar
samþykktar í kerfinu og að hælis-
leitendum á Íslandi yrði veitt at-
vinnuleyfi og fullt aðgengi að
íslenska heilbrigðiskerfinu.
„Við viljum sömu réttindi og ann-
að fólk,“ sagði einn úr hópnum er
hann las upp yfirlýsingu sem beint
var að stjórnvöldum. Því næst hróp-
aði hópurinn endurtekið: „Hættið
brottvísunum!“
Eftir að hafa mótmælt við Bæjar-
hraun tók hópurinn sér stöðu við
skrifstofu Útlendingastofnunar á
Dalvegi í Kópavogi. Börðu sumir
þeirra þá í búsáhöld og hrópuðu í
átt að stofnuninni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu var með talsverðan viðbúnað
vegna mótmælanna og voru liðs-
menn sérsveitar ríkislögreglustjóra
einnig á svæðinu almennum lög-
reglumönnum til halds og trausts.
Hælisleitendur tóku sér mótmælastöðu við húsnæði Útlendingastofnunar í Hafnarfirði og Kópavogi
Mótmæltu
stefnu
stjórnvalda
Morgunblaðið/Eggert
Hávær Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra fylgdust grannt með mótmælum hælisleitenda við húsnæði Útlendingastofnunar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra ber að staðfesta tillögu Haf-
rannsóknastofnunar um magn
frjórra laxa sem heimilað verði að ala
í sjó hverju sinni á tilteknu hafsvæði,
samkvæmt frumvarpi til breytinga á
lögum um fiskeldi. Tillöguna á Hafró
að gera á grundvelli áhættumats
erfðablöndunar, eftir að hafa fengið
ráðgefandi álit samráðsnefndar
hagsmunaaðila. Í drögum sem kynnt
voru í samráðsgátt stjórnvalda var
ekki kveðið svo fast að orði.
Ráðherra hefur lagt frumvarpið
fram á Alþingi. Með því er meðal
annars ætlunin að lögfesta áhættu-
mat Hafrannsóknastofnunar til að
draga úr hættu á erfðablöndun eldis-
lax við nytjastofna villtra laxa.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
Hafró leiti ráðgefandi álits samráðs-
nefndar og taki afstöðu til þess og
geri eftir atvikum breytingar áður
en tillagan er lögð fyrir ráðherra.
Tillagan er síðan bindandi fyrir ráð-
herra. Í drögunum var gert ráð fyrir
að ráðherra bæri tillögu Hafró undir
samráðsnefndina áður en hann stað-
festi hana.
Í samráðsnefndinni verða fimm
fulltrúar, einn skipaður af ráðherra
án tilnefningar og jafnframt fulltrú-
ar Hafró, sveitarfélaga, fiskeldis og
veiðiréttarhafa. Sú breyting er gerð
frá drögum að frumvarpi sem kynnt
var fyrr í vetur að fækkað er í nefnd-
inni og út falla tveir af þremur
fulltrúum sem ráðherra hugðist
skipa án tilnefningar.
Aukin vöktun vegna lúsar
Meðal annarra nýmæla í frum-
varpinu er að ætlast er til að innra
eftirlit sjókvíaeldisstöðvar feli í sér
vöktun á viðkomu laxalúsar í eldinu.
Niðurstöður vöktunar skulu sendar
Matvælastofnun sem metur hvort
grípa þurfi til aðgerða. Gert er ráð
fyrir að í reglugerð sem ráðherra
setur verði heimilt að mæla fyrir um
aðgerðir vegna sníkjudýra í fiskeld-
inu, svo sem um skyldu rekstraraðila
til að telja laxalús við tilteknar að-
stæður, setningu viðmiðunarmarka
vegna viðbragða og aðgerðir vegna
útbreiðslu laxalúsar.
Leitast er við að auka gegnsæi í
fiskeldisstarfsemi. Liður í því er að
skylda fyrirtækin til að hafa upplýs-
ingar um starfsemi sína til stjórn-
valda umfangsmeiri en nú. Lagt er
til að stjórnvöld fái upplýsingar mán-
aðarlega. Þær eiga að bæta mögu-
leika opinberra eftirlitsaðila til að
átta sig á þróun starfseminnar og
bæta eftirlit sitt.
Tillaga Hafró bindandi fyrir ráðherra
Lögfesta á áhættumat vegna erfðablöndunar Hafró á að leita ráðgefandi álits samráðsnefndar
hagsmunaaðila áður en tillagan er lögð fyrir ráðherra Kveðið sterkara að orði en í frumvarpsdrögum
Meginefni frumvarpsins
» Áhættumat Hafró vegna
erfðablöndunar lögfest.
» Heimiluð verði úthlutun
eldisleyfa með útboði.
» Stjórnsýsla efld og eftirlit
aukið.
» Ákvæði um vöktun og að-
gerðir vegna laxalúsar.
» Aukið gagnsæi um starf-
semina.
» Umhverfissjóður sjókvíaeld-
is efldur.
» Heimild til álagningar sekta.Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjókvíaeldi Unnið að slátrun laxa úr sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði.