Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
Borgarstjórn gafst í gær tæki-færi til að samþykkja tillögu
um að lækka skatta á borgarbúa en
meirihlutanum leist
ekki á tillögurnar
og felldi þær. Sjálf-
stæðismenn í borg-
arstjórn lögðu fram
tillögur um að
lækka útsvar úr
hæsta lögleyfða há-
marki, 14,52% í
14,00%. Meirihluta
Viðreisnar, Sam-
fylkingar, Pírata og
Vinstri grænna, auk
að sjálfsögðu full-
trúa Sósíalista, þótti
ástæða til að standa
gegn þeirri tillögu
enda hefði hún
gagnast skattpíndum borgarbúum.
Sjálfstæðismenn fluttu einnig til-lögur um að minnka arð-
greiðslur Orkuveitunnar og leyfa
borgarbúum þess í stað að njóta
lægri orkureiknings. Þá lögðu þeir
til að byggingarréttargjöldum yrði
stillt í hóf.
Þetta var meðal þess sem sjálf-stæðismenn lögðu fram í því
skyni meðal annars að liðka fyrir
kjaraviðræðum. Sagði oddviti
flokksins, Eyþór Arnalds, í samtali
við K100 í gær að með þessum til-
lögum og aðkomu ríkisins, auk þess
sem atvinnulífið gæti lagt af mörk-
um við samningsborðið, væri kom-
inn grundvöllur til að leysa kjara-
deiluna.
En þó að Reykjavíkurborg leggiá hæstu mögulega skatta, til
dæmis mun hærri skatt á lágar
tekjur en ríkið, þá telur meirihlut-
inn í borginni að hann eigi ekkert
að leggja af mörkum.
Það er athyglisvert viðhorf.
Eyþór Arnalds
Meirihlutinn vill
ekki lækkun skatta
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
„Það er kominn tími á að þessi skatt-
ur verði afnuminn með öllu á ein-
staklinga,“ segir Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, við mbl.is en hún er
fyrsti flutningsmaður frumvarps um
afnám stimpilgjalda á íbúðakaup ein-
staklinga sem tekið var til umræðu á
Alþingi í gær.
Þetta er þó ekki eina frumvarpið
um afnám stimpilgjalda sem þar
verður rætt. Þorsteinn Víglundsson,
þingmaður Viðreisnar, mun ásamt
öðrum þingmönnum flokksins, þeim
Hönnu Katrínu Friðriksson, Jóni
Steindóri Valdimarssyni og Þorgerði
K. Gunnarsdóttur, leggja fram frum-
varp um afnám stimpilgjalda á fólk
og fyrirtæki í áföngum. Mæla þau
með að stimpilgjald verði nú helm-
ingi lægra en það
er í dag og svo
verði það afnumið
með öllu 1. janúar
2020.
Í frumvarpi Ás-
laugar Örnu, sem
einnig er lagt
fram af sjálf-
stæðisþingmönn-
unum Óla Birni
Kárasyni, Vil-
hjálmi Árnasyni, Páli Magnússyni,
Njáli Trausta Friðbertssyni, Ás-
mundi Friðrikssyni, Bryndísi Har-
aldsdóttur og Brynjari Níelssyni, er
lagt til að stimpilgjald vegna kaupa
einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði
afnumið.
Í dag ber einstaklingum almennt
að greiða 0,8% stimpilgjald vegna
kaupa á íbúðarhúsnæði, en þó er
veittur helmingsafsláttur þegar um
fyrstu kaup er að ræða.
Áslaug Arna segir málið fyrst og
fremst snúast um að afnema úreltan
skatt og létta á fólki við fasteigna-
kaup.
Stimpilgjald verði afnumið með öllu
Tvö frumvörp á Alþingi um afnám
stimpilgjalda á fólk og fyrirtæki
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Styrkja á og herða eftirlit í höfnum
og skipum til að stemma stigu við til-
raunum einstaklinga til að brjótast
inn á afmörkuð hafnarsvæði með
það að markmiði að gerast laumu-
farþegar samkvæmt frumvarpi sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
um breytingar á lögum um siglinga-
vernd, sem lagt hefur verið fram á
Alþingi.
Samgöngustofa fær heimild til að
leggja á dagsektir, sem geta numið
frá 10.000 kr. til 1 milljón króna á
dag, á eftirlitsskylda aðila og mælt
er fyrir um refsingar þegar um inn-
brot á haftasvæði siglingaverndar er
að ræða.
,,Vonast er til að frumvarpið hafi
þau áhrif að tilraunum til innbrota á
haftasvæði siglingaverndar fækki
eða þeim linni alfarið, jafnframt því
að aðilar standi sig enn betur við að
framfylgja þeim skyldum sem á
þeim hvíla lögum samkvæmt,“ segir
í greinargerð.
Í frumvarpinu eru lagðar til
breytingar á lögum sem samþykkt
voru á Alþingi í fyrrasumar en meg-
inmarkmið þeirra var að draga sem
mest úr tilraunum til að brjótast inn
á afmörkuð hafnarsvæði með það að
markmiði að gerast laumufarþegar.
Tryggja vernd fyrir hvers kyns
ógn af hryðjuverkum o.fl.
Þá var m.a. gert ráð fyrir að lág-
marksrefsing vegna slíkra brota
gæti verið hálf milljón kr. og að há-
marki fimm ára fangelsi. Umhverfis-
og samgöngunefnd þingsins beindi
því hins vegar til ráðuneytisins að
endurskoða tillögur um refsiákvæði
laganna og hefur það nú verið gert
auk fleiri breytinga sem lagðar eru
til m.a. um beitingu þvingunar-
úrræða í formi dagsekta til að knýja
eftirlitsskylda aðila til að fara að lög-
unum varðandi æfingar, úttektir og
gerð verndaráætlana á hafnar-
svæðum.
,,Talið er að ákvæði af þessu tagi
tryggi að þeir sem lúta eftirliti sam-
kvæmt lögum um siglingavernd
uppfylli skyldur sínar samkvæmt
lögunum. Þannig sé betur tryggt að
markmið laganna náist, þ.e. mark-
mið um að tryggja vernd skipa,
áhafna, farþega, farms og hafn-
araðstöðu fyrir hvers kyns ógn af
hryðjuverkum og öðrum ólögmæt-
um aðgerðum,“ segir í frumvarpinu.
Herða eftirlit í höfnum
gegn laumufarþegum
Heimilt verði að beita dagsektum sem geti
verið frá 10 þúsund til einnar milljónar kr.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ferming
Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum
stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús
Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu.
FERMINGAVEISLUR
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
3ja rétta STEIKARhlaðborð
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
PINNAMatur
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500
kaffihlaðborð
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN