Morgunblaðið - 06.03.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 06.03.2019, Síða 14
Þingmenn fengu heyrnarmælingu Dagur heyrnar var sl. mánudag og af því tilefni bauð Heyrnar- og tal- meinastöðin upp á heyrnarmælingar fyrir alþingismenn. Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, var fyrsti stjórn- málamaðurinn sem fékk heyrn sína mælda í ferðastöð Heyrnar- og tal- meinastöðvar Íslands sem var lagt við Alþingishúsið í tilefni dagsins. Markmið þessarar árlegu uppá- komu er að vekja athygli á mikilvægi heyrnar og heyrnarverndar, ásamt því vandamáli sem heyrnartap og heyrnarleysi veldur í heiminum. Einnig er vakin athygli á hlutverki heilbrigðisstétta í skimun, greiningu og meðferð heyrnarvandamála. Það voru Heyrnar- og talmeina- stöð Íslands (HTÍ) og Heyrnarhjálp sem stóðu saman að þessum við- burði, en auk heyrnarmælingar ráðamanna var kynnt nýtt tól til heyrnarmælinga, app eða snjall- forrit, til að vekja athygli á heyrn og mikilvægi heyrnarverndar. Heyrnarmæling Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ásamt Kristjáni Sverrissyni, forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar.  Heyrnar- og talmeinastöðin mætti Ljósmynd/Gunnar Skúlason 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, kynnti í gær fyrstu að- gerðir sem ráðist verður í til þess að mæta þeim áskorunum sem boðaðar eru í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar og snúa að sókn í menntamálum. Í sáttmálanum er meðal annars lögð rík áhersla á að efla menntun í landinu með hagsmuni nemenda að leiðarljósi. „Frá og með næsta hausti býðst nem- endum á lokaári meistaranáms til kennslu- réttinda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám. Markmiðið með þeirri aðgerð er að hvetja nemendur til þess að klára nám sitt á tilsettum tíma og að þeir hefji störf sem fyrst að námi loknu,“ segir í tilkynn- ingu sem mennta- og menningarmálaráðu- neytið sendi frá sér. Skal starfsnámið vera í minnst 50% starfshlutfalli við leik- eða grunnskóla í eitt skólaár og fá nemendur greitt samkvæmt kjarasamningi. Þá munu kennaranemar njóta leiðsagnar reynds kennara á vettvangi og þess gætt að þeir hafi jafnframt svigrúm til að vinna að lokaverkefnum sínum. Verður metið reglulega Fram kemur í tilkynningu að um sé að ræða sértækar aðgerðir. „[F]yrirkomulagið verður endurmetið reglulega með það að leiðarljósi að efla kennaranám enn frekar. Meirihluti kennaranema á meistarastigi eru nú þegar starfandi í leik- og grunnskólum landsins. Til að tryggja að sem flestir nem- ar komist í launað starfsnám er nauðsynlegt að skólar, sveitarfélög, háskólar og mennta- og menningarmálaráðuneyti vinni náið sam- an.“ Þá munu nemendur á lokaári meistara- náms til kennsluréttinda á leik- og grunn- skólastigi geta sótt um námsstyrk frá og með næsta hausti. Er markmiðið að auð- velda nemendum að sinna lokaverkefnum sínum samhliða launuðu starfsnámi og skapa þannig hvata fyrir nemendur að ljúka námi á tilsettum tíma. Styrkur til hvers nemanda nemur alls 800.000 kr. og greiðist í tvennu lagi. Er áætlaður árlegur kostnaður ríkisins vegna þessa talinn nema um 200- 250 milljónum kr. » 19 Launað starfsnám á meistarastigi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Átak Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti úrbætur í mennta- málum í gær. M.a. á að skapa hvata fyrir kennaranema til að ljúka námi sínu á tilsettum tíma.  Mennta- og menningarmálaráðherra kynnti aðgerðir í menntamálum  Markmiðið er að hvetja nemendur til þess að klára nám sitt á tilsettum tíma og hefja um leið störf sem fyrst að námi loknu Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita TILBOÐSDAGAR 15-20% afsláttur af öllum vörum. ÞV O TT AV ÉL A R KÆ LI SK Á PA R HELLUBORÐ ÞURRKARAR SMÁTÆKI U PPÞVO TTAVÉLA R OFNAR RYKSUGUR VIFTUR OG HÁFAR Skoðaðu úrvalið okkar á *FRí heImkeyRSLA í neTveRSLun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.