Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.03.2019, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 ✝ Einar Sigur-björnsson fæddist í Reykjavík 6. maí 1944. Hann lést á Vífilsstöðum 20. febrúar 2019. Foreldrar hans voru Sigurbjörn Einarsson biskup, f. 30. júní 1911, d. 28. ágúst 2008, og kona hans Magnea Þor- kelsdóttir, f. 1. mars 1911, d. 10. apríl 2006. Börn þeirra: Gíslrún, Rannveig, Þorkell, Árni Bergur, Einar, Karl, Björn og Gunnar. Bræður Einars, Þorkell, Árni Bergur og Björn eru látnir. Eiginkona er Guðrún Edda Gunnarsdóttir, náttúrufræð- ingur og fv. sóknarprestur í Þingeyrarprestakalli, f. 1. sept- ember 1946, og eignuðust þau þrjú börn: 1) Sigurbjörn, f. 9. október 1971, viðskiptafræð- ingur. Fyrrverandi eiginkona Brynja Jónsdóttir, f. 1. ágúst 1972, lyfjatæknir. Þau eign- uðust þrjá syni, Einar, f. 17. september 1997, d. 6. mars 2018, Eggert Árna, f. 6. október 2000, og Magnús Þorkel, f. 9. febrúar 2005. Sambýliskona Sigurbjörns er Karen Sif Þorvaldsdóttir, f. 12. mars 1976, tannsmiður, syn- ir hennar eru Dagur Steinn, f. 18. febrúar 2003, Haukur Logi, f. 7. september 2007, og Hilmar Örn, f. 11. febrúar 2010. 2) Guðný, f. 7. desember 1978, tón- nefnd Ritraðar Guðfræði- stofnunar 1994-1998 og ritstjóri 2001-2004. Varaforseti Há- skólaráðs 1983-1985. Fulltrúi í trúar- og skipulagsmálanefnd Alkirkjuráðsins 1984-1992 og fulltrúi þjóðkirkjunnar í nefnd- um samkirkjuráðs Norðurlanda 1987-2004. Var í stjórnarnefndum nor- rænna rannsóknaverkefna: Nordisk homiletik 1995-2000, um vígslu kirkjunnar þjóna 1996-2006 og um sálma Lúthers í lífi Norðurlandabúa 2000-2008. Hann stýrði verkefninu Þýdd guðsorðarit á Íslandi á 17. öld. Einar hlaut viðurkenningu Hagþenkis fyrir fræðistörf árið 1990. Einar var formaður helgi- siðanefndar þjóðkirkjunnar 1978-1997 og skipaður í helgi- siða-, handbókar- og sálma- bókarnefnd hennar 2003, for- maður Sálmabókarnefndar til æviloka. Hann sat á Kirkjuþingi 1994- 1997 og í ýmsum nefndum þjóð- kirkjunnar: skipulags- 1993- 1997, djákna- 1990-1997 og kenningarnefnd 1997-2014. Félagi í Vísindafélagi Norð- manna frá 1988 og í Vísinda- félagi Íslendinga frá 1994; vara- forseti 1999-2004 og forseti þess frá 2004-2008. Fulltrúi HÍ í stjórn Guðbrandsstofnunar á Hólum í Hjaltadal frá 2004-2013. Meðal bóka sem Einar ritaði eru Orðið og trúin, Kirkjan játar, Credo, kristin trúfræði, Ljós í heimi og Embættisgjörð. Einar sat í ritstjórn ýmissa fræðirita og ritaði fjölda greina í fræðirit, tímarit og blöð. Útför hans fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 6. mars 2019, klukkan 11. listarmaður. Eigin- maður hennar er Jón Hafsteinn Guð- mundsson, sérfræð- ingur, f. 24. júní 1980. Börn þeirra eru: Karitas, f. 10. september 2008, og Guðmundur Einar, f. 23. apríl 2014. 3) Magnea, fata- og textílhönnuður, f. 15. mars 1986. Eiginmaður hennar er Yngvi Ei- ríksson verkfræðingur, f. 24. janúar 1984. Börn þeirra eru: Rökkvi Sólberg, f. 18. mars 2010, og Edda Fanney, f. 11. nóvember 2018. Einar gekk í Miðbæjarskól- ann, stúdent frá MR 1964 og lauk embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1969. Stundaði nám í trú- fræði og játningafræði við guð- fræðideild Lundarháskóla og lauk doktorsprófi 1974. Heiti doktorsritgerðar: Ministry within the People of God. Einar var prestur á Ólafsfirði 1969-70, Hálsi í Fnjóskadal 1974-75 og á Reynivöllum í Kjós 1975-78. Stundakennari við guð- fræðideild HÍ 1975-1977. Hann var prófessor í guðfræði með trúfræði sem aðalkennslugrein frá 1978-2014. Einar var forseti guðfræði- deildar 1981-1985, 1990-1993 og 2004-2006. Í stjórn Guðfræði- stofnunar 1990-2007, forstöðu- maður 1995-2007. Hann var í rit- Elsku pabbi. Það er með sorg í hjarta og mikl- um söknuði að ég skrifa þessi minn- ingarorð, elsku pabbi minn, minn- ingarorð sem mér finnst ekki gaman að hugsa um, ótímabært og erfitt að vera að skrifa núna. Það er ákveðin huggun að vita að nafni þinn tók á móti þér og nú eruð þið saman. Hann Einar minn átti alltaf sérstakan stað hjá þér, pabbi, og ég gleymi aldrei brosinu á þér þegar þú heyrðir nafnið sem hann fékk í skírninni sinni, nafni minn og hjartakóngur eins og þú kallaðir hann alltaf. Hann var fyrsta barna- barnið ykkar mömmu og hann fékk að eiga ömmu og afa einn fyrstu þrjú árin sín en síðan fór að bætast í hópinn. Minningarnar ylja og hjálpa í sorginni en þær eru líka svo erfiðar á sama tíma því þær eru minning- ar, sem verða bara minningar og aldrei endurteknar. En þær eru svo margar og lifa áfram því þó að líkaminn sé sofnaður þá lifir sálin og minningin og það er það sem við, sem eftir erum, höldum á lofti og minnumst. Núna þegar ég rifja upp og hugsa til baka þá er svo margt sem ég get þakkað og verið þakklátur fyrir. Þú kenndir mér svo margt og varst góð fyrirmynd en fyrst og fremst alltaf til staðar. Það breytt- ist ekki eftir að þú veiktist fyrir rúmum þremur árum og þó að veikindin drægju mikið af þér þá breyttist þú aldrei. Alltaf sama hlýjan, sami húmorinn, sama elsk- an, sama þolinmæðin og æðru- leysið. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Elsku pabbi minn, þú ert ekki lengur hjá okkur en ég veit að sálin lifir og er hjá okkur. Minningin þín lifir áfram með okkur og allar fal- legu minningarnar hjálpa okkur í gegnum sorgina. Guð geymi þig, pabbi minn. Þinn sonur, Sigurbjörn. Það er tómlegt að setjast niður og skrifa þessi orð og vita að ég mun ekki geta leitað til pabba áður en ég sendi þau frá mér. Uppfull af söknuði sit ég með litlu stúlkuna mína í vöggunni við hlið mér og geri fátæklega tilraun til að setja saman texta sem lýsir því hversu mikil stoð og stytta hann var í mínu lífi. Það sem er mér efst í huga er þakklæti. Elsku pabbi. Takk fyrir að segja mér að lifa ekki lífinu í viðtengingarhætti. Hugsa ekki um það sem hefði getað orðið heldur vera æðrulaus og sætta mig við það sem ég get ekki breytt. Þessu lifðir þú eftir á aðdá- unarverðan hátt og nálgaðist nú síðast þá þrautagöngu sem veikindi þín voru. Takk fyrir að ganga drengnum mínum í föðurstað. Að hafa svo oft sótt okkur á dimmum köldum morgnum og skutlað í leikskóla og vinnu. Að hafa passað hann á kvöldin og verið oftar en ekki búinn að vaska upp þegar ég kom heim. Fyrir að syngja fyrir hann eins og þú gerðir fyrir mig þegar ég var lítil. Ég er þakklát fyrir hversdags- legar minningar sem fáir skilja nema þeir sem eiga þær með okk- ur. Hjólbörurnar í Kjósinni, sér- viskan með uppþvottavélina, hjóna- sæla og mjólk. Það kemur svo margt upp í hugann. Hatturinn þinn. Flugvélaáhuginn. Tyggjókar- tonið í skrifborðsskúffunni í háskól- anum. Rauður Opal í brjóstvasan- um. Súrmjólk, púðursykur og cheerios. Þú hafðir þínar föstu venjur og ég er þakklát fyrir það. Líka hvað þú varst vandvirkur og kenndir mér að gera hlutina vel. Óþolin- mæðin í mér hafði gott af því og nú skef ég bílinn í þínum anda. Takk fyrir að kenna mér að leyfa tímanum að líða. Bíða og sjá. Sofa á þessu. Sjá hvað mér finnst á morg- un. Takk fyrir að hafa gefið mér endalaust af þínum tíma. Að hafa lesið fyrir mig á hverju einasta kvöldi þegar ég var lítil og leyft mér að lesa fyrir þig þegar þú gast það ekki lengur. Að hafa alltaf verið til í að svara spurningum mínum. Þú varst svo fróður og góður að setja hlutina í samhengi. Takk fyrir að deila með mér visku þinni. Takk fyrir að kenna mér að klára það sem ég byrja á. Ég er þakklát fyrir að þið mamma hafið hvatt mig til að klára námið mitt í London. Þó að ég hafi verið ein með lítið barn. Takk fyrir að hafa stutt mig í einu og öllu og hafa alltaf haft óbilandi trú á mér. Að hafa verið stoltur af mér. Ég var líka stolt af þér. Takk fyrir það sem ég kunni ekki alltaf að meta. Ég er þakklát fyrir að hafa komið inn í allar kirkj- urnar og öll söfnin. Að þið hafið kennt mér lagið um konuna sem gleypti fluguna þegar ég var að gef- ast upp á einhverri gönguferðinni. Og ég er þakklát fyrir að þú hafir aldrei gefist upp á að reyna að kenna mér nöfnin á öllum kennileit- um á Íslandi á ferðum okkar um landið. Þér tókst það reyndar ekki. Takk fyrir að kenna mér að sjá það spaugilega í aðstæðum. Fyrir síðasta hláturskastið okkar á Borgarspítalanum í haust er ég sérstaklega þakklát. Þegar ekkert annað var í stöðunni en að hlæja að því sem orðið var og við grétum saman úr hlátri. Ég er svo þakklát fyrir að þrátt fyrir öll þessi erfiðu veikindi þá varstu alltaf sami gamli góði pabbi. Guð geymi þig. Þín Magnea. Ég þakka Guði mínum í hvert skipti, sem ég hugsa til yðar. (Fil. 1,3) Á þessum orðum hefst bréf Páls til Filippímanna. Á þessum orðum hófst líka brúðkaupsræða afa Sig- urbjörns til ykkar mömmu, þar sem afi lagði listavel út frá þessum orðum í ræðunni. Þessi orð höfðu sterk áhrif á mig þegar við áttum síðustu stundirnar með þér á Vífilsstöðum og ég sá svo vel hvað þessi orð hafa verið ykkur mömmu mikið leiðarljós í ykkar lífi, þið hafið svo sannarlega þakkað Guði fyrir hvort annað í hvert skipti sem þið hugsuðuð hvort til annars. En líka hafið þið þakkað fyrir lífið sjálft og allar þær gjafir sem þið nutuð saman. Það höfum við börnin ykkar og barnabörn alltaf fengið að finna, að þið hafið verið þakklát fyr- ir okkur öll. Þakklát, stolt og hvetj- andi. Elsku pabbi. Minningarnar eru óteljandi. Þú sýndir öllu sem ég gerði alltaf svo mikinn áhuga og barst svo mikla umhyggju fyrir mér. Fyrir það er ég þér svo þakk- lát. Þú varst óþreytandi að hjálpa, uppörva, hlusta og spjalla um smátt sem stórt. Það var líka svo gaman að heyra þig segja frá því sem þú hafðir áhuga fyrir og í frá- sögum þínum varð allt svo ljóslif- andi fyrir manni. Allar sögurnar þínar frá því þú varst lítill og glampinn í augunum þegar þú sást flugvél lenda eða þegar þú rakst augun í gamlan, flottan bíl. Frásagnirnar af barnabörnun- um og þeirra uppátækjum þegar þú hafðir verið að passa þau, stoltið leyndi sér ekki. Þú hafðir líka áhuga fyrir fólkinu í kringum okk- ur, vinum okkar, samferðafólki. Þú mundir svo vel eftir öllum og tókst öllum eins og þeir voru. Og seinna þegar þú sagðir frá á söguslóðum og settir hlutina svo vel í samhengi. Þú gafst alltaf svo mikið af þér, al- veg fram á síðasta dag. Það var aðdáunarvert hvað þú tókst á við veikindi þín af miklu æðruleysi. Þér tókst einhvern veginn alltaf að finna ljósan punkt í hverju sem var og vera þakklátur fyrir alla þá hjálp sem þú fékkst. Og ég er svo óend- anlega þakklát fyrir þig, elsku pabbi minn, þó að það sé svo sárt að þú sért farinn. Þakklát fyrir að hafa átt eins góðan pabba og þú varst, þakklát fyrir þá fyrirmynd sem þú varst mér. Guð geymi þig, þín dóttir, Guðný. Elsku afi minn. Ég sakna þín svo mikið, það er svo skrítið að þú sért dáinn. Ég á svo margar góðar minningar um þig þegar þú varst að passa mig. Þú varst alltaf að segja mér sögur og þú kunnir að segja þær svo skemmtilega. Stundum varstu bú- inn að segja mér söguna um Brúsa- skegg mörgum sinnum en mér fannst hún alltaf jafn skemmtileg þegar þú sagðir hana. Svo vorum við alltaf að leika okkur, þú varðst aldrei þreyttur á að leika og varst alltaf í góðu skapi. Mér fannst svo erfitt þegar þú varðst veikur, elsku afi minn. Þú varst samt alltaf í góðu skapi þó að þú værir veikur. Þú varst alltaf svo glaður að sjá okkur og það var svo gott að vera með þér. Elsku afi minn, Guð geymi þig alltaf. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Þín Karitas. Þegar ég man fyrst eftir mér sváfum við Einar bróðir í sama rúmi. Lágum hlið við hlið og hlust- uðum á mömmu lesa framhalds- sögu kvöldsins, fórum saman með bænirnar, hurfum saman á vit svefnsins. Inn til okkar bárust ærsl og sköll frá róluvellinum og svo skrölti strætisvagninn ofan götuna og sendi ljóskeilu inn um gluggann sem færðist frá glugganum yfir loftið og myndaði skuggaspil sem lék á súðinni. Undir ómuðu hlátrar eldri systkinanna úr stofunni og taktfast tifið í ritvélinni hans pabba. Þetta fylgdi okkur inn í drauma- landið, öryggi, friður, hlýr fjöl- skyldufaðmur, heimur í góðum skorðum. Við urðum iðulega samferða í Miðbæjarbarnaskólann, í spilatím- ana, í sunnudagaskólann og svo í KFUM og þrjúbíóin. Lásum sömu bækurnar, hlustuðum á sömu tón- listina og Einar hjálpaði mér með heimalærdóminn. Einar var alltaf í nánd, stóri bróðir, hinn náni vinur, sálufélagi, fyrirmynd og fræðari. Eflaust hefur á stundum gengið mikið á í litla húsinu á Freyjugötu 17. Tvær systur og sex bræður. Einar Sigurbjörnsson SJÁ SÍÐU 22 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR MALMQUIST, fv. forstjóri Byggðastofnunar, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold föstudaginn 1. mars. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. mars klukkan 15. Sigríður J. Malmquist Ásta Malmquist Eggert Teitsson Rúna Malmquist Torfi Kristjánsson Jón Eðvald Malmquist Guðrún K. Rúnarsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MATTHÍAS EINARSSON fv. lögregluvarðstjóri á Akureyri, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 8. mars klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Líknarsjóð Oddellowreglunnar. Jóhanna María Pálmadóttir Pálmi Matthíasson Unnur Ólafsdóttir Stefán E. Matthíasson Ásdís Ólöf Gestsdóttir Gunnar Rúnar Matthíasson Arnfríður Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, frænka, amma, langamma og langalangamma, GUÐBJÖRG ÁMUNDADÓTTIR Minna Núpi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, lést á Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, mánudaginn 4. mars. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Ingólfsdóttir Auðunn Gestsson Herdís Kristjánsdóttir Trausti Sveinbjörnsson Ámundi Kristjánsson Viðar Ingólfsson Nína Björg Borgarsdóttir Guðbjörg Emma Ingólfsd. Gunnlaugur Óttarsson Snorri Arnarson Erla Gunnarsdóttir Erla Arnardóttir Ingi Björnsson langömmu - og langalangömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BORGHILDUR THORS þroskaþjálfi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 1. mars. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. mars klukkan 13. Hilmar Oddsson Guðlaug M. Jakobsdóttir Elísabet Á. Oddsdóttir Ómar Jóhannsson Hera Hilmarsdóttir Sam Keeley Oddur Sigþór Hilmarsson Oddur Ómarsson Arnar Ómarsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hallskoti, Fljótshlíð, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli miðvikudaginn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Hlíðarendakirkju laugardaginn 16. mars klukkan 14. Júlía Adolfsdóttir Kolbeinn Guðmannsson Elísa Adolfsdóttir Brynjólfur Tómasson Hólmfríður Ásmundsdóttir Einar Eiríksson Ásmundur Eiríksson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.