Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019  Fleiri minningargreinar um Einar Sigurbjörnsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Nú er elskuleg tengdamóðir mín látin 95 ára að aldri. Hún var búin að berjast við Alzheimer-sjúk- dóminn í hartnær 20 ár. Það var erfitt að horfa á eftir þess- ari fallegu og kátu konu hverfa inn í tómarúmið. Góðar minningar um sam- band okkar eru aftur á móti það sem stendur eftir. Kynni okkar hófust fyrir tæplega 50 árum þegar við Eysteinn sonur hennar kynntumst. Allt frá fyrsta degi tók hún mér vel og við urðum strax kærar vin- konur. Hún var mér alla tíð sem önnur móðir í höfuðborg- inni, með mína eigin móður úti í landi. Samband okkar byggð- ist á trausti og ég gat leitað til hennar þegar á móti blés. Sam- band okkar við tengdaforeldra mína var alla tíð náið. Við hitt- umst oft og heyrðumst dag- lega. Við ferðuðumst mikið saman og alltaf var samveran ánægjuleg og áreynslulaus. Eftirminnilegar eru ferðir til Bandaríkjanna og Mallorca. Þau voru heimsborgarar og nutu þess lengi að ferðast. Þegar við bjuggum í Banda- ríkjunum komu þau oft að heimsækja okkur bæði til að njóta samveru og passa börnin þegar við þurftum að bregða okkur af bæ. Það var auðsótt mál að fá aðstoð þeirra og þau höfðu ánægju af því að kanna nýjar slóðir og veigruðu sér ekki við krefjandi verkefnum í ókunnugu landi. Þrátt fyrir að minnið væri gloppótt og alveg farið síðustu árin sagði hún alltaf við mig „þú ert svo góð“. Mér fannst hún líka góð og má segja að þessi skoðun okkar hvor á ann- arri hafi verið einkennandi fyr- ir samband okkar. Langri ævi er lokið. Hún var vissulega löngu tilbúin að kveðja. Fyrir nokkrum vikum, mér að óvörum, þar sem erfitt var orðið að skilja hana, sagði hún: „Mig langar svo að kaupa eitthvað handa honum því hann var alltaf svo góður við mig.“ Ég geri mér grein fyrir því núna að líklega hefur hún átt við hann Helga tengdaföður minn og hún með þessu að undirbúa sína hinstu för, hún var á leiðinni til hans. Kristín Rútsdóttir. Í dag kveð ég kæra vinkonu, ömmu mína og nöfnu. Stað- reyndin er að vísu sú að kveðjustundin er búin að vera mjög löng en smám saman hef- ur þessi litríki og frábæri per- sónuleiki verið að hverfa. Amma varð alzheimersjúk- dómnum að bráð. Ég er þakk- Kristín Jónsdóttir ✝ Kristín Jóns-dóttir fæddist 28. nóvember 1923. Hún lést 19. febr- úar 2019. Útför Kristínar fór fram 5. mars 2019. lát fyrir að hafa fæðst meðan amma var enn við góða heilsu og fyrir það að hafa eignast frábærar minning- ar með henni og afa. Amma hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu, hún var ung og hress þegar ég fæddist, ég var fyrsta nafna hennar og hún greinilega tilbúin í hlutverkið. Frá því ég man eftir mér fannst mér ekkert betra en að vera með ömmu og afa. Það var öruggt að ef stoppað var í Steinó á föstudegi eða laugar- degi þá var ekki hægt að ná mér heim, ég varð eftir. Í Steinó mátti allt og maður þurfi lítið að hafa fyrir hlut- unum, þar var manni pakkað í æðardúninn, tekið utan af app- elsínum fyrir mann og alltaf allt til alls. Ég þurfti reyndar stundum að skreppa út í búð fyrir ömmu en það var allt í góðu því ég mátti kaupa mér allt sem hugurinn girntist. Amma var ekki þessi pönnu- kökubakandi amma. Það þýddi ekki að nóg væri ekki til, græna glerkrukkan var alltaf stútfull af kexi, snúðar með súkkulaði voru oftar en ekki í boði og amma hefur líklega verið stærsti kaupandi Svala í mörg ár eftir að hann fyrst kom á markað. Þannig amma var amma mín. Við amma vorum góðar vin- konur og nutum þess að vera saman. Hún var alla tíð ungleg og stórglæsileg. Hún fór í lagn- ingu á föstudögum, hún var smart og hugaði vel að útlitinu, Dior-kremin spiluðu þar stórt hlutverk. Þau virkuðu vel því amma bara aldurinn vel og lengi vel létu hrukkur á sér standa. Þegar við amma þvæld- umst saman var haldið að hún væri mamma mín, það þótti mér smart, en alls ekki vand- ræðalegt eins og hefði getað orðið. Við fórum í bæinn að kaupa gjafir, á kaffihús, í hótel- ferðir innanlands og til út- landa, aldrei var neitt vesen, bara gaman. Ömmu var mikið í mun að ég myndi eignast góðan kærasta og var þungu fargi af henni létt þegar ég kynntist eiginmanni mínum. Hún lét ekki þar við sitja og fór þá í staðinn að hafa áhyggjur af ástamálum vin- kvenna minna. Löngu eftir að minnisleysið tók völdin var hjú- skaparstaða þeirra sem heim- sóttu hana iðulega til umræðu. Þegar hún vissi að hún hefði sagt eitthvað óviðeigandi í þessum efnum eða þegar minn- ið brást henni seinni árin redd- aði hún sér; með glampa í aug- um sagði hún „suður með sjó“. Þá vissi maður að tímabært væri að skipta um umræðuefni. Glettin, falleg og skemmti- leg, þannig ætla ég að minnast ömmu minnar um ókomna tíð. Hvíl í friði, elsku amma mín. Kristín Björg Eysteinsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Ísafirði, lést sunnudaginn 3. mars. Hún verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 16. mars klukkan 14. Sigríður Níelsdóttir Gísli Vigfússon Guðmundur G. Níelsson Guðrún Eyjólfsdóttir Kristinn J. Níelsson Harpa Jónsdóttir María Níelsdóttir Rúnar Már Jónatansson Kristín Theodóra Nielsen og ömmubörn B-bekknum, en þessi ærslalausa kátína sem leiftraði stundum í aug- um hans var ógleymanleg. Hjálp- semi hans og umhyggja átti fáa sína líka. Og ein af samhjálpar- stundunum rennur hjá í mynda- safninu: Það er latínutími og þegar ólesin bekkjarsystir hefur lokið þýðingu sinni úr Gallastríðunum og allir í bekknum vita að það var Ein- ar sem gegndi hlutverki hvíslarans segir ljúfmennið, latínukennari og rektor: Þakka yður fyrir, þetta var gott, Einar. Hláturinn kraumar kannski í okkur hinum, en þetta er svo fallegt leikrit að enginn maður hlær. Auðvitað veit kennarinn að það er ekki farið eftir ströngustu latínuskólareglum, en það sem skiptir máli er að nemendur eða nemandi læri af því. Af því máttu uppalendur margt nema. Eftir menntaskólaárin verða samvistirnar stopular, en það er eins og hver samfundur sé staðfest- ing þess sem var: Græskulaus vin- átta og hlýja. Það skiptir engu hvort titillinn er doktor eða pró- fessor: Ljúfmannlegt lítillæti er ósigrandi. Og nú er lokið göngunni um táradalinn. Hún var erfið á loka- skeiðinu, en ef framtíðardraumur Einars hefur ræst er vísast að Kristinn Ármannsson hafi haft orð fyrir móttökunefndinni á nýja staðnum og sagt: Velkominn Einar, þetta var gott! Með kveðju og þökk frá bekkjar- systkinum, Ásdís Skúladóttir og Heimir Pálsson. Jesús segir: „Ég bið ekki ein- ungis fyrir þessum heldur og fyrir þeim sem á mig trúa fyrir orð þeirra, að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig. Og ég hef gefið þeim þá dýrð sem þú gafst mér svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt, ég í þeim og þú í mér svo að þeir verði fullkom- lega eitt til þess að heimurinn viti að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.“ (Jóh. 17.20-23.) Einn feðra minna hefur heilsað nýjum degi í dýrð Guðs, faðir í merkingunni Doktorvater en það fallega hugtak hafa Þjóðverjar um leiðbeinanda í doktorsnámi. Fyrst þegar ég kom til dr. Einars til að falast eftir leiðsögn hans lagði hann til að rannsóknarefnið yrði prédik- anir íslenskra presta á 20. öld enda var prédikunin, fræði hennar og innihald, eitt af áhuga- og sérsvið- um hans. Meðal þess sem minnis- stætt er úr kennslu hans í prédik- unarfræðum fyrir þrjátíu árum er að gjarna mætti hefja prédikun með eftirfarandi bæn sem byggist á Jóh 17.17: „Heilagi faðir, helga þú oss í sannleikanum. Þitt orð er andi, líf og sannleikur.“ Sú bæn segir mikið um guðfræði hans en einnig trúarafstöðu. Án anda og lífs nær sannleikurinn ekki til hjartans. Annað sérsvið leiðbeinandans varð þó fyrir valinu, samkirkjuleg guðfræði, sem hann sjálfur sinnti af alúð og með mikilsverðu framlagi til norrænna og alþjóðlegra guð- fræðirannsókna. Á erlendri grundu ber líklega hæst þátttöku dr. Ein- ars í fimmta þingi Trúar- og skipu- lagsmálanefndar Alkirkjuráðsins í Santiago de Compostela sumarið 1993. Þýðing hans á merkasta og útbreiddasta samkirkjuskjali sömu nefndar frá 1982, „Skírn, máltíð Drottins og þjónusta“, byggist á yfirgripsmikilli þekkingu og guð- fræðilegri nákvæmri. Fylgdi hann þýðingu sinni eftir með fyrirlestr- um um allt land sem voru mikil- vægur liður í að færa íslenskt kirkjulíf nær hinni almennu kirkju en áður hafði verið. Sem lærifaðir og vinur var Einar einstakur, ljúflyndur og glaðsinna án þess að gefa eftir í því sem hann vissi að var rétt. Það var okkur báð- um mikið gleðiefni að við gátum lokið okkar sameiginlega verkefni áður en veikindin settu um of strik í þann reikning. Og nú hefur Jesús gefið honum hlutdeild í dýrð sinni í einingu himnanna þar sem vissu- lega eru margar vistarverur (Jóh. 14.2) en allar innan sömu tjaldbúð- ar Guðs sem „mun búa hjá þeim og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra“. (Op. Jóh. 21.3) Mínum kæru vinkonum, Guð- rúnu Eddu, Guðnýju og Magneu, samhryggist ég af heilum huga, sem og öðrum í fjölskyldu dr. Ein- ars, og flyt hugheilar þakkar- og samúðarkveðjur frá samstarfs- nefnd kristinna trúfélaga á Íslandi. María Ágústsdóttir. Við mættumst í fremri dyrum kapellu Háskóla Íslands 4. október 1968. Hann á leið út, ég á leið inn. Það var táknrænt. Hann var að ljúka námi, ég að hefja það. Einar útskrifaðist og hélt á braut, varð prestur á Ólafsfirði og fór svo til framhaldsnáms í Lundi þar sem ég hitti hann næst á kirkjutónlistar- móti í júní 1973. Árið 1978 var ég skipaður í endurskoðunarnefnd Helgisiðabókarinnar sem Einar leiddi. Ég var þá búsettur erlendis og átti ekki kost á sitja marga fundi nefndarinnar, en þá varð til skrif- legt samtal okkar í milli. Bréf okkar frá þessum tíma eru hluti af þeim fjársjóði reynslu og þekkingar sem ég bý að, og verður aldrei fullþakk- að. Þegar ég kom aftur heim urð- um við enn frekar samferða og höf- um verið það síðan. Ég hef enga tölu á þeim fundum sem við höfum átt, bæði formlegum með mörgum þátttakendum, og óformlegum bara tveir, en gleðst yfir þeim öll- um og þakka þá. Við leiðarlok minnist ég einnig með miklu þakklæti góðra daga við sumarbústað þeirra hjóna Guðrún- ar Eddu og hans í Kjósinni, sem og góðra veitinga þeirra hjóna á heim- ili þeirra í mínum mörgu heimsókn- um til Einars meðan ég enn bjó fjarri höfuðstaðnum, og ekki síst hinnar einstöku hjónabandssælu Guðrúnar Eddu sem var (og er örugglega enn) alveg þrútin af holl- ustu og bragðgæðum. Einar Sigurbjörnsson var í mörgum greinum eins og talandi Lexikon. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum. Með óendanlegri elskusemi sinni reyndi hann að leysa vanda hvers manns sem til hans leitaði. Það get ég vottað og það vil ég þakka að leiðarlokum. Ég hlustaði á hann snemma á ferlinum flytja fyrirlestra sína í Skálholti sem síðar birtust í bókinni: Orðið og trúin. Ég man hvað allir áheyr- endurnir voru glaðir og þakklátir yfir hinum unga guðfræðingi sem flutti fyrirlestra um trú og kirkju í boðun og þjónustu með þeim hætti að allir skildu hvað hann var að fara og samþykktu það. Einmitt það var hans aðalsmerki. Hann talaði og skrifaði þannig að kirkjufólkið allt skildi það og til- einkaði sér það. Hann var ekki aðeins kennari við guðfræðideild, hann var kennari í kirkjunni. Guð blessi minningu og arf- leifð Einars Sigurbjörnssonar og styrki ástvini hans í sorginni. Kristján Valur Ingólfsson. Ó, Jesú, gef þinn anda mér, allt svo verði til dýrðar þér uppteiknað, sungið, sagt og téð, síðan þess aðrir njóti með. Þessi bæn úr fyrsta Passíu- sálmi sr. Hallgríms lýsir vel lífs- viðhorfi og störfum séra Einars Sigurbjörnssonar, doktors og prófessors í guðfræði. Dr. Einar var afar fróður og vel lesinn í fjöl- mörgum greinum guðfræðinnar og trúarhefð, helgisiði og sögu kristinnar kirkju þekkti hann einstaklega vel. Þrátt fyrir mikl- ar annir við kennslu, rannsóknir og ýmis trúnaðarstörf innan há- skólans sem og á vettvangi kirkj- unnar, gaf hann sér tíma til að ræða við okkur nemendurna, ein- staklega þægilegur í viðmóti, traustur og ljúfur ásamt því að stutt var í húmorinn hjá honum. Guðfræðin í allri sinni hæð og dýpt, vangaveltur og spurningar um lífið og tilveruna, um eðli Guðs og tilgang alls, var samofin trúariðkun Einars, daglegri bænagjörð, lestri ritninganna, sálmasöng, tíðagjörð og sunnu- dagsmessunni. Oft tók hann sér í munn vers úr Passíusálmum sr. Hallgríms til að tjá skilning sinn á inntaki kristinnar trúar og þá játningu sem með honum bjó. Opnaði hann þannig mörgum sýn á þann ómetanlega fjársjóð sem Passíusálmarnir eru. Dr. Einar var kallaður til þátt- töku í mörgum nefndum hér á landi, þar sem honum var gjarn- an falið að vera í forystu. Einstök þekking hans á sviði helgisiða og sálmafræði varð til þess að hann hefur verið í forystu á þeim vett- vangi hér á landi í áratugi. Á þessum sviðum lagði hann af mörkum ómælda þekkingu og vinnu sem íslensk kirkja byggist á og mun gera um ókomin ár. Þegar Einar veiktist var hann m.a. formaður sálmabókarnefnd- ar sem hefur á undanförnum ár- um unnið að útgáfu nýrrar sálmabókar sem brátt kemur út. Jafnhliða þeirri vinnu var Einar að taka saman sálmasögu en því miður auðnaðist honum ekki að gefa það verk út áður en hann lést. Guðrún Edda, eiginkona Ein- ars, og fjölskylda, sem af dugnaði og fórnfýsi hafa stutt Einar í margþættum störfum hans fyrr og síðar, vinnur að því að leggja lokahönd á sálmasöguna hans. Mikill fengur verður að þessu riti sem lýsir vel einstakri þekkingu, minni og iðjusemi dr. Einars. Það er verðugt að heiðra minningu dr. Einars og þakka Guði hans miklu og góðu störf fyrir kirkju og kristni með því að styðja við útgáfu sálmasögunnar. Guð blessi minninguna um dr. Einar Sigurbjörnsson og gefi ást- vinum hans frið og huggun. Jón Helgi Þórarinsson. Á árshátíð guðfræðinema fyrir tæpum fjörutíu árum var upp- diktað atriði úr tíma hjá dr. Ein- ari: Prófessorinn var beðinn um að endurtaka orð sín því ekki heyrðist í honum fyrir fugli sem flaug framhjá glugga kennslu- stofunnar í sömu andrá. Í reynd náði ungi trúfræðipró- fessorinn eyrum okkar stúdent- anna alveg ágætlega – hvorki með hávaða né sýndarmennsku heldur með því að setja kenning- ar kristindómsins fram rökrétt og skipulega. Þar vantaði ekkert og engu var ofaukið. Mörg okkar hafa búið að þeirri kennslu æ síð- an og byggt á henni í boðun og fræðslu. Dr. Einar var yfirburðamaður í framsetningu kristinnar trúar enda allt líf hans sjálfs gegnsýrt af Jesú Kristi. Hann var heill og sannur í þeirri trú sem hann byggði á og miðlaði svo vel, hvort sem það var í stofu V, af prédik- unarstóli í kirkju eða á fundi hjá félagi úti í bæ. Fáum hámenntuðum guðfræð- ingum hefur tekist betur að upp- fræða hin leiku á skiljanlegu máli. Þar skipti miklu máli að dr. Einar var afar blátt áfram og hógvær í allri framkomu, einlæg- ur trúmaður og hafði gott vald á íslenskri tungu. Trúfræðin var, eins og trúin sjálf, órjúfanlegur hluti persónu- leikans. Biblíuna þekkti hann mjög vel og Passíusálmana virt- ist hann kunna utanbókar, upp á vers. Vissulega var hann fastur fyrir þegar honum mislíkaði, einkum ef hallaði á trú og kirkju í um- ræðunni. En fas hans og fram- koma einkenndist samt iðulega af ljúfmennsku, hlýju og tillitssemi. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst dr. Einari, notið kennslu hans og fengið að leita til hans síðar. Umhyggju hans fyrir okk- ur stúdentunum lauk ekki við út- skrift, það fékk ég margoft að reyna. Guði sé lof fyrir grandvaran og góðan þjón hans sem nú fær að sannreyna það sem við trúum. Samúðarkveðjur til sr. Guðrúnar Eddu, barnanna og fjölskyldna þeirra. Ólafur Jóhannsson. Ég trúi á Guð. Svo hefst post- ullega trúarjátningin. Hún fjallar um þríeinan Guð sem uppsprettu, grunnþátt og mið allrar tilveru. Þrjá laugardagsmorgna haustið 1983 flutti dr. Einar Sigurbjörns- son sem ungur guðfræðiprófessor við Háskóla Íslands fræðsluerindi á vegum Hafnarfjarðarkirkju um þessa sígildu játningu. Varð það upphaf að misserislegum fræðslu- erindaröðum guðfræðikennara og málsmetandi guðfræðinga í safnað- arathvörfum kirkjunnar og að lykt- um í nýbyggðu safnaðarheimili hennar, Strandbergi. Einar sagði síðar að þessi fræðsluerindi hefðu orðið kveikjan að bók hans um kristna trúfræði, Credo, Ég trúi, og er eitt merkasta trúarrit sem gefið hefur verið út hér á landi enda nýst vel við fræðslu guðfræðinema og verið öðrum aðgengilegt. Einar var langt kominn í námi sínu við guð- fræðideild Háskólans er ég hóf þar nám. Karl bróðir hans var þar líka og þriðji bróðirinn Árni Bergur var mér samferða þangað. Þótt hver hefði sitt svipmót báru þeir allir vott um að vera synir merkra bisk- upshjóna og höfðu glöggan skilning á þýðingu kristni í íslenskri menn- ingu og sögu og ávöxtuðu síðar vel trúararfinn dýra með helgri prests- þjónustu sinni og fræðistörfum. Einar fjallar í doktorsritgerð sinni um þróun kirkjukenninga og prestsembættisskilning með tilliti til 2. Vatíkansþingsins, sem olli straumhvörfum í kaþólskri kirkju og víðar í kristni. Guðfræðiskrif Einars sýna djúpan skilning hans á rótum kristni, samhengi sögu hennar og þýðingu þess að byggja ávallt kristna boðun á kjarna og „kerygma“ trúarinnar, lífi, dauða og upprisu Jesú Krists og virkni andans helga. Þótt áherslur siðbót- arinnar væru túlkunarviðmið Ein- ars virti hann mikilvægi samkirkju- legs starfs til að auka traust á fagnaðarerindinu og léði því starfi lið innanlands og utan. Einar var hógvær og hlýr í fræðslu sinni og framgöngu en þó fastur fyrir, rök- fastur og greinargóður og vakti eft- irtekt og áhuga, glettinn oft og gamansamur. Hann var skipulagð- ur í vinnubrögðum og afkastamikill svo sem bækur hans og greinar á ýmsum tungumálum vitna um og lét víða um sig muna í guðfræði- legri umræðu og stefnumótun. „Embættisgjörð. Guðfræði þjón- ustunnar í sögu og samtíð“ var svið sem Einar gaf sig mjög að. Hann glæddi vitund um verðmæti helgi- siða og þörfina fyrir að tjá fagn- aðarerindið á ferskan hátt, svo gæfi von og lífsgleði og vísaði sem Ljós í heimi til fyrirheita um nýja sköpun og lífsfyllingu í Jesú nafni. Einar vitnaði oft í Passíusálma séra Hall- gríms. Þar kemur vel fram að með krossfórn sinni fer Frelsarinn inn í raunir, synd og dauða alls mann- kyns og sköpunar, léttir þær og leysir svo þær verða fæðingar- hríðir upprisu og nýs lífs „hið sú- rasta drakk hann sjálfur, sætari og minni en hálfur, skenktur er skerfur þinn.“ Þessi trúaropin- berun hefur reynst Einari líkt og sálmaskáldinu fyrrum styrkur í erfiðu lokastríði og hann hefur skynjað í lifandi trú að „þótt vor ytri maður hrörni þá endurnýjast dag frá degi vor innri maður“ sem fæðist og fylgir frelsaranum krossfesta og upprisna inn í ný- sköpun hans. Séra Guðrún Edda, ástrík eiginkona Einars, og börn þeirra, vinir og vandamenn hafa umlukt hann elsku sinni. Þríeinn Guð fagnaðarerindis Frelsarans, trúarjátninga og lofsöngva styrki þau og leiði og gefi góðan ávöxt af vitnisburði Einars og verkum um trúna sem sigrar og frelsar í Jesú nafni og mætti. Gunnþór Ingason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.