Morgunblaðið - 06.03.2019, Side 25
á. Blessuð sé minning Þórólfs
Friðgeirssonar.
Við sendum Kristínu og fjöl-
skyldu hennar innilegar samúðar-
kveðjur. Þau hafa mikið misst.
Guðrún, Einar og fjölskylda.
Elsku afi.
Lífið gefur og lífið tekur.
Söknuðurinn er mikill en minning-
arnar eru margar.
Þú sóttir mig í leikskólann. Þú
settir mig í bað með plastílátum úr
eldhúsinu. Þú leyfðir mér að taka
þátt í matargerð. Þú bakaðir rúg-
brauð, bananabrauð og vöfflur.
Við lékum okkur saman. Feluleik-
ur. Eltingaleikur. Fagur fagur
fiskur í sjónum. Þú tókst mig með
í kartöflugarðinn og stríddir mér
með móðurkartöflunni. Þú varst
stríðinn. Við tíndum orma útí
garði. Við tíndum bláber. Þú áttir
páskaunga sem flugu einn daginn í
burtu.
Ég sat milli framsætanna í bíln-
um þínum. Þú stilltir útvarpið
óþarflega hátt. Þú sóttir mig á
fimleikaæfingar. Þú hafðir ein-
kennilegt ökulag. Þú ýttir rösk-
lega á bensíngjöfina, slepptir
henni síðan þannig að bíllinn
hægði hratt á sér. Gafst svo aftur
í. Þú tókst mig í æfingaakstur. Þú
nuddaðir þreyttar iljarnar mínar
yfir sjónvarpsfréttunum. Þú
kenndir mér dönsku, íslensku og
stærðfræði. Ég fékk viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í stærð-
fræði. Þú ortir vísur til mín,
mannsins míns og barnanna
minna. Þú borðaðir ógeðslegan
mat. Sviðalappir, súra hrúts-
punga, dýrafitu og siginn fisk.
Ég gisti oft hjá ykkur ömmu.
Þegar ég var unglingur flutti ég í
Holtagerðið. Ég bjó hjá ykkur þar
til ég flutti að heiman og byrjaði
búskap með Hadda. Þú lagðir
þrautir fyrir Hadda áður en þú
samþykktir hann inn í fjölskyld-
una. Hann stóðst þau próf sem þú
lagðir fyrir hann og varð mikill
vinskapur ykkar á milli.
Þegar þið amma komuð frá
Súðavík þurfti mikið skipulag og
góðan mannafla til að koma öllum
matnum fyrir í Holtagerði. Margir
kartöflusekkir. Fleiri kíló af
þorski. Margar dollur af bláberj-
um, berjasaft og berjavín. Nokkr-
ir lambaskrokkar. Allt ræktað,
veitt eða verkað af ykkur. Þið
amma buðuð okkur stórfjölskyld-
unni í veislumat á sunnudögum.
Við ferðuðumst mikið saman
innanlands. Við ferðuðumst líka út
fyrir landsteinana. Við fórum til
Þýskalands, Bandaríkjanna og
Spánar. Við nutum okkar vel og
sérstaklega vel í þeim ferðum þar
sem stórfjölskyldan fór saman.
Þú varst kærleiksríkur og
umhyggjusamur. Þú hafðir góða
nærveru. Þú varst duglegur að
hrósa. Þú hafðir alltaf trú á að ég
myndi ná árangri. Afi minn var
besti afinn.
Þú hringdir oft í mig með
ákveðið erindi en þú hringdir oftar
í mig bara til þess að heyra. Þú
komst oft við heima í Húsalind. Þú
hringdir ekki á undan heldur
komstu bara í stutt stopp. Stund-
um vorum við ekki heima og þá
settir þú þjófavarnarkerfið af stað.
Tíminn líður hratt þegar það er
gaman og það var oft gaman hjá
okkur. Þið amma eltust og selduð
Holtagerðið og húsið á Súðavík og
keyptuð ykkur íbúð í Árskógum.
Það er gott að koma í Árskóga.
Afi og amma. Þið tvö hafið límt
okkur afkomendur saman til ævi-
loka. Við barnabörnin ykkar
tengjumst sterkum böndum líkt
og systkin og langafabörnin ykkar
þekkjast líkt og systkinabörn
þekkjast. Þannig er fjölskyldan
okkar. Hún er sterk, umhyggju-
söm og samheldin.
Elsku afi minn. Ég mun taka
gildin þín til fyrirmyndar. Ég mun
ávallt hafa fjölskylduna mína í
fyrsta sæti. Takk fyrir allt.
Kristín Lilja Jónsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
AÐALFUNDUR
Hollvinasamtaka Reykjalundar verður
haldinn í hátíðarsal Reykjalundar
laugardaginn 9. mars nk. kl. 13:30.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Erindi: Þróun meðferðarstarfs á Reykjalundi
Magnús Ólason, framkvæmdastjóri lækninga.
Á fundinum verður Reykjalundi afhent
hjartaómtæki af fullkomnustu gerð.
Hollvinir hvattir til að mæta
og nýjir félagar velkomnir.
Stjórnin
Tilkynningar
Auglýsing vegna úthlut-
unar byggðakvóta á
fiskveiðiárinu 2018/2019
sbr. reglugerð um úthlutun byggða-
kvóta til fiskiskipa nr. 685, 5. júlí 2018
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um
byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Fjarðabyggð (Stöðvarfjörður og
Breiðdalsvík)
Vesturbyggð ( Patreksfjörður,
Brjánslækur og Bíldudalur)
Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra
úthlutunarreglna í ofanskráðum
byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 218/2019 í
Stjórnartíðindum
ATH. Umsóknum skal skila í gegnum
rafræna umsóknargátt en vinnslusam-
ningum er skilað í tölvupósti á
byggðakvoti@fiskistofa.is á eyðu-
blöðum sem er að finna á heimasíðu
stofnunarinnar (fiskistofa.is), þar eru
ofangreindar reglur einnig aðgengi-
legar. Umsóknarfrestur er til og með
19. mars 2019
Fiskistofa, 5. mars 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-
11.30, allir velkomnir. Jóga með Grétu 60+ kl. 12.15 og 13.30. Söng-
stund kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bókaspjall með Hrafni kl. 15, gest-
ur dagsins er Guðmundur Andri Thorsson.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13
til 16. Stólaleikfimi m. Öldu Maríu íþróttafræðingi. Kíkt í blöðin, spilað
og spjallað. Kaffi og meðlæti á eftir í boði kirkjunnar. Allir velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl.
13-16. Öskudagsskemmtun kl. 14 - 17. Opið fyrir innipútt. Hádegismat-
ur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Ipadkennsla í matsal kl. 13, allir velkomnir. Handavinnustofa
opin frá kl. 9-15, leiðbeinendur í handavinnu mæta kl. 13.30, ýmislegt
í boði. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Myndlist með
Margréti Zophoníasd. kl. 9. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-
11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl.
14.30-15.15.
Bústaðakirkja Öskudagur. Félagsstarf hefst kl. 13 og við verðum
með hatta-þema, allir að mæta með skemmtilegan hatt, verðlaun fyrir
frumlegasta hattinn. Svavar Knútur kemur og syngur kl. 15. Kaffi að
hætti Sigurbjargar. Hlökkum til að sjá ykkur.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffisopi
og blöðin. Upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45-11.45. Línudans kl. 10-11.
Hádegismatur kl. 11.30. Tálgun með Valdóri Bóassyni kl. 13.30-16.
Síðdegiskaffi kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Botsía kl. 13.30.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13, postulínsmálun kl. 9-
12, tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10-11, bókband kl. 13-17, frjáls spila-
mennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30, Hattaball í dag á dans-
leik Vitatorgsbandsins kl. 14-15. Verið öll velkomin á Vitatorg, Lindar-
götu 59,sími 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í Jónshúsi
kl. 13. Leir í Smiðju Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn hópur, kl. 9.30 glerlist,
kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Samvera eldri borgara kl. 14-15.30. Helgistund, söng-
ur og fræðsla. Bingó er spilað fyrsta miðvikudag í mánuði. Kaffiveit-
ingar. Verið velkomin.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgar kl. 12. Helgistund í kirkjunni
og söngur. Síðan verður farið í safnaðar-heimilið og borðaðar kóti-
lettur, maturinn kostar 1500 kr. Níels Árni Lund formaður sóknar-
nefndar leiðir stundina og segir okkur frá einhverju skemmtilegu.
Hlökkum til að sjá ykkur, Níels Árni, Hrönn og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9, postulínsmálun / kvennabrids / silfursmíði
kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl.16, fyrir byrjendur kl. 17.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Botsía kl. 10–11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500 kr. skiptið,
allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Kl. 10 aðra hverja viku Bókmennta klúbbur, kl. 11 línudans,
kl. 13 bingó, kl. 13 handverk, kl. 16 Gaflarakórinn.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga Kaplakrika, kl. 10 Bókmenntaklúbbur aðra
hverja viku, kl. 11 línudans, kl. 13 bingó, kl. 13 handverk, kl. 16 Gafl-
arakórinn, kl. 9- 12 Fjölstofan Hjallabraut, kl. 10-11.30 pútt Hraunkoti.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Glerlistanámskeið kl. 9 í Borgum, stjórnarfundur kl. 9 og
stjórnar og nefndarfundur kl. 10 í Borgum, gönguhópur kl. 10, keila kl.
10 í Egilshöll gaman saman kl. 13 og kvikmyndasýning kl. 13, qigong
með Þóru kl. 16.30 í Borgum.
Langholtskirkja Samvera eldri borgara á miðvikudögum í Lang-
holtskirkju og safnaðarheimili. Samveran hefst í kirkjunni kl. 12.10
með stuttri helgistund, að henni lokinni er snæddur hádegisverður
gegn vægu gjaldi. Stutt söngstund að hádegsverði loknum því næst
er spilað, brids og vist og spjallað fram að miðdegskaffi. Velkomin.
Neskirkja Karl Sigurbjörnsson, biskup: Jerúsalem, ferðasaga.
Kaffiveitingar og söngur.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl. 16.
Seltjarnarnes Ath. engin glerbræðsla í dag. Leir Skólabraut kl. 9.
Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 12. Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skóla-
braut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Til þeirra sem
skráðir eru á skemmtikvöldið í kvöld þá hefst það kl. 17.30 í salnum á
Skólabraut. Ath. félagsvist í salnum á morgun kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt-
ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomn-
ir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4,
kl. 10, kaffi og rúnsntykki eftir göngu. Söngfélag FEB kóræfing kl.
16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Kristniboðsvika. Samkoma
kl. 20 í Kristniboðssalnum. Fjöl-
breytt dagskrá. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Fatnaður
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Eco Ra - Stærðir M-XXL.
Svart og hvítt. Verð 1.790 kr.
Promessa - Stærðir M - XXL
Svart og hvítt. Verð 2.650 kr.
Tahoo Maxi - Stærðir S-3XL
Svart, hvítt og húðlitt.
Verð 1.790 kr.
Gabe - Stærðir M-XXL
Svart og hvítt. Verð 2.650 kr.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér
ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Jessenius Faculty of Medicine,
Martin Slóvakiu
heldur inntökupróf í MK Kópavogi 3
apríl og 3 júní. Í MA Akureyri 4 april.
www.jfmed.uniba.sk/en
Frekari upplýsingar
kaldasel@islandia.is og 8201071
Ýmislegt
fasteignir
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Fleiri minningargreinar
um Þórólf Friðgeirsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.