Morgunblaðið - 06.03.2019, Qupperneq 31
Mannshjartað –
þessi blíða vél.
Ástin ræsir hana,
missirinn drepur á henni.
Hvað kemur henni
aftur af stað?
Ljóðið, ljóðið?
Í þessu ljóði skáldsins Gregory
Orr (1947-) birtist vel sú fallega trú á
mátt ljóðsins sem einkennir verk
margra þeirra bandarísku skálda
sem kynnt eru og
þýdd í þessu at-
hyglisverða og
vandaða úrvali.
Fjallað er um öll
skáldin í hnitmið-
uðum en upplýs-
andi texta sem
birtist á undan
ljóðum hvers og
eins; Orr er þann-
ig sagður afkastamikið ljóðskáld og
höfundur ritgerðasafna, bókmennta-
gagnrýni og endurminningarbókar
en umfjöllunarefni hennar er ekki
síst „sá vofveiflegi atburður er Orr
varð bróður sínum að bana með
slysaskoti einungis 12 ára gamall“.
Þá segir að úr „bróðurmissinum og
öðrum harmrænum atvikum ævi
sinnar hefur Orr tekist að skapa
ljóðlist sem býr yfir miklum heil-
unarmætti“ – og það má sjá í þeim
dæmum úr verkum hans sem Magn-
ús hefur þýtt, eins og því hér að
framan.
Magnús er eitt fremsta ljóðskáld
sinnar kynslóðar en hefur líka vakið
verðskuldaða athygli fyrir útgefnar
ljóðaþýðingar sínar, með verkum
svo ólíkra skálda sem Ezra Pound,
Tor Ulven og Adelaide Crapsey. Og
hér kynnir hann fyrir lesendum for-
vitnilegan hóp bandarískra skálda
sem hafa verið áberandi með sínum
hætti í bókmenntalífinu vestanhafs
undanfarna hálfa öld; elsta skáldið
fætt árið 1903, það yngsta 1984, og
hafa mörg þeirra fallið frá nú á síð-
ustu árum. Magnús ritar ekki for-
mála að safninu, útskýrir því ekki
valið eða reynir að spyrða skáldin
saman, heldur lætur hann hnitmið-
aðan innganginn nægja um hvert og
eitt skáld. Þetta er líka fjölbreyti-
legur hópur og skáldin ólík, til að
mynda hvað bakgrunn varðar.
Nokkur eru þannig af ættum frum-
byggja og fjalla í verkum sínum um
þann bakgrunn og menningu for-
feðranna. Linda Hogan (1947-) er
ein þeirra og yrkir fallega um sam-
band manns og náttúru; Elizabeth
Cook-Lynn (1930-) er af Dakota-
þjóðinni og í verkum hennar birtist
falleg náttúrutenging en einnig sorg
yfir grimmilegri meðferðinni á for-
feðrunum og menningu þeirra, rétt
eins og sjá má hjá Lance Henson
(1944-) sem lýst er sem „mikil-
verðasta ljóðskáldi Cheyenne-
þjóðarinnar sem nú lifir.“ Hann yrk-
ir til að mynda þannig um minningar
um voðaverk hvíta mannsins:
upplitaðir þræðisspottar af rauðu
teppi
á gaddavírsgirðingu nærri sand
creek
þeir blakta í sléttuvindinum
í hundraðþrjátíuogtvö ár
muna
Dæmin sem birt eru um skáld-
skap bandarískra blökkumanna síð-
ustu áratugi eru ekki síður áhuga-
verð en þeim er, eins og til dæmis
Lucille Clifton (1936-2010), „alda-
löng kúgun þeldökkra í Bandaríkj-
unum hugstæð“. Annar blökkumað-
ur, hinn sjóndapri Robert Hayden
(1913-1980), varð fyrsta þeldökka
skáldið sem gegndi stöðu ráðgjafa í
ljóðlist við bókasafn Bandaríkja-
þings en meðal ljóða hans í þessu
safni er hið áhrifamikla „Vatnaliljur
Monets“ þar sem ljóðmælandinn
skoðar og leitar skjóls í ægifögru
málverki franska málarans þegar
hryllilegar fréttir af morðum og
átökum berast sunnan frá Miss-
issippi og frá Víetnam. Það hefst
svona: „Í dag, um leið og fregnirnar
frá Selma og Saigon / eitra loftið eins
og ofanfall, / kem ég aftur til að virða
fyrir mér / þessa kyrrlátu, stór-
fenglegu mynd / sem er mér svo
kær.“ Amiri Baraka (1934-2014) var
hins vegar framarlega í baráttu
frelsishreyfingar þeldökkra og það
er ágengur baráttutónn í verkum
hans, eins og í „Menning“:
evrópskir gyðingar
segja að
djöfullinn tali
lýtalausa þýsku
svartir
bandaríkjamenn á
hinn bóginn
segja, hann talar
býsna góða
ensku líka
Í þessu úrvali ljóða má eðlilega
sjá ákveðinn enduróm af skáldskap
Magnúsar sjálfs. Hann velur gjarn-
an styttri ljóð og hnitmiðuð, þar
sem náttúran, hugleiðingar um
mannlegt eðli og skáldskapinn eru
áberandi og valið er mjög vel lukk-
að. Enda er Að lesa ský bók full af
hrífandi ljóðlist; þótt skáldin séu
mörg ólík þá er safnið afar þétt og
heildstætt. Magnús á hrós skilið
fyrir vandaða og lifandi þýðinguna
á verkunum, áhugavert valið og
upplýsandi skrif um skáldin. Eðli-
lega virka ljóð þeirra misvel á
hvern lesanda en benda má á leik-
andi en um leið þroskaðar „ljóða-
sendingar“ Jim Harrison (1937-
2016) og Ted Kosser (1939-) í anda
austurlenskra skálda. Dæmi:
Sú martröð sem við vöknum
feginsamlega upp af,
er líf einhvers annars.
Knöpp myndvísi og húmor Lorine
Niedecker (1903-1970) er hrífandi og
samspil hversdagsleika og nátt-
úruskynjunar í ljóðum Charles
Wright (1935-) mjög athyglisvert.
Og bókinni góðu lýkur með hnitmið-
uðu átta ljóða úrvali Mary Oliver
(1935-2019) sem er nýlátin, orti ein-
staklega fallega um samband manns
og náttúru, og var eftirlæti margra
ljóðaunnenda. Svona er ljóðið „Þeg-
ar“:
Þegar því er lokið, er því lokið, og
ekkert okkar
veit hvað gerist þá.
Svo ég reyni að missa ekki af neinu.
Ég held að ég hafi aldrei, alla mína tíð,
misst af
fullu tungli
eða ilskó nýs tungls.
Eða kossi.
Já, sérstaklega aldrei af kossi.
Ljóð
Að lesa ský – Ljóð frá Bandaríkjum
Norður-Ameríku bbbbm
Magnús Sigurðsson þýddi úrval ljóða
eftir 19 bandarísk skáld, öll fædd á 20.
öld: Naomi Shihab Nye, Charles Wright,
Gregory Orr, Jim Harrison & Ted Kooser,
Chana Bloch, Mark Strand, Lydia Davis,
Matt Rasmussen, Lorine Niedecker, Cid
Corman, Lucille Clifton, Elizabeth Cook-
Lynn, Lance Henson, Robert Hayden,
Amiri Baraka, Linda Hogan, Li-Young
Lee og Mary Oliver.
Dimma, 2018. Kilja, 210 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Martröðin sem við vöknum
af er líf einhvers annars
Magnús
Sigurðsson
Amiri
Baraka
Gregory
Orr
Lance
Henson
Mary
Oliver
Loríne
Niedecker
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019
Hljómsveit bassaleikarans og tónskáldsins Arnold
Ludvig kemur fram í Jazzklúbbnum Múlanum í
kvöld, miðvikudag. Að vanda er klúbburinn starf-
ræktur á Björtuloftum á fimmtu hæð Hörpu og hefj-
ast leikar kl. 21.
Kvintett Arnolds var stofnaður í Reykjavík árið
2017 og er skipaður tónlistarmönnum frá Íslandi og
Færeyjum. Kvintettinn mun leika blandaða dagskrá
verka eftir Arnold af plötum hans, Voyages og Ice-
land. Í tilkynningu frá Múlanum er tónlistinni lýst
sem „nútíma melódískum norrænum jazzi þar sem
ýmissa áhrifa gætir, latin og fusion.“ Hljómsveitina
skipa auk Arnolds landskunnir tónlistarmenn; Sig-
urður Flosason og Jóel Pálsson á saxófóna, Kjartan
Valdemarsson á píanó og trommuleikarinn Einar
Scheving.
Nú stendur yfir sautjánda starfsár Múlans og í
tónleikaröð vorsins eru jafnframt sautján tónleikar.
Er dagskráin sögð „bæði metnaðarfull og fjöl-
breytt“ og vera „gott dæmi um þá miklu grósku
Hljómsveit Arnolds Ludvig leikur á Múlanum í kvöld
Kvintett Hljómsveit Arnolds Ludvig skipa þeir Kjartan Valdemars-
son, Jóel Pálsson, Einar Scheving, Sigurður Flosason og Arnold.
sem einkennir íslenskt jazzlíf þar sem allir straum-
ar og stefnur eiga heima“. Múlinn er samstarfsverk-
efni Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og
Jazzvakningar.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn
Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 Auka
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 Auka
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn
Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fim 7/3 kl. 18:00 Auka Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn
Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 7/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 19:30 Fös 15/3 kl. 19:30
Fös 8/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 22:00 Fös 15/3 kl. 22:00
Fös 8/3 kl. 22:00 Fim 14/3 kl. 21:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/3 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Sun 10/3 kl. 20:00 49. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s
Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Fim 14/3 kl. 20:00 51. s
Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Fös 15/3 kl. 20:00 43. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fim 7/3 kl. 20:00 3. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!