Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 7

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is Ársfundur 2019 1. Fundur settur 2. Skýrsla stjórnar 3. Gerð grein fyrir ársreikningi 4. Tryggingafræðileg úttekt 5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt 6. Önnur mál Ársfundur SL lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 8. apríl 2019 kl. 16.30, að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík. Allir sjóðfélagar, jafnt greiðandi sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. DAGSKRÁ Reykjavík 19. 03. 2019 Stjórn SL lífeyrissjóðs „Ljóst er að fjölgun skipa kallar á meiri meðvit- und um áhættuna. Það snýr ekki aðeins að höfn- unum heldur viðbragðsaðilum; almannavörnum og Landhelgisgæslunni,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Skemmtiferðaskipum sem koma til landsins hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og far- ið stækkandi. Fyrir fjórum árum komu 108 skip til Reykjavíkur en í ár er von á 200 skipum með um 190 þúsund farþega. Útgerð skemmtiferða- skipsins Viking Sky, sem varð fyrir óhappi við Noregsstrendur, hafði boðað komu skipsins til Reykjavíkur 7. júní og aftur 12. ágúst. Gísli segir ekki vitað hvort skipið kemur. Spurður um viðbúnað, ef slíkt óhapp gerðist við Íslandsstrendur, segir Gísli að til sé við- bragðsáætlun sem gefin var út 2016 um sjóslys þar sem farþegaskip eigi í hlut við hafnir höfuð- borgarsvæðisins. Segir að hún standi fyrir sínu og hafi verið æfð. Þá sé til stórslysaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið. Flest skipin koma einnig við á öðrum höfnum, meðal annars Akureyri. Segist Gísli hafa bent á að gera þurfi viðbragðs- áætlun fyrir hafnirnar. Faxaflóahafnir eru að undirbúa smíði nýs dráttarbáts með 80 tonna togkraft og verður- hann tvöfalt öflugri en Magni. Þá er nýlegur dráttarbátur í Akureyrarhöfn. Gísli segir að þessi tæki nýtist fyrst og fremst í nágrenni hafn- anna. Hann bendir á að ýmis óhöpp geti orðið úti á rúmsjó, utan við lögsögu Faxaflóahafna, og tek- ur undir með Auðuni F. Kristinssyni, verkefna- stjóra hjá Landhelgisgæslunni, að íslensk stjórn- völd séu ekki eins vel í stakk búin til að glíma við stór áföll og stjórnvöld annars staðar og hér þurfi sterkari innviði. „Þá skiptir mestu máli að viðbragðsáætlanir séu raunhæfar og viðkomandi aðilar meðvitaðir um hættuna og hvað þurfi til að glíma við slíkt ástand,“ segir Gísli. helgi@mbl.is Kallar á meiri meðvitund um hættuna Farþegaskip Viking Sky nálgast höfn eftir hrakninga. Nærri 1.400 manns var um borð. AFP  Fjöldi skemmtiferðaskipta sem hingað kemur hefur tvöfaldast á fáum árum og skipin stækkað Þyrlusveit Land- helgisgæslu Ís- lands æfði í gær með ítölskum orrustuþotum sem staddar eru hér á landi í tengslum við loftrýmisgæslu Atlantshafs- bandalagsins (NATO). Var það gæsluþyrlan TF-LIF sem tók þátt í æfingunni, en ítölsku þoturnar, sem eru alls fjórar talsins, eru af gerð- inni Eurofighter Typhoon EF-2000. Landhelgisgæslan hefur m.a. það hlutverk að fara með leit og björg- un komi eitthvað upp á hjá hjá liðs- mönnum loftrýmisgæslunnar og æfir þyrlusveitin því reglulega með liðsmönnum NATO. LHG æfði með loft- rýmisgæslu Atlants- hafsbandalagsins Gæslan Þyrla tók þátt í æfingunni. „Hvergi annars staðar í heiminum er vöktun náttúruvár jafn samþætt og hér á landi,“ sagði Ingvar Krist- insson, framkvæmdastjóri Eftirlits- og spásviðs Veðurstofu Íslands, á ársfundi Veðurstofunnar í gær. Veðurstofan sinnir yfirgrips- miklu eftirlitshlutverki og vaktar náið náttúruöfl landsins. Sífellt bætast við nýir staðir sem þarf að fylgjast með meðal annars með til- liti til snjóflóðahættu vegna breyt- inga á byggðamynstri. Skriður hafa verið að aukast og kallað á aukna vöktun Veðurstofunnar. Á síðustu árum hefur upplýsinga- miðlun verið efld sem miðar að því að ná betur til viðbragðsaðila og al- mennings. Á hverjum degi eru haldnir samráðsfundir þar sem náttúruvársérfræðingar, veður- fræðingar og ofanflóðasérfræð- ingar taka stöðuna og ef ástæða þykir eru fleiri kallaðir að borðinu eins og fulltrúar almannavarna, Isavia, Vegagerðarinnar og fleiri sem hafa hagsmuna að gæta á hverjum tíma. Á þeim fundum er tekin ákvörðun um hvernig eigi að bregðast við aðstæðum næsta sólar- hringinn ef til dæmis veður eru vá- lynd. „Þetta hefur reynst vel og hefur hjálpað okkur að stilla saman strengi. Það er einstakt að hægt sé að kalla alla saman að borðinu og eiga í nánu samstarfi við almanna- varnir. Þetta reynist gjarnan erfitt í mörgum stærri löndum,“ sagði Ingvar. Nánar er fjallað um þetta á mbl.is. Vöktun náttúruvár hvergi eins samþætt Morgunblaðið/Árni Sæberg Eldgos Gosið í Holuhrauni árið 2014.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.